Morgunblaðið - 25.11.2006, Qupperneq 37
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 37
FRAM kemur á vef Aftenposten
að sænsku neytendasamtökin hafi
látið gera úttekt á þrettán barna-
rúmum. Sex rimlarúm fá fall-
einkunn, einungis tvö fá góða ein-
kunn.
„Sem betur fer hefur ekki orðið
alvarlegt slys lengi,“ segir sér-
fræðingur neytendasamtakanna,
Kerstin Csiffary. Tölfræðin sýnir
að algengustu slysin eru þau að
börn falla úr rúminu.
Léleg ending getur falið í sér
alvarlega áhættu, t.d. þá að ef
hlutar brotna í sundur eða gliðna
getur myndast bil sem barnið
reynir að troða sér í gegnum. Það
getur orðið til þess að barnið
kafnar, en slíkt slys varð einmitt
nýlega í Bretlandi.
Gæðaeftirlit sem viðhaft er með
barnarúmum í Svíþjóð hefur ekki
sýnt fram á að framleiðendur hafi
tekið sig á síðan síðasta stikkprufa
var tekin fyrir u.þ.b. þremur ár-
um.
Algengustu gallar á barnarúm-
um eru þeir að rimlar losni og
standi þannig upp eða út úr rúm-
inu, veik bygging og galli í
skrúfum. Einnig getur það valdið
slysi ef of langt bil er á milli riml-
anna, of langt er niður á botn
rúmsins, svo og vondar samsetn-
ingarleiðbeiningar.
Rúm með slæma galla
Anna Eco, Happyland
Happy, Baby Dan
Ocean, Segr
Yvonne, Basson Baby
Nicolai, Dangarden
APS
88:an, Br. Johanssons
Sängfabrik
Rúm með minni galla
Classic, Modi
Moon Exclusive, Brio
Trille Nina, Segers babyhose
Troll Bebo, Babyproffsen
Scandinavia, Babyproffsen
Gallalaus rúm
Anna, Kaxholmen
Diktad, Ikea
Morgunblaðið/Ásdís
Varasamt Algengustu gallar á
barnarúmum eru þeir að rimlar
losni og standi upp eða út úr rúminu,
veik bygging og galli í skrúfum.
Hættuleg
barnarúm