Morgunblaðið - 14.12.2006, Síða 24
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Setjið kerti aldrei nálægt
tækjum sem gefa frá sér
hita s.s. sjónvarpi. Hiti frá
tæki veldur aukinni
hættu á óhappi.
Munið að
slökkva á
kertunum
i
Jóladraumur Star Wars
Lego leikföngin eru drauma-
gjöf margra barna.
DÓTABÚÐIN í Smáralind og
Kringlunni hefur hætt að bjóða
Lego-vörur í verslunum sínum. Í
staðinn hafa þeir hafið sölu á öðr-
um kubbaleikföngum. Að sögn inn-
kaupastjóra Lego á Íslandi anna
Lego-verksmiðjurnar ekki eft-
irspurn og því er skortur á vörunni
í allri Evrópu.
Neytandi hafði samband við
Morgunblaðið og kvartaði undan
því að erfiðara væri að nálgast
Lego-vörurnar en áður. M.a. væri
Dótabúðin hætt að bjóða upp á
þessi leikföng í verslunum sínum.
„Við ákváðum að fara nýjar leiðir
og bjóða nýja vöru, Megablocks,
sem er gott betur en samkeppn-
ishæf og á lægra verði, í stað þess
að hafa sömu vöru á boðstólum í
fleiri en einni verslun í Kringlunni
og Smáralind,“ segir Aníta Ólafs-
dóttir, verslunarstjóri Dótabúð-
arinnar í Smáralind, og vísar þar til
þess að Hagkaupsverslanirnar eru
með Lego í sínum hillum. „Þannig
erum við í raun að bjóða neytand-
anum breiðara úrval.“
Hún segist ekki telja að með
þessu sé verið að skerða þjónustu
við neytendur. Lagerpláss versl-
unarinnar bjóði ekki upp á að hafa
bæði vörumerkin á boðstólum. „Á
sínum tíma ákváðum við að bjóða
fremur upp á Bratz-dúkkurnar en
Barbie og það hefur alveg skilað
sér. Vissulega eru Lego fínar
vörur, góðar og þroskandi, en hing-
að til hafa þær verið það eina sem
við þekkjum í kubbaleikföngum því
annað hefur ekki verið í boði. Mað-
ur má ekki heldur vera of hræddur
við að bjóða upp á nýjungar og mitt
mat er að Megablocks séu skemmti-
legri vörur.“
Sprenging í Star Wars-áhuga
Þorleifur Stefánsson, inn-
kaupa- og sölustjóri Lego
á Íslandi, segir skort á
Lego-vörum í allri
Evrópu. „Aukn-
ingin hefur verið
svo mikil hjá Lego
að þeir anna ekki
eftirspurn. Hins
vegar erum við nýbúin að fá send-
ingu sem er að koma í verslanir
þessa stundina en það má búast við
að hún fari hratt. Það er engin
spurning að það er vöruskort-
ur.“
Hann segir símann ekki
stoppa hjá sér vegna fyrirspurna
út af Star Wars Lego, sem er
nánast ófáanlegt í allri Evr-
ópu. „Við, sem
erum með
Lego, hitt-
umst yfirleitt
á sýn-
ingu í byrjun febrúar og þá hafði
enginn innkaupamaður trú á Star
Wars. Eðlilega fóru verksmiðj-
urnar eftir því og fram-
leiddu frekar það sem
þeir, sem eiga að þekkja
þetta, töldu að myndi
seljast. Svo kom þessi
sprenging í
áhuga á Star
Wars
Lego og enginn
skilur af hverju enda
engin bíómynd í gangi
eða annað sem ætti að ýta
undir.“
Star Wars-aðdáendur ættu þó
ekki að örvænta því von er á nýjum
Star Wars Lego-leikföngum á næst-
unni, þó ekki fyrir jól. „Strax í jan-
úar verða búðirnar fullar af nýjum
Star Wars-vörum en þá eru sex nýj-
ar pakkningar væntanlegar.“
Skortur á Lego
í verslunum
Vinsælt Lego-verksmiðjurnar í Evrópu hafa ekki annað eftirspurn.
neytendur
24 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Bónus
Gildir 14. des.–17. des. verð nú verð áður mælie. verð
Móa grillaður kjúklingur heill ........ 479 719 479 kr. kg
Bónus ferskar kjúklingabringur .... 1.398 1.798 1.398 kr. kg
Bónus ferskir kjúklingaleggir ........ 349 449 349 kr. kg
Bónus fersk kjúklingalæri ............ 349 449 349 kr. kg
Ferskt ungnautahakk .................. 979 1259 979 kr. kg
Ali hamborgarhryggur m.beini...... 1.189 1.528 1.189 kr. kg
Ali hamborgarhryggur úrbeinaður . 1.539 1.979 1.539 kr. kg
Frón piparkökudeig 300 g ........... 159 0 530 kr. kg
Bónus ís m. sósufyllingu 1 ltr....... 259 0 259 kr. ltr
Bónus ferskur trönuberjasafi 1 ltr. 198 259 198 kr. ltr
Fjarðarkaup
Gildir 14. des.–17. des. verð nú verð áður mælie. verð
FK jurtakryddað lambalæri .......... 1.298 1.855 1.298 kr. kg
Hangiframp. úrb. frá Fjallalambi .. 1.273 1.698 1.273 kr. kg
Ali „pork roast“ steik................... 1.123 1.498 1.123 kr. kg
Hamborgarar 4x80 g m/brauði.... 398 498 99 kr. stk.
SS hátíðarlæri............................ 1.998 0 1.998 kr. kg
Grillaður kjúklingur ..................... 598 798 598 kr. stk.
Mjúkís frá Kjörís 2 ltr................... 489 748 245 kr. ltr
Mackint. 1.6kg +After Eight 200g 1.989 2.587 1.209 kr. kg
Wagner stone oven pítsur 350 g .. 298 428 840 kr. kg
Coca cola 4x2 ltr +DVD kaupauki 780 0 195 kr. stk.
Hagkaup
Gildir 14. des.–17. des. verð nú verð áður mælie. verð
Svínahnakki úrb. úr kjötborði....... 998 1.579 998 kr. kg
Svínalundir fylltar úr kjötborði ...... 1.998 2.649 1.998 kr. kg
Nautalundir frosnar .................... 2.799 3.998 2.799 kr. kg
Danskur hamborgarhryggur ......... 1.598 1.998 1.598 kr. kg
After Eight 400 g........................ 349 629 872 kr. kg
Mackintosh dósir 3 kg ................ 2.599 3.899 866 kr. kg
Kjörís mjúkís Bananasplitt 1ltr..... 499 319 319 kr. ltr
Kjörís Mjúkís með súkkulaði ltr .... 499 319 319 kr. ltr
Kjörís mjúkís pekanhn/karam.1ltr 499 319 319 kr. ltr
Kjörís mjúkís vanilla 1 ltr ............. 499 319 319 kr. ltr
Krónan
Gildir 14. des.–17. des. verð nú verð áður mælie. verð
Móa kjúklingabringur magnpk....... 1.875 2.679 1.875 kr. kg
Gríms gratin. ýsa m/brokk. 400 g . 299 396 748 kr. kg
Gríms plokkfiskur 400 g ............... 299 399 748 kr. kg
Móðir náttúra brokkólíbuff 320 g... 457 609 1.428 kr. kg
Móðir náttúra sólskinssó 220 ml... 239 319 1.086 kr. ltr
Bk jólagrísasteik .......................... 1.256 1.794 1.256 kr. kg
Hóla hamborgarhryggur m/beini ... 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Hóla hangiframpartur úrbeinaður .. 1.398 1.748 1.398 kr. kg
Hóla bayonneskinka..................... 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Freschetta pítsur XL 500 g 3 teg ... 389 449 389 kr. stk.
Nóatún
Gildir 14. des.–17. des. verð nú verð áður mælie. verð
Lambalundir .............................. 2.998 3.898 2.998 kr. kg
Grísalundir m/sælkerafyllingu ..... 2.498 2.798 2.498 kr. kg
Grísalundir................................. 1.798 2.598 1.798 kr. kg
Eðalf. reyktur lax heil flök ............ 1.499 2.499 1.499 kr. kg
Eðalf. graflax heil flök ................. 1.514 2.524 1.514 kr. kg
ÍF fasanapatè krukka 200 g ........ 898 998 4.490 kr. kg
ÍF hreindýrapatè krukka 200 g..... 898 998 4.490 kr. kg
Ora jóla/árgangssíld 630 g ......... 499 599 792 kr. kg
1944 hangikjöt í uppstúf ............ 655 728 655 kr. pk.
1944 fiskibollur m/kartöflum ...... 448 498 448 kr. pk.
Samkaup/Úrval
Gildir 14. des.–17. des. verð nú verð áður mælie. verð
Bautab. hamborgarhryggur ......... 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Gourmet lambalæri bláberja ....... 1.387 1.874 1.387 kr. kg
Gourmet ungnautahakk .............. 942 1.449 942 kr. kg
Borg. villikry. hátíðarlambalæri..... 1.392 1.989 1.392 kr. kg
Gæðagrís hamb.hryggur m/beini . 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Kalkúnn 1.fl ............................... 599 899 599 kr. kg
Ísfugl kjúkl.leggir magnpakkn. ..... 389 599 389 kr. kg
Nói konfekt 800 g ...................... 1.799 2.199 2.249 kr. kg
Emmess jólaís 1,5 ltr.................. 399 599 266 kr. ltr
Emmess ískaka 6 manna............ 599 799 599 kr. stk.
Gratíneruð ýsa og grísalundir
helgartilboðin