Morgunblaðið - 27.05.2007, Side 31

Morgunblaðið - 27.05.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 31 OPIÐ ALLA HVÍTASUNNUHELGINA! 11-11 Drafnarfelli 1-5 111 Reykjavík 11-11 Gilsbúð 210 Garðabæ 11-11 Grensásvegi 46 108 Reykjavík 11-11 Hraunbæ 102 110 Reykjavík 11-11 Laugavegi 116 101 Reykjavík 11-11 Skipholti 70 105 Reykjavík 11-11 Skúlagötu 13 * 101 Reykjavík 11-11 Goðahrauni 900 Vestmannaeyjum 11-11 Þverbrekku 8 200 Kópavogi 11-11 Kirkjustétt 2-6 Grafarholti Hvítasunnudag 11-23 Annar í hvítasunnu 11-23 * Skúlagata er opin allan sólarhringinn Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í helgarferð til Barcelona 15. júní. Barcelona er einstök perla sem íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Borgin býður frábært mannlíf og óendanlega fjölbreytni í menningu og afþreyingu að ógleymdu öllu því úrvali fjölbreyttra verslana sem eru í borginni. Gríptu þetta frábæra tækifæri - aðeins örfá sæti laus! Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Barcelona 15. júní frá kr. 59.990 Frábær vikuferð - síðustu sætin Verð kr. 59.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Catalonia Aragon *** í 7 nætur með morgunverði. Munið Mastercard ferðaávísunina aðarflokkur að norrænni hefð og sá flokkur er Samfylkingin. Og auðvit- að má skilgreina norrænu jafn- aðarflokkana sem miðjuflokka en þeir hafa sterkar hugmyndalegar rætur og mikla festu í grunngildum jafnaðar og frelsis. Á leikvelli ís- lenskra stjórnmála erum við í þeirri stöðu að við eigum ákveðið snið- mengi með Sjálfstæðisflokknum og líka með Vinstri grænum. En við erum jafnaðarflokkur og hjá okkur eiga allir jafnaðarmenn og konur heima og ég veit að mörgum þeirra finnst hægri og vinstri ekki vera einu ásarnir í pólitík. Margt af því sem við lögðum áherslu á í þessari kosningabaráttu fól í sér samstarfs- fleti við Sjálfstæðisflokkinn. Við höfum til dæmis alltaf verið opin fyrir mismunandi rekstrarformum í opinberri þjónustu, en við höfum alltaf lagt ríka áherslu á að allir hafi jafnan aðgang að þjónustunni óháð efnahag. Við erum ekki kreddufull hvað rekstrarform varð- ar. Það er bara eðlileg þróun að reksturinn sé ekki alltaf í höndum opinberra aðila. Að því leyti stönd- um við nær Sjálfstæðisflokkn- umSjálfstæðisflokknum, þó að við getum ekki tekið undir með þeim Sjálfstæðismönnum sem trúa blint á samkeppni og einkarekstur.“ – Nú tapaði Samfylkingin tveim þingsætum í kosningunum og lengi var útlit fyrir að tapið yrði meira. Hvernig skýrirðu þá tilvist- arkreppu sem Samfylkingin lenti í? „Ástæðan var að hluta til sú að hin pólitíska umræða fór á tímabili öll fram á forsendum umhverf- ismála og var okkur að mörgu leyti erfið. Þó að við séum komin með skýra stefnu í umhverfismálum, þá er kjarninn í okkar pólitísku hug- myndum klassísk jafnaðarstefna og hún náði einfaldlega ekki í gegn um tíma. Það má líka segja að við höf- um sjálf ekki verið búin að finna taktinn í umræðunni. Við gerðum of mikið af því að taka þátt í um- ræðunni á forsendum annarra í stað þess að gera það á eigin forsendum. En við unnum vel í okkar málum í vetur og þess vegna var ég róleg þó að gæfi svona á bátinn. Það fór mikil vinna fram innan flokksins og við komum vel undirbúin á lands- fund. Þar fundum við að við vorum komin algjörlega í kjarnann okkar, búin að útfæra hann í öllum mála- flokkum og gátum tekið þátt í hvaða umræðu sem var full sjálfs- trausts. Ég tel að við höfum náð ákveðnu hugmyndalegu frumkvæði í kosningabaráttunni og ég veit af samtölum við ótal marga hversu traustum fótum mínu fólki finnst það nú standa í útfærðri stefnu flokksins á öllum sviðum sem á reynir. Við verðum hins vegar að hafa í huga að þetta er ungur flokk- ur sem hefur verið að bræða sig saman og stóð ekki nægilega föst- um fótum á heildstæðum hug- myndagrunni, en nú er sameining- arferlinu lokið og flokkurinn er orðinn fullorðinn sem jafn- aðarflokkur Íslands. Allt hefur sinn tíma.“ Ekki spurning um líf og dauða Ingibjörg Sólrún bætir við íhug- ul: „Það er merkilegt hvernig fylgi er. Flokkar geta allt í einu fengið mikið fylgi út á einstök mál, þó að þeir séu kannski ekki komnir með fastan hugmyndalegan kjarna. Ég held að það sé kannski vandi Vinstri grænna og ástæðan fyrir því að þeim tókst ekki að halda því fylgi sem þeir fengu í könnunum að það var byggt í kringum tilfinninga- sveiflu í samfélaginu. Þegar hana lægði, þá vantaði grunninn.“ – Hvaða áhrif hefði það haft á þína stöðu sem formanns ef flokk- urinn hefði ekki komist í rík- isstjórn? „Ég hef ekki hugmynd um það. Mér finnst mikilvægt að flokkur eins og Samfylkingin freisti þess að komast í ríkisstjórn og hafa áhrif á stjórnvaldsákvarðanir. Það er verk- efni stórra flokka og auðvitað krafa kjósenda, en mér fannst það aldrei vera spurning um líf og dauða. Við hefðum alltaf orðið kraftmikill flokkur í stjórnarandstöðu og verið ríkisstjórn erfiður ljár í þúfu, hvort sem það hefði verið Sjálfstæð- isflokkurinn og Vinstri grænir eða Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sókn. Það held ég að liggi í augum uppi. Síðan hefði það bara verið flokksmanna að meta það hvernig þeir vildu hafa forystuna í flokkn- um. Það er svo oft búið að spá fyrir um pólitískt andlát mitt. Ég er hér enn,“ segir hún og hlær. – Saknarðu Davíðs? „Nei, Davíð er auðvitað litríkur karakter og það er alltaf mikið að gerast í kringum hann. En ég held hinsvegar að það hafi þróast of mik- il átakastjórnmál í kringum hann.“ – Hvað vantar í stjórnarsáttmál- ann? „Eflaust ýmislegt. Það má t.d. segja að það hefði mátt fjalla eitt- hvað um lýðræðismálin almennt og lýðræðisþróunina. Það þarf að þróa stofnanir samfélagsins okkar í takt við nýjar lýðræðishugmyndir og breytta tímaog þá er ég ekki síst að hugsa um samspil ríkisstjórnar og Alþingis, skipan hæstaréttar og fleira. En ég held að það sé eitthvað sem við verðum að vinna með á kjörtímabilinu. Það er alls ekki allt skrifað inn í þennan stjórnarsátt- mála, hann lýsir meginmarkmiðum og fjölmörg mál munu koma upp á kjörtímabilinu sem við tökumst á við þegar þar að kemur.“ – Hver verður forseti Alþingis eftir tvö ár? „Það er alveg óákveðið. Það verð- ur einhver góð manneskja með reynslu.“ Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.