Morgunblaðið - 25.11.2006, Side 26
26 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fljótshlíð | Orkuveita Reykjavíkur
og Rangárþing eystra hafa gert með
sér samkomulag um jarðhitaleit í
Fljótshlíð, en þar eru flestir bæir nú
hitaðir með rafmagni. Forsenda leit-
arinnar er að samkomulag náist við
landeigendur, en sveitarfélagið mun
þegar hefjast handa við að afla heim-
ildar þeirra.
„Það er búið að tala um þetta í
mörg ár og við erum glöð að Orku-
veitan skuli ætla sér að gera þetta
núna,“ segir Unnur Brá Konráðs-
dóttir sveitarstjóri.
Kynningarfundur um verkefnið
verður haldinn í Goðalandi í Fljóts-
hlíð mánudaginn 27. nóvember kl.
20.30. Unnur Brá segist ekki heyra
annað en landeigendur séu jákvæðir
fyrir þessu framtaki.
Veruleg uppbygging hefur verið í
sumarhúsabyggðum og í ferðaþjón-
ustu í Fljótshlíð á undanförnum ár-
um. Hugmyndin er að bora til-
tölulega grunnar rannsóknarholur
víðsvegar um Fljótshlíðina til að
leita heitra vatnsæða. Finnist heitt
vatn í nýtanlegum mæli verður það
notað til að mæta ört vaxandi eft-
irspurn í Fljótshlíðinni og til að efla
rekstraröryggi hitaveitunnar á
Hvolsvelli. Unnur Brá segir að mikil
ásókn sé í land í Fljótshlíð og nokkr-
ir bændur hafi skipulagt lóðir fyrir
sumarhús. Segir hún að ef jarð-
hitaleitin beri árangur muni það
hjálpa mönnum í markaðs-
setningunni.
Leitað að heitu vatni í Fljótshlíðinni
Morgunblaðið/Einar Falur
Hlíðarendi Ef jarðhitaleitin í Fljótshlíð gengur vel ætti að vera hægt að
leiða vatn heim að Hlíðarenda þar sem fornkappinn Gunnar bjó.
Akranes | Fiskbúðin Fiskihornið
var opnuð á Akranesi í gærmorg-
un. Engin fiskbúð hefur verið starf-
andi á Akranesi á undanförnum ár-
um og raunar ekki heldur á
svæðinu frá Reykjavík til Siglu-
fjarðar, að því er fram kemur á vef
Skessuhorns.
Fiskihornið er í eigu hjónanna
Herdísar Þórðardóttur og Jóhann-
esar Ólafssonar en þau reka Fisk-
verkun Jóhannesar á sama stað,
Ægisbraut 29.
Boðið er upp á fjölbreytt úrval af
fiski og fiskréttum og segir Herdís
við Skessuhorn að markmiðið sé að
bjóða eins fjölbreytt úrval og
markaðurinn biður um hverju
sinni.
Verndun Jökuls-
ánna í Skagafirði
Skagafjörður | Áhugahópur um
verndun Jökulsánna í Skagafirði
stendur fyrir baráttufundi í félags-
heimilinu Árgarði næstkomandi
þriðjudag, kl. 20.30. Þar verða flutt
erindi í máli og myndum um nátt-
úruvernd, virkjanamál og framtíð
Skagafjarðar. Þá mun Óskar Pét-
ursson frá Álftagerði taka lagið.
Kristín Halla Bergsdóttir, tón-
listarkennari í Grænumýri, flytur
erindi um „Aðdráttarafl Jökuls-
ánna“. Guðmundur Páll Ólafsson
náttúrufræðingur og rithöfundur
nefnir erindi sitt „Að ræna Héraðs-
vötnum“. Anna Björg Bjarnadóttir
frá Ásgeirsbrekku, sagnfræðingur
og forstöðumaður Söguseturs ís-
lenska hestsins, kallar erindi sitt
„Stefnumót við framtíðina“. Ómar
Þ. Ragnarsson fréttamaður flytur
hugvekju, „Vötnin stríð“. Magnús
Pétursson hagfræðingur flytur er-
indið „Menningin á sér víða rætur“.
Í fréttatilkynninu frá Áhuga-
hópnum kemur fram að fundurinn
er öllum opinn. Heimasíða hópsins
er á slóðinni www.jokulsar.org.
Jólabasar á
Eyrarbakka
Eyrarbakki | Jólabasar og hluta-
velta Kvenfélags Eyrarbakka verð-
ur á Stað á morgun, sunnudag, kl.
14 til 17. Kaffi og vöfflur er til sölu.
Ágóðinn fer til styrktar góðs mál-
efnis, segir í fréttatilkynningu.
Fiskbúð á
Akranesi á ný
LANDIÐ
KVENNAKÓRINN Embla heldur
tónleika í Glerárkirkju í dag kl.
17.00. Á efnisskrá eru messan
„Missa São Sebastião“ eftir Heitor
Villa-Lobos, „Lieder und Gesange“
eftir Gustav Mahler og Barnagælur
eftir Atla Heimi Sveinsson. Stjórn-
andi Emblu er Roar Kvam.
Gústav Geir Bollason heldur sýn-
inguna „Hræ og formælingar“ í
Populus tremula í dag og á morg-
un, kl. 14–17. „Hræ og formæl-
ingar“ varð til eða raðaðist saman
úr brotabrotum: að uppistöðu ryðg-
uðum pörtum úr vélahræjum (gír-
kassa, dempurum o.s.frv.) og
stykkjum úr lífrænni hræum (hval-
skíði, selskinni, kjálkum og tönnum
úr háhyrningi). Í þetta samsafn
blandast kvikmyndastubbar (super
8) sem hafa nokkuð ráðandi hlut-
verki að gegna varðandi formgerð
verksins,“ segir í tilkynningu.
Embla syngur
og Gústav sýnir
RÁÐNIR hafa verið þrír sjúkralið-
ar á næturvaktir í heimahjúkrun á
Akureyri, og nú er því boðið upp á
þjónustu allan sólarhringinn.
Auk þess að starfa í heima-
hjúkrun sinna sjúkraliðarnir þrír
skjólstæðingum búsetudeildar Ak-
ureyrarbæjar þegar þess gerist
þörf, en næturvaktirnar eru sam-
vinnuverkefni heilsugæslu og bú-
setudeildar.
Á heimasíðu Heilsugæslunnar
segir að viðbótarþjónustan sé til
mikilla bóta og þörfin hafi verið
brýn. „Það er stefna yfirvalda að
styrkja þjónustu við fólk í heima-
húsum þannig að hver ein-
staklingur geti búið við þær að-
stæður sem honum henta best og
hann sjálfur kýs. Öflug heima-
hjúkrun og heimaþjónusta er for-
senda til að svo verði,“ segir þar.
Næturvaktir í
heimahjúkrun
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti í fyrra-
kvöld styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA við hátíðlega at-
höfn í Ketilhúsinu á Akureyri. Að þessu sinni hlutu 22 einstaklingar og fé-
lagasamtök styrki úr sjóðnum, samtals að upphæð 5 milljónir króna.
Eftirtaldir fengu 150.000 kr. hver úr flokki almennra styrkja: Félags- og
skólaþjónusta Þingeyinga vegna menningarhátíðar fyrir fatlaða; menning-
arsmiðjan Populus tremula, Björg Þórhallsdóttir söngkona; hljómsveitin
Vipepe-Marimba sem er skipuð 13–15 ára börnum úr Hafralækjarskóla í
Aðaldal; Kvæðamannafélagið Gefjun; Félag sjálfstætt starfandi fræði-
manna á Norðurlandi; Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar; Fornleifa-
skóli barnanna, sem er samvinnuverkefni Ferðaþjónustunnar á Narfastöð-
um og Grunnskólans á Litlu Laugum; Michael Jón Clarke söngvari;
Hlöðver Sigurðsson söngnemi; SÍUNG, samtök barna- og unglingabóka-
höfunda, til að halda barnabókahátíð á Akureyri; Helena Eyjólfsdóttir til
að halda upp á 50 ára söngafmæli; Ferðafélagið Fjörðungur til að merkja
30 eyðibýli í Fjörðum og á Látraströnd; Sögufélag Eyfirðinga til að vinna
ábúenda- og jarðatal Stefáns Aðalsteinssonar fyrir Eyjafjarðarsveit og
jarðir norður að Glerá.
Eftirtaldir fengu styrk í flokki þátttökuverkefna: Eyjafjarðarsveit
800.000 til að koma upp Búvéla- og búnaðarsögusafni í Saurbæ; Nonnahús
300.000 til að setja upp sýningu í tilefni 150 ára afmælis Nonna, á Ak-
ureyri, Reykjavík og e.t.v í Þýskalandi; Hjálmar Stefán Brynjólfsson
300.000 til að halda áfram vinnu við að skrá Bókasafn Davíðs Stefánssonar;
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands 450.000 til að standa fyrir skólatónleikum;
Safnahúsið á Húsavík/sjóminjasafn 400.000 til að búa til gagnagrunn eða
landupplýsingakerfi þar sem skrá á öll árabátafiskimið Þingeyinga; Krist-
ján Kristjánsson 300.00 til að gefa út heildarljóðasafn föður síns, Kristjáns
frá Djúpalæk; Sveinn Elías Jónsson 250.000 til að byggja veg að gröf Hræ-
reks konungs og Ferðafélag Siglufjarðar 200.000 til að merkja gönguleiðir
umhverfis Siglufjörð.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fimm milljónir úr tveimur sjóðum KEA
STÖÐ til jarðgerðar verður að lík-
indum tekin í notkun í Eyjafirði um
mitt næsta ár, eins og greint var frá í
Morgunblaðinu í gær. Sigmundur
Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norð-
lenska, sem hefur haft forgöngu um
málið, segir alla aðila sem rætt hafi
verið við hafa sýnt því mikinn áhuga.
Reiknað er með að taka upp við-
ræður við Sorpsamlag Þingeyinga
um að taka við og brenna öllu því
sorpi af svæðinu sem fellur utan end-
urvinnslu eða jarðgerðar. „Við höf-
um þegar rætt við sveitarstjóra
Norðurþings um þessi mál og sam-
starf er hagur beggja því jarðgerð-
arstöðin hér við Eyjafjörð gæti tekið
við lífrænum úrgangi frá Þingeying-
um í staðinn, úrgangi sem er kostn-
aðarsamur í brennslu. Þannig styrk-
ist rekstrargrundvöllur fyrir bæði
fyrirtækin,“ segir Sigmundur.
Gert er ráð fyrir að notuð verði
þekkt jarðgerðartækni og leggur
Sigmundur áherslu á að valin verði
besta fáanlega tækni í heimi á þessu
sviði. Reiknað er með að kostnaður
verði innan við 400 milljónir króna
og nú þegar eru erlendir framleið-
endur búnaðar reiðubúnir til samn-
inga sem miðast við að jarðgerðar-
stöð verði risin og komist í gagnið
fyrir mitt næsta ár. „Sá tími skiptir
máli vegna þess að þá tekst að ná
strax inn í stöðina sláturúrgangi á
næsta hausti og því fyrr sem við
leysum þessi mál – því betra.“
Jarðgerðin sjálf fer fram í yfir-
byggðu húsnæði og í lokuðum tækja-
búnaði, ekki ósvipuðum mjöltroml-
um í fiskbræðslum. Hitinn sem
skapast í niðurbrotsferlinu er allt að
70 gráðum og drepur flestar hættu-
legar örverur úr úrganginum þannig
að eftir 3–5 sólarhringa meðferð úr-
gangs kemur út úr tromlunni nánast
fullgerð molta sem er sett í haug inn-
andyra og látin fullgerjast á 20–25
sólarhringum. Þá er komin nánast
fullgerð mold.
„Eitt af þeim verkefnum sem
leysa þarf á komandi misserum er að
finna staði til jarðvegsuppfyllingar
með moltunni en sjálfum þætti mér
einboðið að nota moltuna til að loka
sorpurðunarsvæðinu á Glerárdal og
skila dalnum aftur sem næst því
ástandi sem hann var í áður en urðun
hófst þar. Það væri verðugt verk-
efni.“ Sigmundur segir mikinn
áhuga vera á verkefninu, bæði hjá
sveitarfélögum og ekki síður mat-
vælafyrirtækjum og veitingamönn-
um. „Ég tel óhætt að fullyrða núna
að fjármögnun fyrirtækisins sé eng-
in hindrun,“ segir hann.
Vill græða upp Glerárdal
Sigmundur Ófeigsson segir mikinn áhuga á því að setja upp stöð til jarðgerðar
Í HNOTSKURN
»Reiknað er með að kostn-aður við að koma jarð-
gerðarstöð á laggirnar verði
innan við 400 milljónir.
»Valin verður besta fáan-lega tækni. Erlendir fram-
leiðendur búnaðar eru reiðu-
búnir til samninga sem miðast
við að stöðin verði komin í
gagnið fyrir mitt næsta ár.
LÖGREGLAN á Akureyri aflífaði í
vikunni tvo hunda sem voru í eigu
skipverja á rússnesku skipi sem
legið hefur við bryggju á Akureyri
síðustu vikur. Skipverjar höfðu ver-
ið áminntir í tvígang um að fara
ekki með hundana í land, en vegna
sóttvarnareglna er það bannað.
Skipverjarnir höfðu hins vegar far-
ið með hundana í land oftar en einu
sinni og taldi lögreglan því nauð-
synlegt að grípa í taumana.
Lögregla aflíf-
aði tvo hunda