Morgunblaðið - 27.05.2007, Qupperneq 58
58 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Karl Gunnarsson lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F. OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
Falleg og mikið endurnýjuð
3ja herb. íbúð í kjallara í
þríbýli á rólegum stað.
Flísalögð fremri forstofa,
forstofuherbergi, hol, stórt
hjónaherbergi, stór stofa,
opið eldhús með nýjum
innréttingum (uppþvottavél
fylgir) og flísalagt baðherb.
með innréttingu. Nýlegt
parket á gólfum. Útigeymsla
undir tröppum. Húsið er allt nýlega viðgert utan og það málað. Fallegur
endurgerður garður með timbur-grindverki umhverfis. Úti-arinn og fána-
stöng í garði. Hellulagðar stéttar og innkeyrsla með hitalögn. Nýtt dren og
skolplagnir ásamt hluta vatnslagna. Sérlega falleg eign í góðu sambýli.
Verð 24,3 millj.
OPIÐ HÚS KL. 15-17
SÖRLASKJÓL 34 – KJALLARI
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15-16
ÁLFKONUHVARF 49 (íb. 201), KÓP.
Íbúðin er laus til afhendingar
Sýnum í dag glæsilega 103,2 fm, 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð með stæði
í bílageymslu. Stórkostlegt útsýni yfir Elliðavatn og til Bláfjalla. Sérlega björt
og falleg íbúð, stórar svalir - bæði til suðurs og vesturs. Verð 29,8 millj.
VERIÐ VELKOMIN
Sölumaður: Þórhallur, sími 896-8232.
LAUGAVEGUR 86-94 - GLÆSILEG NÝBYGGING
Vel innréttaðar 2ja og 3ja herbergja íbúðir á 2.
og 3. hæð í þessari glæsilegu nýbyggingu í
hjarta miðborgarinnar.
Íbúðirnar eru fullbúnar með vönduðum innréttingum og
gólfefnum og eru sérstaklega hljóðeinangraðar sem og
hluti sameignar. Í eldhúsum íbúðanna fylgja tæki úr
burstuðu stáli, m.a. ísskápur með frysti og uppþvottavél.
Baðherbergi eru lögð marmarasteini í gólf og veggi og
tæki eru frá Philip Stark3. Eik er í innréttingum og eikar-
plankaparket er á gólfum. Hiti er í gólfum og myndavéla-
dyrasími. Svalir eru út af hverri íbúð og sér bílastæði fylgir
hverri íbúð. Lyfta í húsinu.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
2. HÆÐ.
Íbúð 201, birt stærð 92,4 fm Verð: 34.998.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 203, birt stærð 70,4 fm Verð: 26.308.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 205, birt stærð 70,4 fm Verð: 26.308.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 206, birt stærð 81,9 fm Verð: 30.850.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 207, birt stærð 94,5 fm Verð: 35.827.500 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 208, birt stærð 83,1 fm Verð: 31.324.500 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 210, birt stærð 75,0 fm Verð: 28.125.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 211, birt stærð 75,0 fm Verð: 28.102.500 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
3. HÆÐ.
Íbúð 301, birt stærð 92,4 fm Verð 37.770.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 302, birt stærð 70,7 fm Verð 28.547.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 303, birt stærð 70,4 fm Verð 28.420.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 304, birt stærð 70,4 fm Verð 28.420.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 305, birt stærð 70,4 fm Verð 28.420.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 306, birt stærð 81,9 fm Verð 33.307.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 307, birt stærð 94,5 fm Verð 38.662.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 310, birt stærð 75,1 fm Verð 30.417.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 311, birt stærð 75,0 fm Verð 30.375.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
Íbúð 312, birt stærð 124,6 fm Verð 51.455.000 kr. Bílastæði 1.500.000 kr.
ÍBÚÐIRNAR AFHENDAST VIÐ
KAUPSAMNING OG ERU TIL SÝNIS
EFTIR NÁNARA SAMKOMULAGI.
FYRIRTÆKI TIL SÖLU - SÖLUTURN
Auðveld kaup á spennandi rekstri. Söluturn, grill, ísbúð og vídeóleiga - í rúmgóðu
leiguhúsnæði, samtals 169,5 fm, á góðum stað í Salahverfi í Kópavogi. Nánari lýsing: Um er
að ræða vaxandi rekstur ásamt lager, tækjum og innréttingum. Velta fer vaxandi og góðir
möguleikar eru á aukningu. Reksturinn er staðsettur í hverfi sem hefur verið og er í mikilli
uppbyggingu.
TILBOÐ ÓSKAST Í REKSTURINN ÁSAMT TÆKJUM OG INNRÉTTINGUM. MÖGULEIKI Á
YFIRTÖKU Á LÁNUM SEM HLUTA AF GREIÐSLU.
Nánari upplýsingar gefur Reynir, s. 820 2145
FLESTUM er ljóst að lögreglu-
starfið er krefjandi og hættulegt
starf. Samkvæmt nýlegum íslensk-
um rannsóknum sem gerðar voru af
embætti ríkislög-
reglustjóra eru það
framlínustarfsmenn
lögreglunnar, þ.e. þeir
sem starfa við almenna
löggæslu, sem helst
verða fyrir ofbeldi í
starfi. Gerendur í þess-
um málum eru oft ung-
ir karlmenn undir
áhrifum áfengis eða
annarra vímuefna.
Þessi atvik eiga sér oft-
ast stað á næturnar um
helgar þegar óspektir
eru á almannafæri eða
á umráðasvæði lögreglu. Líkamleg
meiðsli lögreglumanna eru yfirleitt
smávægileg en lítið er vitað um sál-
ræn eftirköst ofbeldisins, sem geta
verið kvíði, depurð, doði, hræðslu-
tilfinning og niðurlæging.
Hvernig má bæta starfsumhverfi
lögreglumanna og draga úr líkum á
meiðslum í starfi? Samstarf við al-
menning er lögreglu mikilvægt. Án
stuðnings almennings nær lögreglan
ekki að sinna nægjanlega vel lög-
bundnu hlutverki sínu svo sem að
stemma stigu við afbrotum og vinna
að uppljóstran brota. Úti á vettvangi
starfar lögreglan eftir fyrirfram
ákveðnu verklagi sem leiðir af lög-
gjöf og öðrum fyrirmælum og al-
menningur gerir sér ekki alltaf grein
fyrir. Almenningur þekkir ekki for-
sögu máls og lögreglan má ekki deila
upplýsingum um einstaka mál með
almenningi til að skýra mál sitt á
vettvangi. Lögreglumenn þurfa því
að huga að því á vettvangi að al-
menningur býr ekki alltaf yfir þekk-
ingu á verklagi þeirra. Þetta þarf að
hafa í huga til dæmis þegar lögregla
beitir viðurkenndum lögreglutökum
með festu til að koma í
veg fyrir að lög-
reglumönnum sé sýnt
ofbeldi.
Til að draga úr skað-
legum áhrifum ofbeldis
í starfi þarf að koma til
móts við þarfir lög-
reglumanna fyrir
fræðslu og stuðning.
Embætti ríkislög-
reglustjóra hefur nú,
með fulltingi dóms-
málaráðherra, hrint af
stað þróunarverkefni
til að styrkja lög-
reglumenn í þessum efnum. Eitt af
því sem mikilvægast er að huga að í
kjölfar áfalla af völdum ofbeldis er
stuðningur frá þeim sem standa
manni nærri, þ.e. vinum, ættingjum
og vinnufélögum. Þessi aðferð hefur
verið notuð með skipulögðum hætti,
m.a. í Danmörku og Bandaríkjunum,
þar sem lögreglumenn styðja aðra
lögreglumenn á erfiðum tímum. Á
Íslandi hefur þetta fyrirkomulag
tíðkast hjá Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins undir heitinu fé-
lagastuðningur. Grunnhugmyndin
með félagastuðningi er sú að hag-
nýta sér þá staðreynd að á hverjum
vinnustað er að finna fólk sem þægi-
legt er að tala við; hefur góða nær-
veru og nýtur trausts vinnufélag-
anna. Þetta fólk hefur gjarna
reynslu af því að veita félagastuðn-
ing, þó ekki með kerfisbundnum eða
formlegum hætti. Með því að skipu-
leggja þennan stuðning með form-
legum hætti er unnt að nýta þetta
fólk betur með því að þjálfa það sér-
staklega, gera starf þess markviss-
ara og veita því nauðsynlega við-
urkenningu í starfi. Þeir sem taka að
sér að veita félagastuðning hafa það
hlutverk að vera stuðningsfélagar
fyrir þá vinnufélaga sína sem lent
hafa í alvarlegu áfalli eða ráða ekki
lengur við aðstæður vegna uppsafn-
aðs álags. Þeir sem taka að sér þenn-
an stuðning sinna bráðaþjónustu.
Aðstoð þeirra kemur hins vegar ekki
í stað fagaðstoðar og þurfa þeir því
að geta vísað á slíka þjónustu ef þörf
er á. Til þeirra geta félagarnir leitað
eftir aðstoð og hjá þeim eiga þeir að
fá hvatningu og leiðsögn, til dæmis
til að leita til sérfræðinga á sviði
áfallahjálpar og streitustjórnunar
þegar svo ber undir. Takist að
tryggja lögreglumönnum þjónustu
við hæfi, og þannig betra starfsum-
hverfi, eykur það líkurnar á að
markmiðum löggæsluáætlunar
2007-2011 um ánægt, agað og heil-
brigt starfslið verði náð.
Ofbeldi gegn lögreglu-
mönnum – hvað er til ráða?
Ólafur Örn Bragason
skrifar um félagsþjónustu
til handa lögregluþjónum
» Til að draga úr skað-legum áhrifum of-
beldis í starfi þarf að
koma til móts við þarfir
lögreglumanna fyrir
fræðslu og stuðning.
Ólafur Örn Bragason
Höfundur er sálfræðingur hjá
embætti ríkislögreglustjóra.