Morgunblaðið - 25.11.2006, Side 60

Morgunblaðið - 25.11.2006, Side 60
60 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vörubílar Hjólkoppar - varahlutir Hjólkoppar 15"-22,5" fyrir flestar gerðir stærri bíla. Varahlutir í vörubíla. Fjaðrir og ýmsir notaðir hlutir. Heiði rekstrarfélag ehf., sími 696 1051. Til sölu þessi glæsilegi Jeep Grand Cherokee Laredo 4X4 árg. 2005. 4703cc, 5 dyra, 8 strokkar, 290 hö, sjálfsk. 31" dekk, ek. 46 þ.km. Gullfallegur og flottur í snjóinn. Tilboð óskast! Uppl. 662 0030. Verðhrun á bílum! Nýlegir bílar frá öllum helstu fram- leiðendum allt að 30% undir mar- kaðsverði. Bestu kaupin valin úr 3 m. nýrra og nýlegra bíla í USA og Evrópu. Íslensk áb. og bílal. 30 ára traust innflutningsfyrirtæki. Fáðu be- tra tilboð í síma 552 2000 eða á www.islandus.com. VW Touran Trend árg. '05, ek. 22 þús. km. Mjög góður 7 manna VW Touran Trendline til sölu. Steingrár árg. 2005. 200 þús. út + yfirtaka á láni. Upplýsingar í síma 899 0568. MITSUBISHI LANCER, ÁRG. ‘92, Ek. 157 þús., skoðaður ‘07. N’y ve- trardekk. Verð 90 þús. Uppl. í síma 662 4285. MMC Pajero árg. 1998 til sölu, 2.8 dísel, sjálfskiptur, topplúga, raf- magnsrúður o.fl. 35" jeppaupphækk- un. Toppbíll. Upplýsingar í síma 544 4333 og 820 1070. Renault Megane II Coupe, ‘06, Dynamic með 16” álfelgum. Sjálfsk., 3ja dyra, glertoppur, regnskynj., rafdr. rúður, fjarst. útvarp. Ek. 4 þús.Gott bílalán. Sími 690 2577. Til sölu Forester LUX XT '04 Ek. 38 þ. km. CD, lúga, cruise, hlíf, cooler, leður, turbína, 177 hestöfl, 75% lán, afb. 42 þ. kr. Staðsetning Höfðahöllin. Skoða skipti á '96-’00 Subaru á verði 2.490 þ. Tilboð 2.180 þ. Uppl. í síma 862 8892. Bílar Til sölu vegna veðurs Dodge RAM 1500 árg. 2003, ekinn 84 þ. km, næsta skoðun 2007. HEMI Magnum V8-5.7 l, 345 hestöfl. Heilsársdekk á 20” krómfelgum, leður, geislaspilari og DVD spilari með tveimur þráðlaus- um heyrnartólum. Bíllinn er skráður 6 manna, pallhús og vetrardekk á 17” felgum fylgja. Verð 2.640 þ. Nánari upplýsingar veitir Ólafur, or@os.is. Athugið að nýjasti veðurhaunkurinn, Hálfdán, hefur setið í bílnum! Þjónustuauglýsingar 5691100 NÝR DVD SPILARI OG NÝ VETRARDEKK FYLGJA Chrysler Town and Country 2006. Þessi frábæri fjölnota fjölskyldubíll fæst nú á sérstöku verði með öllu fyrir krakkana og tilbúinn fyrir veturinn. 100 bílar ehf., Funahöfða 1, sími 517 9999, www.100bilar.is Opið virka daga kl. 10-19 og laugardaga kl. 12-17. SLEÐA, VEIÐI OG HJÓLABÍLL MEÐ ÖLLU Einn frábær í sportið! Dodge Ram 1500 ‘96 með húsi, tveir góðir 35” dekkja- gangar, loftlá , 456 hlutföll, leitarljós, loftpúðar, nýr cd spilari. Toppbíll í einstöku viðhaldi. Verðtilboð óskast. 100 bílar ehf., Funahöfða 1, sími 517 9999, www.100bilar.is Opið virka daga kl. 10-19 og laugardaga kl. 12-17. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl VIÐURKENNING Barnaheilla fyr- ir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra var afhent við hátíð- lega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu á mánudaginn. Að þessu sinni féllu verðlaunin í skaut Anh-Dao Tran sem stýrir verkefninu „Framtíð í nýju landi“. Áður hafa Barnahús, Hringurinn Velferðarsjóður barna á Íslandi og Ólafur Ó. Guðmundsson yfirlæknir á BUGL hlotið viðurkenningu Barna- heilla. Anh-Dao kom sem flóttamaður með fjölskyldu sinni til Bandaríkj- anna árið 1975. Hún var þá á ung- lingsaldri. Hún lauk meistaranámi í kennslu heyrnarskertra frá Teachers College við Columbiaháskólann í New York. Hún kom fyrst til Íslands árið 1980, en hefur átt hér lögheimili síðan 1984. Hún kenndi fyrst við Heyrnleysingjaskólann í Reykjavík, en starfaði næstu ellefu árin við enskukennslu, aðallega við skóla í Borgarfirði. Anh-Dao hefur lengi aðstoðað flóttafólk frá Víetnam, bæði í Banda- ríkjunum og á Íslandi. Hún vann á unglingsárunum við túlkun á vegum US Catholic Charities og tók síðar þátt í móttöku flóttafólks fyrir Rauða kross Íslands. Árið 1999 fór hún með fjölskyldu sinni til tveggja ára dvalar í Bandaríkjunum. Frá því hún sneri aftur til Íslands hefur hún unnið að sömu markmiðum sem kennari, menntunarráðgjafi, verkefnisstjóri og þátttakandi í rannsóknarverk- efnum um málefni innflytjenda. Anh-Dao Tran hefur hlotið ridd- arakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu nýrra Íslendinga og íslensks fjölmenningarsamfélags. Tilraunaverkefni Verkefnið „Framtíð í nýju landi“ er þriggja ára tilraunaverkefni sem hefur það að markmiði að aðstoða víetnömsk ungmenni á aldrinum 15– 25 ára við að afla sér menntunar og taka virkari þátt í í íslensku sam- félagi. Í verkefninu er lögð áhersla á að greina hindranir sem börn inn- flytjenda þurfa að takast á við í skóla- kerfinu og atvinnulífinu, að efla þátt- takendur til að takast á við þær hindranir og samtímis að vinna að því að ryðja hindrunum úr vegi í skóla- kerfinu og atvinnulífinu. Morgunblaðið/Ásdís Hlaut viðurkenningu Barnaheilla RÁÐSTEFNA um kynferðisof- beldi verður haldin í Tjarnarbíói í dag, laugardag, kl. 12–19. Stígamót, Bríet og Karlahópur Femínistafélagsins halda ráðstefn- una í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Ráðstefnan skiptist í tvö málþing. Á fyrra mál- þinginu frá kl. 12–13.30 verður sektarkennd kvenna tekin fyrir. Leitast verður við að skilgreina sektina, hvaðan hún kemur og hvaða áhrif hún hefur á þolendur kynferðisofbeldis. Veitt verður innsýn í persónulega upplifun af sektinni og baráttunni við sjálfs- ásakanirnar. Á málþingi um ábyrgð karla frá kl. 14–16 verður leitað svara við spurningunni um hver ábyrgð karla sé í umræðunni um kyn- ferðisofbeldi, hvernig karlar geti tekið þátt í henni og haft áhrif á hana. „Með því að hafa þessi tvö mál- þing samhliða er verið að sýna hvernig þarf að breyta umræðunni um kynbundið ofbeldi. Ábyrgðin í þessum málaflokki á ekki að liggja á konum og þess vegna þurfa kon- ur að afsala sér henni. Í ljósi þess að meira en 90% ofbeldismanna eru karlar þarf þessi umræða að eiga sér stað á meðal karla. Karl- menn þurfa að taka ábyrgð í bar- áttunni gegn kynferðisofbeldi,“ segir í fréttatilkynningu. Þegar málþingi karlanna er lok- ið verður gengið að Héraðsdómi Reykjavíkur við Lækjartorg til að mótmæla lélegri nýtingu á refsi- ramma laganna gagnvart nauðg- urum. Að mótmælastöðunni lokinni er fólki boðið aftur í Tjarnarbíó þar sem samantekt verður gerð á mál- þingunum tveimur. Boðið verður upp á veitingar og ljúfa tóna frá trúbadorunum Lay Low og Þóri. Aðgangur er ókeypis. Ráðstefna um kynferðisofbeldi DANSRÁÐ Íslands, fagfélag dans- kennara á Íslandi, stendur fyrir jólasýningu og jóladanskeppni nk. sunnudag 26. nóvember, í Broad- way Hótel Íslandi. Jólasýningin hefst klukkan 13 og verða fjölmörg sýningaratriði á boðstólum frá félögum DÍ, barna- dansar, djassballet og samkvæm- isdansar, auk þess sem dansað verður í kringum jólatré og hver veit nema jólasveinninn láti sjá sig, segir í fréttatilkynningu. Að sýningunni lokinni, kl. 15.30, hefst jóladanskeppnin, sem er með öðru sniði en keppendur og áhorf- endur eiga að venjast, þar sem dómarar keppninnar eru ekki fag- lærðir danskennarar heldur áhrifa- manneskjur í þjóðlífinu, hver á sinn hátt. Að þessu sinni verða dómarar keppninnar Siv Friðleifsdóttir heil- brigðis- og tryggingaráðherra, Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar- stjóri, Bentína Björgólfsdóttir athafnakona og Birgitta Haukdal poppstjarna. Þetta er í annað sinn sem Dans- ráð Íslands stendur fyrir slíkri keppni en á síðasta ári var góður rómur gerður að þessari keppni. Húsið verður opnað klukkan 12 og er áætlað að keppni ljúki eigi síðar en klukkan 18. Jóladanskeppni og sýning

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.