Morgunblaðið - 14.12.2006, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 53
dægradvöl
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. f3
O-O 6. Be3 c5 7. d5 e6 8. Dd2 exd5 9.
cxd5 a6 10. a4 He8 11. a5 b5 12. axb6
Dxb6 13. Rge2 Rbd7 14. Ra4 Dc7 15.
Rec3 Hb8 16. Be2 Re5 17. O-O Hb4 18.
Ha3 Bd7 19. Hfa1 Heb8 20. Rd1 Rc4 21.
Bxc4 Hxc4 22. Rac3 Bc8 23. Ra2 Rd7 24.
Hb1 Bd4 25. De2 Re5 26. h3 g5 27. b3 f5
28. Rb2 Bxe3+ 29. Dxe3 f4 30. De1 Hd4
31. Rc4 De7 32. Rxe5 Dxe5 33. Dc3 h5
34. Da5 De7 35. Rc3 Hdb4 36. He1 g4 37.
e5 dxe5 38. d6 Dxd6 39. Re4 Dd4+ 40.
Kh1 Bf5 41. Rf6+ Kh8 42. Dc7 H4b7 43.
Dxe5 Dxe5 44. Hxe5
Staðan kom upp á rússneska meist-
aramótinu í Moskvu. Stórmeistarinn Er-
nesto Inarkiev (2628) hafði svart gegn
kollega sínum Denis Khismatullin
(2583). 44... g3! 45. He1 hvítur hefði orð-
ið óverjandi mát eftir 45. Hxf5 Hxb3. Í
framhaldinu hefur svartur léttunnið tafl.
45... Hxb3 46. Hxa6 c4 47. Haa1 c3 48.
Hac1 c2 49. Rxh5 H3b4 50. Kg1 Bg6 og
hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Hættulegt útspil.
Norður
♠84
♥76432
♦Á54
♣ÁD6
Vestur Austur
♠KDG9 ♠73
♥D105 ♥G9
♦K108 ♦D963
♣1073 ♣G9842
Suður
♠Á10652
♥ÁK8
♦G72
♣K5
Suður spilar 4♥ og fær út spaðakóng.
Úrvinnslan væri einföld með öðru útspili
– sagnhafi gæti dúkkað tígul, tekið ÁK í
hjarta, hent tígli í lauf og trompað tígul.
En eftir spaðann út skapast hætta á
uppfærslu í trompi. Segjum að sagnhafi
dúkki spaðakónginn, taki næsta slag á
spaðaás og gefi tígulslag. Vestur spilar
þá spaða og austur trompar með gosa.
Þessu er ekki hægt að mæta með því að
taka fyrst ÁK í trompi, því þá tekur vest-
ur þriðja trompið þegar hann kemst inn
á tígul. Lausnin byggist á því að fría
spaðann og fórna um leið laufslag fyrir
innkomu. Sagnhafi tekur ÁK í hjarta og
trompar spaða. Fer heim á laufkóng og
trompar spaðann frían. Tekur svo laufás
og trompar drottninguna með áttunni til
að spila fríspaða og henda tígli úr borði.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 kjarnyrtur, 8
skott, 9 gömul, 10 reið,
11 aumar, 13 ljúka, 15
sveigur, 18 sálir, 21 gró-
inn blettur, 22 taldi úr, 23
hæfnin, 24 barátta.
Lóðrétt | 2 stórfljót, 3
framkvæmir, 4 stétt, 5
snúin, 6 lof, 7 ljúka, 12
elska, 14 greinir, 15 svöl,
16 hindra, 17 spök, 18
ilmur, 19 féllu, 20 hljóp.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 strák, 4 kólfs, 7 lýgur, 8 sýpur, 9 net, 11 aurs,
13 hani, 14 úldna, 15 sver, 17 kröm, 20 orf, 22 felur, 23
lúður, 24 renna, 25 kerra.
Lóðrétt: 1 sulla, 2 ragur, 3 korn, 4 kost, 5 loppa, 6 syrgi,
10 eldar, 12 súr, 13 hak, 15 sefur, 16 ellin, 18 ræður, 19
merla, 20 orga, 21 flak.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1West Ham á í viðræðum við AlanCurbishley um að verða næsti
knattspyrnustjóri félagsins. Hvaða
liði stjórnaði hann áður?
2 Kvikmyndin Börn er eftirsótt ákvikmyndahátíðir víða um heim.
Hver leikstýrði myndinni?
3Magnús Kristinsson og KristinnBjörnsson hafa fært eignir sínar
í FL Group inn í Gnúp fjárfesting-
arfélag. Hver stjórnar félaginu?
4 Nýr rektor hefur verið ráðinn aðHáskólanum á Bifröst. Hver er
hann?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Sögufræg bresk hljómsveit mun halda
hér tónleika í lok næsta sumars. Hvað
hljómsveit er þetta? Svar: Jethro Tull. 2.
Barcelona er komið til Japan til þátttöku í
móti. Hvaða mót er það? Svar: Heims-
meistaramót félagsliða. 3. Barnaspítali
Hringsins hefur fengið nýstárlega gjöf.
Hver er hún? Svar: Ísbjörninn Hringur. 4.
Hverjir eru ánægðustu viðskiptavinirnir í
bankakerfinu? Svar: Viðskiptavinir
SPRON.
Spurt er…
ritstjorn@mbl.is
Heilsa og lífsstíll
Miðvikudaginn 3. janúar 2007 fylgir með
Morgunblaðinu glæsilegt sérblað um
heilsu og lífsstíl
Meðal efnis er:
● Hreyfing og líkamsrækt.
● Jóga.
● Heilsubúðir.
● Lífrænt ræktaðar
matvörur.
● Úttekt á heilsubókum.
● Hollar uppskriftir.
● Einkennilegar og nýjar
íþróttir.
● Fullt af fróðleik, fróðleiks-
molum og spennandi
viðtölum.
Allar nánari upplýsingar
veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Auglýsendur!
Pöntunartími er fyrir kl. 16 fimtudaginn 21. desember