Morgunblaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 23 SUÐURNES Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Grindavík | Geoplank hefur verið að auka áherslu á framleiðslu parketts fyrir innan- landsmarkað. Megnið af framleiðslu fyrir- tækisins er nú flutt út, meðal annars til stærstu harðviðarframleiðenda heims. Geoplank ehf. var stofnað á árinu 2005. Markmið félagsins er að vinna harðvið til notkunar í framleiðslu á gólfefnum. Í þeim tilgangi hefur það komið sér upp verksmiðju í Grindavík. Að félaginu standa einstaklingar, fagfjárfestar og Grindavíkurbær. Tveir af frumkvöðlunum stjórna fyrirtækinu, þeir Ingi G. Ingason framkvæmdastjóri og Stefán Jónsson framleiðslustjóri. Sérstaða í notkun jarðhita Fyrirtækið notar heitt vatn frá háhita- svæðinu í Svartsengi til að þurrka harðvið til notkunar í parkett og klæðningar. Þurrkklef- inn gengur allan sólarhringinn. Stefán Jóns- son segir, þegar hann sýnir blaðamanni fyr- irtækið, að Geoplank sé eina harðviðar- fyrirtækið í heiminum sem notar jarðhita til þurrkunar á harðvið og það sé stærsti not- andi jarðhita til iðnaðarframleiðslu hér á landi, eftir að Kísiliðjan við Mývatn hætti starfsemi. „Í upphafi prófuðum við ýmislegt sem tók tíma, þar á meðal við fínstillingu þurrkklef- ans,“ segir Stefán. „Fljótlega voru vörur okk- ar samþykktar af stærstu parkettframleið- endum heims og við komnir með góða vöru og mikinn útflutning,“ bætir hann við. Meginhluti framleiðslunnar er harðviðar- lag á parkett, svonefndur iðnaðarspónn, sem seldur er til stærstu parketframleiðenda heims, til dæmis Kährs í Svíþjóð. Þar er harðviðarlagið límt á plötur og lakkað og selt undir merkjum framleiðandans. Eins og gef- ur að skilja er efsta lagið, þessir 4 millimetr- ar, langdýrasti hluti framleiðslunnar. Geoplank leggur áherslu á verðmætustu framleiðsluna, það er að segja heil borð í dýr- ari viðartegundum sem nefnt er planka- parkett. Þá er viðurinn fluttur frá Ameríku, sagaður í réttar þykktir, þurrkaður og snið- inn til í Grindavík og síðan sendur til kaup- enda í Evrópu, aðallega í Svíþjóð, Póllandi og Frakklandi. Samkeppnishæfni fyrirtækisins byggist, að sögn Stefáns, á lægri orkukostn- aði og styttri þurrktíma en í hefðbundinni parkettframleiðslu á meginlandinu. Þá nýtur fyrirtækið þess að vera á Evrópska efna- hagssvæðinu en viðurinn er það mikið unninn hér að Ísland telst upprunaland framleiðsl- unnar sem þess vegna ber ekki tolla á Evr- ópumarkaði, ólíkt harðviðarþynnum sem koma frá löndum utan EES. Fleiri stoðir undir reksturinn Geoplank er einnig með eigin sölustarfsemi á innanlandsmarkaði undir merkjum Geo parket. Er þetta eina parkettlínan þar sem jarðhiti er nýttur til þurrkunar. Forsvars- menn fyrirtækisins leggja á það áherslu að þess vegna séu engar gróðurhúsalofttegundir losaðar út í andrúmsloftið. Aðrir framleið- endur noti gas, olíu, kurl og fleiri orkugjafa til þurrkunar. Geo parkettlínan er bæði til sem gegnheilt parkett sem framleitt er eftir pöntun og þurrkað sérstaklega vel fyrir gólfhita og aðr- ar íslenskar aðstæður. Geo línan er einnig til sem hefðbundið fljótandi parkett. Við framleiðslu á fljótandi parkettinu er iðnaðarspónninn fluttur til samstarfsaðila fyrirtækisins erlendis þar sem parkettið er límt og lakkað og flutt aftur hingað til lands. Þessa vöru er Geoplank einnig byrjað að kynna erlendis sem sérstaka umhverfisvæna afurð og Stefán telur að ekki verði langt í að útflutningur hefjist á tilbúnu parketti. Til þess að auka möguleika á markaðssetningu á þessari vöru, meðal annars með styttri fram- leiðslutíma, hefur Geoplank áhuga á að fram- leiða parkettið að öllu leyti hér á landi. Stef- án segir að ekki þurfi að bæta miklu við til þess að það sé hægt. „Um 80% af framleiðslu okkar fara í útflutning. Við höfum nokkra er- lenda kaupendur og þar er einn langstærst- ur. Það er erfitt að þurfa að treysta alfarið á útflutning og vera að mestu bundinn einum kaupanda á iðnaðarspón. Með því að auka hlut eigin framleiðslu á innanlandsmarkaði erum við að setja fleiri stoðir undir rekstur fyrirtækisins,“ segir Stefán Jónsson. Geoplank notar jarðhita til að þurrka amerískan harðvið fyrir Evrópumarkað Auka eigin parkettframleiðslu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Harðviður Framleiddar eru ýmsar tegundir af parketti hjá Geoplank en mesta áherslu leggur Stefán Jónsson á dýrari viðartegundirnar. Þurrkklefinn gengur allan sólarhringinn Reykjanesbær | Slagorð og teikningar grunnskólanema verða notuð til að efla um- hverfisvitund bæjarbúa í Reykjanesbæ. Efnt var til samkeppni um teikningar og slagorð og afhenti Árni Sigfússon bæjar- stjóri höfundum bestu tillagnanna verðlaun og viðurkenningar á íbúafundi sem hann hélt með grunnskólanemum í gær. Góð þátttaka var í samkeppninni og margar áhugaverðar tillögur bárust, að mati sérstakrar dómnefndar. Verðlaun voru veitt í nokkrum flokkum. Hjörtur Már Atlason úr Heiðarskóla fékk verðlaun fyrir teikningu á spjald A og Ingi- björg Jóna Guðrúnardóttir úr Njarðvík- urskóla fékk verðlaun fyrir slagorð í sama flokki. Aníta Sif Sigfúsdóttir úr Akurskóla fékk verðlaun fyrir myndverk á spjald B og Andri Berg Ágústsson, Benedikt Jónsson og Tómas Árnason úr Holtaskóla áttu besta slagorðið í þeim flokki. Særún Sævarsdóttir úr Njarðvíkurskóla fékk verðlaun fyrir myndverk á poka C og Kristófer Ingi Sig- urðarson úr Myllubakkaskóla átti besta slagorðið. Þá fengu Ásta María Jónasdóttir úr Myllubakkaskóla og Marín Hrund Magn- úsdóttir úr Njarðvíkurskóla aukavið- urkenningar fyrir skemmtilegan texta. Samkeppnin er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar og BT og verða verðlauna- tillögurnar kynntar rækilega, meðal annars verða þær settar á skilti í bænum, bíla, ruslapoka og í auglýsingar í þeim tilgangi að auka umhverfisvitund bæjarbúa. Verðlaun veitt í umhverfisverkefni Umhverfi Hjörtur Már Atlason teiknaði en Ingibjörg Jóna Guðrúnardóttir á textann. AUSTURLAND Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Egilsstaðir | Þegar rætt er um sjúkraflug á Austurlandi spyrja margir hvers vegna ekki sé kallað á þyrlu þegar á þarf að halda. Óttar Ármannsson, læknir hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) á Egilsstöðum, situr í nefnd um sjúkraflutninga á vegum HTR. Á opnum fundi um heilbrigðismál í Egilsstaðalæknishéraði, sem hald- inn var nýverið, sagði hann ástæðu þess að ekki væri kallað á þyrlu þá að óratíma tæki fyrir hana að koma frá Reykjavík til Egilsstaða, eða um tvo og hálfan tíma, ef flogið væri þvert yfir landið. Ef eitthvað væri að veðri yrði þyrlan að fljúga með ströndinni, það tæki enn lengri tíma og hugsanlega þyrfti að stoppa til að taka eldsneyti. Við þennan tíma bættist svo útkalls- tími, sem væri talsverður. „Þyrlan er ekki raunhæfur kost- ur í bráðatilfellum sem þola ekki bið. Hún nýtist t.d. við strandstaði og í óbyggðum, þar sem hún er, þrátt fyrir langan útkallstíma, eini raunhæfi kosturinn,“ sagði Óttar. Staðsetja á þyrlu á Akureyri „Gerð var vönduð og upplýst skýrsla þegar verið var að rök- styðja það að fjölga þyrfti þyrl- unum úr tveimur í fjórar,“ sagði Stefán Þórarinsson, framkvæmda- stjóri lækninga hjá HSA, á fund- inum. „Í henni stendur þó að best sé út frá öryggis- og hagkvæmni- sjónarmiðum að þyrlan sé staðsett sem næst slökkviliðinu í Reykja- vík. Við þurfum að berjast gegn þessum rökum, sem margir trúa að séu hin einu sönnu. Að koma þyrlunni út úr Reykjavík, norður fyrir veðursvæðið og fjallgarðana sem liggja milli okkar og Reykja- víkursvæðisins er verkefnið. Það vinnst ekki nema allir, sem búa norðan þjónustusvæðisins sem þyrlan nær til, leggi saman í það. Ef við landsbyggðarmenn stönd- um ekki saman að þessu verður þyrlan áfram í Reykjavík.“ Stefán sagði að standa yrði vakt og manna þyrluna daginn út og inn, hægt þyrfti að vera að fara fyrirvaralaust í útkall. Það krefðist hins vegar mikillar sértækrar þjálfunar og ekkert þýddi að halda slíku úti nema hafa nokkuð stóran læknahóp á bak við þyrluna. „Allt annað er óraunsætt. Því þýðir ekki minni starfseiningu en sjúkrahúsið á Akureyri,“ sagði Stefán. Hann bætti við að hið sama gilti um al- mennt sjúkraflug. Stytta þarf útkallstíma Á þessum sama fundi var sjúkraflug einnig mjög til um- ræðu. „Eitt af því sem við heyrum talsvert um að miður hafi farið í þróun heilbrigðismála á Austur- landi er að sjúkraflugið í dag sé með öðrum hætti en áður,“ sagði Óttar. „Mörgum þykir minna ör- yggi fyrir hendi nú þegar ekki er sjúkravél á Egilsstöðum. Við fag- fólk teljum þvert á móti að gæði þjónustunnar og öryggi hennar hafi vaxið til muna í sjúkrafluginu á síðustu árum. Að okkar mati er sjúkraflugið vel komið á Akureyri og mun án efa halda áfram að eflast. Það myndi þó styrkjast enn meir ef við fengjum eina af viðbótarþyrlum Landhelgisgæslunnar þangað. Auðvitað væri best að hafa alla þessa þjónustu á Egilsstöðum en forsendur eru bara ekki til þess og það verður fólk að gera sér ljóst.“ Heilbrigðisstofnun Austurlands vill björgunarþyrlu á Akureyri Vantar þyrlu norður fyrir veðursvæðið og fjallgarðana Morgunblaðið/Júlíus Þyrla Heilbrigðisstarfsfólk á Austurlandi vill að þyrla verði staðsett á Akureyri, þar sem stórt sjúkrahús eins og FSA þurfi sem bakhjarl. Í HNOTSKURN »Útkall þyrlu frá Reykja-vík til Austurlands er ekki raunhæfur möguleiki í bráðatilfellum. »Yfirstjórn Heilbrigðis-stofnunar Austurlands (HSA) vill að þyrla með sól- arhringsvakt frá Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri verði staðsett á Akureyri. »HSA telur sömuleiðis aðsjúkraflutningavél sem þjónar Austurlandi sé best komin á Akureyri, þar sem ráðið geti úrslitum að unnt sé að senda sérfræðinga með vel búinni vélinni. EIMSKIP hefur styrkt Heilbrigðisstofnun Austurlands til kaupa á sónartæki fyrir um þrjár milljónir króna. Í fréttatilkynningu segir að sónartækið sé auðvelt í meðförum, fjölhæft og öflugt og bæti til muna grein- ingu sjúkdóma, meina og áverka. Guð- mundur P. Davíðsson, forstjóri Eimskips á Íslandi, afhenti Einari Rafni Haraldssyni, forstjóra Heilbrigðisstofnunnar Austur- lands, gjöfina á Reyðarfirði í tengslum við undirskrift Eimskips undir samning um umfangsmikla flutninga fyrir Alcoa Fjarða- ál til og frá Reyðarfirði á mánudag. Starfsemi Eimskips á svæðinu hefur auk- ist til muna á undanförnum misserum og vill Eimskip sýna í verki að félagið hyggist taka þátt í skapa öflugra starfsumhverfi á Reyðarfirði. „Rúmlega 30 ný störf hafa skapast á svæðinu á árinu til viðbótar þeim 40 störfum sem þegar voru til staðar hjá Eimskipi á Austurlandi. Mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár og Eimskip tekið virkan þátt í þeirri þróun og ætlar að halda því áfram,“ sagði Guðmundur P. Dav- íðsson þegar gjöfin var afhent. „Við erum ákaflega þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Starfsfólk okkar hefur kunnáttu til að nýta tækið og það eykur möguleika á vand- aðri greiningu sjúkdóma og meina,“ sagði Einar Rafn. Eimskip gefur HSA fullkomið sónartæki Ljósmynd/Eimskip Gjöf F.v. Þórarinn Baldursson, Einar Rafn Haraldsson, Svanbjörg Pálsdóttir, Guð- mundur P. Davíðsson og Karl Gunnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.