Morgunblaðið - 25.11.2006, Side 67
Fjöldi mynda Myndskreytingar úr 29 barnabókum eru á sýningunni í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Morgunblaðið/Ómar
Fastur liður Sýningin hefur verið haldin á hverju ári síðan 2002.
Morgunblaðið/Ómar
ÁRLEG sýning á myndskreytingum
sem komið hafa út í barnabókum á
árinu verður opnuð í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi í dag kl. 15.
Við opnunina verða Íslensku mynd-
skreytiverðlaunin, sem kennd eru
við Dimmalimm, veitt fyrir bestu
myndskreyttu barnabókina 2006.
Sýningin hefur verið haldin á
hverju ári síðan 2002. Guðrún Dís
Jónatansdóttir verkefnisstjóri hjá
Gerðubergi segir að sýndar verði
myndskreytingar úr 29 bókum en
myndskreytar sem taka þátt í sýn-
ingunni í ár eru 25. „Okkur fannst al-
veg tilefni til þess að vekja athygli á
þessum þætti bókaútgáfunnar.
Verðlaunin og sýningin hefur fallið í
góðan jarðveg hjá myndskreytum og
athyglin sem þetta vekur kemur
bókaútgáfunum einnig vel,“ segir
Guðrún Dís.
Þeir myndskreytar sem sýna verk
sín á sýningunni eru Anna Cynthia
Leplar, Anna Þóra Árnadóttir,
Ágúst Bjarnason, Áslaug Jónsdóttir,
Bjarni Þór Bjarnason, Björk
Bjarkadóttir, Brian Pilkington,
Brynhildur Jenný Bjarnadóttir,
Erla Sigurðardóttir, Freydís Krist-
jánsdóttir, Guðrún Hannesdóttir,
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, Hall-
dór Ásgrímur Elvarsson, Halldór
Baldursson, Karl Jóhann Jónsson,
Katrín J. Óskarsdóttir, Kristinn G.
Jóhannsson, Lóa Hlín Hjálmtýs-
dóttir, Margrét Laxness, Ólafur
Gunnar Guðlaugsson, Sigríður Ásdís
Jónsdóttir, Sigrún Eldjárn, Stephen
Fairbairn, Þorgerður Jörundsdóttir
og Þórey Mjallhvít Ómarsdóttir
Heiðardóttir.
Félag íslenskra bókaútgefenda,
Myndstef og Penninn standa að
verðlaununum ásamt Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi. Í dómnefnd
eru þau Aðalsteinn Ingólfsson, list-
fræðingur, Kalman le Sage de Fon-
tenay, auglýsingateiknari og Nanna
Kristín Magnúsdóttir, leikkona.
Myndskreytingar í barnabókum
Íslensku myndskreytiverðlaunin afhent í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í dag
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 67
menning
GESTIR þáttarins Orð skulu standa
í dag eru Guðrún Hólmgeirsdóttir
framhaldsskólakennari og Jón Kal-
dal aðstoðarritstjóri. Þau ásamt lið-
stjórunum Hlín Agnarsdóttur og
Davíð Þór Jónssyni fást við þennan
fyrripart, ortan um ótrúleg vand-
ræði höfuðborgarbúa vegna snjó-
komu í Reykjavík:
Alltaf er jafn undravert
þá ofan fellur snjórinn.
Fyrripartur síðustu viku var ortur í
tilefni af afmælisdegi Jónasar Hall-
grímssonar:
Betur hefði lifað lengur
listaskáldið góða.
Davíð Þór botnaði svo:
Því feikna stefgjöld fengi drengur
og feitan af þeim gróða.
Edda Sóley Óskarsdóttir
botnaði m.a.:
Ótrúlega illa gengur
öllum nú að ljóða.
Íslensk tunga illa gengur,
aldrei laus við sóða.
Auður Lilja Erlingsdóttir:
Í valinn fallinn vænn er drengur
veröld setur hljóða.
Hlustendur létu ekki sitt eftir liggja,
m.a. Magnús Geir Guðmundsson:
Ægifagri Íslandsdrengur,
eftirlæti fljóða!
Valur Óskarsson:
Er ungra slitnar ævistrengur,
alla setur hljóða.
Jón Rúnar Sveinsson:
Fjölnismaður, frábær drengur,
vor fremsti smiður ljóða.
Auðunn Bragi Sveinsson m.a.:
Að því hefði orðið fengur:
úrval mætra ljóða.
Lífið kvaddi ljúfur drengur,
- lítt sem hafði að bjóða.
Þórhallur Hróðmarsson:
Þá eflaust hefði ort sá drengur
aukin kynstur ljóða.
Georg Ólafur Tryggvason:
Færst þá hefði okkur fengur
í formi nýrra ljóða.
Sverrir Friðþjófsson:
Því svona merkur dáðadrengur
er draumur allra þjóða.
Eysteinn Pétursson:
0g svo væri einnig fengur
í Sæmundi fróða.
Undravert að ofan fellur snjórinn
Orð skulu standa Þáttastjórnandi ásamt liðstjórum.
Hlustendur geta sent sína botna á netfangið ord@ruv.is eða bréfleiðis til Orð skulu standa, Ríkisútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.
Útvarp | Orð skulu standa
LeikarinnMichael
Richards, sem er
þekktastur fyrir
hlutverk sitt sem
Cosmo Kramer í
Seinfeld-
þáttunum, hefur
ráðið sér al-
mannatengil sem
hefur tengsl við samfélag þeldökkra
í Bandaríkjunum. Þetta gerir hinn
57 ára gamli Richards í kjölfar niðr-
andi ummæla sem hann lét nýlega
falla um blökkumenn á sviði í grín-
klúbbi í Los Angeles.
Richards baðst afsökunar á fram-
ferði sínu í sjónvarpi og hann hefur
núna ráðið almannatengilinn How-
ard Rubenstein til þess að koma iðr-
un sinni á framfæri.
Að sögn Rubenstein vill Richards
„græða það stóra sár sem hann hef-
ur valdið bandarískum almenningi“.
Fólk folk@mbl.is Alltsem
flú
vilt
vita
um
EMINEM
Ævisaga
rappara.
Eiríkur
Örn
Nor›dahl
fl‡ddi.