Morgunblaðið - 14.12.2006, Síða 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 348. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Norðlæg átt, 8–
13 m/s við norð-
ur- og austur-
ströndina. Létt-
skýjað sunnanlands, él
norðanlands. » 8
Heitast Kaldast
0°C -10°C
UPPSTOPPAÐI geirfuglinn sem hefur
verið á Náttúrugripasafninu í rúmlega
þrjátíu ár var í gær fluttur í öruggt skjól
í geymslur Þjóðminjasafnsins í Kópavogi.
Þar verður fuglinn þangað til búið verð-
ur að koma upp fullnægjandi aðstöðu
fyrir hann í sýningarsal Náttúrugripa-
safnsins. Mikil heppni var að fuglinn
skyldi ekki skemmast þegar hitaveitu-
vatn rann um safnið á þriðjudags-
morgun. Til stendur að setja rakaskynj-
ara í húsakynni safnsins en engir slíkir
skynjarar eru þar nú. „Við vorum ótrú-
lega heppin [á þriðjudag] og við ætlum
ekki að láta þetta koma aftur fyrir þenn-
an dýrgrip,“ sagði Álfheiður Ingadóttir,
útgáfustjóri Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands. | 12
Morgunblaðið/ÞÖK
Pakkað niður Geirfuglinn verður ekki
aftur til sýnis fyrr en byggt hefur verið
nýtt hús fyrir Náttúrufræðistofnun.
Geirfuglinn
fluttur í örugg-
ari geymslu
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
KOLBRÚN Halldórsdóttir og Árni Þór Sig-
urðsson munu að öllum líkindum skipa fyrsta og
annað sæti framboðslista Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs í Suðvesturkjördæmi
(Kraganum) í alþingiskosningunum í vor. Upp-
stillingarnefnd VG hefur, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins, rætt þennan möguleika af
fullri alvöru.
Svanhildur Kaaber, formaður uppstillingar-
nefndar VG, sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, aðspurð um þennan möguleika: „Við erum
að skoða allt. Það hefur ekkert verið ákveðið.“
Þar með yrðu þau Ögmundur Jónasson og
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir í tveimur efstu
sætum annars Reykjavíkurkjördæmisins og
Katrín Jakobsdóttir og Álfheiður Ingadóttir í
efstu sætum hins Reykjavíkurkjördæmisins.
Forval Vinstri grænna fór eins og kunnugt er
fram í byrjun desembermánaðar og niðurstaðan
varð sú, að fjórar konur og tveir karlar röðuðust
í efstu þrjú sætin, þ.e. þeir einstaklingar sem
nafngreindir eru hér að ofan.
Horfið frá fléttulista
Vinstri grænir samþykktu fyrir forvalið að
skipan á framboðslista í efstu tvö sætin í hverju
kjördæmi yrði þannig að kynjakvóti ríkti, einn
karl og ein kona.
Fram hefur komið að þeir karlar sem sam-
kvæmt fléttulista hefðu getað átt kost á því að
vera færðir upp í annað sæti á framboðslista, í
stað Álfheiðar Ingadóttur, hafa sagt að þeir
myndu ekki þekkjast slíkt boð. Svanhildur segir
að sjálfhætt hafi verið við fléttulista, þar sem
þeir ágætu herramenn sem hefðu átt möguleika
á að verða færðir upp lista, hafi lýst því yfir að
þeir myndu ekki taka sæti á lista umfram konu.
„Af því leiðir að fléttulista verður ekki beitt,“
sagði Svanhildur.
Þannig munu því tvær konur skipa tvö efstu
sætin í öðru Reykjavíkurkjördæmanna.
Skila í janúar
Enn mun nokkuð í það að uppstillingarnefnd
ljúki störfum og skili framboðslistum í kjör-
dæmunum þremur. Svanhildur Kaaber sagði í
gær að engin ákveðin dagsetning lægi fyrir
hvað varðaði skil uppstillingarnefndar á listum.
„Við munum ljúka þessu verki einhvern tíma í
janúar. Þetta er auðvitað talsvert verkefni, því
við erum að stilla upp í öll sæti á öllum þremur
listunum,“ sagði Svanhildur.
Kolbrún og Árni Þór í
efstu sæti VG í Kraganum?
Í HNOTSKURN
»Fjórar konur og tveir karlar röð-uðust í efstu þrjú sætin í forvali VG á
lista fyrir Reykjavíkurkjördæmin tvö og
Suðvesturkjördæmi.
»Flest atkvæðin í fyrsta sæti hlaut Ög-mundur Jónasson þingmaður en
Katrín Jakobsdóttir, varaformaður
flokksins, og Kolbrún Halldórsdóttir
þingkona fengu einnig kosningu til að
leiða listann í einhverju kjördæmanna.
KONUNGSBÓK Arn-
alds Indriðasonar situr
enn á toppi bóksölulist-
ans í flokki skáldverka,
fjórðu vikuna í röð. Bók-
in er svo næst söluhæsta
bók landsins, á eftir Eft-
irréttum Hagkaupa, sem
verma toppsætið líkt og í
síðustu viku. Fíasól á
flandri eftir Kristínu
Helgu Gunnarsdóttur er
mest selda barna- og unglingabókin vikuna
5. til 11. desember. | 18
Bóksölulisti
Litlar breytingar
Arnaldur
Indriðason
ÞRJÚ efstu sæti Tón-
listans hafa ekkert
breyst frá seinustu viku.
Jóladiskarnir 100 ís-
lensk jólalög og Jól og
blíða eru í fyrstu tveim-
ur sætunum og Björg-
vin Halldórsson með
Björgvin, Sinfó og gest-
ir í því þriðja.
Athyglisvert er að af
þrjátíu diskum á listan-
um eru tuttugu af þeim íslenskir og efsti
erlendi diskurinn nær ekki nema upp í
sextánda sæti en það er Love með Bítl-
unum. |51
Tónlistinn
Íslensk tónlist
vinsæl
Björgvin
Halldórsson
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
MARGRÉT Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri
Frjálslynda flokksins, verður í launuðu leyfi frá
störfum fram yfir landsþing flokksins í lok jan-
úar, en mun á þeim tíma sinna ákveðnum verk-
efnum fyrir flokkinn. Þetta var niðurstaða fund-
ar miðstjórnar Frjálslynda flokksins í
gærkveldi og segjast bæði Guðjón Arnar Krist-
jánsson og Margrét vera sátt við hana.
Guðjón Arnar sagði að á miðstjórnarfundin-
um hefði sáttanefndin lagt fram tillögur sínar.
Þær hefðu verið ræddar fram og til baka og
náðst sátt að því er varðaði störf og samskipti
milli framkvæmdastjórans og forystunnar.
Margrét yrði í leyfi að miklu leyti fram yfir
landsþing, en myndi halda launum sínum og
sinna ákveðnum verkefnum. Hvað síðan gerðist
eftir landsþing ætti eftir að koma í ljós.
Ágætis lending
„Ég held að þetta sé ágætis lending. Þarna
gerum við ákveðnar ráðstafanir sem nauðsyn-
legt var að gera og allir standa upp sáttir.“
Hann sagði að þessi niðurstaða væri byggð á
þeim grunni sem sáttanefndin hefði lagt og það
hefði ríkt ágætur andi á fundinum. „Hundgam-
all samningamaður til áratuga er auðvitað sátt-
ur þegar búið er að semja um hvernig á að haga
verkum,“ sagði Guðjón Arnar einnig.
Margrét sagði að þetta hefði verið góður
fundur. Farið hefði verið mjög ítarlega yfir
ágreiningsefnin og niðurstaða fundarins verið
sú að setja niður deilur innan flokks í bili alla
vega og undirbúa landsþingið. „Ég tek mér leyfi
á fullum launum fram yfir landsþing, en það var
óskað eftir að ég kæmi að undirbúningi þess
sem ritari og fulltrúi í framkvæmdastjórn og
sömuleiðis var ég beðin að hafa fjármálin á
minni könnu,“ sagði Margrét.
Hún sagði að gert væri ráð fyrir að hún kæmi
aftur að sínu starfi eftir landsþing nema að hún
yrði orðin formaður eða varaformaður, því þá
yrðu forsendurnar eðlilega allt aðrar.
Margrét sagði að þetta þýddi ekki að mál-
efnaágreiningur væri ekki fyrir hendi og yrði
hann ræddur áfram innan flokksins.
Margrét fer í launað leyfi fram
yfir landsþing í lok janúar
♦♦♦
MIÐSTJÓRNARFUNDI Frjáls-
lynda flokksins í gærkveldi lauk
með samkomulagi. Á fundinum
gaf Margrét hins vegar ekkert út
um það hvort hún gæfi kost á sér í
kjöri til formanns eða varafor-
manns og sagðist ekki myndu
gera það í bráð. Hún ætlaði að
íhuga málin gaumgæfilega.
Morgunblaðið/Sverrir
Sátt hjá frjálslyndum í gærkvöldi
JÓLABÆKURNAR reyndust oft-
ast ódýrastar í Office 1 í verðkönn-
un sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í
tíu bókaverslunum og stórmörkuð-
um á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Alls var Office 1 með lægsta verðið á
36 titlum af þeim 37 bókatitlum sem
verð var kannað á. Mál og menning
reyndist hins vegar með hæsta
verðið í 22 tilfellum af 37.
Mikill verðmunur var á bókatitl-
um og yfir 50% munur var á hæsta
og lægsta verði á öllum titlum.
Allt að 95% verðmunur var á
þýddu skáldsögunni Gemsanum eft-
ir Stephen King sem kostaði 1.804
krónur þar sem hún var ódýrust, í
Office 1, en 3. 518 krónur þar sem
hún var dýrust, í versluninni Griffli.
Henný Hinz, verkefnisstjóri
verðlagseftirlits ASÍ, segir að verð-
breytingar séu mjög tíðar á bókum
þessa dagana og hún hvetur neyt-
endur til að fylgjast með verði og
einnig að spyrjast fyrir um skila-
reglur hjá þeim búðum sem selja
bækur.
Allt að 95%
verðmunur á
jólabókunum
Jólabækurnar ódýrastar | 26