Morgunblaðið - 08.11.2007, Side 10

Morgunblaðið - 08.11.2007, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Hvað heldurðu að þú þurfir margar, ef við reiknum þetta nú bara yfir í nefndir, Magnús minn? VEÐUR Það er áhugavert að bera samanmálflutning borgarfulltrúanna Svandísar Svavarsdóttur og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á borgar- stjórnarfundi í fyrradag, þar sem þremur klukkustundum var varið í umræður um samruna REI og GGE.     Það virðist vera fullkominn sam-hljómur í málflutningi þeirra Svandísar og Hönnu Birnu, þótt önnur sé fulltrúi meirihlutans í borgarstjórn og hin minnihlutans.     Svandís sagði m.a.: „Ég er meðöðrum orðum ekki með millj- arðaglampa í augunum sem sést hefur í augnkrókum sumra stjórn- málamanna í þessari umræðu.“     Svandís nefndi engin nöfn, enaugljóslega töldu borgarfull- trúar að hún væri að beina spjótum sínum að Birni Inga Hrafnssyni. Svandís talaði um stjórnmálamenn og því er ekki hægt að útiloka að hún hafi einnig átt við Össur Skarp- héðinsson, sem vissulega hefur sýnt milljörðunum óbeizlaðan áhuga.     Hanna Birna sagði m.a.: „Ég fyll-ist vonbrigðum og vantrú á stjórnmálin þegar ég sé menn eins og Össur Skarphéðinsson, Dag B. Eggertsson, Björn Inga Hrafnsson og fleiri fyllast einhverjum ljóma þegar þeir halda að þeir eigi við- skiptatækifæri. Ég hef aldrei séð sama ljómann í augum Björns Inga Hrafnssonar þegar hann talar um hagsmuni borgarbúa … mennta- kerfið, leikskólana og skyldur gagnvart íbúum Reykjavíkur.“ Merkilegur samhljómur, ekki satt?! STAKSTEINAR Hanna Birna Kristjánsdóttir Milljarðaglampi í augum Svandís Svavarsdóttir SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                              *(!  + ,- .  & / 0    + -                                      12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (  ! !                   "#             :  *$;<                          !  "# ! !  $    ! ! %      &  % *! $$ ; *! $% & #  % #   '# (' =2 =! =2 =! =2 $#&  ) * +," '-  ! -         *  $ '  !   !   ! %     !  ( )*  $"  ! /        +    !    ! +  %     #,% )*   " %!   ! %    %    -   . !    (, ! %   ! =7  / ! 0+  1       ! +      ( % %! 0#  *   $   2     &  % )* ./ '00  '#1 ' "') * 3'45 >4 >*=5? @A *B./A=5? @A ,5C0B ).A !2 !2          !      ! 2 2! 2 2 !2 !2 !2 !2 2 2 2 2 !2 !2           Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Helga Sigrún Harðardóttir | 7. nóv. … vextir af íbúðalánum … Mogginn blasti við mér þegar ég skreið fram úr í morgun. Á forsíðunni gefur að líta frétt þess efnis að Kaupþing hafi nú sent frá sér tilkynningu þess efnis að frá og með næstu mán- aðamótum verði ekki hægt að yfir- taka húsnæðislán öðruvísi en að vextir hækki til jafns við þá vexti sem gilda þegar yfirtakan á sér stað. Með öðrum orðum ætlar Kaupþing að hækka á einni nóttu … Meira: helgasigrun.blog.is Birkir Jón Jónsson | 7. nóvember Hrós dagsins Ég var með fyrir- spurnir í dag á Össur Skarphéðinsson iðn- aðarráðherra og Jó- hönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Ég spurði Jóhönnu út í styttingu vinnuvikunnar. Ég benti á þá staðreynd að við vinnum þetta 6-9 stundum lengur í hverri viku en þær þjóðir sem við viljum bera okkur saman við. Þetta kemur að sjálf- sögðu niður á heimilunum í landinu eins og ég hef fyrr farið yfir hér á blogginu. Jóhanna tók vel í … Meira: birkir.blog.is Rúnar Birgir Gíslason | 5. nóvember Hver er stefnan, Sigmundur Körfuboltamenn hafa ósjaldan kvartað sáran yfir skorti á umfjöllun um íþróttina í íslensk- um fjölmiðlum. Margir hafa haft hátt á heima- síðum og spjallsvæðum eða hver við annan. Undirritaður var einn af þeim sem hafði allt á hornum sér lengi en ákvað svo að taka upp nýja siði. Hætta að skammast og í þess stað að hrósa því sem vel er gert og vinna að því að aðgengi fjöl- miðla … Meira: rungis.blog.is Anna Karen | 7. nóvember Grúsk með meiru Einar Pálsson er virtur víða erlendis fyrir framlag sitt til heiðin- dóms- og norrænu- fræða, en kenningar hans hafa samt sem áð- ur verið þagðar í hel innan íslenska fræðasamfélagsins. Ég gat ekki fundið neina leið til þess að blogga um bókaröðina hans, Rætur íslenskrar menningar (án þess að fara yfir um) nema með því að skrifa bara upp síðasta kaflann í Baksvið Njálu. Einar Pálsson út- skýrir þar hvað það var helst … Meira: halkatla.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR STYRKTARTÓNLEIKAR fara fram í Salnum í Kópavogi í kvöld, fimmtudaginn 8. nóvember, og hefj- ast þeir klukkan 20. Faðmur er styrktarsjóður til stuðnings barnafjölskyldum þar sem foreldri hefur fengið slag (heilablóð- fall). Sjóðnum er ætlað að mæta kostnaði við tómstundir og nám eða öðrum óvæntum úgjöldum í tengslum við líf og starf barnanna, sem erfitt er að mæta sökum tekju- skerðingar á meðan á veikindum stendur. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fer fram í desember nk. Allar upplýs- ingar verður að finna á vefsíðu Heila- heilla, www.heilaheill.is. Á tónleikunum munu fjölmargir listamenn koma fram. Þórunn Lárus- dóttir, leikkona og verndari sjóðsins, tekur lagið, Guðrún Gunnarsdóttir og Valgeir Skagfjörð flytja lög eftir Val- geir Skagfjörð, Vallargerðisbræður flytja lög af plötu sinni, Æskunnar förunautum, best geymda leyndar- málið úr sveitinni, Hjónabandið úr Fljótshlíðinni, flytur lög af plötu sinni, Disk ársins, ásamt nýrri lögum, Elíza Geirsdóttir, Guðmundur Pét- ursson og Dísa Hreiðarsdóttir flytja lög af nýjustu plötu Elízu, Empire Fall, og The Viking Giant Show flyt- ur lög af væntanlegri plötu sinni. Kynnir kvöldsins er Sigmundur Ern- ir Rúnarsson fréttamaður. Aðgangseyrir er 2.000 kr., börn 12 ára og yngri greiða 1.000 kr. Lyf og heilsa er styrktaraðili tón- leikanna. Tónleikar til styrktar Faðmi í Salnum Morgunblaðið/Golli Sigurður Kári Kristjánsson | 6. nóv. Heimsókn til Land- helgisgæslu Íslands Á mánudaginn fór ég í stórmerkilega heim- sókn ásamt allsherj- arnefnd Alþingis til Landhelgisgæslu Ís- lands. Heimsóknin var hin fróðlegasta í alla staði og við sem sæti eigum í nefndinni fengum þarna tækifæri til þess að kynnast af eigin raun þeirri gríðarlega viðamiklu og mikilvægu starfsemi sem Landhelgisgæslan sinnir. Ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir því hversu umsvifamikil starfsemi Landhelgisgæslunnar er. Hjá Gæslunni starfa rúmlega 160 manns á ýmsum stöðum og gegna þar afar margvíslegum störfum sem við nefndarmenn fengum tækifæri til að kynna okkur. Í upphafi heimsóknarinnar tók Georg Kr. Lárusson, forstjóri Land- helgisgæslunnar, á móti okkur í höf- uðstöðvum hennar í Skógarhlíð og kynnti hann ásamt Ásgrími L. Ás- grímssyni, yfirmanni hjá Varðstöð siglinga og stjórnstöð, grunn- starfsemi Gæslunnar auk þess sem Dagmar Sigurðardóttir lögfræðingur fór yfir lögin um Landhelgisgæsluna. Að lokinni þessari almennu kynn- ingu heimsóttum við einstakar deild- ir eða svið Landhelgisgæslunnar. Fyrst var ferðinni heitið í höf- uðstöðvar Sjómælinga Íslands þar sem Árni Vésteinsson deild- arstjóri … Meira: sigurdurkari.blog.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.