Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 36
tíska
36 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
EF ÞÚ FINNUR EKKI RÉTTU STÆRÐINA
EKKI KENNA OKKUR UM
Faxafeni 8, 108 Reykjavík, Sími 577 1170, www.boconcept.is
Ef einhvern tímann er hægt aðspá fyrir um flóðbylgjutískuslysa þá er líklegast aðsú skelli á þegar tígra-
mynstur komast í tísku. Þau eru nefni-
lega stórhættuleg eins og dýrin sem
gefið hafa hönnuðunum innblásturinn,
sjóðheit, villt og öskrandi. Þau er ekki
auðvelt að temja og þykja oft villa á sér
heimildir: Er það druslulegt og billegt
eða fágað og svalt?
Í vetur er tígurmynstur að minnsta
kosti heitt og er áberandi í nokkrum lit-
um, einkum hvítu/svörtu, gulu/svörtu
og rauðu/svörtu. Hönnuðirnir Louis
Vuitton, Roberti Cavalli og Marc Jacobs
voru á meðal þeirra í hátískunni sem
lögðu línurnar í fatnaði og fylgihlutum,
sem eru fjölmargir alveg dásamlegir, til
þess að lífga upp á heildarútlitið og
jafnvel þótt tískan fari í hringi þá bland-
ar hún gömlu og nýju oft saman á
skemmtilegan hátt svo úr verður eitt-
hvað óvænt og jafnvel frumlegt. Þannig
gefur tígurmynstrið kvenlegum sniðum
í anda fimmta og sjötta áratugarins oft
og tíðum fersk blæbrigði. Annað er, að
mynstrið býður oft upp á svo fjölbreytta
notkunar- og samsetningarmöguleika.
Það má nota sömu flíkina, t.d. topp, til
þess að klæða sig upp eins og þegar far-
ið er á árshátíð, við svartar buxur eða
pils, en hann passar líka vel við galla-
buxur eða pils í vinnunna – hvort
tveggja er við hæfi.
En hvað er þá svona hættulegt? Tíg-
urmynstur geta einfaldlega orðið að-
eins of mikið af því góða því mynstrið er
athyglisfrekt. Sé það hins vegar notað í
hófi, við réttu aðstæðurnar og réttu
flíkurnar er aðdráttarafl þess ótvírætt.
Sumar konur geta klæðst kápu, kjól og
topp, aðrar ættu að kalla fram það eftir-
tektarverðasta í sínu fari með því að
nota fylgihlut, veski, skartgripi eða
skó, séu þær hrifnar af mynstrinu. Í
flestum tilvikum er lykillinn að vel
tömdu, tígruðu útliti sá að klæðast að-
eins einni mynstraðri flík við einlitan
fatnað eða nota einn áberandi fylgihlut.
Ef kona klæðist of mörgum tíg-
urmynstruðum flíkum eða ber of marga
fylgihluti þá er hætta á að hún fari út af
slóðinni, mynstrið taki völdin og hún
verði að gangandi tískuslysi. En lífið er
ekkert skemmtilegt án áhættu, svo
æfðu þig bara fyrir framan spegilinn
þangað til þér tekst að temja tíg-
urmynstrin að þínum persónuleika og
stíl!
Rautt Mynst-
ur undir áhrif-
um tígursins
verður áfram
áberandi næsta
vor og sumars
eins og þessi
kjóll eftir jap-
anann Junko
Shimada.
Svalur Þennan kjól er auðvelt að temja
við svört stígvél, 9.990 kr. Companys.
Dásamleg Breitt belti, 2.495 kr.
Skór.is, mjórra 1.995 kr. Valmiki.
Klassi Fylgihlutir eru margir bæði fágaðir og
kynþokkafullir. Veski, 4.990 kr. Cosmo.
Virkar Stuttur jakki úr fínflaueli með sniði frá
sjötta áratugnum, 11.990 kr. Oasis
Temdu tígurinn
Tígulegir Hættulega flott stígvél frá Maríu K.
Magnúsdóttur, 49.990 kr. Valmiki.
Vandmeðfarið Það eru fáar konur sem kom-
ast upp með að klæðast tígramynstri frá
toppi til táar en þessi getur það.
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is
Tígurmynstrið getur verið konum stórhættulegt en þau er líka oft
áhættunnar virði og stórglæsileg á þeim sömu eða í fylgd þeirra.