Morgunblaðið - 20.04.2007, Qupperneq 30
matur
30 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
É
g er einn þeirra, sem
sjaldan styðst við upp-
skriftir og get því aldrei
eldað sama matinn ná-
kvæmlega eins aftur.
Það er auðvitað ákveðinn „sjarmi“ yfir
því að vera slumpari með fjölbreytn-
ina í fyrirrúmi,“ segir Þórhallur Vil-
hjálmsson, matgæðingur og lögfræð-
ingur í forsætisráðuneytinu, sem
segist lengi hafa haft áhuga á matseld
og bakstri.
Þórhallur segist sinna áhugamáli
þessu minna nú en áður, en ákvað
engu að síður að deila uppáhalds upp-
skriftunum sínum með lesendum
Daglegs lífs.
„Ég lít á matseldina fyrst og fremst
sem afslöppun heima fyrir. Það er svo
skemmtilegt að tína út úr ísskápnum
það sem til er, láta hugann reika og
gera alls konar tilraunir. Ég er til
dæmis búinn að vera mjög upptekinn
af lambahjörtum í vetur. Það er mjög
ódýr matur, en einkar áhugavert hrá-
efni. Eftir að hafa fituhreinsað hjört-
un og skorið í burtu lokurnar er gott
að skera þau niður í mjóa strimla, sem
látnir eru liggja um tíma í límónu-safa
með saxaðri engiferrót. Strimlarnir
eru síðan léttsteiktir á pönnu og í lok-
in er gott að bæta slettu af mango
chutney út á pönnuna. Hjörtun eru þá
komin með asískan keim og eru góð
með hrísgrjónum,“ segir Þórhallur.
Leynitrixið er heita vatnið
Þegar Daglegt líf bar að garði á
heimili Þórhalls að kvöldi síðasta vetr-
ardags var hann að elda dýrindis tóm-
atsúpu. „Þegar ég var í framhalds-
námi í Danmörku veturinn 1994–95 sá
ég eitt sinn sjónvarpsþátt með ensk-
um matargerðarmanni sem staddur
var í Feneyjum og útbjó hann girni-
lega tómatsúpu um borð í sérútbúnum
gondóla. Leyndarmálið við súpugerð-
ina sýndist mér vera það að hella sjóð-
andi heitu vatninu yfir grænmetið,
sem áður hafði verið mýkt í stórum
potti og í lokin að setja nógu mikið
laufkrydd út í rétt áður en súpan er
borin fram. Í stað tómatanna hef ég
stundum haft blómkál og brokkólí eða
svínagúllas til að gera súpuna mat-
armeiri ásamt austurlensku nið-
ursoðnu grænmeti á borð við bambus-
sprota, barnamaís og núðlur.“
Árlegar sveppatínsluferðir
Þórhalli finnst gaman að silungs-
veiði og veiðir gjarnan sína fiska í
Þingvallavatni eða í Hlíðarvatni aust-
ur í Selvogi. Og hann er venjulega við
eldavélina þegar fiskur er á matseðli
heimilisins. „Ég rakst á ítalska
uppskrift fyrir nokkru að steiktum
smásilungi sem ég hef mikið dálæti á.
Í reynd má þó nota hvaða fisk sem er.
Þorskhnakkar eru voðalega góðir og
svo hefur mér fundist hlýrinn
áhugaverður matur.“
Svepparísotto er líka í miklu uppá-
haldi hjá Þórhalli enda fer hann
ásamt konu sinni Sólveigu Bjarna-
dóttur í árlegar sveppatínsluferðir á
haustin, ýmist í Heiðmörk eða Öskju-
hlíð.
Tómatsúpa
(fyrir fjóra)
Um 30 g íslenskt smjör og 2–3 mat-
skeiðar ólífuolía.
1 bufflaukur eða hótellaukur
2 súputeningar, t.d. einn grænmetis-
og einn svínateningur
2–3 gulrætur
2–3 sellerístönglar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Matgæðingur Þórhallur nær ekki að sinna eldamennskunni jafn oft og
hann gerði áður fyrr, en hann lítur á matseldina sem afslöppun.
Súpugerð Smátt skornu laufkryddinu er bætt saman við súpuna í þá mund sem hún er að verða tilbúin.
Ákveðinn „sjarmi“
yfir að vera slumpari
Þórhallur Vilhjálmsson
er mikill matgæðingur
sem tínir sína eigin
sveppi, en á erfitt með
að fylgja uppskriftum.
Jóhanna Ingvarsdóttir
rann á lyktina.