Morgunblaðið - 25.11.2006, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 63
menning
SENA KLASSÍK KYNNIR:
ÓPERUDÍVAN ELÍN ÓSK ÓSKARSDÓTTIR OG SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
ÍSLANDS UNDIR STJÓRN KURT KOPECKY.
ARÍUR EFTIR VERDI, PUCCINI, GIORDANO OG FLEIRI
All Rights Reserved
STEF
SCD377
ELÍN ÓSK ÓSKARSDÓTTIR
ARÍUR EFTIR VERDI, PUCCI
NI, GIORDANO OG FLEIRI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSL
ANDS
KURT KOPECKY
STÓRGLÆSILEG
ÚTGÁFA Í TILEFNI AF
20 ÁRA STARFSAFMÆLI
ELÍNAR ÓSKAR.
Komin út!
Á nýliðinni uppskeruhátíð Ís-lensku kvikmynda- og sjón-varpsakademíunnar, Edd-
unni, skartaði leikkonan Ilmur
Kristjánsdóttir fagurrauðu trúð-
anefi. Þó Ilmur hafi vissulega verið
kómísk ásýndum var tilgangur
hennar ekki einungis sá að
skemmta áhorfendum. Hún var
ekki síður að minna á dag rauða
nefsins sem verður 1. desember nk.
Það er landsnefnd Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna á Íslandi,
UNICEF Ísland, sem hvetur lands-
menn til að gleðjast þennan dag og
gleðja aðra, einkum börn sem búa
við sára neyð. UNICEF hefur nú
hafið sölu á rauðum nefjum eins og
það sem Ilmur bar og rennur allur
ágóði af sölunni til verkefna sem
bágstödd börn víða um heim njóta
góðs af. Hápunktur söfnunarinnar
er hins vegar söfnunarþáttur sem
sýndur verður í opinni dagskrá
Stöðvar tvö, þar sem valinkunnir
skemmtikraftar láta að sér kveða
og hvetja í leiðinni fólk til að leggja
góðu málefni lið.
Hugmyndin að baki degi rauðanefsins kemur frá bresku góð-
gerðarsamtökunum Comic Relief,
sem voru stofnuð árið 1985 þegar
hungursneyð gekk yfir Eþíópíu.
Dagurinn er nú haldinn í Bretlandi
annað hvert ár sem Red Nose Day
og hefur fest sig svo rækilega í sessi
að hann er orðinn hálfgerður hátíð-
isdagur sem gjarnan kemur fram á
opinberum dagatölum. Allir sem
plastnefi geta valdið verða sér úti
um trúðanefin skæru og jafnvel
bílar eða heilu byggingarnar skarta
rauðu nefi í tilefni dagsins. Þá er
skólastarf að miklu leyti tileinkað
deginum.
Hönnun nefjanna hefur verið
mismunandi frá ári til árs. Til að
byrja með var boðið upp á hið sí-
gilda trúðanef, það sama og Íslend-
ingar eru nú hvattir til að bera. Síð-
ar óx nefinu handleggir og fætur,
það breyttist í tómat, það lét sér
vaxa hár í öllum regnbogans litum,
jafnvel feld, og það bættist á það
andlit. Næsti dagur rauða nefsins
verður haldinn í Bretlandi í mars
2007 og herma heimildar að nefið
verði í stærri kantinum það skiptið.
Sú hefð hefur skapast í Bretlandiað gefin er út smáskífa í að-
draganda dags rauða nefsins til að
skapa réttu, léttu stemninguna og
rennur ágóði sölu hennar til góð-
gerðarmála sömuleiðis. Útgáfunnar
er jafnan beðið með mikilli eft-
irvæntingu enda engir aukvisar
sem þar koma við sögu. Meðal
þeirra listamanna sem hafa í gegn-
um tíðina lagt sitt af mörkum með
þessum hætti má t.d. nefna drengja-
flokkana Westlife og Boyzone,
Kryddpíurnar, McFly og Right Said
Fred. Þessi hugmynd hefur verið
gripin á lofti hérlendis og er sala
hafin á smáskífu Baggalúts, Brostu.
En það er ávallt sjónvarps-útsendingin að kvöldi dags
rauða nefsins sem beðið er með
mestri óþreyju. Um stórviðburð er
að ræða þar sem helstu skemmti-
kraftar innan og utan heimsveld-
isins bregða á leik – hver með sínu
nefi auðvitað. Frá 1985 hefur á
þriðja hundrað skemmtikrafta gef-
ið vinnu sína til þessa góða mál-
efnis, þeirra á meðal John Cleese,
Jerry Springer, Johnny Depp, Ali
G, Robbie Williams, Woody Allen,
Rowan Atkinson, Little Britain-
tvíeykið o.fl.
Tilgangur dagsins er göfugur: aðbeita gríni og glensi til að
koma alvarlegum skilaboðum á
framfæri. Það verður spennandi að
sjá hvernig til tekst með framtakið
1. desember nk. og hvernig Íslend-
ingar taka í nýbreytnina, bæði í
hlátri og fjárframlögum talið.
Dagur rauða nefsins
Ljósmynd/Börkur Sigþórsson
Dagur rauða nefsins Ilmur er einn fjölmargra skemmtikrafta sem leggja degi rauða nefsins lið sitt.
Flóki Guðmundsson
» Síðar óx nefinuhandleggir og fætur,
það breyttist í tómat,
það lét sér vaxa hár í öll-
um regnbogans litum,
jafnvel feld, og það
bættist á það andlit.
floki@mbl.is