Morgunblaðið - 14.12.2006, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.12.2006, Qupperneq 28
ferðalög 28 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Áningin komin út Gistibæklingurinn Áning er nú kominn út þrettánda árið í röð en hann kemur út í 55 þúsund eintök- um á íslensku, ensku og þýsku. Í bæklingnum er að finna upplýs- ingar um næstum því þrjú hundr- uð gististaði, tæplega 100 tjald- svæði og yfir 80 sundlaugar og staðsetningu þeirra um land allt. Áningu er dreift ókeypis á öllum helstu ferðamannastöðum innan- lands, á upplýsingamiðstöðvum, hótelum og gistiheimilum og víðar. Áningu er einnig dreift á meg- inlandi Evrópu frá skrifstofu Ferðamálastofu í Frankfurt og frá dreifingarmiðstöð þeirra í Frakk- landi. Þá er Áningu einnig dreift um borð í Norrænu. Útgáfufélagið Heimur hf. gefur bæklinginn út og er ritstjóri Ottó Schopka Sól, göngur og list á Spáni Göngu-Hrólfur, sem starfar inn- an Úrvals-Útsýnar, efnir til Spán- arferðar 2.–9. júní nk. þar sem hægt verður að sameina strandlíf á Costa Brava, léttar þriggja til fimm tíma gönguferðir, góðan mat og heimsóknir á listasöfn. Um er að ræða einnar viku dvöl í strandbænum Tossa de Mar sem er um 80 km norðaustur af Barce- lona. Gist á gistiheimilinu Hostal Hekla sem á sér íslenska sögu, en þar getur allt að tuttugu manna hópur haft húsið út af fyrir sig. Á meðan á dvölinni stendur verður farið í þrjár léttar göngu- ferðir meðfram strönd Costa Brava. Farið verður að auki í dagsferðir í listasöfn spænsku myndlistarrisanna Salvadors Dali og Pablos Picasso í Figueras og Barcelona. Lægra verð fyrir börnin Flugfélag Íslands býður nú lækkað verð á fargjaldi fyrir börn 5 til 11 ára sem fljúga ein á innan- landsleiðum félagsins. Fargjaldið verður einnig í boði fyrir börn 2 til 4 ára, en þau börn mega samkvæmt reglum ekki fljúga ein og þurfa því að hafa fullorðinn með sér. Ábyrgð flugfélags- ins er mikil þegar börn 5 til 11 ára ferðast ein og gilda strangar al- þjóðlegar reglur þar um. Barnið fær sér- staka fylgd flugfreyju/ flugþjóns sem lítur eftir barninu alla ferðina og í hverju flugi má aðeins takmark- aður fjöldi barna vera. Tíðar flugferðir kosta fjárútlát og til að koma til móts við for- ráðamenn þessara barna býður Flugfélag Íslands nú sérstakt far- gjald undir yfirskriftinni „Flug- kappar“ og hefur fargjald fyrir þennan hóp þar með lækkað um ríflega 40%. Fargjaldið gildir á alla áfanga- staði Flugfélagsins innanlands og gilda rúmar reglur um bókanir og breytingu á farartíma. Ef keyptar eru tíu ferðir í einu fá börnin að auki bakpoka með gjöf. vítt og breitt www.flugfelag.is www.gonguhrolfur.is www.uu.is/ithrottir/gonguferdir www.heimur.is/world www.icelandreview.com Þegar komið er til Wash-ington er ekki hægt annaðen hugsa um pólitík. Þar er,jú, Hvíta húsið og í því er forseti Bandaríkjanna. Það kom því nokkuð á óvart þegar staðkunnugur sagði mér að þó að pólitíkin væri mik- ilvæg væri ferðaþjónustan borginni ekki síður mikilvæg. Ferðaþjónustan er annar stærsti atvinnuvegur þeirra Washington-manna og ef miðað er við pólitíkina eru hlutföllin 70–30 pólitík- inni í hag. Ég átti þess kost að dvelja einn sól- arhring í Washington nýlega og eftir þá heimsókn er mér nokkuð ljóst að full ástæða er til að heimsækja borg- ina aftur og eiga þar góðar stundir. Upphafleg áætlun mín og þeirra sem ég ferðaðist með var að fara í hjólreiðatúr og skoða minnismerkin sem eru í grennd við Capitol Hill. Sú áætlun var þó felld niður því þegar halda átti í túrinn rigndi svo mikið að ekki var hundi út sigandi, hvað þá ís- lenskum konum á hjólhestum. Plan- inu var snarlega breytt í skoðunar- ferð í bíl þar sem keyrt var um minnismerkjaslóðir. Á hótelinu þar sem ég gisti voru okkur afhentar regnhlífar til afnota um daginn. Það er ekki á Bandaríkja- mennina logið þjóðerniskenndinni því regnhlífarnar voru í bandarísku fána- litunum og þjóðlegar í meira lagi. Með þessar regnhlífar að vopni lagði hópurinn minn af stað eftir öku- túrinn í átt að Georgetown, sem kunnugir segja mér að sé einn skemmtilegasti hluti Washington. Í Georgetown eru vissulega margar verslanir og ekki úr vegi að kíkja í búðir þar. Nefna má Pottery Barn, Gap, H&M, Mac-snyrtivörubúð og skóbúðir af öllu tagi. Verðið er í bandarískum dúr, þ.e. talsvert lægra en Íslendingar eiga að venjast í hér- lendum verslunum. Ekki má heldur gleyma því að barir og veitingastaðir eru við hvert fótmál í Georgetown og gott að stinga sér þar inn og hvíla þreytta fætur. Í Washington gisti ég á því flott- asta hóteli sem ég hef komið á. Það heitir Melrose og er við Pennsylvania Avenue. Nóttin þar kostar vanalega um 250 bandaríska dollara, en lögð var áhersla á það við mig að fólk ætti ekki að hika við að reyna að fá verðið niður og sérstaklega nefnt að frá fimmtudegi til sunnudags væri hægt að fá nóttina niður í allt að 150 doll- ara. Öll þjónusta var þar til mikillar fyrirmyndar og aðeins steinsnar til Georgetown. Neðanjarðarlestarstöð er líka þar rétt hjá, þaðan sem hægt er að komast til allra átta á einfaldan hátt. sia@mbl.is Washington er ekki bara pólitík Morgunblaðið/Sigrún Ásmundar Þjóðlegar Regnhlífarnar björguðu því sem bjargað varð í rigningunni. Í Washington má ým- islegt annað gera en velta sér upp úr heimsmál- unum, eins og Sigrún Ás- mundar komst að nýlega í dagsheimsókn til borg- arinnar. Hvíta húsið Með löngum fyrirvara sagði leiðsögumaðurinn okkur að taka upp myndavélarnar því við færum bráðum fram hjá Hvíta húsinu. Nær komumst við svo ekki. En þessi sögufræga bygging er þó auðþekkjanleg. The Melrose Hotel, Washington D.C. 2430 Pennsylvania Avenue, NW, www.melrosehoteldc.com www.tourmobile.com Þar sem hjólreiðatúrinn var felld- ur niður vegna rigningar var ákveðið að húrra sér í bíltúr með leiðsögn. Fyrir valinu varð fyr- irtækið Tourmobile þar sem boðið er upp á slíka túra allan daginn. Hægt er að kaupa sér miða sem gilda þá allan daginn og fara frá borði og um borð eins oft og hver vill. Hópurinn minn hafði hlutina þó bara einfalda og tók túrinn eins og hann lagði sig um minnismerkja- slóðir. Þegar við komum í bílinn var það fyrsta sem við sáum kona nokkur sem sat með hljóðnema í hendi og horfði út um gluggann. Hún var nú ekkert sérstaklega glaðleg á svipinn en við létum það ekki á okkur fá og settumst hér og þar, nóg var plássið því enginn annar var í bílnum. Konan hóf upp raust sína og sagði jafnóðum frá því sem keyrt var framhjá. Leiðinn í rödd hennar var þvílíkur að við gátum ekki á okkur setið að grín- ast með það okkar á milli, á ís- lensku að sjálfsögðu, og hlógum svo dátt. Það vakti þau viðbrögð hjá blessaðri konunni að hún and- varpaði: Var þetta fyndið? Við skömmuðumst okkar pínulítið og þögðum það sem eftir lifði túrsins. Þegar ferðin var hálfnuð dró þó til tíðinda þegar bílnum var lagt á stæði nokkru og konan gekk frá borði og við urðum hálffegnar þeg- ar við áttuðum okkur á því að nýr leiðsögumaður tæki við. Í dyrunum mætti konan hinum nýja manni og sagði við hann um leið og hún bandaði hendinni í áttina að okkur: Þær vilja bara tala sitt eigið tungu- mál! Svo fór hún sína leið. Nýi leið- sögumaðurinn reyndist svo vera afar skemmtilegur, kynnti sig fyrir okkur sem Kabir. Hann spjallaði heilmikið, spurði hvaða tungumál við töluðum á Íslandi, en vissi svo alveg óvænt að Reykjavík væri höfuðborg landsins og kvaddi okk- ur að lokum með virktum, bros- andi allan hringinn. Leið og leiðinleg frá21.000 Vika í Þýskalandi kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. Bíll úr flokki A 50 50 600 • www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta ÍS L E N S K A /S IA .I S /H E R 3 15 83 1 1/ 06 Góð gisting í Kaupmannahöfn Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu. Tökum einnig á móti hópum. Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V. Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.