Morgunblaðið - 14.12.2006, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
„MÍNIR bátar hafa allir borið nafnið
Hringur og haft einkennisstafina GK
18. Faðir minn átti þetta númer og
það hefur fylgt mér alla tíð. Ég
keypti minn fyrsta bát hér í Siglu-
firði, þá vorum við þrír sem stóðum
að útgerðinni og keyptum bátinn,
sem var um 60 tonn, af Daníel Þór-
hallssyni. En það fer vel á því að fá
nýjan og glæsilegan bát hér aftur,“
sagði Aðalsteinn Einarsson, útgerð-
armaður í Hafnarfirði, þegar frétta-
maður Versins hitti hann í Siglufirði
fyrir nokkru. Þá var hann að taka við
nýjum Hring GK 18 sem JE véla-
verkstæði í Siglufirði hafði smíðað
fyrir hann.
Ánægðir með bátinn
Aðalsteinn er nú búinn að gera
bátinn út frá Hafnarfirði í um mánuð
og fara tíu róðra með línu. Sonur
hans Einar er með honum á sjónum.
Aðalsteinn sagðist vera afar ánægð-
ur með bátinn. Hann hefði staðið
fyllilega undir væntingum, færi
ágætlega í sjó og gengi mjög vel
hvort sem hann væri tómur eða með
afla í sér. „Mér finnst þetta vera
mjög góð smíði og vandaður frá-
gangur á öllu hjá Siglfirðingunum á
þessum fyrsta báti sem þeir smíða
alveg frá grunni,“ sagði Aðalsteinn.
Aðalsteinn hefur verið til sjós í
fimmtíu ár. Hann byrjaði í eigin út-
gerð árið 1969 með öðrum eins og áð-
ur sagði en hefur síðustu sjö ár stað-
ið einn að útgerðinni. Hann segir að
það gangi misjafnlega að fá fólk í
beitninguna. Sú vinna sé ekki í tísku
um þessar mundir og unga fólkið líti
ekki við svoleiðis vinnu.
„Góð smíði hjá
Siglfirðingunum“
Ljósmynd/Örn Þórarinsson
Fiskveiðar Feðgarnir Einar Aðalsteinsson og Aðalsteinn Einarsson eru ánægðir með nýja bátinn.
NÝ Skipaskrá og sjómannaalm-
anak er komin út og er bókinni
dreift frítt til útgerða skipa og
báta í rekstri. Dreifingu á bókinni
lýkur fyrir ára-
mót. Útgefandi
er fyrirtækið
Árakló slf. og er
þetta fyrsta út-
gáfa þess. Aug-
lýsingar kosta
bókina.
Skipaskráin
og sjómannaalm-
anakið er hefð-
bundin handbók sjómanna með
upplýsingar um: sjávarföll, vita- og
sjómerki, veður og sjólag, fjar-
skipti, öryggismál og fleira. Nýj-
ungar í bókinni eru helstar að
lagakaflinn er settur á geisladisk,
fyrirferð lagakaflans eykst með ári
hverju og því var þessi leið valin.
Í skipaskrá eru öll skip og bátar
sem eru á skrá hjá Siglingastofn-
un, skránni er skipt í tvo hluta,
mynda- og textaskrá. Í myndaskrá
eru skip og bátar sem eru í
rekstri, þar með taldir opnir bátar.
Í textaskrá eru upplýsingar um
önnur skip og báta.
Ýmislegt aukaefni á diski
Þar sem diskurinn rúmar meira
efni en lagakaflann var tækifærið
notað og einnig sett á diskinn ann-
að efni sem getur komið sjómönn-
um vel við vinnu sína, ýmis kort og
eyðublöð eru á diskinum. Línurit
yfir sjávarföll, til margra ára, á
átján stöðum á landinu og meira
en þúsund stöðum á jörðinni er
með á diskinum og gera má ráð
fyrir að þetta efni eigi eftir að
vera nytsamlegt fyrir notendur
bókarinnar og disksins.
Skipaskráin á diskinum er eins
og myndaskráin í bókinni, með ný-
og afskráðum skipum og bátum.
Skipaskrá
komin út
Útgerðarfélagið Flugalda ehf. á
Suðureyri hefur fengið afhentan
nýjan Cleopatra-bát frá Bátasmiðj-
unni Trefjum í Hafnarfirði.
Að útgerðinni standa feðgarnir
Þórður E. Sigurvinsson og Sig-
urvin Magnússon. Þórður er jafn-
framt skipstjóri á bátnum.
Nýi báturinn hefur hlotið nafnið
Hrefna ÍS 267 og leysir af hólmi
eldri Cleopatra-bát með sama
nafni. Báturinn er 15 brúttótonn
og er í krókaaflamarkskerfinu.
Hrefna er af gerðinni Cleopatra
38, byggður á sömu hönnun og
aflabátarnir Guðmundur og Hrólf-
ur Einarssynir ÍS.
Aðalvél bátsins er af gerðinni
Yanmar 6HYM-ETE, 700 hestöfl,
tengd ZF-gír. Ljósavél er af gerð-
inni Kohler.
Báturinn er útbúinn sigl-
ingatækjum af gerðinni Furuno
frá Brimrúnu.
Báturinn er einnig útbúinn með
vökvadrifinni hliðarskrúfu sem
tengd er sjálfstýringu hans. Bát-
urinn er útbúinn til línuveiða.
Línuspil og færaspil er frá Beiti.
Öryggisbúnaður bátsins kemur
frá Viking.
Rými er fyrir tólf 660 lítra kör í
lest. Í bátnum er innangeng upp-
hituð stakkageymsla. Borðsalur er
í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra
og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra
í lúkar auk eldunaraðstöðu með
eldavél, örbylgjuofni og ísskáp.
Ný 15 tonna Cleopatra 38 til Suðureyrar
ÚTBREIÐSLA þorsks er að breyt-
ast þannig að minna er nú af þorski á
grunnslóð og þorskurinn virðist hafa
færst norðar í kaldari sjó á meira
dýpi. Þorskurinn virðist almennt
nokkuð vel haldinn en þó er áberandi
lítið líf og lélegt ástand á NA-miðum.
Þetta kom fram á árlegum fundi
samstarfshóps um þorskrannsóknir.
Þar komu saman um 20 skipstjórn-
armenn og fulltrúar útgerða sem
búa yfir sérþekkingu á sviði þorsk-
veiða mismunandi útgerðarflokka
allt í kringum landið ásamt sérfræð-
ingum Hafrannsóknastofnunarinn-
ar. Farið var yfir gang þorskveiða á
árinu í afla fiskiskipa og niðurstöður
stofnmælinga Hafrannsóknastofn-
unarinnar (togararall) í mars og
október. Á fundinum voru sérstak-
lega til umfjöllunar áhrif veiða á um-
hverfið eftir veiðarfærum.
Veiðar með svipuðum
hætti og í fyrra
Markmið með fundinum var ekki
að skila niðurstöðu um þessa þætti
en umræður og reynsla kunnáttu-
fólks um þorskveiðarnar eru mikils-
vert framlag við undirbúning stofn-
úttektar sem fyrir dyrum stendur og
ráðgjöfin í vor byggist á. Skipstjórn-
armenn voru sammála um að veiðar
á árinu hefðu gengið með svipuðum
hætti og í fyrra sem er í samræmi við
að þorskstofninn er metinn hafa ver-
ið af mjög svipaðri stærð undanfarin
ár.
Á seinni hluta fundarins fluttu sér-
fræðingar Hafrannsóknastofnunar-
innar sex erindi sem öll fjölluðu um
áhrif veiða á umhverfið og jafnframt
höfðu sjómenn framsögu um sama
efni eftir veiðarfærum. Góður tími
var síðan gefinn til skoðanskipta og
umræðna.
Í forsvari fyrir samráðshóp um
þorskrannsóknir eru þeir Björn Æv-
arr Steinarsson fiskifræðingur og
Kristján Þórarinsson stofnvistfræð-
ingur.
Útbreiðsla þorsksins að breytast
Á FYRSTU 10 mánuðum ársins er
samanlagt útflutningsverðmæti
ferskra þorsk- og ýsuflaka komið yf-
ir 10 milljarða. Aukningin milli ára
er 30%. Þorskflökin hafa hækkað um
20% og ýsan um 16%. Í báðum teg-
undum er magnaukning, 7% í þorsk-
flökum og 15% í ferskum ýsuflökum.
Frá þessu er sagt á heimasíðu
Landssambands smábátaeigenda,
en upplýsingarnar eru fengnar frá
Hagstofu Íslands. Eins og á síðasta
ári er langmest flutt út til Bretlands
af þorskinum eða 48% af heildar-
magninu en var 47% á fyrstu 10 mán-
uðunum 2005.
Bretland hefur einnig vinninginn í
ferskum ýsuflökum, en þangað hefur
helmingur alls útflutningsins farið. Á
sama tíma í fyrra var þetta hlutfall
60%. Bandaríkin eru í öðru sæti með
37% og Frakkland er númer þrjú í
röðinni með 8% heildarmagnsins.
Veruleg magnaukning er til Frakk-
lands og hefur hlutdeild Frakka tvö-
faldast á einu ári.
Meira út
af flökum
ÚTSELURINN við vesturströnd
Skotlands gerist æ frekari til fjörs-
ins. Ný könnun bendir til að árið
2002 hafi hann étið 77.000 tonn af
fiski, en árið 1985 var talið að hann
æti 53.000 tonn.
Á sama tímabili hefur selurinn
aukið ýsuát úr 1.500 tonnum í 6.600
tonn og þorskátið hefur farið úr
5.400 tonnum í 7.100. Þetta eru nið-
urstöður rannsóknardeildar sjávar-
spendýra við St. Andrews-háskól-
ann. Selur hefur ekki verið veiddur á
þessum slóðum í langan tíma og hef-
ur honum fjölgað nokkuð eftir veru-
lega lægð fyrir mörgum árum.
Útselurinn
étur meira
♦♦♦
ÚR VERINU