Morgunblaðið - 04.03.2007, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 29
þó mælt sölunni bót, hvorki lærðir
né leikir. Borgarstjórn og ráðuneyti
– fjármála- og heilbrigðismála – vísa
hvert á annað, gefa loðin svör, þegar
óskað er skýringa, ef á annað borð
er svarað.
Hvernig er 50 ára afmælis Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur
minnst? Hefði ekki verið við hæfi að
henni hefði verið sómi sýndur, hún
fengi gjafir, sem styrkt hefðu starf-
semina, flaggað í heila stöng, skrif-
uð vegleg afmælisgrein, með öðrum
orðum hátíð í bæ?
Lengi hef ég haft áhuga á að
skrifuð verði saga þessarar merku
stofnunar, hef raunar þegar hafist
handa ásamt Erlu Dórisi Halldórs-
dóttur sagnfræðingi. Mér er því
sönn ánægja að upplýsa, að Borg-
arstjórn Reykjavíkur og Heilbrigð-
isráðuneytið hafa ákveðið að styrkja
þessa söguritun með fjárframlögum.
Þótt ég hafi verið afar ósátt við
ákvarðanir þeirra um sölu Heilsu-
verndarstöðvarinnar met ég mikils
þetta framlag þeirra, sem sýnir að
þeim er annt um þessa stofnun þrátt
fyrir allt og þar með er 50 ára af-
mælisins minnst með veglegum
hætti. Fyrir það vil ég þakka.
Ég veit að þrátt fyrir þetta er
heilsugæslan í höndum frábærra
starfsmanna og sami metnaður og
áhugi þeirra mun móta starfsemina
í framtíðinni sem hingað til. Ég óska
því heilsugæslunni allra heilla á
þessum tímamótum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Markaði tímamót Hálf öld er liðin frá því að heilsuverndarstöðin í Reykjavík var vígð. Á þeim tíma hafa margar
kynslóðir Reykvíkinga leitað í þetta virðulega hús. Nú stendur hins vegar til að því verði breytt í hótel.
Höfundur er fyrrverandi hjúkrunar-
forstjóri Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur.
Opnunartími
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
Landnámssýningin við Aðalstræti veitir gestum
tækifæri til að skyggnast inn í lífið á landnáms-
öld. Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá
10. öld. Einnig má þar finna fornleifar frá því
um 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem
fundist hafa á Íslandi.
Einstök margmiðlunartækni gerir gestum kleift
að ímynda sér hvernig lífi heimilisfólks í fyrstu
byggð Reykjavíkur var háttað og hvernig
umhverfi og landslag borgarinnar var við
landnám.
Heimsferðir geta nú boðið enn
fleiri sæti í eldriborgarferðina 13.
apríl og gistingu á hinu glæsilega
Hotel Deloix í 26 nætur. Hótel
Deloix er mjög gott fjögurra
stjörnu hótel, rétt hjá Mediterr-
ano hótelinu. Hótelið er nýlegt
(opnaði í júlí 2005) og er allur að-
búnaður hinn glæsilegasti. Her-
bergi eru smekkleg, hönnuð í ný-
tískulegum og notalegum stíl með sjónvarpi, síma, minibar, inter-
net-aðgengi, loftkælingu og svölum. Veitingastaður og bar er á
hótelinu og fallegur garður með stórri sundlaug og sundlaugar-
bar. Á hótelinu er einnig líkamsrækt, innisundlaug, sauna og heit-
ir pottar. Fleiri gistivalkostir á Benidorm eru einnig í boði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Benidorm
13. apríl - 26 nætur
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 109.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með
hálfu fæði í 26 nætur á Hotel Deloix Frábært sértilboð á Hotel Deloix GLÆSILEG
ELDRIBORGARAFERÐ
- viðbótarsæti
og ný gisting