Morgunblaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Balls of Fury kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
Balls of Fury kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Dark is Rising kl. 3:45 - 5:50 - 8 B.i. 7 ára
Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Ævintýraeyja Ibba m/ísl. tali kl. 4 - 6
Good Luck Chuck kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára
Resident Evil kl. 10:10 B.i. 16 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50
Balls of Fury kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
Dark is Rising kl. 6 - 8 B.i. 7 ára
Eastern Promises kl. 10 B.i. 16 ára
Ævintýraeyja IBBA m/ísl. tali kl. 6
Sími 564 0000Sími 462 3500
This is England kl. 6 - 8 - 10
Rouge Assassin kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Good Luck Chuck kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára * Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
Ver
ð aðeins
600 kr.
Stórkostleg ævintýramynd í anda Eragon.
BÚÐU ÞIG
UNDIR
STRÍÐ
HÖRKU HASARMYND MEÐ TVEIMUR HEITUSTU TÖFFUR-
UNUM Í DAG SVAKALEG SPENNA FRÁ UPPHAFI TIL ENDA
Ve
rð a
ðeins
600 kr
.
HVER SAGÐI AÐ RISA-
EÐLUR VÆRU ÚTDAUÐAR
Með íslensku tali
Gríðarstór gamanmynd
með litlum kúlum!
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
SVONA ER ENGLAND
HANN BEIÐ ALLT
SITT LÍF EFTIR
ÞEIRRI RÉTTU...
VERST AÐ HANN
BEIÐ EKKI VIKU
LENGUR
„...prýðileg skemmtun sem ætti að gleðja gáskafullbíógesti...!“Dóri DNA - DV
eeee
„Í senn fyndin og tilfinningalega mögnuð
kvikmynd sem óhætt er að mæla með!“
- H.J. Mbl.
eeee
- E.E., DV
Flest eigum við fullt af draslisem við vitum ekkert hvaðvið eigum að gera við. Ef
við vissum það þá þyrftum við varla
geymslur eða hinar alræmdu
„draslskúffur“ sem oftast má finna
í eldhúsinnréttingum. Sumir fara
með draslið í Sorpu, setja það í
nytjagám ef draslið er ekki rusl
heldur nýtilegt einhverjum öðrum.
Aðrir nenna ekki að pæla í því
hvort það sé nýtilegt og henda því
beint í gám. Draslið er svo mélað,
urðað, endurunnið… hverjum er
ekki sama? Maður er að minnsta
kosti laus við allt helv… draslið!
Það fara þó ekki allir Sorpu-leiðina. Myndlistar- og tónlist-
armaðurinn Curver framdi raun-
veruleikagjörning með sínu drasli
og gaf nafnið „Drasl til sölu“. Titill-
inn hefði verið betri ef bætt hefði
verið við „kostar eina tölu“, því ég
held að Curver hafi ekki fengið
mikið fyrir draslið.
Draslinu kom hann fyrir í Lista-
safni Íslands og auglýsti til sölu,
líkt og safnið væri Kolaportið. Cur-
ver er nefnilega að hefja listnám í
New York og flutningum fylgir
ætíð sú spurning hvað gera eigi við
draslið. Önnur spurning sem vakn-
ar við flutninga er þessi: Hvaða
drasl er þetta?
Þess hafa sjálfsagt margir sýn-
ingargestir spurt sig í Listasafni Ís-
lands, fávísir um tilgang gjörnings-
ins. Curver var sjálfur á staðnum að
selja draslið. Gamlar plötur, bækur,
plaköt, Hawaii-skyrtur, sprungna
gítarmagnara, lélegt trommusett
og bíldruslu m.a. Tekjur af sölunni
áttu að ganga upp í námskostnað.
Eitthvað held ég að sú upphæð hafi
hrokkið skammt.
Curver ræddi við fjölmiðlamenn,
hress og kátur, um þennan gjörn-
ing en aldrei heyrði ég djúpar, list-
spekilegar pælingar um merkingu
eða tilgang verksins. Gagnrýn-
endur sáu um þær pælingar fyrir
hann. Auðvitað vekur svona verk
ýmsar spurningar, þó svo maður fái
á tilfinninguna að þetta sé gömul
hugmynd, gamall gjörningur og
bölvað drasl. Með þessu vill lista-
maðurinn sjálfsagt vekja áhorf-
endur til umhugsunar um neyslu-
samfélagið, gildi hlutanna og þá
innan safns annars vegar og utan
hins vegar, sölumennsku í listum
o.s.frv. Draslið er ekki drasl lengur
þegar það er komið á safn heldur
hrúga af listaverkum o.s.frv. Allt
finnst mér þetta heldur óspennandi
(fyrirgefðu mér, Curver, mér finnst
þú oftast sniðugur). Getur verið að
eini tilgangur Curvers hafi verið að
losna við draslið? Væri það ekki
líka bara allt í lagi, í rauninni betra
en klisjan um neysluæði, kaup-
mennsku í listum og blablabla? Það
getur verið gaman að skoða ann-
arra drasl, en mér hefði þótt meira
spennandi að skoða drasl … tjah,
Björgólfs Thors eða Bjarna Ár-
manns? Þá hefðu nú vaknað spurn-
ingar um hvað væri drasl og hvað
ekki. Gaman væri að kíkja í þeirra
draslskúffur.
Það sem vakti hins vegar áhugaminn við gjörning Curvers var
að hann var með tvö málverk til
sölu eftir aðra listamenn og bauð á
slikk miðað við verð á málverkum í
dag. Eitt þeirra eftir Ragnar Kjart-
ansson, rísandi stjörnu í myndlist-
arheiminum. Ekki veit ég svo sem
hvort það var gott eða slæmt verk,
en ég hefði haldið í það í sporum
Curvers ef ske kynni að það myndi
verða verðmætt einn daginn. En þá
hefði gjörningurinn ekki verið sam-
ur. Þessi litli hluti gjörningsins
fannst mér eina vísbendingin um að
verið væri að fórna einhverju verð-
mæti í þágu listarinnar. Það er
ákveðin ögrun að setja málverkin í
þetta samhengi, við þá sem kaupa
og safna myndlist, listamennina
sjálfa, listamenn almennt. Curver
má hlæja, hann er listamaður!
Gjörningur Curvers minnir migá annan sem framinn var af
myndlistarmanninum Michael
Landy fyrir sex árum og hét Break
Down, eða Niðurbrot. Hann var
vægast sagt umsvifa- og áhrifa-
meiri. Landy gekk svo langt að
rústa öllum sínum eigum. Bók-
staflega. Til þess setti hann upp
litla Sorpu í yfirgefnu húsnæði við
Oxfordstræti í Lundúnum, þar sem
fulltrúar mammons voru áður,
C&A-keðjan. Þar var Landy með
fólk í vinnu við að méla eigurnar á
færiböndum með skipulegum hætti.
Að loknum gjörningnum átti Landy
ekkert, bara kött og kærustu.
Landy sagði verkið fjalla um
hversu mikið hráefni væri notað í
nytjahluti og um endingu hlutanna.
Titillinn vísaði einnig í andlegt nið-
urbrot, áfall, þá væntanlega áfallið
sem fylgir því að missa allar eigur
sínar, fara aftur á byrjunarreit. En
kannski þarf það áfall til svo nýtt líf
geti hafist. Slík hreinsun er flestum
mönnum nær óhugsandi, fáir sem
myndu fórna öllum sínum eigum.
Landy eyðilagði 7.006 hluti og
skrásetti allt ferlið af nákvæmni,
hvern hlut og hvenær hann var
malaður í duft.
Nú fær Curver smá plús því
merkilegt nokk þá eiga Landy og
Curver það sameiginlegt að hafa
fórnað listaverkum í gjörningum
sínum, þó svo Curver hafi fengið
eitthvað klink fyrir sín. Landy lét
nefnilega eyða listaverkasafni sínu
en í því voru verk eftir heims-
þekkta listamenn á borð við Tracey
Emin og Damien Hirst. Þar fórnaði
Landy þó nokkuð mörgum millj-
ónum króna, hundruðum jafnvel.
Fórnaði list í þágu listar. Fórnin
sem slík varð hans listaverk, hans
framlag til listarinnar sem seint
mun mönnum úr minni renna.
Landy og Curver eiga annaðsameiginlegt, að kunna að
spila með fjölmiðla. Curver var í
beinni á Rás 2 á hverjum degi í þá
viku sem gjörningurinn stóð yfir.
Þar var hann hressi gæinn, lista-
maðurinn sem er alltaf í stuði og
alltaf sniðugur. Sjálfsagt finnst
mörgum þetta stórsniðug ádeila á
tímum raunveruleikasjónvarps og
hárbeitt ádeila á neyslusamfélagið.
Landy vissi auðvitað að fjöl-
miðlar myndu dansa í kringum
hann og fylgjast með öllu frá upp-
hafi til enda. Verkið hans er líka
risastórt og þá sérstaklega í hug-
lægum skilningi. Getur einhver
hugsað sér að eyða öllu sem hann á?
Ekki ég!
Sjálfsagt hefur Landy stórgrætt
á verkinu á endanum. Verk eftir
hann hafa ábyggilega rokið upp í
verði, honum boðið að sýna út um
allar trissur í fínum söfnum og gall-
eríum. Braut niður til að byggja
upp. Líkt og Curver sem losnaði við
draslið og hélt áhyggjulaus út í nám
með seðla í vasanum. Til að kaupa
sér flottara drasl.
Niðurbrot, drasl og uppbygging
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
» Að loknum gjörn-ingnum átti Landy
ekkert, bara kött og
kærustu
Ljósmynd/Hugo Glendinning
Niðurbrot Frá sýningu Michaels Landy „Breakdown“ við Oxfordstræti í Lundúnum árið 2001.
helgisnaer@mbl.is