Morgunblaðið - 25.11.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 321. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
INN Í KJARNANN
TILBÚINN TIL AÐ SKRIFA UM ÁSTINA,
GRUNDVÖLLINN Í LÍFI ALLRA >> LESBÓK
ÖNNUR ELLA
ELLA & GARMURINN
KETILL KALLA Á EYJÓLF
MERGUR MÁLSINS >> 62
Arnbjörgu í
1. sætið
www.arnbjorgsveins.is
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í dag
Kraftur og reynsla til forystu!
Kosningakaffi á kosningamiðstöðvunum kl. 09-18 í dag
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ÍSLENDINGAR og Norðmenn
ætla að hefja formlegar viðræður
um eftirlit á norðurhöfum og fram-
tíðarsamstarf á vettvangi varnar-
og öryggismála. Þetta var ákveðið
á óformlegum fundi sem Geir H.
Haarde forsætisráðherra og Jens
Stoltenberg, forsætisráðherra
Noregs, áttu í Helsinki í Finnlandi
í gær. Fundur ráðherranna fór
fram í tengslum við leiðtogafund
Norðlægu víddarinnar sem fram
fór í borginni.
„Við ákváðum í þessu samtali
okkar að löndin myndu hefja form-
legar viðræður um eftirlit á norð-
urhöfum og framtíðarsamstarf á
vettvangi varnar- og öryggismála,“
segir Geir H. Haarde en gert er
ráð fyrir að viðræðurnar hefjist
fyrir jól. „Fyrsti fundurinn verður í
Ósló og utanríkisráðuneyti [land-
anna] munu hafa veg og vanda af
undirbúningi fundanna. Ég geri
ráð fyrir því að til viðbótar utanrík-
isráðuneytinu verði af okkar hálfu
einnig fulltrúar frá forsætis- og
dómsmálaráðuneytinu vegna
Landhelgisgæslunnar,“ segir Geir.
Enn eigi þó eftir að ræða þessi mál
betur í ríkisstjórn.
Málið af spjallstigi yfir
í formlegar viðræður
„Ég tel að þetta sé mjög mik-
ilvægt að koma þessu máli af
óformlegu spjallstigi yfir í formleg-
ar viðræður. Við vorum sammála
um það,“ segir Geir um viðræður
þeirra Stoltenbergs. „Það er mik-
ilvægt að ganga frá því með hvaða
hætti Norðmenn munu koma hér
að okkar öryggismálum og eftirliti
í norðurhöfum og tryggja með því
siglingar og öryggi, ekki síst á
þeirra eigin gasi frá Barentshafi og
vestur til Bandaríkjanna.“
Þá sé nauðsynlegt að fá það fram
hvort Norðmenn geti hugsað sér
að senda herflugvélar sínar til æf-
inga á Íslandi „sem ég teldi mik-
ilvægt“, segir Geir.
Geir segir ekki hægt að segja til
um hversu langan tíma viðræðurn-
ar muni taka. „Það er aðalatriðið
að koma þeim í gang og fá fram
hvað aðilar geta hugsað sér.“
Viðræður við Norðmenn
munu hefjast fyrir jól
Í HNOTSKURN
»Íslendingar og Norð-menn hafa ákveðið að
hefja formlegar viðræður
um samstarf á sviði varnar-
og öryggismála.
»Ákvörðunin kemur íkjölfar þess að norsk
stjórnvöld lýstu yfir áhuga á
slíku samráði.
» Öryggi á siglingaleiðumá hafsvæðinu umhverfis
Ísland er ofarlega á baugi nú
um stundir ekki síst í ljósi
þess að umferð stórra skipa
á Norður-Atlantshafi mun
aukast verulega á næstu ár-
um.
VINNA við skautasvell á Ingólfs-
torgi hófst í gær en það verður
opnað almenningi 7. desember
nk. í tilefni af 50 ára afmæli
Tryggingamiðstöðvarinnar sem
hefur veg og vanda af uppsetn-
ingu svellsins, ásamt Reykjavík-
urborg. Jólatónlist mun hljóma á
torginu auk þess sem reglulega
verður boðið upp á tónlistaratriði
í þann tæpa mánuð sem svellið
verður opið.
Björn Ingi Hrafnsson, formað-
ur borgarráðs, segir jafnvel koma
til greina að halda svellinu opnu
lengur ef vel til tekst og einnig
gæti farið svo að skautasvell á
Ingólfstorgi yrði þar árlega yfir
vetrarmánuðina, en fjölmargar
áskoranir þess efnis hafa borist
frá borgarbúum. Morgunblaðið/Sverrir
Skauta-
svell á Ing-
ólfstorgi
Buenos Aires. AP. | Markmiðið er að koma
boltanum í markið með fótunum og Bras-
ilíumenn og Argentínumenn taka öðrum
þjóðum fram. Munurinn á hefðbundinni
knattspyrnu og knattspyrnu blindra er
einkum sá að það klingir í málmhlutum
þegar boltanum er sparkað í átt að mark-
inu, þar sem annar leikmaðurinn af tíu
með sjón – þ.e. markmaðurinn í hvoru liði
sem hefur fjóra útileikmenn – stendur ein-
beittur á milli stanganna.
Þannig myndi eflaust hlutlaus frásögn
af heimsmeistaramóti blindra í knatt-
spyrnu, sem fram fer í Buenos Aires um
þessar mundir, hljóma. Það eru þó eitt at-
riði enn sem skilur hana frá stærsta
íþróttaviðburði heims. Áhorfendur verða
að hafa grafarþögn meðan á leik stendur,
svo að þjálfarinn geti komið boðum til
sinna manna. Brasilíumenn skelltu Frökk-
um 4-1 í opnunarleiknum sem þótti leikinn
af nokkurri hörku, en um er að ræða
fjórða heimsmeistarmótið af þessu tagi.
AP
Snillingar Brasilíumennirnir Jefferson og
Daniao fagna öruggum sigri á Frökkum.
HM blindra í
knattspyrnu
London. AFP. | Breska ríkisstjórnin hefur
beðið stjórnvöld í Moskvu um upplýsingar
sem gætu nýst lögreglunni við rannsókn á
dauða njósnarans fyrrverandi, Alexanders
Lítvínenkos, sem lést af völdum eitrunar á
háskólasjúkrahúsi í London á fimmtudag.
Þetta kom fram í yfirlýsingu frá breska
utanríkisráðuneytinu í gær, en leynilega
breska COBRA-nefndin hefur komið sam-
an til að ræða dauða Lítvínenkos.
Lítvínenko | 20
Bretar vilja aðstoð
yfirvalda í Moskvu
Kaíró. AP. | Hópur íslamskra fræði-
manna hefur lýst því yfir að umskurð-
ur kvenna gangi gegn boðum íslams
og sé að auki árás á konur. Fræði-
mennirnir, sem komu saman á ráð-
stefnu í Kaíró, leggja því til að um-
skurður verði bannaður og þeir verði
sóttir til saka sem stunda hann.
Þessi ályktun var samþykkt fyrir
helgi á sérstakri ráðstefnu sem þýsku
mannréttindasamtökin TARGET
skipulögðu. Meðal þátttakenda voru
Mohammed Sayed Tantawi, einn
helsti kennimaður súnníta, og Sjeik
Ali Gomaa, einn virtasti sérfræðing-
urinn um íslam í heiminum í dag.
Úrskurður þeirra beggja er sagður
bindandi.
Umskurður, sem sumir telja rétt-
ara að nefna afskurð, er stundaður í
mörgum ríkjum sunnan Sahara-eyði-
merkurinnar í Afríku og í Egypta-
landi, Jemen og Óman, þrátt fyrir
mikinn þrýsting gegn aðgerðinni.
Í umsögn fræðimannanna sagði að
aðgerðin ylli konum líkamlegum og
andlegum skaða, enda af mörgum tal-
in fela í sér misþyrmingu.
Áhrifamiklir fræðimenn segja aðgerðina brjóta gegn íslam
Reuters
Umdeilt Margir telja umskurð
jafngilda misþyrmingu á konum.
Vilja banna umskurð