Morgunblaðið - 25.11.2006, Page 70
70 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
staðurstund
Í Myndasal Þjóðminjasafnsins á 1.hæð stendur nú yfir greiningar-
sýningin Ókunn sjónarhorn. Fram-
undan er síðasta sýningarhelgin,
25.–26. nóvember og eru því síðustu
forvöð að skoða myndirnar. Þarna
má sjá ýmsar myndir víða að af land-
inu frá tímabilinu 1930–1950 sem
safninu hafa borist gegnum tímann.
Þegar sýningin var sett upp í lok
september hafði ekki tekist að bera kennsl á myndefnið og voru gestir
beðnir að gefa upplýsingar um það. Þetta hefur reynst árangursríkt því
með hjálp allra þeirra sem skoðað hafa sýninguna hefur nú tekist að greina
allmargar af myndunum. Betur má þó ef duga skal og eru gestir hvattir til
að koma og greina þær sem eftir eru um helgina! Þjóðminjasafnið er opið
kl. 11–17 alla daga nema mánudaga.
Söfn
Ókunn sjónarhorn í Myndasalnum
– síðasta sýningarhelgin
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Fella- og Hólakirkja | Kór kirkjunnar flytur
Gloria og Magnificat eftir Antonio Vivaldi
sunnudaginn 26. nóv. kl. 17. Einsöngvarar
verða Viera Manasek sópran, Sólveig Sam-
úelsdóttir messósópran, Guðrún Finnbjarn-
ardóttir alt og Stefán Ólafsson tenór. Miða-
verð 1000 kr.
Glerárkirkja | Kvennakórinn Embla verður
með tónleika kl. 17 þar sem flutt verða verk
eftir Heitor Villa-Lobos, Gustav Mahler og
Atla Heimi Sveinsson. Félagar úr kórnum
syngja einsöng og Aladár Rácz leikur með á
píanó. Stjórnandi er Roar Kvam.
Græni hatturinn | Silver eru amerísk/
íslenskir tónleikar með Védísi Hervöru og
Seth Sharp í fararbroddi kl. 21. Silver sam-
anstendur af bæði íslenskum og amerískum
dægur- og þjóðlagaperlum sem tvinnast
saman og segja sögu af von, ást og forvitni.
Miðaverð er 1.500 kr. og miðasala byrjar
klukkutíma fyrir tónleika.
Hafnarborg | Syngjandi jól eru árlegur við-
burður í Hafnarborg, þar sem fjöldi kóra
heldur uppi dagskrá frá kl. 10–20 laugar-
daginn 2. desember. Syngjandi jól er sam-
vinnuverkefni Hafnarborgar og Skólaskrif-
stofu Hafnarfjarðar. Aðalskipuleggjandi og
stjórnandi er Egill R. Friðleifsson.
NASA | Súperplötusnúðurinn Desyn
Masiello spilar á NASA 1. des. S Ghozt &
Brunhein ásamt Leibba hita upp. Forsala
miða í 12 Tónum. http://www.flex.is.
Norræna húsið | Tónlistarskólinn í Reykja-
vík heldur nemendatónleika laugardaginn
25. nóv. kl. 14. Flutt verða verk eftir Mozart.
Enginn aðgangseyrir.
Í tilefni afmælis tónskáldanna Sjostakovitsj
og Mozarts heldur Camerarctica tvenna
tónleika sunnudaginn 26. nóv. Fyrri tónleik-
arnir hefjast kl. 13.15 og þeir síðari kl. 15.15.
Miðaverð 1500/750 kr.
Ráðhús Reykjavíkur | Barnatónleikar
Lúðrasveitar verkalýðsins verða haldnir
sunnudaginn 26. nóv. kl. 16.30 í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Flutt verður dagskrá með vin-
sælum og sígildum barnalögum. Skoppa &
Skrítla koma til þess að skoða hljóðfærin og
athuga hvernig heyrist í þeim. Aðgangur er
ókeypis.
Ráin, Keflavík | Hljómsveitin Góðir lands-
menn í kvöld.
Seltjarnarneskirkja | Selkórinn, ásamt
Drengjakór Þorgeirsbræðra og Kammerkór
Þorgeirsbræðra, heldur aðventutónleika í
Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 26.
nóvember kl. 17. Á efnisskrá kóranna verður
úrval aðventu- og þjóðlaga. Stjórnandi Sel-
kórsins er Jón Karl Einarsson og stjórnandi
Þorgeirsbræðra er Signý Sæmundsdóttir.
Myndlist
Anima gallerí | Helgi Þorgils Friðjónsson og
Einar Falur Ingólfsson: Portrett af stað.
Art-Iceland.com | Gunnar S. Magnússon og
Álfheiður Ólafsdóttir sýna verk sín.
Artótek, Grófarhúsi | Anna Hallin myndlist-
armaður sýnir teikningar og myndband á
Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafni,
Tryggvagötu 15. Til áramóta. artotek.is.
Café 17 (verlsunin 17) | Mæja sýnir 20 ný
málverk, flest eru lítil en hver mynd er
ævintýri út af fyrir sig. Allir velkomnir.
Café Karólína | Hanna Hlíf Bjarnadóttir með
sýninguna „Puntustykki“. Til 1. des.
DaLí gallerí | Margrét I. Lindquist sýnir til
25. nóv. Opið á fös. og lau. kl. 14-18.
Gallerí BOX | Rannveig Helgadóttir opnar
sýninguna MUSTERI í dag kl. 15. Til 7. des.
Gallerí Stígur | Myndlistarsýning Auðar
Ingu Ingvarsd. til 10. des.
Hafnarborg | Baski (Bjarni S. Ketilsson) er
með sýningu á olíumálverkum og teikn-
ingum í neðri sölum til 27. nóv.
Ljósmyndarinn Spessi til 30. des.
Hjá Marlín | Birgir Breiðdal, Biggi, sýnir til
23. desember.
Hrafnista, Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 8. janúar.
Hún og Hún | Skólavörðustíg 17b. Sigrid
Österby sýnir grafík-mósaík og tréskurð til
14. des.
i8 | Katrín Pétursdóttir Young vöruhönn-
uður sýnir snjóbretti og hjálma.
Jónas Viðar Gallerí | Kristinn G. Jóhanns-
son sýnir grafík. Opið fös. og lau. kl. 13–18.
Karólína Restaurant | Snorri Ásmundsson
sýnir óvenjuleg málverk til 12. janúar.
Kling og Bang gallerí | Helga Óskarsdóttir
og Kristinn Már Pálmason sýna.
Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Kristinn
Már Pálmason sýnir málverkainnsetningu.
Gryfja: Þráðlaus tenging. Kristín Helga
Káradóttir sýnir myndbandssviðsetningu.
Arinstofa: Óhlutbundin verk í eigu safnsins.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega
nema mánudaga kl. 14–17. Höggmynda-
garðurinn er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á
verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946–
2000). Opið kl. 12–17 virka daga nema
mánudaga.
Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eftir
1980 í Listasafni Íslands. Til 26. nóv.
Listamannaspjall með Brynhildi Þorgeirs-
dóttur og Huldu Hákon á sun. kl. 14. Þær
fjalla um sýninguna út frá tímamótasýningu
í JL-húsinu 1983, og um hvernig verk þeirra
tengjast fyrirbærinu og á hvaða forsendum
þær tóku þátt í þeirri gerjun sem kennd hef-
ur verið við nýja málverkið. Ókeypis að-
gangur. Sýningin verður framlengd til 3. des.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan-
adísk menningarhátíð í Kópavogi – 3 sýn-
ingar á nútímalist frumbyggja í Kanada.
Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desember.
Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning
Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar, „Sog“.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Banda-
rísk list á þriðja árþúsundinu. Margir af
fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem
fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýning-
unni.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Næstsíð-
asti sýningardagur á verkum Hallsteins Sig-
urðssonar. Opið í dag og á morgun milli kl.
14 og 17. Á morgun klukkan 15 mun Jón
Proppé, heimspekingur og listgagnrýnandi,
leiða gesti um sýninguna. Listamaðurinn
verður einnig á staðnum og segir frá tilurð
verkanna og svarar spurningum.
Listasalur Mosfellsbæjar | Nú stendur yfir
sýning á verkum Ólafar Oddgeirsdóttur í
Listasal Mosfellsbæjar. Til 9. des.
Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu-
hreiðrinu hefur verið framlengd um óákveð-
inn tíma. www.arnibjorn.com.
Skaftfell | Sýning vegna listmunauppboðs.
42 verk eftir 36 listamenn. Verkin eru af öll-
um stærðum og gerðum. Sjá www.skaftfell-
.is.
Smiðjan – Listhús | Sýning á verkum eftir
Tolla til 30. nóv. Opið alla virka daga kl. 10–
18 og lagardag kl. 12–16. Allir velkomnir.
Suðsuðvestur | Hrafnkell Sigurðsson með
sýninguna „Athafnasvæði“. Til 26. nóv.
VeggVerk | Verkið Heima er bezt er blanda
af málverki og pólitísku innleggi í anda hefð-
bundins veggjakrots. Til 25. nóv.
Vinnustofa Katrínar og Stefáns | Textíl-
vinnustofa Katrínar og Stefáns, Hlaðbæ 9,
Reykjavík, verður opin næstu fjórar helgar.
Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning á
ljósmyndum sem varðveittar eru í Mynda-
safni Þjóðminjasafnsins og ekki hefur tekist
að bera kennsl á.
Söfn
Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 13.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í tilefni af
20 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju er sýn-
ing í forkirkjunni um tilurð og sögu kirkj-
unnar, sem Borgarskjalasafn hefur sett
saman með sóknarnefnd og Listvinafélagi
Hallgrímskirkju. Til. 30. nóv.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú-
inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk-
aðist í kringum aldamótin 1900.
Gljúfrasteinn – hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóðleið-
sögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku.
www.gljufrasteinn.is.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld
sem fannst við fornleifauppgröft í Reykjavík
2001. Fróðleik er miðlað með margmiðl-
unartækni. Opið alla daga kl. 10–17.
Landsbókasafn Íslands – háskólabókasafn
| Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóð-
deildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasögum
til Íslands í gegnum aldirnar.
Sú þrá að þekkja og nema … Sýning til heið-
urs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili – 150
ára minning.
Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson
var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar.
Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og
Skugga-Svein, en skáldpresturinn lét eftir
sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Til 31.
des. www.landsbokasafn.is.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12–
17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leik-
myndir sem segja söguna frá landnámi til
1550. www.sagamuseum.is.
Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýjar
lifandi sýningar. Innreið nútímans og upphaf
símasambands við útlönd. Símritari sýnir
gamla ritsímabúnaðinn í fyrstu ritsímastöð
landsins. Vjelasmiðja Jóhanns Hanssonar –
Málmsteyperíið, Kapalhúsið og húsin á
Wathnestorfunni. Opið virka daga kl. 13–16.
www.tekmus.is.
Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn –
Íslensk og erlend skotvopn ásamt upp-
stoppuðum veiðidýrum og veiðitengdum
munum. Sjá nánar á www.hunting.is. Opið
um helgar í nóvember kl. 11–18.
Víkin, Sjóminjasafnið í Reykjavík | Á Sjó-
minjasafninu í Grandagarði 8 eru þrjár sýn-
ingar í vetur. Togarasýning um 100 ára sögu
togaraútgerðar á Íslandi, sýningin „Úr ranni
forfeðranna“ og ljósmyndasýning Hannesar
Baldvinssonar frá Siglufirði, „Í síldinni á
Sigló“. Sjóminjasafnið er opið um helgar kl.
13–17. Allir velkomnir.
Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning á bókum
Berlínarforlagsins Mariannenpresse stend-
ur yfir. Hver bók er listaverk unnið í sam-
vinnu rithöfundar og myndlistarmanns.
Aðrar sýningar eru Handritin, Íslensk tísku-
hönnun og Fyrirheitna landið.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal eru til
sýnis útsaumuð handverk listfengra kvenna
frá ýmsum tímum. Sýningin byggir á rann-
sóknum Elsu E. Guðjónsson, textíl- og bún-
ingafræðings.
Þjóðskjalasafn Íslands | Í tilefni af norræna
skjaladeginum 2006 hefur safnið sett upp
Sýnd með íslensku og ensku tali
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Pulse kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Casino Royale kl. 2, 5, 8 og 11 B.i. 14 ára
Casino Royale LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 11
Borat kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Mýrin kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Open Season m.ensku.tali kl. 12, 2, 4 og 6
Skógarstríð m.ísl.tali kl. 12, 2 og 4
Draugahúsið m.ísl.tali kl. 12 og 1.40
Casino Royale kl. 2 - 5 - 8 og 11-KRAFTSÝNING B.i. 14 ára
Borat kl. 10 B.i. 12 ára
Mýrin kl. 6 B.i. 12 ára
Open Season m.ensku tali kl. 8
Skógarstríð m.ísl.tali kl. 2 (450 kr.) - 4
“Besta Bond myndin í áraraðir.„
eeee
V.J.V. Topp5.is
“Besta Bond myndin frá upphafi...„
eeee
Þ.Þ. Fbl.
“Ein besta myndin frá upphafi... „
eeee
S.V. Mbl.
M.M.J. Kvikmyndir.com
eeee
Blaðið
Þeir eru að fylgjast með þér
Þeir eru að elta þig
Horfðu í augun á þeim
Og þú ert orðinn
sýktur
Sjáðu eina
ógnvænlegustu
mynd ársins
óklippta
í bíó
...ef þú þorir!
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á DÝRIN TAKA VÖLDIN!
HÁDEGISBÍÓ500 KR. KL. 12Í SMÁRABÍÓ
HÁDEG
ISBÍÓ
500 K
R. KL.
12
Í SMÁR
ABÍÓ