Morgunblaðið - 14.12.2006, Síða 29

Morgunblaðið - 14.12.2006, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 29 www.besta.is SparCreme ræstikrem Frábært til a› fjarlægja erfi›a bletti, uppsöfnu› óhreinindi, fitu, gúmmíför, kísil og sápuskánir. Notist á postulín, keramik, ry›frítt stál ofl. Au›velt a› skola og skilur ekki eftir himnu. Sterling - stálhreinsiú›i Gott á ry›frítt og bursta› stál og ál. KLEEN - parketsápa Fyrir tré-og parketgólf. Skilur ekki eftir sig för e›a sápuskán á gólfum - a›eins ferskan sítrónuilm. NABC Hlutlaus, sótthreinsandi ba›herbergishreinsir. Hentar vel til daglegra flrifa á ba›herbergjum. Hreinsar, sótthreinsar og ey›ir lykt. Örtrefjahanski Tilvalinn til afflurrkunar - gó›ur á húsgögnin, gleri›, sjónvarpsskjáinn, rimlagardínurnar o.m.fl. Einstaklega handhægur. Undrasvampurinn Gó›ur til a› ná föstum óhreinindum eins og svörtum strikum af gólfi, kroti af veggjum ofl. Hentar einnig vel til a› flrífa bíla a› innan. ERTU ME‹ fiITT Á HREINU? HREIN FAGMENNSKA FRAM Í FINGURGÓMA HJÁ BESTA * Tilbo› gildir til jóla e›a á me›an birg›ir endast. * Brekkustíg 39 Njar›vík Sími: 420 0000 Mi›ási 7 Egilsstö›um Sími: 470 0000 Grundargötu 61 Grundarfir›i Sími: 430 0000 Su›urlandsbraut 26 Reykjavík Sími: 510 0000 Eftir 8. desember „má“ sem-sagt byrja að skreyta jóla-tréð (þó auðvitað byrjiverslanir mun fyrr). Ítalir eru mjög skrautglaðir og setja flestir strax upp jólatréð sem svo stendur fram yfir 6. jan. en þá lýkur jólunum formlega með annarri hátíð, kenndri við aðra kvenkyns veru, Befönu. Bef- ana er ljót en góðhjörtuð norn sem færir börnunum gjafir 6. jan. Segir þjóðsagan að hún hafi verið of löt eða þreytt á sínum tíma til að fara með vitringunum og færa Jesúbarninu gjafir, villst síðan ein síns liðs á leið- inni og komið of seint að tómu fjár- húsinu. Upp frá því leitar hún Jesú- barnsins í hverju barni og færir þeim gjafir. Auk þess að skreyta jólatréð hátt og lágt er rík hefð fyrir því að hver fjölskylda setji upp sitt „presepio“ eða jötulíkneski, með Jesúbarninu, Maríu mey, Jósep og fríðu föruneyti. Sum þessara líkneskja eru gríðarstór og taka jafnvel undir sig heilu stofu- borðin, með ljósum og tilheyrandi. Á hverju ári bæta menn svo e.t.v. einu lambi, tré eða stjörnu við líkneskið. Það var Heilagur Francesco frá Ass- isi sem hóf jötulíkneskishefðina, en hann varð mjög uppnuminn af ein- faldleika jólamessanna í Betlehem eftir heimsókn sína þangað 1222 og fékk í kjölfarið leyfi páfa til að halda jólamessu í helli í stað kirkju. Þakti hann gólf hellisins með heyi, setti upp jötu og leiddi inn húsdýr. Í þessari einföldu umgjörð messaði hann svo yfir fólkinu úr nágrenninu. Fyrsta jötulíkneskið eins og við þekkum í dag er hins vegar eftir Arnoldo di Cambio (1283) og er til sýnis í Santa Maria Maggiore- kirkjunni í Róm. Truffluboð og vino novello Jólahlaðborð eru nær óþekkt á Ítalíu, en Ítalir eru alltaf meira og minna í einhvers konar hlaðborðum allt árið, slíkir vina- og fjölskyldu- fundir aukast þó til muna á aðvent- unni þar sem fólk er mikið á ferðinni. Frá október fram að jólum er það svo ljúf „skylda“ Norður-Ítala að borða a.m.k. einu sinni einhvern rétt þar sem hvítar trufflur koma við sögu (þá er eggjapasta með smjöri og trufflum efst á vinsældalistanum) og vinir og fjölskyldur halda jafnvel truffluboð. Annar réttur sem er ómissandi á að- ventunni fyrir Lombardíubúa og er auk þess þeirra stolt og yndi, er svína- og grænkálskássan Cassoela, sem upp á síðkastið hefur komist í tísku að skola niður með prosecco. Auk þess eru innbyrt ógrynnin öll af panettone og pandorokökum og mar- sípanávöxtum frá Sikiley. Nýja vínið, vino novello, hið ítalska Beaujolais nouveau er vín mánaðarins, ávaxta- ríkt og frískandi, passlegt með nánast hvaða mat sem er. Fastir aðventupunktar í Mílanó Það eru e.t.v. tveir viðburðir sem standa uppúr sem fastir punktar í að- ventunni hjá Mílanóbúum. Annar er þegar kveikt er um mánaðamótin nóvember–desember á hinu glæsi- lega jólatré í göngugötunni Galleria Vittorio Emanuele, sem tengir saman Duomo-kirkjuna og La Scala óperu- húsið. Jólatréð er kallað Swarovski- tréð, enda skreytt hátt og lágt með kristöllum frá Swarovski kristalfram- leiðandanum, en stór verslun fyrir- tækisins er einmitt bakvið tréð. Ör- yggisverðir standa síðan allan sólar- hringinn við tréð, því verðmæti skrautsins eru umtalsverð. Hinn viðburðurinn er upphaf nýs sýningatímabils hjá La Scala óper- unni, en frumsýning nýs árs er ætíð 7. desember, á degi Heilags Ambrósíus- ar, sem er verndardýrlingur borg- arinnar. Í ár var mikið um dýrðir og mikil eftirvænting í loftinu, því opn- unaróperan var Aida, ein vinsælasta ópera allra tíma. Borgaryfirvöld í Mílanó ákváðu því að að bjóða al- menningi upp á miða gegn vægu verði í nokkrum leikhúsum í borginni þar sem frumsýningunni af Scala- óperunni var varpað í beinni útsend- ingu upp á stór bíótjöld. Ljósmynd/ Marco Brescia Aðventan Upphaf nýs sýningartímabils hjá La Scala-óperunni vekur jafnan eftirvæntingu. Aðventan á Ítalíu Á Ítalíu miðast aðventan við 8. desember, en þá er Immacolata, Dagur hinn- ar flekklausu Maríu meyjar, segir Hanna Friðriksdóttir, og jóla- tréð er yfirleitt skreytt strax þá. Morgunblaðið/ Hanna Friðriksdóttir Jólahefðin Jötulíkneskin tilheyra ítölsku aðventunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.