Morgunblaðið - 08.11.2007, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Islamabad. AFP. | Benazir Bhutto,
fyrrverandi forsætisráðherra Pak-
istans, hvatti í gær landsmenn til
að taka þátt í fjöldamótmælum
vegna þeirrar ákvörðunar Pervez
Musharrafs, forseta landsins, að
afnema stjórnarskrána og setja
neyðarlög.
Bhutto virtist búa sig undir upp-
gjör við Musharraf og kvaðst ætla
að halda mótmælafund í borginni
Rawalpindi á morgun þótt lög-
reglan hefði hótað að leysa hann
upp þar sem mótmæli hafa verið
bönnuð. Bhutto boðaði einnig 300
kílómetra langa mótmælagöngu
frá borginni Lahore til höfuðborg-
arinnar Íslamabad og sagði að
gangan ætti að hefjast á þriðju-
daginn kemur ef Musharraf af-
nemur ekki neyðarlögin.
Bhutto setti Musharraf úr-
slitakosti, sagði að stjórnarskráin
yrði að öðlast gildi aftur, boða
þyrfti til þingkosninga sem áttu að
fara fram í janúar og forsetinn
yrði að segja af sér sem æðsti
hershöfðingi landsins.
Bhutto sagði að um 400 félagar í
flokki hennar hefðu þegar verið
handteknir. Lögreglumenn beittu
táragasi og kylfum gegn stuðn-
ingsmönnum Bhutto fyrir utan
þinghúsið í Íslamabad nokkrum
mínútum eftir að hún hvatti til
fjöldamótmælanna.
Nokkrir fréttaskýrendur og
pólitískir andstæðingar Bhutto
létu þó í ljós efasemdir um að hún
væri hætt við að reyna að semja
við Musharraf um stuðning við
hann gegn því að hún yrði for-
sætisráðherra eftir þingkosningar.
„Hún ætlar að auka þrýstinginn á
Musharraf til að knýja hann til
ráðstafana sem gera henni kleift
að taka þátt í kosningum með
hreinar hendur,“ sagði Najam
Sethi, ritstjóri virts dagblaðs í
Pakistan, Daily Times. „Hún þarf
að láta líta út fyrir að hún hafi
knúið Musharraf til að gefa eftir
og ekki samið við hann.“
Talsmaður flokks Bhutto sagði
að slitnað hefði upp úr viðræðum
við Musharraf og „ólíklegt“ væri
að þær hæfust að nýju nema hann
yrði við fyrrnefndum kröfum
hennar.
Bhutto boðar fjöldamótmæli
Virðist vera að
undirbúa uppgjör
við Musharraf
AP
Mótmæli Lögreglumenn berja stuðningsmann Benazir Bhutto fyrir utan
byggingu hæstaréttar í Íslamabad í gær. Hundruð manna voru handtekin.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
og Baldur Arnarson
FINNAR eru harmi slegnir eftir að
átján ára byssumaður skaut átta til
bana í skóla í bænum Jokela, norður
af Helsinki, í gær en atburðurinn þyk-
ir minna á skotárásir af þessum toga
vestur í Bandaríkjunum, þar sem lög
um byssueign eru frjálslegri en al-
mennt í Evrópu. Byssueign í Finn-
landi er þó mikil og tvær milljónir
skotvopna skráðar í landinu sem hef-
ur rúmar fimm milljónir íbúa.
Morðinginn, átján ára piltur að
nafni Pekka-Eric Auvinen, reyndi
sjálfsmorð þegar lögregla réðst til
inngöngu í skólann en fannst á lífi og
lést á gjörgæsludeild í Helsinki í gær-
kvöldi. Hann mun hafa verið nemandi
við skólann.
Að sögn lögreglunnar hafði hann
aldrei komist í kast við lögin né ógnað
neinum utan skólans fyrr.
Í hópi hinna látnu voru sjö náms-
menn, fimm drengir og tvær stúlkur,
og síðan skólastjóri skólans í Jokela.
Margir fleiri eru sárir.
Byssumaðurinn mun skyndilega
hafa farið að skjóta úr byssunni í
skólastofu, en alls eru um 500 tólf til
átján ára nemendur við skólann.
Þá mun hann einnig hafa skotið að
lögreglunni eftir að hún skarst í leik-
inn. Nemendur við skólann lýstu því
uppnámi sem varð eftir að skotum var
fyrst hleypt af en allir vildu komast úr
skólabyggingunni hið fyrsta.
„Skyndilega voru allir farnir að
hlaupa og við heyrðum skot og þeim
rigndi svo yfir okkur,“ sagði náms-
maður, Miro Lukinmaa, við blaðið
Iltalehti. „Ég sá særða liggja á göng-
unum. Við tókum til fótanna og eltum
fólksmergðina. Það voru allir að
reyna að troða sér út um afar þröngar
dyr,“ sagði hann.
Var lögregla á þessum tíma komin
á vettvang og leitaðist við að rýma
skólabygginguna.
Á vefútgáfu Helsingin Sanomat var
haft eftir Tuomas Hulkkonen, sem er
um það bil að útskrifast úr gagn-
fræðadeild skólans, að ódæðismaður-
inn hafi hegðað sér undarlega und-
anfarna daga, í sífellu teiknað myndir
af skotvopnum. Kennari við skólann
sagði ódæðismanninn jafnframt hafa
sýnt áhuga á pólitískum öfgaskoðun-
um, bæði til hægri og vinstri, en hann
mun bæði hafa lýst aðdáun sinni á
Adolf Hitler og Jósef Stalín.
Vísbendingar á netinu
um yfirvofandi árás
Í ljós hefur komið að vísanir í yfir-
vofandi árás í Jokela mátti finna á
netinu. Á nokkrum myndum tengd-
um þeirri umfjöllun mátti skv. Hels-
ingin Sanomat sjá ungan mann með
skammbyssu í bol með áletruninni
„Mannkynið er ofmetið“.
Sambærilegt efni fannst á netinu
eftir skotárás í tækniháskólanum í
Blacksburg í Virginíu í Bandaríkjun-
um fyrr á þessu ári sem kostaði 32 líf-
ið. Ódæðismaðurinn þar, Seung-Hui
Cho, var ríflega tvítugur Suður-Kór-
eumaður sem átt hafði við geðræn
vandamál að stríða. Ýmislegt bendir
til að ódæðismaðurinn í Finnlandi í
gær hafi einnig átt við andlega erf-
iðleika að stríða en m.a. mátti í gær
finna á netinu þúsund orða textaskjal
með yfirskriftinni: „Stefnuyfirlýsing
náttúruvalsaðila“.
„Ég get ekki sagt að ég tilheyri
sama stofni og þetta ömurlega, hroka-
fulla og sjálfselska mannkyn. Nei! Ég
hef þróast á æðra stig,“ segir í skjali
þessu.
Þá eru vísbendingar um að maður-
inn hafi verið búinn að skipuleggja at-
burði gærdagsins nákvæmlega, en
m.a. virðist hann hafa sett myndband
á YouTube sem ber titilinn „Fjölda-
morðið í Jokela - 7/11/2007“. Búið var
að hlaða þetta myndband niður á tölv-
ur víðs vegar um heiminn yfir 200.000
sinnum síðdegis í gær.
Fordæmislaus skotárás
Skotárásin í gær á sér engin for-
dæmi í sögu Finnlands. Dæmi er um
hnífstungur í finnskum skólum en
þetta er fyrsta skotárásin sem kostar
mannslíf frá því að 14 ára námsmaður
réð tveimur bekkjarfélögum sínum
bana í borginni Rauma árið 1989.
Þá létust sjö manns og tugir særð-
ust þegar ungur maður sprengdi
sprengju í verslunarmiðstöð í Myyr-
manni í Vantaa, úthverfi Helsinki-
borgar, árið 2002. Maðurinn, sem var
nemi í háskólanum í Helsinki, var
meðal þeirra sem týndu lífi.
Finnar harmi slegnir eftir
skotárás norður af Helsinki
Átján ára byssumað-
ur myrti átta í skóla
í bænum Jokela
Reuters
Voðaverk Lögreglumenn við öllu búnir fyrir utan neyðarbækistöð sem
komið var upp í Jokela-kirkju eftir að fréttist af harmleiknum í gær.
Í HNOTSKURN
»Finnska lögreglan segirbyssuna sem ódæðismað-
urinn notaði hafa verið skráða
19. október sl.
»Aldurstakmarkið til aðeiga skotvopn í Finnlandi
er 18 ár og náði Pekka-Eric
Auvinen þeim aldri í júní sl.
MIKHAÍL Saakashvili, forseti
Georgíu, lýsti í gærkvöldi yfir 15
daga neyðarástandi í landinu, eftir
að lögreglu lenti saman við mót-
mælendur sem eru andvígir stjórn-
völdum.
Forsetinn hefur hunsað kröfur
um afsögn síðustu daga. Takmark-
anir hafa verið settar á frelsi fjöl-
miðla og fjöldasamkomur, en heil-
brigðisyfirvöld segja 486 manns
hafi slasast í átökum við lögreglu.
Neyðarástand
í Georgíu
BANDARÍSKIR stjörnufræðingar
segjast hafa fundið áður óþekkta
reikistjörnu á braut um sól í um 41
ljósárs fjarlægð frá jörðinni. Þetta
er fimmta reikistjarnan sem
stjörnufræðingar hafa fundið við
sólina 55 Cancri í stjörnumerkinu
Krabbanum. Er þetta í fyrsta skipti
sem svo margar reikistjörnur finn-
ast í einu sólkerfi utan sólkerfis
okkar. Alls hafa fundist yfir 250
reikistjörnur utan sólkerfis okkar.
Fundu nýja
reikistjörnu
PÄIVI Kumpulainen er ritari ís-
lenska sendiráðsins í Helsinki og
þriggja barna móðir sem er bú-
sett í um 10 km fjarlægð frá vett-
vangi ódæðisins í gær. Kumpul-
ainen, sem er íslenskumælandi
eftir sex ára búsetu hér á landi,
segir atburðarásina hafa hafist
rétt fyrir hádegi. Fólk hafi í
fyrstu haldið að fleiri en einn
byssumaður væru á ferð. Öng-
þveiti hefði skapast í bænum.
„Enginn vissi hvað var að ger-
ast. Fólk fylltist skelfingu þegar
tíðindin bárust. Ég hafði ekki
beinlínis áhyggjur, vissi strax að
börnin væru óhult. Óvissan var
verst. Það var orðrómur um að
einn hefði týnt lífi og fleiri særst.
Svo kom í fréttunum að átta
væru látnir.“
Kumpulainen segir íbúa bæj-
arins hafa streymt að skólanum
með kerti til að sýna hluttekn-
ingu sína. Hún segir mikið af að-
fluttu fólki í bænum þar sem íbú-
ar séu um 30.000, en hann sé í
um 20 til 30 mínútna aksturs-
fjarlægð frá Helsinki.
Þótt fólk þekkist vel í þessum
samheldna og friðsama bæ þekki
hennar fólk og kunningjar þess
ekki til árásarmannsins. Börn
hafi séð efnið sem drengurinn
skildi eftir sig á vefnum áður en
það var fjarlægt og því vitað um
hvaða aðila var að ræða.
Áður en ljóst var að aðeins
einn ódæðismaður var á ferð
hefði fólki liðið illa, óvissan hefði
verið erfið. Fólk hefði talið að
slík ofbeldisverk gætu ekki átt
sér stað í bænum.
„Heilmikið áfall“
Kristjana Aðalgeirsdóttir arki-
tekt er búsett í Helsinki.
Hún veltir því fyrir sér hvort
eftirlit hafi brugðist, enda árás-
armaðurinn gefið upp fyrirætl-
anir sínar á netinu.
„Fólk spyr hvort einhver hefði
átt að sjá þetta á netinu og
bregðast við, þegar ungt fólk
sendir frá sér svona skilaboð um
að því líði illa og að ekki sé allt í
lagi.
Það dettur
engum í hug að
svona geti gerst
heima hjá sér.
Okkur líður eins
og við búum í
öruggu um-
hverfi hér í
Finnlandi eins
og annars stað-
ar á Norður-
löndum og að
eitthvað svona hafi gerst næstum
því í næsta húsi er heilmikið
áfall. Það er búið að opna stuðn-
ingssíður fyrir börn og fullorðna
á vegum menntamálaráðuneyt-
isins. Bæði menntamálaráðherra
og forsætisráðherra hafa mælst
til þess að atburðurinn verði
ræddur í öllum skólum á morg-
un.“
Enginn frá Íslandi í hópnum
„Samkvæmt okkar bestu heim-
ildum er ljóst að enginn Íslend-
ingur var á meðal fórnarlamb-
anna,“ sagði Hannes Heimisson,
sendiherra Íslands í Finnlandi, í
gærkvöldi.
Að sögn Hannesar er áætlað að
um 120 Íslendingar séu búsettir í
Finnlandi og að tveir af hverjum
þremur búi í Helsinki og ná-
grenni.
Matti Vanhanen, forsætisráð-
herra Finnlands, hefur lýst yfir
þjóðarsorg í dag. Þá sendi Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
Tarja Halonen Finnlandsforsta
samúðarkveðjur í gærkvöldi.
Brást eftirlit á netinu?
Hannes
Heimisson
Reuters
Viti sínu fjær Árásarmaðurinn gef-
ur ætlun sína til kynna á YouTube.