Morgunblaðið - 27.05.2007, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 37
gerst maður í Jesú Kristi. Og eft-
irfarandi setningu segir hann vera
rammasetningu í ritgerðinni þar sem
hann hafnar tvíhyggjunni: „Veru-
leikinn er einn og allir menn eru að-
ilar að honum, því höfnum við fram-
andleikanum sem viðmiði í
mannlegum samskiptum.“
Hann segir misrétti gagnvart sam-
kynhneigðum sprottið upp af ná-
kvæmlega sömu hvötum og þegar
náttúrunni, útlendingum eða konum
sé ýtt til hliðar.
„Við lifum á tímum þar sem keðjan
er byrjuð að rakna upp, þótt klám-
heimurinn sé meira uppi á yfirborð-
inu nú en áður. Samfélag okkar er
búið að komast að þeirri niðurstöðu
að samkynhneigð sé heilbrigð og
æskileg kynhneigð rétt eins og gagn-
kynhneigð. En hverjir draga lapp-
irnar? Það er kirkjan,“ segir Bjarni
og bætir við að þetta sé ein ástæða
þess að hann sem kennimaður í
kirkjunni hafi farið af stað í ritgerð-
arvinnuna.
„Ég er að leita að ásættanlegum
sjónarhóli í kristinni kynlífssiðfræði
og rannsaka í þeim tilgangi skrif
fjögurra guð- og siðfræðinga. Ég
kanna hvort þeir uppfylli viðmiðin
sem ég hef sett mér. Loks enda ég á
því að taka álit kenningarnefndar
þjóðkirkjunnar sem lá fyrir presta-
stefnu í vor og greini það með sömu
aðferðum. Ég spyr hvort þar sé á
ferðinni ásættanlegur sjónarhóll fyr-
ir kristna kynlífssiðfræði og kemst
að þeirri niðurstöðu að svo er ekki að
öllu leyti.“
Siðferðisþrek og trúarkjarkur
Bjarni vill þó benda á að það sé
ekkert í áliti kenningarnefndarinnar
frá síðustu prestastefnu sem for-
dæmir líf og ástir samkynhneigðra.
„Það eru góðir og mikilvægir hlutir
að gerast innan þjóðkirkjunnar.“
Hvað stendur þá í veginum?
„Íslenskum kennimönnum er ljóst
að það er ekkert í trúargrundvell-
inum sem bannar hjónaband sam-
kynhneigðra eða krefst þess að sam-
kynhneigð sé fordæmd. Þetta er að
mínu áliti spurning um siðferðisþrek
og spurning um trúarkjark.“
Fólk hefur oft spurt Bjarna af
hverju honum sé þetta málefni svona
hugleikið og kann hann svar við því.
„Vegna þess að ef einstaklingur fær
þau skilaboð úr umhverfi sínu að
hann megi ekki treysta sjálfum sér
og að grundvallarhæfni hans til að
tengjast og finna tilgang í lífinu er á
einhvern hátt ljót er verið að fram-
kvæma sálarmorð á þessum ein-
staklingi.“
Orð hans eru sterk en hann segist
vita það af eigin starfsreynslu að það
að koma út úr skápnum, fyrir fjöl-
skyldunni, getur verið upp á líf og
dauða.
„Mér varð snemma mjög ljóst að
kennimannsstarfinu innan kirkj-
unnar fylgja mikil völd. Ég man þeg-
ar við hjónin fórum fyrst að tala um
hvað það hefði mikil áhrif sem sagt
væri og gert innan kirkjunnar. Því
meiri áhrif sem þú hefur, því meira
verður þú að vanda þig,“ segir Bjarni
en kona hans er Jóna Hrönn Bolla-
dóttir, prestur í Garðabæ og á Álfta-
nesi.
„Ég má ekki standa fyrir framan
unglingahóp í fermingarfræðslunni
og segja að samkynhneigðir eigi ekki
að njóta sömu mannréttinda og
gagnkynhneigðir. Unglingar eru svo
næmir fyrir réttlætinu og óréttlæt-
inu. Við skuldum þeim góð skilaboð
um virðingu fyrir öllu fólki svo við
getum átt trúnað þeirra sem and-
legir leiðbeinendur.“
Hann segir að við verðum að
spyrja að inntaki en ekki formi sam-
skipta.
„Hver eru gæðin í kynferðislegum
tengslum? Gæðin liggja ekki í því að
þarna standa aðilar með ólík kyn-
færi. Þau liggja í þeim trúnaði, virð-
ingu og kærleika sem ríkir á milli
þessara einstaklinga. Enda þegar
hjón standa fyrir altarinu á brúð-
kaupsdaginn er ekki spurt að kyni,
það er spurt að inntaki samskipt-
anna. Þess vegna má kristin kirkja
ekki skilgreina hjónabandið út frá
kyni því gæði þess að eiga sér lífs-
förunaut liggja ekki í líkamsgerð
hjónanna.“
Tími tiltalsins liðinn
Bjarni segir að samtíminn vilji
samtal og tími tiltalsins sé liðinn.
„Tími kirkjulegrar valdstjórnunar er
algjörlega liðinn. Það er enginn að
spyrja: Hvernig finnst prestinum að
ég eigi að haga kynlífi mínu? Og
kirkjan verður að hætta að svara
þeirri spurningu, annars sviptum við
þjóðina kirkjunni og það höfum við
ekki leyfi til að gera.“
Hann segir spurninguna um til-
gang lífsins verða sífellt meira knýj-
andi. „Á öldinni sem leið var verið að
spyrja: Hvað er hægt að gera? Verið
var að fara yfir allskonar þröskulda
og ná tökum á tækni- og vísinda-
legum atriðum. Núna er allt hægt.
Spurningin er frekar: Hvað er rétt að
gera?“
Og meira um samtímann: „Það
sem er að meiða okkur svo mikið í
vestrænni menningu er einsemdin,
framandleikinn og tilgangsleysið.
Skortur á tengslum og sjálfræði og
þar af leiðandi skortur á tilgangi. Við
höfum svo lítið sjálfræði nema sem
neytendur á markaði. Okkar sjálf-
ræði er í Kringlunni.“
Bjarni er hrifin af Netinu og sam-
skiptunum sem fara þar fram. „Þar
eru stórkostlegir hlutir að gerast og
fólkið fær rödd. Mannsandinn opnast
og fólk getur miðlað skoðunum
óhindrað. Vissulega felur Netið líka í
sér margvíslegan ljótleika en það
gefur okkur líka miklar upplýsingar.
Þetta er öflugasta samtal sem
nokkru sinni hefur átt sér stað og út
úr þessu mun koma áframhaldandi
þroski mannkyns.“
Málið undir niðri í höfn
Á þjóðkirkjan eftir að leyfa hjóna-
band samkynhneigðra í náinni fram-
tíð?
„Ég er sannfærður um að þetta
málefni er undir niðri í höfn og að
þetta leysist á næstu misserum. Þau
sem mestu ráða innan kirkjunnar
eru skynsamar og góðar mann-
eskjur. Það eru margir sem styðja
þennan málstað og það væri rangt að
segja að það væri einhver óvild í garð
samkynhneigðra af hálfu þjóðkirkj-
unnar. Það er fullur vilji hjá yf-
irstjórn kirkjunnar að leiða þessi mál
til farsælla lykta en það þarf að fara
yfir ákveðna félagslega og tilfinn-
ingalega þröskulda.“
Um þessar mundir fer mikil um-
ræða fram innan þjóðkirkjunnar um
stöðu samkynhneigðra og málefni
þeirra. „Á kirkjuþingi á komandi
hausti verða teknar stefnumótandi
ákvarðanir varðandi aðgengi sam-
kynhneigðra að hjónabandinu. Um-
ræðan hefur farið fram árum eða
áratugum saman en nú er komið að
ákveðnum þáttaskilum.“
Ritgerð Bjarna er innlegg í þessa
umræðu en hann stefnir á að vera
fram á haust að ganga frá ritgerðinni
en hann útskrifast í október. Hann
hyggst nota efnið áfram í sinni vinnu
en hann býður jafnan vikulega upp á
trúfræðslu fyrir fullorðið fólk. „Þetta
er viðleitni mín og þátttaka í þessari
umræðu. Ég er að reyna að vinna
mína vinnu af sem mestri ábyrð. Ég
er bara að prédika inn í samtímann.“
Kristin kirkja má ekki skil-
greina hjónabandið út frá
kyni því gæði þess að eiga
sér lífsförunaut liggja ekki
í líkamsgerð hjónanna.
... verk- og tæknifræðingum til starfa. Í boði eru spennandi störf í alþjóðlegu
umhverfi. Mikil erlend samskipti. Færni í ensku og spænsku skilyrði en kunnátta
í kínversku og hindí æskileg. Mjög góð laun. Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík
bjóða nám sem veitir ungu fólki aðgang að þessum störfum.
Íslenskt atvinnulíf árið 2015
óskar eftir...