Morgunblaðið - 08.11.2007, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Allt um það í
þessari bráð-
skemmtilegu
bók fyrir krakka
frá 6 til 66 ára.
Hvað gerist þegar
forsetanum leiðist
í vinnunni?
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
ÁLAGSGREIÐSLUR til starfs-
manna á leikskólum hafa skilað sér í
betri mönnun. Þannig er því m.a.
farið á Seltjarnarnesi sem tók upp
slíkar greiðslur 1. september sl.
Skólarnir eru nú mannaðir að fullu.
Sömuleiðis er það mat sviðsstjóra
leikskólasviðs Reykjavíkurborgar
að síðan ákveðið var að greiða starf-
mönnum álagsgreiðslur, þeirra á
meðal starfsfólki leikskóla, hafi
starfsmannavelta minnkað, starfs-
menn sem hafi ætlað sér að hætta
hafi hætt við.
Misjafnt er eftir sveitarfélögum í
hverju umbun starfsmanna felst. Í
Reykjavík fá t.d. allir starfsmenn
leikskólanna tíu yfirvinnustundir á
mánuði greiddar séu þeir við störf í
hádeginu og er upphæðin yfirleitt á
bilinu 15 til rúmlega 30 þúsund kr. Á
Seltjarnarnesi fá allir starfsmenn
fast 30 þúsund krónur aukalega á
mánuði. Þá samþykkti fræðsluráð
Hafnarfjarðar nýverið að fara í
markvissar aðgerðir í starfsmanna-
málum í leik- og grunnskólum í
bænum. Munu aðgerðirnar bæði fela
í sér álagsgreiðslur sem og hlunn-
indi, m.a. sundkort á góðum kjörum.
Svipuð hlunnindi eru nú þegar í boði
fyrir starfsmenn borgarinnar. Með
ákvörðun Dags B. Eggertssonar
borgarstjóra, sem kynnt var 18.
október, fá starfsmennirnir sund- og
bókasafnskort og aðgangskort að
söfnum borgarinnar svo dæmi séu
tekin. Fyrir um einu og hálfu ári
fóru leiðbeinendur á leikskólum
Kópavogs að fá álagsgreiðslur og
einnig voru kjör leikskólakennara
bætt nokkuð sl. sumar. En betur má
ef duga skal því enn vantar í þó
nokkur stöðugildi á leikskólunum að
sögn leikskólafulltrúans. Því er nú
unnið af fullum krafti að tillögum til
enn frekari úrbóta hvað mönnun
leikskóla þar í bæ varðar og er
þeirra að vænta innan tíðar.
Skiptir máli
„Ég dreg ekki í efa að þetta skipti
starfsmenn leikskólanna miklu
máli,“ segir Björg Bjarnadóttir, for-
maður Félags leikskólakennara, um
álagsgreiðslur leikskólakennara
sem borgin tók upp í október. Samn-
ingar leikskólakennara eru lausir að
ári.
„Okkur hefur haldist betur á
starfsfólki frá því álagsgreiðslur
voru samþykktar í haust,“ segir
Hrafnhildur Sigurðardóttir, leik-
skólafulltrúi Seltjarnarnesbæjar.
Engin mannekla er nú á leikskólum
bæjarins.
Umbun skilar árangri
Nokkur sveitar-
félög umbuna
vegna álags
Morgunblaðið/Ómar
Leikandi Starfsmenn á leikskólum nokkurra sveitarfélaga fá nú greitt
aukalega fyrir mikið álag við vinnu. Misjafnt er hvað felst í umbuninni.
ÞAÐ er dálítið notalegt að eiga þess kost að sitja inni í
hlýjum bíl meðan regndropar falla á rúðurnar í vetrar-
umferðinni. Þótt ýmsir kvarti yfir votviðrinu, sem ein-
kennt hefur veðrið að undanförnu, fagna því þó sumir
að enn hafi lítt gert vart við sig frostkaldur vetur með
tilheyrandi snjókomu.
Regnið dynur á bílrúðunum
Morgunblaðið/Ómar
SAMTÖK verslunar og þjónustu
(SVÞ) hafa fallist á tilmæli tals-
manns neytenda um að framvegis fái
neytendur í hendur vörustrimil yfir
það sem keypt hefur verið um leið og
greiðslukvittun er afhent til að
tryggja samræmi milli kassaverðs
og hilluverðs. Eru þetta fyrstu við-
brögð talsmanns neytenda við frétt-
um undanfarna daga um misræmi og
misfellur í matvöruverslunum, að því
er segir á vef talsmanns neytenda.
Þar kemur jafnframt fram að SVÞ
hafi fallist á tilmælin fyrir sitt leyti
og samþykkt að kynna þau með því
að birta þau á vef samtakanna og í
fréttabréfi ásamt því að hvetja versl-
anir til að fara framvegis eftir til-
mælunum. Tilmælin taka jafnt til
verslana innan og utan SVÞ.
Fallast á
tilmælin
Stuðli að samræmi
hillu- og kassaverðs
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÞETTA er stór sýsla og fjölmenn
þannig að þegar það eru svona fáir á
vakt er auðséð að upp getur komið sú
staða að erfitt verði að sinna öllum
þeim verkefnum sem koma upp,“
segir Tinna Jóhönnudóttir, formað-
ur Lögreglufélags Suðurlands. Hún
segir að í það minnsta vanti fimm
lögreglumenn á vakt en til að ná
landsmeðaltali, þ.e. fjöldi lögreglu-
manna á íbúa, þurfi tólf til þrettán til
viðbótar.
Á félagsfundi Lögreglufélags Suð-
urlands sem haldinn var 29. október
sl. var skorað á stjórnvöld að endur-
skoða fjárveitingar til embættis lög-
reglunnar á Selfossi. Tinna segir að
samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sé
gert ráð fyrir 23 stöðugildum, en þau
hafi verið 27 á síðasta ári. Raunar
hafi embættið farið fram á 28 stöðu-
gildi. „Það sést best á fréttum
hversu mikið álag hefur verið á
deildinni og menn eru mjög ósáttir
við þetta. Það voru 27 stöðugildi í
upphafi árs og í sumar en síðan hefur
fækkað hjá okkur og ekki verið hægt
að auglýsa stöður vegna þess að ekki
er gert ráð fyrir fleiri mönnum.“
Í útkallsliði lögreglunnar á Sel-
fossi starfa sextán manns og skiptast
á fjórar vaktir. Á hverri vakt er varð-
stjóri sem er að mestu bundinn við
lögreglustöðina. Því eru þrír lög-
reglumenn sem sinna útköllum og
verkefnum. Það er einn fullmannað-
ur bíll og lögreglumaður að auki.
„Það gefur augaleið að ekki er hægt
að senda einn lögreglumann til að
sinna útköllum og fást við fólk í ýmsu
ástandi. Það er því bæði öryggi íbú-
ans sem kallar eftir aðstoð en einnig
öryggi lögreglumannsins sjálfs sem
er ógnað,“ segir Tinna en bætir við
að um helgar sé bætt við aukamann-
skap. Það hefur hins vegar þann
ókost að álagið eykst.
Ekki má gleyma að umdæmið er
mjög víðfeðmt og til að mynda mikið
um sumarhús á svæðinu.
Ein fullskipuð lögreglu-
bifreið á 15 þúsund íbúa
Í HNOTSKURN
»Fjárveitingar til embættislögreglunnar á Selfossi
hafa verið skornar niður. Get-
ur embættið aðeins haldið úti
23 stöðugildum en þau voru 27
í upphafi árs.
»Umdæmið er mjög víð-feðmt, þéttbýliskjarnar
margir og mikið um sumar-
hús. Íbúum Árnessýslu fjölgar
einnig hratt og eru þeir nú
tæplega 15 þúsund.
LÍFLEGAR umræður fóru fram á
fjölmennum aðalfundi Íbúasamtaka
Laugardals sem haldinn var í gær-
kvöldi, og hefði að sögn formanns
samtakanna getað haldið áfram fram
á nótt. Meðal þess sem rætt var um
voru þau fjölmörgu bílastæði sem í
Laugardalnum eru, aðgengi að Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum og fyr-
irhugaðar framkvæmdir í tengslum
við íþróttamiðstöðina Laugar.
Björn Leifsson, framkvæmda-
stjóri World Class, lýsti hugmyndum
sem upp hafa komið vegna fram-
kvæmda á svæðinu og lofaði íbúum
að þær yrðu allar vel kynntar þegar
þar að kæmi.
Einnig var rætt um aðgengi að
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og
kom upp sú hugmynd að fella ætti
gjald að garðinum niður, s.s. vegna
þess að lítið er orðið eftir af almenn-
ingssvæðum í dalnum.
Vilja frítt í
fjölskyldu-
garðinn
Fundur Umræðurnar voru líflegar.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja til
við stjórnir Sparisjóðsins í Keflavík,
SpKef, og Sparisjóðs Þórshafnar og
nágrennis að sjóðirnir verðir sam-
einaðir. Einnig stendur yfir sam-
runaferli SpKef við Sparisjóð Vest-
firðinga og Sparisjóð Húnaþings og
Stranda.
Samrunarnir eru háðir samþykki
Fjármálaeftirlitsins og Samkeppnis-
eftirlitsins. Í tilkynningu frá SpKef
kemur fram að auka eigi stofnfé í
tengslum við samruna sjóðanna og
að eigið fé þeirra verði samanlagt um
26,6 milljarðar króna. Unnið er að
samrunaáætlun og nánari útfærslu.
Endanleg ákvörðun um samruna
verður lögð fyrir fundi stofnfjárhafa.
Samrunar
við SpKef
♦♦♦