Morgunblaðið - 08.11.2007, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ICELAND Express mun fjölga sum-
aráfangastöðum um tvo og fljúga
til 15 áfangastaða í Evrópu næsta
sumar. Varsjá er nýr áfangastaður
Iceland Express auk þess sem
Barcelona bættist í hóp sum-
aráfangastaða, en flugfélagið hóf
að fljúga til Barcelona núna í haust.
Sala hófst í gær á farmiðum til Evr-
ópu næsta sumar. Auk Varsjá og
Barcelona mun Iceland Express
fljúga til allra áfangastaðanna sem
flogið var til nú í sumar, en þeir eru
Alicante, London, París, Eind-
hoven, Frankfurt Hahn, Basel,
Friedrichshafen, Berlín, Billund,
Kaupmannahöfn, Gautaborg,
Stokkhólmur og Óslo. Þar að auki
mun áframhald verða á flugi frá
Akureyri og Egilsstöðum til Kaup-
mannahafnar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fjölgun Iceland Express ætlar að
fljúga víðar á næstunni.
Fleiri sumar-
áfangastaðir
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
hefur skipað sex manna nefnd til að
gera tillögur um hvernig megi
styrkja ímynd Íslands. Skal hún
ljúka störfum fyrir 1. mars nk.
Formaður nefndarinnar er Svafa
Grönfeldt, rektor Háskólans í
Reykjavík. Aðrir nefndarmenn eru
Finnur Oddsson, framkvæmda-
stjóri Viðskiptaráðs Íslands, Jón
Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair,
Martin Eyjólfsson, sviðsstjóri við-
skiptasviðs í utanríkisráðuneytinu,
Svanhildur Konráðsdóttir, sviðs-
stjóri menningar- og ferða-
málasviðs Reykjavíkurborgar, og
Sverrir Björnsson, framkvæmda-
stjóri hönnunarsviðs Hvíta hússins.
Ný nefnd um
ímynd Íslands
DAGANA 9.-10. nóvember stendur
RIKK fyrir fjórðu ráðstefnu sinni
um stöðu og leiðir kynjarannsókna
í aðalbyggingu Háskóla Íslands.
Ráðstefnunni er ætlað að veita
innsýn í þverfaglegt rannsókna-
starf á fræðasviðinu.
Á áttunda tug fræðimanna fjalla
um rannsóknir sínar í 18 mál-
stofum.
Sérstakir gestir ráðstefnunnar
eru Drude Dahlerup, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskólann í
Stokkhólmi, og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra.
Kynja-
rannsóknir
FYRSTI reglulegi fundur embætt-
ismanna á grundvelli samkomulags
Íslands og Danmerkur um samstarf
á sviði öryggis- og varnarmála fór
fram í Kaupmannahöfn á mánudag.
Tóku þátt í honum embættismenn
frá utanríkisráðuneytinu, forsæt-
isráðuneytinu og dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu, að því er segir í
tilkynningu utanríkisráðuneytisins.
Fjallað var um sameiginleg hags-
munamál og viðfangsefni á Norður-
Atlantshafi og aukið hagnýtt sam-
starf á ýmsum sviðum.
Á þriðjudag áttu embættismenn
sömu ráðuneyta jafnframt fund
með þýskum embættismönnum um
öryggis- og varnarmál, en fundað
var í Berlín. Markmið þessara við-
ræðna er að kanna möguleg sam-
starfsverkefni ríkjanna á sviði ör-
yggis- og varnarmála.
Fundað um ör-
yggi og varnir
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„ÞETTA er nokkuð sem við sjáum
nánast aldrei. Síamstvíburar eru
mjög sjaldgæfir en samvöxtur af
þessu tagi er enn sjaldgæfari. Svona
lagað gerist ekki nema örsjaldan
einhvers staðar úti í heimi,“ segir
Hróðmar Helgason hjartasérfræð-
ingur fyrir börn á Barnaspítala
Hringsins, um tilfelli indversku
stúlkunnar sem óx saman við tví-
bura sinn í móðurkviði.
Stúlkan sem heitir Lakshmi,
fæddist með fjórar hendur, fjóra
fætur, tvær mænur, fjögur nýru, tvo
maga og með samtvinnað tauga-
kerfi.
Hún gekkst undir viðamikla
skurðaðgerð sem lauk í gærmorgun
og tók um 27 klukkustundir. Að-
gerðin gekk í öllum atriðum frábær-
lega að sögn yfirskurðlæknisins
Sharan Patil og tók hún mun
skemmri tíma en áætlað var, um 30
læknar tóku þátt í aðgerðinni.
Aðgerðin var mjög áhættusöm en
foreldrar stúlkunnar vildu samt sem
áður að hún yrði framkvæmd, í von
um að geta bætt lífsgæði dóttur
sinnar.
Allt hið ótrúlegasta
Hróðmar Helgason segir það með
miklum ólíkindum að litla stúlkan sé
enn á lífi, yfirleitt látist börn með
slíka fæðingargalla mjög snemma.
Hann segist ekki þekkja sérstaklega
til þessa tiltekna máls, en það að
læknarnir gefi upp 25% líkur á að
aðgerðin heppnist séu skelfilegar
tölur. „Hér sendum við börnin okkar
ekki í aðgerð nema líkurnar á góð-
um niðurstöðum séu helst yfir 97%.
Mér finnst alveg stórkostlegt að ind-
versku læknarnir skyldu koma
stúlkunni í gegnum aðgerðina, það
er erfitt að segja til um hvers eðlis
aðgerðin hefur verið og hversu
mörg líffæranna eru nú starfhæf, en
þetta er mjög sérstakt,“ sagði Hróð-
mar.
Spurður um aðstæður til slíkra
risaaðgerða á Indlandi segir Hróð-
mar aðstæður þar í landi orðnar þær
að þar sé hægt að fá allt það besta að
vestan. „Þeir indversku kollegar
sem ég þekki til eru mjög fram-
arlega á sínu sviði og margir spít-
alanna gefa því besta á Vestur-
löndum ekkert eftir. En vissulega er
sú læknisþjónusta ekki fyrir allan
lýðinn, þar sem misskipting er mikil
á Indlandi.“ Hróðmar segir líklegt
að það sé indversku læknunum
kappsmál að sinna aðgerðinni þar í
landi, til að sýna fram á hæfni sína
gagnvart sjúkrahúsum á Vest-
urlöndum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sparsh-sjúkrahúsinu í Bangalore,
þar sem aðgerðin fór fram, þurfa
foreldrar Lakshmi, sem eru fátækir
verkamenn, ekki að greiða kostn-
aðinn af aðgerðinni.
Börn fljót á fætur
Hróðmar segir tímasetningu að-
gerðarinnar eflaust hafa verið vel
ígrundaða. Best sé að gera viðamikl-
ar skurðaðgerðir á litlum börnum,
en þau verði þó að vera orðin nægi-
lega stór til að hægt sé að athafna
sig vandræðalaust. Það sé því oft
beðið með aðgerðir þar til barnið
hafi náð hæfilegri stærð svo að að-
stæður séu sem bestar.
„Ég þekki það úr mínu fagi að
börn eru mjög fljót að ná sér. Jafn-
vel eftir risastórar hjartaaðgerðir
eru þau farin að hlaupa um eftir
örfáa daga, nokkuð sem fullorðið
fólk gerir aldrei. Öll efnaskipti eru
svo hröð í börnum og endurnýjun
frumna svo hröð, að þau klára sig al-
mennt séð mun betur en fullorðnir,“
sagði Hróðmar.
Enn á eftir að koma í ljós hver
afdrif Lakshmi verða eftir aðgerð-
ina, hvernig líkami hennar bregst
við inngripinu og hvaða vandamál
eiga eftir að fylgja henni gegnum líf-
ið. Hún er enn í gjörgæslu en verður
að öllum líkindum vakin í dag.
Aðgerðin á indversku stúlkunni gekk frábærlega að mati lækna hennar
„Allt með miklum ólíkindum“
AP
Sólargeisli Lakshmi heillaði starfsfólk sjúkrahússins upp úr skónum og virðist nú hafa staðið erfiða aðgerð af sér.
Í HNOTSKURN
»Risaaðgerðir sem þessareru framkvæmdar örsjald-
an.
»Aðeins 25% líkur voru á aðaðgerðin myndi heppnast.
»Lakshmi fæddist með áttaútlimi, tvær mænur, tvo
maga og fjögur nýru.
»Læknar eru enn bjartsýn-ir, en Lakshmi verður lík-
lega vakin í dag.