Morgunblaðið - 08.11.2007, Síða 25
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 25
Lítil frétt í Morgunblaðinu í gær um
tvo stráka sem héngu aftan í stræt-
isvagni á töluverðri ferð norður
Glerárgötu vakti nokkra athygli.
Lögregluþjónn sem ég ræddi við
segir þennan leik – að „teika“ – sem
betur fer nánast úr sögunni og
ástæðurnar væru líklega helst tvær;
„mikil hálka er ekki eins algeng og
áður og svo eru nánast engir lengur
á gúmmískóm, þannig að rennslið er
ekki eins og það var í gamla daga,“
sagði löggan. Hann sagði þróunina
góða, því auðvitað gæti verið stór-
hættulegt að leggjast í slík ferðalög
aftan í bílum.
Það er eiginlega að bera í bakka-
fullan lækinn að tala fallega um
Leikfélag Akureyrar! Aðsókn að
sýningum félagsins hefur verið með
ólíkindum síðustu misseri, ekki þótti
líklegt að aðsóknarmetið að Full-
komnu brúðkaupi yrði slegið á næst-
unni en nú stefnir allt í að fleiri sjái
Óvita á Akureyri en Brúðkaupið.
Ekkert er gefið eftir hjá Leikfélag-
inu og nú stefnir það að því, í sam-
starfi við Flugsafn Íslands og Ak-
ureyrarbæ, að kom upp 400 manna
„leikhúsi“ í Flugsafninu seinna í vet-
ur og sýna þar Fló á skinni – til þess
að þurfa ekki að hætta sýningum á
Óvitum fyrir fullu húsi. Þetta er al-
veg magnað.
Leikritið Ökutímar var frumsýnt í
Rýminu um síðustu helgi og ég er
illa svikinn ef það verður ekki vel
sótt eins og allt annað sem LA setur
upp þessi dægrin. Verkið er gott,
umfjöllunarefnið er viðkvæmt og
segja má að spilað sé á allan tilfinn-
ingaskalann. Ekki skemmir heldur
fyrir að mínu mati – þvert á móti –
að hafa söngkonuna Lay Low með
gítarinn á lofti í sýningunni. Hún
samdi fallega músík sérstaklega fyr-
ir sýninguna, og lögin eru væntanleg
á disk fljótlega.
Tónlistarveisla verður á Græna
hattinum um helgina og hefst reynd-
ar strax í kvöld. Þá mætir enginn
annar en Mugison á staðinn með
hljómsveit sína og leikur og syngur;
kynnir plötu sem kom út á dögunum;
Múgíboogie. Ég verð að segja að það
er löngu tímabært, og afar ánægju-
legt, að fá þennan frábæra tónlistar-
mann til bæjarins. Í hljómsveitinni
með Mugison eru Pétur Ben gítar-
leikari, Arnar Gíslason trommari,
Guðni Finnsson bassaleikari og Dav-
íð Þór Jónsson sem leikur á hljóm-
borð.
Fönksveitin Jagúar verður svo með
útgáfutónleika á Græna hattinum á
laugardagskvöldið. Þar stendur
Samúel Jón Samúelsson básúnuleik-
ari í stafni en aðrir í sveitinni eru
Ingi Skúlason á bassa, trompetleik-
arinn Kjartan Hákonarson, Óskar
Guðjónsson á sax, Ómar Guðjónsson
gítarleikari og Einar Scheving
trommari. Jagúar hefur ekki leikið á
Akureyri síðan 2001.
Fundarsalur bæjarstjórnar í Ráð-
húsi Akureyrar verður í hlutverki
sýningarsalar héðan í frá; þó ekki
eingöngu… Gallerí Ráðhús verður
opnað í dag kl. 12.15 með sýningu
Baldvins Ringsted þar sem hann
sýnir myndverk úr stáli sem unnin
eru upp úr þremur íslenskum þjóð-
lögum. Baldvin, sem er fæddur á Ak-
ureyri 1974, býr nú og starfar í Skot-
landi.
Full ástæða er til að vekja athygli á
því að í Málstofu í auðlindafræðum
við Háskólann á Akureyri verður á
morgun fjallað um djúpboranir á
Kröflusvæðinu. Það er Bjarni Páls-
son, verkefnisstjóri hjá Lands-
virkjun, sem flytur erindi, sem hefst
kl. 12.45 í anddyri Borga. Allir eru
velkomnir.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Gaman Tónlistarkonan Lay Low
setur skemmtilegan svip á sýningu
Leikfélags Akureyrar á Ökutímum.
geta ekki gengið neitt.
Af hverju leggja þeir
ekki bílnum á góðum
stað og ganga á veiði-
slóðirnar, þótt það taki
einhvern tíma? Er
þetta kannski orðið eins
og með allt annað; fólk
vill leggja bílnum sínum
alveg við búðardyrnar
þegar það skreppur inn
til að kaupa í matinn og
veiðimenn vilja geta
keyrt upp að bráðinni á
hálendinu, skotið hana
helst út um bílgluggann
og haft hana í matinn
um kvöldið. Það er
varla gaman að veið-
unum ef ekkert er haft fyrir bráðinni.
Skotveiðimenn eiga að taka meira til-
lit til aðstæðna, eitt er að keyra um ef
jörð er gaddfreðin en annars á aðeins
að fara eftir traustum slóðum eða
leggja bílnum og ganga á vit bráð-
arinnar.
Víkverji hefur líka heyrt af gæsa-
veiðimönnum sem keyra um renn-
blaut tún bænda í leyfisleysi og skilja
svo ekkert í því að bændurnir skuli
verða fokvondir yfir því. Gæsaskytt-
urnar virðast ekki gera sér grein fyr-
ir þeim skaða sem hlýst af því að
spæna upp tún og þeirri vinnu sem
þarf að inna af hendi til að koma þeim
í samt lag aftur.
Nú er sá árstímiþegar Víkverji
verður alltaf undrandi á
framferði samlanda
sinna sem hafa áhuga á
skotveiði.
Skotveiðimenn segja
sjálfa sig yfirleitt vera
mikla náttúru-
unnendur, þeir viti fátt
betra en að vera úti í
guðsgrænni náttúrunni
og veiða bráð sína.
Furðulegt þykir Vík-
verja því að þessir
menn kunni ekki að
lesa í landið betur en
virðist vera. Rignt hef-
ur nánast stanslaust á
öllu landinu síðan í byrjun september,
það segir sig því sjálft að jarðvegur er
blautur og viðkvæmur og þolir illa all-
an átroðning, hvað þá að keyrt sé á
honum á stórum bílum. Sumir, og ég
segi sumir, skotveiðimenn virðast
ekki skilja það og ana út um allt á
jeppum sínum, festa sig svo í drullu,
kalla þarf út björgunarsveit til að ná í
þá með tilheyrandi kostnaði og hjól-
förin sitja ein eftir þegar skytturnar
halda til síns heima. Hjólför í við-
kvæmum jarðvegi eru mörg ár að
gróa og þau geta leitt til uppfoks og
frekari gróðureyðingar.
Það sem Víkverji skilur ekki er
hvers vegna þessir náttúruunnendur
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Enn stækkar
iðnaðargeirinn með skráningu
Erria
omxgroup.com/nordicexchange
Fjarskipti
UpplýsingatækniVeiturHráefni
Nauðsynjavörur
Neysluvörur Orkuvinnsla Heilbrigðisgeiri
Iðnaður
Fjármálaþjónusta
Við bjóðum Erria velkomið í Nordic Exchange.
Erria býður skipaeigendum og rekstraraðilum um
allan heim upp á alhliða skiparekstrarþjónustu,
á skilvirkan og nútímalegan hátt. Erria verður
skráð í Nordic Exchange í Kaupmannahöfn þann
8.nóvember. Erria flokkast sem smærra félag og
tilheyrir iðnaðargeira.