Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 40/50
Staksteinar 8 Minningar 50/55
Veður 8 Kirkjustarf 56/57
Viðskipti 16 Af listum 63
Erlent 18/19 Leikhús 66
Menning 24, 62/68 Myndasögur 68
Akureyri 26 Dagbók 69/73
Landið 26 Staður og stund 70
Suðurnes 28 Víkverji 72
Árborg 28 Velvakandi 72
Daglegt líf 30/37 Bíó 58/61
Forystugrein 38 Ljósvakamiðlar 62
* * *
Innlent
Íslensk og norsk stjórnvöld hafa
ákveðið að hefja formlegar viðræður
um eftirlit á norðurhöfum og fram-
tíðarsamstarf á vettvangi varnar- og
öryggismála. Þetta var ákveðið á
fundi Geirs H. Haarde forsætisráð-
herra og Jens Stoltenbergs, forsæt-
isráðherra Noregs, í gær. » Forsíða
Forseti Alþýðusambands Íslands
sakar ríkisstjórnarflokkana um van-
efndir á loforði um hækkun vaxta-
bóta. Hækkun eignaviðmiðs vegna
bótanna úr 25%–30% sem meirihluti
efnahags- og viðskiptanefndar leggi
til gangi of skammt, sé bitamunur en
ekki fjár. » 6
Virðisaukaskattur af áfengi verð-
ur lækkaður niður í 7% 1. mars nk.
samkvæmt frumvarpi fjár-
málaráðherra um lækkun virð-
isaukaskatts af matvælum og fleira.
Á móti kemur að áfengisgjaldið
hækkar og því mun skattalækkunin
ekki leiða til lægra áfengisverðs.
Tekjur ríkisins af sölu áfengis munu
heldur ekki minnka. Hin breytta
álagning mun á hinn bóginn leiða til
þess að dýrari vín lækka í verði en
ódýrari vín sömu tegundar hækka.
» Baksíða
Erlent
Líkur benda til þess, að fyrrver-
andi liðsmaður rússnesku leyniþjón-
ustunnar, Alexander Lítvínenko,
hafi verið myrtur með geislavirku
efni, pólon-210, að sögn breskra yf-
irvalda í gær. Pólon-210 er geisla-
virkt efni sem finnst í náttúrunni.
Það gefur frá sér alfageisla, sem eru
mjög skammdrægir. » 20
Stjórnmálahreyfing róttæka
sjíta-klerksins Moqtada al-Sadr hót-
aði í gær að ganga úr ríkisstjórn
Íraks, ef Nuri al-Maliki forsætisráð-
herra hitti George W. Bush Banda-
ríkjaforseta í næstu viku. » 18
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
STJÓRN Landssambands sjálf-
stæðiskvenna óttast að framboð
Árna Johnsen í Suðurkjördæmi
dragi úr fylgi Sjálfstæðisflokksins á
landsvísu í þingkosningunum í vor.
Stjórnin hefur því sent forystumönn-
um flokksins bréf, þar sem þess er
óskað að „þetta mál verði skoðað“,
eins og Ásta Möller, þingmaður og
formaður Landssambands sjálf-
stæðiskvenna, orðar það. Árni John-
sen kvaðst ekki vilja tjá sig um þetta
erindi stjórnarinnar, þegar eftir því
var leitað í gær.
Ásta segir að stjórn Landssam-
bands sjálfstæðiskvenna hafi hist í
fyrradag, þar sem tekið var undir yf-
irlýsingu Sambands ungra sjálf-
stæðismanna, um málefni Árna. Í
henni gerði SUS þá kröfu til Árna,
sem hugsanlegs þingmanns, að sýna
auðmýkt er hann ræddi um þau brot
sem hann var sakfelldur fyrir í starfi
sínu sem þingmaður. Háttsemin,
sem hann hefði verið dæmdur fyrir,
hefði ekki verið „tæknileg mistök“
eins og Árni héldi fram.
Ásta segir að stjórnin hafi ákveðið
að senda formanni flokksins, vara-
formanni og efsta manni á lista sjálf-
stæðismanna í Suðurkjördæmi bréf
þar sem tekið er undir sjónarmið
SUS. Í bréfinu er jafnframt bent á að
Landssambandinu beri skylda til að
stuðla að bættum hlut kvenna í
stjórnmálum. Konur séu í baráttu-
sætum fyrir flokkinn víða um land og
framboð Árna geti dregið úr mögu-
leikum þeirra til að komast á þing.
Ásta segir að ummæli Árna um
„tæknileg mistök“ hafi farið fyrir
brjóstið á mörgum og í kjölfarið hafi
borið á úrsögnum úr flokknum. „Við
viljum því að forystan skoði þetta
mál út frá þeim sjónarmiðum sem
við kynnum í bréfinu.“
Óttast áhrif framboðs
Árna á fylgi flokksins
Sjálfstæðiskonur vilja að flokksforystan „skoði málið“
Í HNOTSKURN
»Stjórn Landssambandssjálfstæðiskvenna óttast
að framboð Árna Johnsen hafi
áhrif á fylgi flokksins á lands-
vísu.
»Þar með hafi framboðhans áhrif á gengi kvenna
sem skipa baráttusæti.
»Stjórnin vill því að forystaflokksins „skoði málið“
með þetta í huga.
KRAKKARNIR á leikskólanum Fálkaborg voru hinir
hressustu í gær þegar þau renndu sér á snjóþotum nið-
ur brekkuna á leikskólalóðinni. Brekkan sú er raunar
ekki ýkja brött og ekki er heldur hægt að segja að hún
hafi verið sérlega snjóþung. Þessir annmarkar eru allir
augljósir fullorðnu fólki en þeir höfðu afskaplega tak-
mörkuð áhrif á snjóþotukappana á Fálkaborg. Það er
líka óneitanlega einn afar góður kostur sem litlar
brekkur hafa fram yfir þær stóru; maður er fljótari að
komast upp á topp aftur.
Morgunblaðið/Ásdís
Brekkan er ekki brött en dugar
SVAFA Grönfeldt hefur verið ráðin
rektor Háskólans í Reykjavík. Þetta
var tilkynnt á blaðamannafundi í
gær. Svafa er aðstoðarforstjóri
Actavis en hún mun taka við starfi
rektors 1. febrúar nk. þegar Guðfinna
S. Bjarnadóttir lætur af störfum.
Svafa sagði að ákvörðunin um að
taka við starfinu hefði í senn verið
mjög erfið og mjög auðveld. „Það
koma alltaf nýjar áherslur með nýju
fólki. Hins vegar hefur þessum skóla
verið stýrt mjög fagmannlega frá
upphafi og hér eru deildir með ákveð-
ið sjálfstæði og akademískt frelsi. Ég
kem fyrst og fremst inn til þess að
læra, skoða og sjá, en svo er kannski
hægt að nota eitthvað af minni
reynslu til þess að marka ný spor,“
sagði hún. Ný
bygging skólans í
Vatnsmýri og sú
alþjóðlega teng-
ing sem skólinn
hefur sett á odd-
inn væru helstu
verkefnin sem
framundan eru.
„Það er líklega
þar sem mín
reynsla mun nýt-
ast hvað best,“ sagði Svafa í gær.
Einróma ákvörðun
Bjarni Ármannsson, formaður há-
skólaráðs HR, sagði það hafa verið
einróma ákvörðun ráðsins að leita til
Svöfu og háskólaráð væri mjög stolt
af því að fá hana til starfsins. Þá
þakkaði Bjarni fráfarandi rektor fyr-
ir vel unnin störf.
Svafa er doktor í vinnumarkaðs-
fræði og stjórnun frá London School
of Economics. Hún lauk meistara-
námi í stjórnunar- og boðskiptafræð-
um frá Florida Institute of Techno-
logy og er stjórnmálafræðingur frá
Háskóla Íslands. Svafa hefur verið
lektor við viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands frá 1997 og starfaði
um tíma sem lektor við viðskiptadeild
HR. Svafa var framkvæmdastjóri
Gallup (nú Capacent) í níu ár. Árið
2005 var hún ráðin sem aðstoðarfor-
stjóri Actavis en hún hóf störf sem
framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs
fyrirtækisins árið 2004.
Svafa Grönfeldt tekur
við sem rektor HR
Svafa Grönfeldt,
nýr rektor HR.
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir for-
varnablaðið Slökkviliðsmaðurinn frá
Landssambandi slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna.