Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Í HNOTSKURN
» 1999 Björgólfur kaupirBalkanpharma í Búlgaríu
við einkavæðingu.
» 2000 Balkanpharma renn-ur saman við Pharmaco.
» 2002 Björgólfur og við-skiptafélagr selja Bravo-
bruggverksmiðjuna til Hein-
eken og kaupa ráðandi hlut í
Landsbankanum.
» 2003 Eignast hlut í Burð-arási og CRa í Tékklandi
» 2004 Kaupir hlut í BTC íBulgaríu við einkavæð-
ingu. Stofnar Novator. Kaupir
hlut í Saunalahti í Finnlandi
sem sameinast Elisa.
» 2005 Burðarás og Straum-ur sameinast. Eignast hlut
í El Bank í Búlgaríu.
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
CESKE Radiokomunicace (CRa)
tékkneska símafyrirtækið sem
Björgólfur Thor Björgólfsson seldi
nú í vikunni, var ekki nema hluti af
eignum fjárfestingafélags Björgólfs,
Novators, í símafyrirtækjum í Mið-
Evrópu. Novator er í dag leiðandi
fjárfestir í símafyrirtækjum í Pól-
landi, Búlgaríu, Grikklandi og Finn-
landi, en í vikunni var hins vegar leitt
líkum að því í erlendum fjölmiðlum
að frekari sala á símafélögum Nova-
tors kunni að vera í farvatninu.
Þetta er í fyrsta sinn sem félög
Björgólfs innleysa verulegan sölu-
hagnað af fjárfestingum sínum í
símafyrirtækjum, en áætla má að
hagnaður hans nemi 56 milljörðum
króna. Um miðbik ársins 2004 bætir
Björgólfur og fjárfestar honum
tengdir verulega við hlut sinn í CRa,
um haustið gera þeir yfirtökutilboð
til annarra hluthafa og undir lok árs-
ins var félagið svo afskráð af aðal-
lista kauphallarinnar í Prag.
Hækkar meira en markaðurinn
Greining Landsbankans segir í
Vegvísi í gær að markaðsvirði bréf-
anna í kringum afskráninguna hafi
þá verið um 40 milljarðar króna mið-
að við hæsta verð. Reiknar deildin
með að kaupverðið kunni að hafa
verið eitthvað hærra þar sem ekki sé
óalgengt að fjárfestar borgi hærra
verð en gangverð á markaði þegar
um yfirtöku sé að ræða. Gera má því
ráð fyrir því að verðmæti félagsins
hafi rúmlega tvöfaldast á þeim
tveimur árum sem Björgólfur hefur
farið með eignarhlut í félaginu.
Á þessum tveimur árum hefur
verð hlutabréfa á tékkneska mark-
aðinum hækkað um 70%, þannig að
arðsemi fjárfestingarinnar er tölu-
vert umfram vöxt markaðarins. Ekki
er hægt að benda á eitthvert eitt
ákveðið atriði sem skýrir þessa
miklu verðmætaaukningu aðra en að
vel hafi gengið að hagræða í rekstr-
inum á tímabilinu.
Sala kann að vera í farvatninu
Fjárfestingafélagið Novator á nú
fjarskiptafyrirtæki í fjórum löndum;
Finnlandi, Búlgaríu, Póllandi og
Grikklandi. Novator er stærsti ein-
staki hluthafinn í Elisa, næststærsta
farsímafyrirtækis Finnlands, með
10% eignarhlut. Novator á í tveimur
símafélaögum í Póllandi, Netia og
P4. Í Búlgaríu á Novator Telecom
Bulgaris nærri 75% í símafyrirtæk-
inu BTC. Þá á Novator 26% eign-
arhlut í gríska símafyrirtækinu For-
thnet. Um síðustu áramót var talið
að verðmæti fjárfestinganna væru
vel á annað hundruð milljarða króna.
The Financial Times segir í frétt
að salan á CRa marki tímamót þar
sem hún sýni vaxandi áhuga einka-
fjárfestingasjóða á fjarskiptafélög-
um og vilja þeirra til að ráðast í mjög
skuldsett verkefni í Mið-Evrópu. Í
erlendum fjölmiðlum er líkum leitt
að því að kaup á BTC í Búlgaríu og
Elisa í Finnlandi séu í farvatninu.
Þessar fréttir er óstaðfestar. Björg-
ólfur Thor er umbreytingafjárfestir
að eigin sögn og margt bendir til að
hagstæður seljendamarkaður sé nú
á fjarskiptamarkaði í Mið-Evrópu og
þannig gætu verið teikn á lofti.
Verðmæti CRa tvö-
faldast á tveim árum
Frekari sala á símafyrirtækjum sögð í farvatninu
Getur brosað Björgólfur Thor.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands hækkaði lítillega eða um 0,1%
í gær í 6.242 stig. Verslað var með
hlutabréf fyrir tæpa 5,7 milljarða,
mest með bréf Kaupþings banka
eða fyrir rúma 1,7 milljarða. Gengi
bréfa Atlantic Petroleum hækkaði
mest eða um 1,4% en mest lækkun
varð á bréfum í Teymi eða um 0,7%.
Krónan styrktist um 0,5% í gær
og kostar dalurinn nú 70,2, pundið
135,6 og evra 91,9 krónur.
Króna styrkist annan
daginn í röð
● MILESTONE,
félag í eigu Karls
Wernerssonar og
fjölskyldu, verður
kjölfestufjárfestir
í nýjum fjárfest-
ingabanka sem
taka mun til
starfa um næstu
áramót. Tryggvi
Þór Herbertsson,
forstöðumaður
Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands,
verður forstjóri bankans. Að sögn
Karls Wernerssonar verður skýrt bet-
ur frá stofnun bankans fyrir miðjan
næsta mánuð og þá hverjir koma að
stofnun hans með Milestone. Karl
segir þó liggja fyrir að eigið fé bank-
ans verði á bilinu 10–15 milljarðar
króna og að starfsmenn verði á bilinu
40–45 og að þessi áform hafi ekki
áhrif á eignarhlut Milestones í Glitni.
Milestone stofnar
fjárfestingabanka
Tryggvi Þór
Herbertsson
falið í sér fyrir næstu vaxta-
ákvörðun Seðlabankans enda hafi
hann ekkert um það sagt þótt að
öðru hafi verið látið liggja í fyr-
irsögnum. „Þaðan af síður er hægt
að túlka orð mín sem svo að þau
endurspegli ágreining hagfræð-
inga Seðlabankans við bankastjórn
og enn síður bankaráð. Það hefur
ekki verið venja mín að rökræða
við bankastjórnina um pen-
ingastefnuna í gegnum fjölmiðla og
ég hef ekki í hyggju að taka þann
sið upp nú,“ segir Arnór.
ARNÓR Sighvatsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabanka Íslands, segir
að í grein Morgunblaðsins í gær,
þar sem vitnað hafi verið í umfjöll-
un nokkurra aðila um ummæli sem
fréttamaður fréttaveitu Bloomberg
hafði eftir honum, gæti nokkurrar
oftúlkunar. Í viðtalinu hafi hann að-
eins endurtekið þau skilaboð um
horfur í peningamálum sem sé að
finna í síðasta hefti Peningamála.
Arnór segir ótímabært að velta
vöngum yfir því hvað geng-
isþróunin undanfarnar vikur gæti
Oftúlkun á orðum aðal-
hagfræðings Seðlabankans
!"
#
$ ## %
"&
' #
() # * +, -
. /+' #
& -' #, -
0
0 "
1 2$3 4"54'
6
)7
" +
8 -
9:
5
;<
;<+++ 3 %3
= %3
!"
14 * +13 -
! #$ %
8>)?
& '
(
(- 2
3#
- +
;'3@#- +A
. 1
2
2
2
2
2
2
2
2
=3# @#B
;(C
+ "5%-
3#
2
2
2
2
2
2
1@3
3# 3
EFFIE-verðlaunin voru afhent öðru
sinni í gær með viðhöfn á Nordica
hóteli af Jóni Sigurðssyni, viðskipta-
og iðnaðarráðherra. Samband ís-
lenskra auglýsingastofa, SÍA, stend-
ur fyrir verðlaununum, sem veitt eru
fyrir auglýsingaherferðir og auglýs-
inga- og kynningarefni. Voru þau
fyrst afhent árið 2003.
Valið stóð á milli 17 tilnefninga í
tveimur flokkum. Í flokknum vörur
voru veitt tvenn gullverðlaun, ann-
ars vegar til Auglýsingastofunnar
H:N markaðssamskipta og Bern-
hard fyrir herferð um Honda CRV
4x4 bifreið og hins vegar til Íslensku
auglýsingastofunnar og P. Sam-
úelssonar fyrir herferð um Toyota
Aygo-bifreið.
ENNEMM auglýsingastofa og Ís-
lensk getspá fengu silfurverðlaun í
vöruflokknum fyrir herferðina um
Lottóið með Lýð Oddsson í broddi
fylkingar.
Sigurvegarar verðlaunanna að
þessu sinni geta talist ENNEMM
auglýsingastofa sem jafnframt fékk
gullverðlaun Effie í flokknum þjón-
usta fyrir herferðina Nám er lífsstíll,
sem unnin var fyrir Kaupþing
banka.
Silfurverðlaunin í sama flokki fóru
til Hvíta hússins og Glitnis fyrir
ímyndarherferð bankans.
Morgunblaðið/ÞÖK
Effie Fulltrúar ENNEMM og Lottó
taka við Effie-verðlaunum sínum.
Effie-verð-
launin veitt