Morgunblaðið - 27.05.2007, Page 32

Morgunblaðið - 27.05.2007, Page 32
ferðalög 32 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ H urðasmiður, þingmað- ur, póstberi, fast- eignasali, banka- starfsmaður, píanóleikari og arki- tekt voru meðal þeirra sem höfðu skráð sig í göngu Ferðafélagsins um eyðibyggðir Tröllaskaga. Auk þess var blaðamaður með í för en sá hafði takmarkaða reynslu af ís- lenskri veðráttu og fjallaferðum. Fyrsta dag ferðarinnar lá leiðin í kulda og trekk frá Reykjavík til Siglufjarðar. Náttúran var ægifög- ur séð út um bílgluggann en aftur á móti virtist sumarið vera fokið út í veður og vind. Blaðamaðurinn kveið því sem hann átti í vændum – fjall- göngu í Héðinsfjörð og Hvanndali. Meðferðis hafði hann aðeins haft tvær flíspeysur og nælonsvefnpoka og misreiknaði þar nokkuð íslensku sumarhitana. Bíllinn brunaði norð- ur og komið var til Siglufjarðar um miðnæturbil. Bærinn svaf en á götuhorni fyrir framan náttstaðinn, stóð góðleg kona. „Ég heiti Álfrún,“ sagði mannveran og blaðamann- inum datt þá í hug sú della að það væri landsbyggðarsiður að kynna sig fyrir aðkomufólki um miðjar nætur. Svo var þó ekki, heldur vís- aði Álfrún einfaldlega veginn að gististaðnum. Á fjöllum Næsta dag hófst síðan trússa- ferðin í Héðinsfjörð og Hvanndali. Hér áður lögðu Íslendingar líf sitt í hættu við að ganga frá Siglufirði yfir í Héðinsfjörð. Sækja þurfti læknisaðstoð, skíra börn og fæða, fara á mannamót og hitta ástvini. Margir létust í snjóflóðum og urðu úti í vetrarhörkum áður en þeir náðu nokkru sinni á leiðarenda. Fyrir þá sem spyrja sig hver gul- rótin okkar, nútímamanna, hafi ver- ið verða svörin sjálfsagt mörg. Varla er hægt að ganga langar veg- leysur um fjöll og firnindi nema eitthvað bíði á áfangastað, eða hvað? Fyrir utan ægifagra náttúr- una væri gulrót hins einhleypa göngumanns sjálfsagt að kynnast sálufélaganum á fjöllum. Eða eins og ein vinkonan orðaði það svo skemmtilega rétt fyrir brottförina; „Láttu mig vita ef þarna verða ein- hverjir á réttum aldri og á lausu, þá skrái ég mig úr Útivist og yfir í Ferðafélagið!“ Pælingunum lauk er fararstjór- inn steig fram og kynnti sig sem Pál Guðmundsson. Hann var ákaf- ur, róleg ganga varð oftast að hlaupum upp um misgrýtt fjöll og firnindi þar sem Páll leiddi hópinn örugglega. Fararstjórar virðast alltaf sprækastir manna en þessi var um leið afar íbygginn og dul- arfullur. Á þessum fyrsta degi benti hann eitthvað upp eftir fjalls- hlíðinni og hópurinn elti í blindni. Eflaust minntum við helst á beljur að fagna vori því eftirvæntingin var svo mikil í upphafi ferðarinnar. Við rætur fjallsins hömuðust stórar vinnuvélar við að grafa Héðins- fjarðargöngin og ásýnd landsins var óðum að breytast. Við vorum aðeins búin að vaða einn læk þegar himinninn gránaði og þykk súldin helltist yfir. Göngu í vondu veðri má annars líkja við að sálinni sé stungið í þvottavél og hún tekin út tandurhrein. Okkur leið vel. Í gegnum grámann grillti síðan í rákótt og svört fjöllin. Þegar hér var komið sögu vorum við búin að leggja á okkur ferðalag á hjara veraldar en hefðum allt eins getað verið í Hveragerði því varla sáust handa skil fyrir þokunni. Þó var gengið áfram með þá von eina í brjósti að bráðum létti til. Einhvers staðar var stoppað örlitla stund og biðlað til álfa og trölla um gott veð- ur – helst sól fyrst við vorum með þessa stæla á annað borð. Einhver hefur verið að hlusta, en Ljósmynd/Guðrún Gunnarsdóttir Kyrrlát fegurð Hestfjallið í Héðinsfirði skartaði sínu fegursta. Rúmum sextíu árum áður, eða árið 1942, varð þar eitthvert mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar er 25 manns létu lífið. Um var að ræða áætlunarflug milli Eyjafjarðar og Reykjavíkur og fórust allir um borð. Veisla í farangrinum Dregin voru fram tíu kryddlegin lambalæri, vafin inn í álpappír og grilluð í jörðinni ásamt bökunarkartöflum. Dalir hamingjunnar Héðinsfjörður og Hvanndalir eru miklar náttúruperlur og eng- inn kemur þaðan ósnortinn. Guðrún Gunnarsdóttir fór í gönguferð með Ferða- félagi Íslands. Siglt í þokunni Við sigldum af stað í þokunni, út fjörðinn, meðfram strönd- inni og klettunum. Aldan vaggaði ferðamönnum í svefn þar sem þeir lágu undir berum himni á þilfarinu. Bjarni Jónatansson í forgrunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.