Morgunblaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 19 LJÓÐSKÁLDIÐ og þýðandinn Knut Øde- gård hlaut nýverið Jan Smrek verðlaunin í Slóvakíu. „Þetta eru alþjóðlega ljóðlist- arverðlaun sem voru veitt nú í níunda skipti,“ segir Knut en meðal fyrri verðlauna- hafa er Svíinn Tomas Tranströmer. Knut hlaut verð- launin fyrir ævifram- lag sitt til ljóðlistar- innar. „Það eru fjörutíu ár í ár síðan ég gaf út fyrstu ljóðabókina og því virkilega gaman að fá verðlaunin á þessu ári. Ég er búinn að gefa út rúmlega þrjátíu bækur á þessum árum og hafa ljóð mín verið þýdd á 23 tungumál,“ segir Knut sem fluttist frá Noregi til Íslands árið 1984 og gerðist þá forstjóri Norræna hússins. „Þessi verð- laun eru mér mjög mikill heiður en eng- inn Íslendingur eða Norðmaður hefur fengið þau áður.“ Þessi mikilsmetnu alþjóðlegu bókmennta- verðlaun voru afhent Knut í Bratislava 2. október við virðulega athöfn þar sem meðal annarra voru við- staddir forsætisráðherra landsins og borgarstjórinn. Ljóðabók með úrvali ljóða Knuts kom út á slóvösku 1996. Vegna verðlaunanna er nú unnið að útgáfu nýrrar bókar með ljóðum Knuts í Slóvakíu. Knut verðlaunaður Fékk alþjóðleg ljóðlistarverðlaun Knut Ødegård Með verðlaunaskjalið. MARKÚS Ívarsson járnsmiður, annar stofnenda Vélsmiðjunnar Héðins, safnaði á 3. og 4. áratug 20. aldar íslenskum listaverkum. Ekkja Markúsar frú Kristín Andrésdóttir og dætur þeirra færðu Listasafni Íslands 56 málverk úr safninu að gjöf 27. ágúst árið 1951, sama dag og Listasafnið var form- lega opnað í nýjum húsakynnum við Suðurgötu. Síðar hefur fjölskyldan bætt fleiri verkum í gjöfina. Markús Ívarsson (1884-1943) var járnsmiður að mennt og tók að kaupa málverk jafnskjótt og hann hafði til þess nokkur efni og studdi þannig meðvitað ýmsa listamenn sem bjuggu við kröpp kjör á erfiðum tímum í þjóðlífinu. Markús í bræðra- lagi við Bjarna Þorsteinsson stofnaði Vélsmiðjuna Héðin sem varð stór- fyrirtæki í höndum þeirra. Markús hóf fyrir alvöru að safna málverkum í kreppunni um 1930 og hélt því áfram meðan honum entist aldur með stuðningi eiginkonu sinnar, Kristínar Andrésdóttur. Keyptu þau stundum verk frá mismunandi skeiðum á ferli listamannanna og verk ungra listamanna sem voru fulltrúar nýrra viðhorfa í myndlist. Í tilefni sýningar sem nú hefur verið opnuð á safngjöf Markúsar bætist enn í safneignina því að af- komendur hans hafa gefið safninu málverk af Markúsi, sem var í eigu afkomenda hans. Myndin er eftir Jón Stefánsson, frá árinu 1934, og sýnir Markús í bláum samfestingi, hugsi á svip með hamar og meitil í hendi. Að auki færa afkomendur Markúsar safninu að gjöf málverk eftir Eyjólf Eyfells af skipinu Gullfossi, frá 1915. LÍ sýnir safngjöf Markúsar Ívarssonar Ný verk bætast við Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gjöf Halldór Björn Runólfsson safnstjóri við málverkið af Markúsi í Héðni. kr . að ra le ið in a til U S A Ti lb oð sv er ð fr á smáauglýsingar mbl.is ókeypis smáauglýsingar mbl.is smáauglýsingar mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.