Morgunblaðið - 25.11.2006, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Nýtt íslenskt skáld
Óskar Magnússon
Borðaði ég kvöldmat í gær?
Frásagnargáfa og
húmor eins og
Íslendingar vilja hafa
hann
„Þetta er þaul-
hugsaður texti,
hverfist um skýra
fléttu hverrar sögu
án útúrdúra.
Og um allt leikur
elskuleg hæðni
sem veldur hlátri
hjá grandalausum
lesanda sem veit
varla hvers er
von.“
Páll Baldvin
Baldvinsson,
Fréttablaðinu
13. nóvember
Í LEYNDINNI þrífst spillingin.
Það er því mikið fagnaðarefni þegar
nú er brotið blað í stjórnmálasög-
unni og stjórnmálaflokkarnir koma
sér loksins saman um löggjöf um
fjármögnun stjórnmálastarfsemi og
kosningabaráttu. Ár eftir ár eftir ár,
allt frá árinu 1995, hef ég barist fyrir
því að löggjöf af þessu
tagi yrði sett. Benedikt
Gröndal, fyrrv. formað-
ur Alþýðuflokksins, er
þó sennilega sá sem
fyrstur lagði fram slíkt
frumvarp árið 1975 eða
fyrir rúmum 30 árum.
Það hefur því tekið ótrú-
lega langan tíma að ná
fram þessari mikilvægu
löggjöf, sem kemur fjár-
reiðum stjórnmálaflokk-
ana upp á yfirborðið, en
grannþjóðir okkar hafa í
langan tíma haft slík lög.
Róðurinn var erfiður
en nú ber að fagna
Meginefni frumvarpsins sem ég
lagði fram fyrir rúmum 11 árum var
um skyldu stjórnmálaflokka til að
birta opinberlega samræmda árs-
reikninga sína og að nafngreina
styrktaraðila sem gæfu fjárframlög
yfir tiltekin mörk. Ítrekaður end-
urflutningur og endurbætur á þessu
máli á örugglega sinn þátt í að nú er
verið að opna fjármál flokkanna sem
mikil leynd hefur hvílt yfir og skap-
að hefur mikla tortryggni. Í grein-
argerð með því frumvarpi sem nú
verður lagt fram er skýrsla um fjár-
mál stjórnmálaflokkanna, sem lögð
var fram af fyrrv. forsætisráðherra
árið 2005 að minni beiðni, sögð vera
aðdragandi þess að málið er nú í
höfn. En róðurinn var sannarlega
erfiður og segja má að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi verið helsti drag-
bíturinn í þessu máli.
Ísland á leið inn í nútímann
Það gat ekki gengið lengur að Ís-
land væri eitt af þremur ríkjum í
Vestur-Evrópu, ásamt Sviss og Lúx-
emborg, þar sem ekki hefði verið
sett löggjöf um fjár-
mál stjórnmálaflokka.
Það var orðið skamm-
arlegt að ítrekað
væru hunsuð tilmæli
um þetta á al-
þjóðavettvangi, eins
og innan Efnahags-
og framfarastofn-
unarinnar (OECD). Í
nefnd stofnunarinnar,
sem fjallar um spill-
ingu, hafði Ísland iðu-
lega sætt ákúrum fyr-
ir að setja ekki
löggjöf um að opna
fjármál stjórnmálaflokka. Það er því
mikið fagnaðarefni að Ísland sé nú á
leið inn í nútímann með öðrum þjóð-
um.
Enn eru spillingarsmugur
Vissulega er það þó áhyggjuefni
að ekki eigi að vera gegnsæi í fjár-
framlögum frá einstaklingum og þau
birt opinberlega með líkum hætti og
hjá lögaðilum. Þetta gæti aukið lík-
urnar á áframhaldandi neðanjarð-
arstarfsemi við fjármögnun stjórn-
málaflokka í gegnum fjárframlög
fjársterkra einstaklinga. Einnig má
spyrja hvort eitthvað í þessu frum-
varpi komi í veg fyrir að fyrirtæki
gætu greitt auglýsingareikninga og
fleira fyrir flokka og frambjóðendur,
án þess að það kæmi fram í bókhaldi
þeirra. Full ástæða er líka til að
setja fjáraustri flokkanna í kosn-
ingabaráttu þrengri skorður m.a.
vegna auglýsinga, auk þess sem
heimild frambjóðenda til þess sama
er fullrýmileg.
Jóhanna Sigurðardóttir alþing-
ismaður.
Loksins, loksins
Jóhanna Sigurðardóttir fjallar
um fjármál stjórnmálaflokka » Það er því mikiðfagnaðarefni að Ís-
land sé nú á leið inn í nú-
tímann með öðrum þjóð-
um með því að opna
fjármál stjórnmála-
flokkanna.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Höfundur er alþingismaður.
ÉG HEF frá 18 ára aldri tekið
virkan þátt í starfi Sjálfstæð-
isflokksins, fyrst í ungliðahreyfing-
unni og síðan í baklandi flokksins
en stíg nú inn í hringiðu stjórnmál-
anna. Ég hef reynslu af samgöngu-
málum í gegnum fjögurra ára starf
í samgönguráðuneytinu, hef
reynslu af fjármálamarkaði þar
sem ég starfaði sem
eftirlitslögfræðingur
Verðbréfaþings Ís-
lands, nú Kauphall-
arinnar, og hef
reynslu af mennta-
málum þar sem ég hef
verið stundakennari
við lögfræðideild Við-
skiptaháskólans á Bif-
röst og fyrsti deild-
arforseti hennar. Frá
árinu 2002 hef ég
starfað í orkugeir-
anum og er nú fram-
kvæmdastjóri Orku-
sölunnar. Ég hef ennfremur
víðtæka reynslu af ýmsum öðrum
sviðum þjóðmála.
Þjöppum okkur saman!
Við sem búum í þessu stóra og
góða kjördæmi, Norðaust-
urkjördæmi, þurfum að þjappa
okkur saman og taka til hendinni
við að gera það enn betra og eft-
irsóknarverðara til búsetu. Við
þurfum að stórefla samgöngur inn-
an kjördæmisins því bættar sam-
göngur eru lykillinn að því að
styrkja innviði kjördæmisins og
nýta betur þá fjárfestingu sem er
til staðar í heilbrigðis- og mennta-
kerfinu og á öðrum sviðum sam-
félagsþjónustunnar. Góðar sam-
göngur styrkja ennfremur stoðir
atvinnulífsins.
Norðfjarðargöng eru efst á for-
gangslistanum og framkvæmdir við
þau þurfa að hefjast strax. Ég lít á
gerð þeirra sem fyrsta skrefið af
mörgum í að þjappa saman byggð-
arkjörnum á Austurlandi, allt frá
suðurfjörðum og upp á Hérað. Úr-
bætur á flugvöllunum á Akureyri
og Egilsstöðum eru brýnar, sömu-
leiðis Vaðlaheiðargöng, nýr vegur
til Vopnafjarðar og bundið slitlag á
alla helstu tengivegi í kjördæminu.
Við þurfum líka að út-
rýma einbreiðum
brúm á helstu sam-
gönguleiðum.
Hægri grænir
Ég hef brennandi
áhuga á að stuðla að
aukinni þjóðarvitund
um mikilvægi um-
hverfismála. Ég styð
af alefli áform um
uppbyggingu Vatna-
jökulsþjóðgarðs sem
ég held að muni hafa
áhrif í öllu kjördæm-
inu ef rétt er að staðið. Ég styð
það einnig heilshugar að við höld-
um áfram að nýta orkulindir okkar
til að framleiða umhverfisvænstu
orku heims, atvinnulífinu og þjóð-
inni til framdráttar.
Sjálfstæðisflokkurinn er að mín-
um dómi „hægri grænn“ flokkur
sem þarf að hampa mun meira en
gert hefur verið markvissri stefnu
sinni í umhverfismálum.
Menntun er grunnur
nýsköpunar
Ég er þeirrar skoðunar að
menntun sé grunnur allrar nýsköp-
unar í landinu og með það að leið-
arljósi vil ég beita mér á því sviði.
Ég vil halda áfram að byggja upp
þær menntastofnanir sem eru í
kjördæminu og standa vörð um hag
þeirra, stórefla verkmenntun sem
og möguleika fólks til símenntunar.
Þá vil ég stuðla að uppbyggingu
öflugs þekkingarnets, með Háskól-
ann á Akureyri sem grunnstoð.
Ekkert á að vera því til fyrirstöðu
að fjarnám á æðri skólastigum geti
farið fram á mörgum stöðum í
kjördæminu.
Uppsveiflu um allt kjördæmið!
Ég hef séð með eigin augum
hversu miklum breytingum til hins
betra samfélagið fyrir austan hefur
tekið við allar þær framkvæmdir
sem þar standa yfir. Breytingarnar
eru mun stórbrotnari en margir
átta sig á. Ég vil í náinni framtíð
sjá sams konar uppsveiflu í öðrum
hlutum kjördæmisins og nú er í
gangi fyrir austan. Fyrir því mun
ég beita mér, fái ég til þess umboð
flokkssystkina minna.
Mætum á kjörstað
Um leið og ég þakka öllum sem
hafa lagt mér lið í prófkjörsbarátt-
unni, með sjálfboðavinnu og öðrum
hætti, hvet ég sjálfstæðisfólk í
Norðausturkjördæmi til að mæta á
kjörstað í dag. Tökum þátt í að
stilla um sterkum og sigurstrang-
legum lista til alþingiskosninga.
Leggjum drög að glæstum kosn-
ingasigri í vor. Ég býð fram krafta
mína.
Ég býð fram krafta mína
Ólöf Nordal reifar
stefnumál sín »Ég vil í náinni fram-tíð sjá sams konar
uppsveiflu í öðrum hlut-
um kjördæmisins og nú
er í gangi fyrir austan.
Ólöf Nordal
Höfundur er framkvæmdastjóri á Eg-
ilsstöðum og býður sig fram í 2. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norð-
austurkjördæmi.
ÞJÓÐ sem hefur opnað vinnu-
markað sinn fyrir einstaklingum
frá öðrum löndum
ber skylda til að
gera það sem hún
getur til að tryggja
að þessum ein-
staklingum séu
kynnt réttindi sín og
opnaðir allir mögu-
leikar til þess að
vera virkir meðlimir
í samfélaginu. Ár-
angur innflytj-
endastefnu má meta
því hversu vel hefur
tekist til með aðlög-
un innflytjenda að
samfélaginu, sem
ætti því með réttu að
vera helsta takmark
innflytjendastefnu
hverrar þjóðar. Allt
sem þarf að gera er
að litast um og
spyrja: Gerir þessi
ríkisstjórn nóg til þess að innflytj-
endur geti lært tungumálið? Er
þeim séð fyrir þeim upplýsingum
sem þeir þurfa varðandi réttindi
og skyldur? Er börnum innflytj-
enda veitt sú aðstoð sem þau
þurfa í skóla, varðandi tungumál
og félagslega aðlögun svo þau fái
sömu menntun og önnur börn? Í
stuttu máli, gerir þessi
ríkisstjórn allt sem
hún á að gera til að
fólk, sem hleypt er inn
í landið, aðlagist?
Á Íslandi er mikið af
þjónustu í boði ýmissa
samtaka um allt land.
Hér í Reykjavík er Al-
þjóðahúsið (The Int-
ercultural Centre)
helstu samtök fyrir
samfélag innflytjenda
á Íslandi. Fámennt
starfslið þess veitir
einstaklingum sem ný-
komnir eru til landsins
margþætta þjónustu,
frá lagalegri ráðgjöf til
þýðinga, frá íslensku-
námskeiðum til þjón-
ustu við börn. Flestir
ef ekki allir, af u.þ.b.
5.000 innflytjendum
sem búa í Reykjavík, hafa snúið
sér til Alþjóðahússins eftir aðstoð,
jafnvel mörgum sinnum og munu
vonandi halda áfram að gera það.
Ég segi vonandi af því að borg-
arstjórn Reykjavíkur – sem Al-
þjóðahúsið treystir á fjárhagslega
– hefur nýlega ákveðið að skerða
framlög til Alþjóðahússins um
þriðjung, úr 30 milljónum króna á
ári niður í 20 milljónir. Þetta gæti
vel þýtt skerðingu á þeirri þjón-
ustu sem Alþjóðahúsið getur veitt.
Ástæða þessarar fjárhagslegu
skerðingar er sú að peningurinn á
að renna til tveggja nýrra þjón-
ustumiðstöðva innflytjenda; einnar
til austurs og annarrar í Hlíð-
unum.
Ég fagna fjárhagsstyrk þessara
nýju þjónustumiðstöðva og ég skil
að borgin hefur ekki milljónir á
reiðum höndum. Hins vegar veitir
Alþjóðahúsið ýmis konar ómiss-
andi þjónustu fyrir stóran hluta af
íbúum borgarinnar. Þeir hafa ein-
faldlega ekki efni á fjárhagsskerð-
ingu og Ísland hefur það ekki
heldur.
Þessi staða undirstrikar þörf
þess að ríkið taki virkari þátt í
þjónustu við aðlögun innflytjenda.
Í vor munu rúmlega 33 milljónir
íslenskra króna á ári losna úr fjár-
lögum þegar hvalveiðum í vísinda-
legum tilgangi verður hætt. Hluti
þessa fjármagns gæti farið í að
styðja Alþjóðahúsið. Hvaðan sem
fjármagnið kemur er eitt alveg
ljóst: Peningarnir sem sparast
með því að skerða fjárveitingu til
þjónustu við aðlögun innflytjenda
tapast margfalt í því sem það mun
kosta okkur til langs tíma litið ef
það fólk sem kemur til landsins
getur ekki lært tungumálið, hlýtur
ekki viðunandi menntun og hrein-
lega fær ekki tækifæri til að verða
fullgildir og virkir meðlimir þjó-
félagsins.
Aðlögunarþjónusta er hagstæð
fyrir allt Ísland. Ekkert okkar
hefur efni á að vera án hennar.
Einungis ábyrgð
borgarinnar?
Paul F. Nikolov skrifar um
þjónustu við innflytjendur
Paul F. Nikolov
» Aðlög-unarþjón-
usta er hagstæð
fyrir allt Ís-
land.
Höfundur er frambjóðandi í forvali
Vinstri grænna.
Fréttir í tölvupósti