Morgunblaðið - 14.12.2006, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Smám saman
fækkar hér megin
grafar þeim nágrönnum sem ég
eignaðist er ég flutti á Grímsstaða-
hæðina á Höfn fyrir rúmum 30 ár-
um. Það er liðin tíð að ég rekist á
Einar í Odda á leið minni í eða úr
skóla, þar sem hann var að dútla
við eitt og annað í garðinum sínum.
Við munum aldrei framar velta
vöngum yfir lífinu og tilverunni
þarna á gangstéttinni. Eða virða
fyrir okkur tilbrigði jarðargróða í
garðinum hans.
Allir þeir sem eitthvað þekktu
Einar Hálfdanarson vissu um
brennandi áhuga hans á skógrækt
og öðru því skyldu. Hann átti sér
unaðsreiti sem hann plantaði trjám
í ár eftir ár og færði svo út kvíarn-
ar til að geta gróðursett enn fleiri
tré. Það er ekki fráleitt að lýsa um-
gengni hans við hvert og eitt tré
Einar Hálfdánarson
✝ Einar Hálfdán-arson fæddist á
Fagurhólsmýri í
Öræfum 4. júní
1920. Hann lést á
Hjúkrunarheimilinu
á Höfn hinn 15. nóv-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Hafn-
arkirkju miðviku-
daginn 22. nóv-
ember.
eða runna sem föð-
urlegri umhyggju. Í
vissum skilningi voru
þetta afkomendur
hans sem löngu voru
vaxnir honum yfir
höfuð í orðsins fyllstu
merkingu.
Þessi brennandi
áhugamaður fyrir
skógrækt lét sér ekki
nægja það sem hann
afrekaði í sínum eigin
trjálundum, heldur
var hann einnig virk-
ur í Skógræktarfélagi
Austur-Skaftfellinga áratugum
saman. Þar af var hann formaður
félagsins í mörg ár.
Þá sem muna nokkra áratugi aft-
ur í tímann rámar eflaust í hve
áhugi almennings fyrir skógrækt
dalaði mikið eftir miðja öldina sem
leið. Skógræktarfélag A-Sk. fór
ekki varhluta af þeirri deyfð. Einn
var þó sá maður sem ætíð hélt
gunnfánanum á lofti í félaginu en
það var Einar Hálfdanarson. Hann
sá til þess að glóðin slokknaði aldr-
ei. Það er aldrei að vita hvenær
eldurinn hefði verið kveiktur á ný
ef engar hefðu verið glæðurnar til
að blása í.
Þegar ég flutti á Hornafjörð
uppgötvaði ég fljótt hve ríkar hefð-
ir margir höfðu gagnvart skoðana-
skiptum og framsagnarmáta. Menn
spöruðu fullyrðingar en komu með
þeim mun fleiri spurningar. Einn
þessara manna var Einar.
Lífshlaup manna dregur oft dám
af kringumstæðum í uppvexti.
Dagleg barátta og umgengni við
þau sterku eyðingaröfl sem herj-
uðu allt í kringum hann í uppvext-
inum settu eflaust mark sitt á
barnssálina. Draumurinn um and-
stæðuna rættist í Hellisholti. Þar
storkaði hann óvættinum Hólmsá
með ræktunarstarfi sínu svo að
segja á bökkum árinnar án þess að
hún fengi rönd við reist. Í dag ligg-
ur við að lim trjánna slúti yfir belj-
andi jökulvatnið. Hann hafði á viss-
an hátt borið sigurorð af
eyðingaröflunum í átthögum sín-
um.
Nú er merkilegu ævistarfi Ein-
ars lokið. Hann hefur skilað „kefl-
inu“ í annarra hendur. En áfram
munu vöxtuleg trén bera vitni um
hið mikla ræktunarstarf Einars í
Odda.
Á komandi vori mun ótölulegur
fjöldi trjáa sem Einar gróðursetti á
sínum tíma sprengja brumknapp-
ana enn einu sinni og teygja sprota
sína mót hækkandi sól. Eftir því
sem ár og áratugir líða fækkar
þeim sjálfsagt sem vita hver Einar
Hálfdanarson var. Veglegasti
minnisvarði sem um hann er trú-
lega hægt að reisa hefur hann óaf-
vitandi reist sjálfur með ævistarfi
sínu í skógrækt.
Fjölskyldu Einars sendi ég sam-
úðarkveðjur.
Heimir Þór Gíslason.
Sveinbjörn og Lárus efstir
í Borgarfirðinum
Borgfirðingar kláruðu aðaltví-
menninginn mánudaginn 11. desem-
ber. Um miðbik kvöldsins náðu
Hvanneyringarnir Sveinbjörn og
Lárus að klóra sig í efsta sætið og
héldu því til loka þó hart væri sótt að
þeim. Sárabót frá fyrra ári þegar
þeir leiddu mótið allan tímann en
duttu í annað sætið í síðasta spilinu.
Jón mjólkurbílstjóri mætti með
enn einn makkerinn og hvort sem
það var þess vegna eða af öðrum
ástæðum þá náði hann með krafti að
helga sér þriðja sætið. Annað sætið
hrepptu Dóra og Unnsteinn úr Borg-
arnesi en þau höfðu svo gott sem
tryggt sér sigur þegar mótið var
hálfnað en lentu þá í andstreymi.
Þá er einstaklega gaman að sjá ár-
gangur krakkanna en nú tóku þau
fjórða sætið yfir kvöldið. Úrslit
kvöldsins urðu sem hér segir:
Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Péturss. 102
Jón H. Einarsson – Jón Á. Guðmundss. 89
Alfreð Kristjánss. – Einar Guðmundss. 59
Fjölnir Jónsson – Lára Lárusdóttir 51
Lokastaðan
Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Pétursson 329
Dóra–Rúnar – Unnsteinn 296
Jón H. Einarsson og ýmsir 202
Anna Einarsd. – Kristján Axelsson 197
Sveinn Hallgríms.– Magnús Magnús. 175
Flemming Jessen – Guðm. Þorsteinss. 160
Bridsfélag Selfoss og nágrennis
Þriðja og síðasta umferðin í hrað-
sveitakeppninni var spiluð 7. desem-
ber sl. Efstu sveitir urðu:
Brynjólfur, Guðmundur T, Grímur,
Sigurður V. og Gísli Þ. 1.622
Þröstur, Ríkharður, Magnús
og Gísli H. 1.622
Anton, Pétur, Gunnar H., Sigfinnur
og Stefán 1.604
Guðjón, Björn, Kjeld, Eyjólfur
og Höskuldur 1.556
Þessar sveitir skoruðu mest í
þriðju umferðinni:
Anton, Pétur, Gunnar H., Sigfinnur
og Stefán 586
Brynjólfur, Guðmundur T, Grímur,
Sigurður V. og Gísli Þ. 573
Þröstur, Ríkharður, Magnús og
Gísli H. 550
Guðjón, Björn, Kjeld, Eyjólfur
og Höskuldur 494
Nánar má finna um gang mála á
heimasíðu félagsins www.bridge.is/
bsel.
Næsta mót verður 2 kvölda jóla-
einmenningur, og er það jafnframt
síðasta mótið á árinu.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 11.12.
Spilað var á 11 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Gísli Víglundss. - Oliver Kristóferss. 259
Björn E. Pétursson - Gísli Hafliðason 255
Ragnar Björnss. - Guðjón Kristjánss. 246
Árangur A-V
Halla Ólafsd. - Hilmar Valdimarsson 258
Þröstur Sveinsson - Bjarni Ásmunds 243
Ægir Ferdinandss. - Jóhann Lútherss. 232
Kristján Blöndal og
Ómar Olgeirsson unnu
Cavendish-tvímenninginn
Þriggja kvölda Cavendish tví-
menningi hjá Bridsfélagi Reykjavík-
ur lauk með sigri Kristjáns Blöndal
og Ómars Olgeirssonar en fast á
hæla þeirra komu Guðmundur Bald-
ursson og Steinberg Ríkarðsson.
Ómar Olgeirson - Kristján Blöndal 1748
Guðm. Baldurss. - Steinberg Ríkarðss.1728
Ljósbrá Baldursdóttir - Matti/Maggi/Ás-
mundur 1223
Hermann Friðrikss. - Jón Ingþórsson 1149
Páll Valdimarss. - Sverrir Kristinsson 911
Guðm Sv. Hermannss - Helgi Jóhanns. 755
Þriðjudaginn 19. desember verður
jólasveinatvímenningur. Vissara er
að mæta með jólasveinahúfu til að
eiga betri möguleika á vinningum.
Jólamót BR 30. des.
Minningarmót Harðar Þórðarson-
ar, jólamót BR og SPRON, fer fram
30. desember í Síðumúla 37 og hefst
kl. 17:00.
Hægt er að skrá sig á heimasíðu
BR, bridge.is/br og einnig á skrif-
stofu BSÍ í síma 587–9360. Vissara
að skrá sig tímanlega.
Minnt er á Reykjavíkurmótið í
sveitakeppni 9.–21. janúar. Sjá nán-
ar á bridge.is/br.
Borgfirðingar Aðaltvímenningnum er lokið í Logalandi í Reykholtsdal. og urðu eftirtaldir spilarar í efstu sæt-
unum. Frá vinstri eru Unnsteinn Arnason, Dóra Axelsdóttir , sigurvegararnir Sveinbjörn Eyjólfsson og Lárus Pét-
ursson, Jón H. Einarsson og Jón Ágúst Guðmundsson
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Kær vinur og félagi
okkar í Rauða krossi
Íslands, Hjörleifur
Ingólfsson sjúkraflutninga- og
slökkviliðsmaður, var jarðsettur í
heimabæ sinum Keflavík síðastlið-
inn fimmtudag.
Hjörleifur var dugmikill og góður
félagi í Rauða krossi Íslands. Hann
færði dug og gleði í raðir okkar sem
störfuðum með honum í ýmsum
verkefnum Rauða krossins bæði á
heimavelli í Suðurnesjadeild Rauða
kross Íslands, í svæðissamstarfi
Rauða kross-deilda á Suðurlandi og
Suðurnesjum og í starfi félagsins á
landsvísu. Það er alltaf mikils virði
fyrir þá sem koma til starfa í fé-
Hjörleifur Ingólfsson
✝ Hjörleifur Ing-ólfsson fæddist
á Vöglum í Vatnsdal
í A-Húnavatnssýslu
4. september 1940.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 28. október
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Keflavíkurkirkju 2.
nóvember.
lagsskap, sama hvers
konar starf fer þar
fram að kynnast
reynsluboltum eins og
Hjörleifi. Menn með
reynslu í störfum þess
félags sem við ætlum
að vinna með, bæði til
að geta leitað til og
notið reynslu þeirra
sem starfað hafa um
árabil og ekki síður til
að sjá að það er þess
virði að taka þátt í
starfseminni, þegar
við sjáum að fólk
starfar árum saman að málefni fé-
lagsins.
Ég vil þakka fyrir að hafa fengið
tækifæri til að kynnast manni eins
og Hjörleifi. Hann tók virkan þátt í
starfi Rauða kross Íslands fram á
síðustu daga lífs síns. Félagsskap-
urinn var honum mikils virði. Að
hafa hann með í félagsstarfi okkar
var okkur líka mikils virði.
Fjölskyldu Hjörleifs Ingólfssonar
færi ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Minning um góðan dreng
lifir meðal okkar.
Njörður Helgason.
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við fráfall elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ELÍNAR FRÍMANNSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins
Höfða og Sjúkrahúss Akraness.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir, Friðjón Edvardsson,
Davíð Kristjánsson, Sigrún Edda Árnadóttir,
Kristján Kristjánsson, Ingibjörg Guðbrandsdóttir
og ömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
TALA KLEMENZDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Hjallatúni, Vík.
Útförin fer fram frá Reyniskirkju, Mýrdal, laugardaginn 16. desember
kl. 10.30.
Minningarathöfn fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 18. desem-
ber kl. 10.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er
bent á Hjallatún, Vík.
Guðmundur M. Loftsson, Gréta María Dagbjartsdóttir,
Indriði Loftsson,
Gunnar H. Loftsson,
Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, Gunnar Hilmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku besti sonur okkar, bróðir, mágur og barna-
barn,
ÁGÚST BJARNASON,
Esjugrund 33,
áður til heimilis
á Kirkjubæjarbraut 4,
Vestmannaeyjum,
sem lést af slysförum sunnudaginn 10. desember,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju þriðjudag-
inn 19. desember kl. 14:00.
Aurora G. Friðriksdóttir, Bjarni Sighvatsson,
Sighvatur Bjarnason, Jóhanna Jóhannsdóttir,
Anna J. Oddgeirs, Friðrik Á. Hjörleifsson,
Elín J. Ágústsdóttir.