Morgunblaðið - 01.04.2007, Síða 58
58 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Gísli Súrsson er 15 tonna
línu-bátur frá Grindavík.
Strákarnir á honum settu
Íslands-met í afla smá-báta
nú í vikunni. Á
mánudags-kvöldið var aflinn
ríflega 17.000 tonn á
13.000 króka og í
þriðju-daginn komu þeir með
16 tonn að landi, en þurftu
að skilja eftir einn rekka
ódreginn.
Nú mok-fiska allir bátar
sem komast á sjó, en
veturinn hefur verið mjög
erfiður vegna veðurs.
Fyrra met við veiðar
smá-báta er um 17 tonn á
20.000 króka, svo áhöfnin á
Gísla getur verið ánægð.
Óðinn Arnberg, vél-stjóri og
afleysinga-skipstjóri, segir að
bátarnir fiski allir, hvort sem
það er í net eða á línu og það
er mikið líf í fisk-vinnslunni í
Grindavík. Mikil vinna er í
salt-fiski og ferskum fiski fyrir
flugið. „Þetta er rosalega fínn
fiskur,“ segir Óðinn, en afli
Gísla á mánudag var 14 tonn
af þorski, 2,5 tonn af ýsu og
smá-vegis af öðru.
Íslands-met í afla smá-báta
Morgunblaðið/RAX
Glað-beittir kappar af Gísla Súrssyni.
Öldunga-deild
Bandaríkja-þings sam-þykkti
á þriðju-daginn að
banda-rískur her skyldi
kallaður heim frá Írak. Það vill
að brott-flutningnum sé lokið
fyrir mars-lok á næsta ári.
Sams konar til-laga var
sam-þykkt í fulltrúa-deildinni í
síðustu viku.
Stuttu seinna lýsti Bush
því yfir, að hann myndi beita
neitunar-valdi gegn
sam-þykktinni.
Demókratar segja að
sam-þykktin marki tíma-mót í
Íraks-málunum og sé
tæki-færi fyrir Bush til að
breyta um stefnu.
Repúblikanar segja að
sam-þykktin yrði
alvar-legustu mis-tökin í
Íraks-stríðinu. Með henni
væri verið að segja
uppreisnar-mönnum að
Bandaríkja-menn fari frá Írak
á þeirra for-sendum, ekki
sínum.
Bush í
átökum
við þingið
MR sigraði í Gettu betur
Á föstu-dagskvöld kepptu
lið MK og MR til úrslita í
spurninga-keppni
framhalds-skólanna Gettu
betur. Keppnin var mjög
spennandi og sigraði MR í
bráða-bana eftir að MK hafði
haft forystu í síðasta hluta
keppninnar. MR hélt því heim
með verðlauna-gripinn.
Dan Brown sak-laus
Breskur áfrýjunar-dómstóll
hafnaði í vikunni mál-sókn
tveggja af þremur
höfundum bókarinnar Holy
Blood and Holy Grail frá
1982, sem saka Dan Brown
um að hafa stolið
hug-myndinni að Da Vinci
lyklinum frá sér.
Lést af of-neyslu lyfja
Fyrir-sætan Anna Nicole
Smith lést af völdum
of-neyslu lyfja sam-kvæmt
sér-fræðingum sem
rann-sakað hafa dauða
hennar. Allt bendir til að um
slys hafi verið að ræða og
það fundust engin ólög-leg lyf
í fórum hennar eða líkama.
Verða Pitt og Jolie hjón?
Svo virðist sem Brad Pitt
og Angelina Jolie hafi loks
ákveðið að gifta sig. Þau eiga
að vera að skipu-leggja
brúð-kaup um páskana í
Dóminíska lýð-veldinu.
Parið mun hafa fjár-fest í
húsi og landar-eign þar og
hefur hug á að halda
fá-menna fjölskyldu-athöfn.
Fólk
Aðal-meðferðinni í
Baugs-málinu lauk á
fimmtu-dag en hún hófst 12.
febrúar, fyrir rúm-lega einum
og hálfum mánuði.
Brynjar Níelsson, verjandi
Jóns Geralds Sullenberger
krafðist sýknu yfir
skjól-stæðingi sínum.
Verjendur Jóns Ásgeirs og
Tryggva Jónssonar kröfðust
einnig sýknu og sögðu að
dómurinn yrði að hafa í huga
að ef þeir yrðu dæmdir,
jafn-vel fyrir hið minnsta brot,
yrði þeim gert ómögu-legt,
vegna ákvæða í
hlutafélaga-lögum, að gegna
störfum framkvæmda-stjóra,
for-stjóra eða sitja í stjórnum
hluta-félaga hér á landi í þrjú
ár.
Aðal-með-
ferð lokið
Ian Paisley og Gerry Adams,
leið-togar and-stæðra
fylkinga á Norður-Írlandi,
náðu á mánudags-morgun
samkomu-lagi um að mynda
heima-stjórn sem tekur við
völdum 8. maí. „Þetta er
mjög mikil-vægur dagur fyrir
Norður-Íra og einnig fyrir aðra
íbúa Bretlands-eyja og sögu
þeirra,“ sagði Tony Blair,
forsætis-ráðherra Bretlands
sem hefur lagt áherslu á að
ná samkomu-lagi í
mál-efnum Norður-Írlands
áður en hann lætur af
em-bætti síð-sumars.
Ian Paisley er leið-togi
stærsta flokks mót-mælenda, DUP, og
Gerry Adams er leið-togi Sinn Féin,
stjórnmála-arms Írska lýðveldis-hersins
(IRA). Þeir hafa verið svarnir and-stæðingar
um ára-bil, en þeir slíðruðu sverðin á
mánu-dag og létu jafn-vel mynda sig
saman. Gert er ráð fyrir að Paisley verði
forsætis-ráðherra og Martin McGuinness,
einn helsti samninga-maður Sinn Féin,
verði varaforsætis-ráðherra.
Heima-stjórn á Norður-Írlandi
Ian Paisley og Gerry Adams á stórri stundu.
Breski tónlistar-maðurinn
Cliff Richard hélt tónleika í
Laugardals-höllinni á
miðvikudags-kvöld fyrir fullu
húsi. Cliff tók gamla slagara
og nýrri lög. Að-dáendur hans
voru með á nótunum og hann
var tvisvar klappaður upp.
Cliff klappaður upp
Morgunblaðið/Ómar
Íslenska drengja-landsliðið í
knatt-spyrnu er komið í átta
liða úrslit í Evrópu-keppninni.
Þeir sigruðu Rússland,
Evrópu-meistarana frá 2006,
með 6:5, í ævintýra-legum
leik í loka-umferð
milli-riðilsins í Portúgal.
Ísland hafði áður gert jafntefli
við Norður-Írland og Portúgal
og vann riðilinn á betri
marka-tölu en Portúgalar.
Þetta er besti árangur sem
íslenskt lands-lið hefur
nokkru sinni náð í
Evrópu-keppni.
„Ég er ótrú-lega glaður og
stoltur af strákunum, sem
eru búnir að leggja gífur-lega
mikið á sig og það er draumi
líkast að þeir skuli hafa
slegið þessar stóru
fótbolta-þjóðir út úr
keppninni,“ segir Lúkas
Kostic, þjálfari liðsins.
Drengja-landslið
í 8 liða úrslit
Morgunblaðið/ÞÖK
Lúkas Kostic er
ótrú-lega glaður.
Netfang: auefni@mbl.is