Morgunblaðið - 08.11.2007, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 37
MINNINGAR
✝ Hörður HugiJónsson fæddist
á Siglufirði 22.
febrúar 1939.
Hann lést á Land-
spítalnum 1. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Sigurpála Jó-
hannsdóttir, f.
1912, d. 1975 og
Jón Þ. Sigurðsson,
f. 1912, d. 1999.
Systkini Harðar
eru: Elísabet, f.
1934, Þóra, f. 1942,
d. 1943, Birgir Sigurjón, f. 1948,
Lilja Þóra, f. 1950 og Tómas, f.
1952.
Hinn 10. júlí 1960 giftist
Hörður Sigríði Björnsdóttur, f.
1940. Þau eignuðust tvo syni: a)
Jón Þór, f. 1959, dætur Ragn-
hildur Steinunn, f. 1981 og
Telma Karen, f. 2007 og b) Ólaf
Jóhann, f. 1965, sonur Unnar
Örn, f. 1983, dóttir hans Vala
Marie, f. 2003. Fyrir átti Sigríð-
ur Unni Birnu Þórhallsdóttur, f.
1958, dóttir Ragna Sif Newman,
Flugleiða við stofnun þess fyr-
irtækis. Síðustu árin gegndi
Hörður stöðu birgðastjóra í
Flugeldhúsinu á Keflavík-
urflugvelli og lauk þar starfs-
ferlinum árið 2004. Starfsferill
Harðar tengdist því alla tíð mat-
reiðslu. Hörður bjó í Keflavík til
ársins 1973, en flutti þá í Kópa-
vog og bjó þar til dauðadags.
Áhugamál Harðar voru mörg. Á
yngri árum var hann góður fim-
leikamaður og æfði og sýndi þá
íþrótt bæði á Siglufirði og á
Keflavíkurflugvelli. Síðar tók
skákíþróttin við, sem hann
stundaði af krafti til æviloka.
Keppti hann á skákmótum bæði
sem einstaklingur og fyrir sveit
Flugleiða. Flugleiðasveitin vann
marga heimsmeistaratitla í al-
þjóðlegum skákmótum flug-
félaga sem fram fóru víðs vegar
um heiminn. Hörður var liðtæk-
ur bridsspilari og keppti einnig
fyrir hönd Flugleiða á alþjóð-
legum mótum. Ljósmyndun átti
hug Harðar frá unglingsárum
og tók hann mikið af myndum
bæði fyrir blöð, Flugleiðir og
fjölskyldu. Útför Harðar verður
gerð frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
f. 1989. Hörður og
Sigríður slitu sam-
vistum. Árið 1973
eignaðist Hörður
Önnu Sigurbjörgu.
Hörður kvæntist
hinn 26. desember
1975 Bryndísi Sig-
rúnu Sigurð-
ardóttur, f. 1943.
Þau eignuðust eina
dóttur, Hugrúnu, f.
1976. Fyrir átti
Bryndís Svölu Dögg
Þorláksdóttur, f.
1962, börn hennar
eru Margeir Trausti, f. 1985,
Brynjar, f. 1987, Ingi Óli, f. 1995
og Sigurð Magnússon, f. 1963,
synir hans eru Kristófer Bær-
ing, f. 1986 og Víkingur Breki,
f. 2005. Hörður og Bryndís
skildu.
Hörður bjó fyrstu uppvaxt-
arárin á Siglufirði, en á sex-
tánda ári fór hann til Keflavíkur
og hóf störf við matreiðslu á
Keflavíkurflugvelli hjá banda-
ríska hernum. Síðar færði hann
sig yfir til Loftleiða og þaðan til
Elsku pabbi minn,
Nú hefur þú kvatt mig í síðasta
sinn, svona endaði sagan. Þú varst
mikill sögumaður og sagðir mér óf-
ár sögurnar af ævintýrum þínum,
það sagði enginn frá eins og þú.
Fyrstu minningar mínar með þér
lýsa þér svo vel, þú varst ein-
staklega vandvirkur maður og þú
vandaðir þig svo við ala mig upp.
Alltaf að fræða mig og takk fyrir
að taka mig með þér allt sem þú
fórst. Minningar um fjöruferðir, ís-
bíltúra og ævintýraleg ferðalög
verða ávallt með mér. Þú verður
alltaf hjá mér. Ég kveð þig elsku
pabbi minn með þakklæti í hjarta
mínu.
Þín dóttir,
Hugrún.
Fyrstu kynni mín af Herði bróð-
ur mínum voru þegar hann kom
norður til Siglufjarðar frá Keflavík
árið 1955. Ég varð að fara úr her-
berginu hans inn til pabba og
mömmu, en það var þess virði því
hann kom færandi hendi með sæl-
gæti og ýmislegt sem ekki var al-
mennt á boðstólum annars staðar á
landinu. Næst þegar Hörður kom í
heimsókn til Siglufjarðar var það
til þess að giftast henni Siggu. Í
brúðkaupsferðinni fékk hún m.a.
að kynnast hinu siglfirska síldar-
ævintýri með því að taka þátt í
síldarsöltun og var mynduð af
Herði í bak og fyrir.
Fermingarárið mitt 1962, fékk
ég að fara einn suður til Keflavíkur
þar sem ég var hjá Herði og Siggu
í nokkra daga. Þar tók hann þessar
fínu myndir af mér í boltaleik sem
ég á enn og verma minningar mín-
ar.
Árin liðu og ég hóf nám hjá
Loftleiðum í eldhúsinu á Keflavík-
urflugvelli. Þar var gott að hafa
hann til stuðnings og eftirlits.
Hann var vel þekktur á Vellinum,
vinsæll og gott að geta nefnt okkar
fjölskyldutengsl þegar ég þurfti að
komast út úr hinum ýmsu aðstæð-
um. Þau sterku fjölskyldubönd
systkina foreldra okkar á Siglufirði
urðu okkur gott veganesti í lífinu.
Þannig bönd hafa einnig bundið
okkur systkinin saman bæði í gleði
og sorg.
Mér er minnisstætt atvik þegar
við Steinunn skírðum Sigurpálu
dóttur okkar annan í jólum árið
1975 á Kleppsveginum. Hörður bað
mig þá að koma inn í herbergi og
spurði hvort það væri ekki í lagi,
þar sem presturinn væri á staðn-
um, að hann giftist henni Dísu í
leiðinni. Ég svaraði að það gætu
verið ýmsir hnökrar á því. Það
þyrfti að tala við prestinn, útvega
pappíra fyrir giftinguna og fleira.
Hann dró þá upp umslag með öllu
saman og sagðist vera búinn að
tala við séra Ragnar Fjalar og
honum litist vel á þennan ráðahag.
Allir í fjölskyldunni komu af fjöll-
um við þessa uppákomu, en glödd-
ust einlæglega með brúðhjónun-
um. Skírnar- og brúðkaupsveislan
var minnisstæð því hún dróst á
langinn langt fram á næsta dag
vegna óveðurs sem dundi yfir þá
nótt.
Þegar ég fluttist vestur á Ísa-
fjörð vorum við Hörður mikið í
símasambandi og ég fylgdist vel
með högum hans. Þó Hörður væri
ekki maður margra orða kom hann
því oft vel til skila hversu stoltur
hann væri af börnum sínum og
dugnaði þeirra í blíðu og stríðu.
Hörður hafði skemmtilega kímni
og talaði alltaf um mig sem „frið-
arspillinn“ í fjölskyldunni. Í hvert
sinn sem ég kæmi til Reykjavíkur
færi allt á annan endann. Heim-
sóknir út um allt og stöðug dag-
skrá. Þessar góðu minningar og
margar fleiri ylja mér um hjarta-
rætur þegar ég kveð bróður minn
hinstu kveðju.
Birgir Jónsson.
Elsku afi,
ég vildi óska að þú hefðir fengið
að tefla við litróf lífsins örlítið
lengur. Ég man þegar ég heim-
sótti þig á spítalann daginn fyrir
aðgerðina og þú sagðir mér bað-
varðarbrandarann. Þú hlóst þínum
smitandi hlátri og leist svo á úrið í
gegnum litla stækkunarglerið þitt.
Þú varst ekki á leiðinni burt, þú
sagðir sjáumst fljótlega aftur. Þú
varst sannur skákmaður sem
tefldir ávallt til sigurs í hverju
sem þú tókst þér fyrir hendur en
þessi barátta var því miður ósigr-
andi.
Þú varst góður afi sem leiddir
mig áfram líkt og ég væri mik-
ilvægasta peðið á taflborðinu. Þú
fylgdist með öllu sem ég gerði og
færðir mér góðan föður. Ég er þér
ævinlega þakklát fyrir allt, elsku
afi. Minning þín mun ávallt fylgja
mér.
Þín
Ragnhildur Steinunn.
Látinn er fyrir aldur fram kær
vinur, heiðursmaðurinn Hörður
Jónsson matreiðslumeistari frá
Siglufirði.
Hörður var vinmargur maður,
enda hrókur alls fagnaðar á góðri
stund og ræktaði vel vináttuna
bæði við fyrrverandi samstarfs-
menn sína og ekki síður við fjölda
starfsmanna sem starfað hafa í ís-
lenska flugheiminum síðastliðna
áratugi. Hörður starfaði lengst af
á Keflavíkurflugvelli þar sem hann
var einn af þeim sem sáu til þess
að flugfarþegar fengju góðan við-
urgjörning í mat á ferðalögum sín-
um til og frá landinu. Hann gegndi
lengst af ábyrgðarmiklu starfi
flugeldhúsi Flugleiða hf.
Hörður var víðlesinn maður og
fróður um þjóðlega hætti og undur
veraldar. Hann hafði ferðast víðs-
vegar um heiminn og naut þess að
fræða okkur vini sína um hagi og
tilvist þjóða í framandi löndum.
Hann naut þeirra forréttinda að
vera mjög góður skákmaður, enda
var skákíþróttin ein af hans helstu
áhugamálum. Sem liðsmaður í
hinni sigursælu skáksveit Flug-
leiða/Icelandair sem keppti á al-
þjóðlegum skákmótum flugfélaga
víðsvegar um heiminn, gafst
Herði kostur á að kynnast hinum
ýmsu þjóðlöndum og siðum í landi
hverju.
Annað áhugamál sem Hörður
dáði var ljósmyndun og var hann
sjálfmenntaður í þeirri tækni.
Hörður var einstaklega æðrulaus
maður þegar tillit er tekið til þess
að á seinni árum lífsins þjáðist
hann af ólæknandi augnsjúkdómi
sem leiddi til verulegrar sjón-
depru sem háði honum á vissan
hátt, en þó ekki svo að hann naut
lífsins eins og ekkert hefði í skor-
ist og gerði oft á tíðum sjálfur
grín að þessari fötlun sinni. Þótt
sjóndepran hafi vissulega haft sín
áhrif, þá gafst Hörður ekki upp á
því að sinna sínum helstu áhuga-
málum, þ.e. skákinni og ljósmynd-
un. Þegar sterk gleraugu dugðu
ekki lengur var bara bætt við
góðu stækkunargleri sem virtist
gagnast vel, einkum við skákborð-
ið. Þrátt fyrir þessa fötlun var
myndavélin ekki sett niður í
skúffu. Herði var einkar lagið að
finna hin ýmsu myndhrif augna-
bliksins, enda oft fenginn til að
gerast sérstakur ljósmyndari í
ýmsum einkasamkvæmum.
Alltaf var gott að leita til Harð-
ar þegar átti að gera góða veislu
með mat og drykk. Hann gaf leið-
beiningar um meðhöndlun hráefn-
is og eldamennsku á einfaldan en
samt fagmannlegan hátt, þannig
að við sem nutum ráðgjafar hans
gátum staðið uppréttir að veislu
lokinni.
Æskustöðvarnar á Siglufirði
voru honum mjög hugleiknar og
hafði hann sérstaka unun af að
segja frá einstökum viðburðum úr
sögu byggðarlagsins í áranna rás.
Við vinir hans úr horninu í kaffi-
húsinu góða í miðbæ Kópavogs
kveðjum hér með Hörð með mikl-
um söknuði. Fasta sætið hans í
horninu er nú autt. Skemmtilegar
og fróðlegar frásagnir úr því sæti
eru þagnaðar, en eitt er víst að
Hörður mun eignast gott sæti á
æðra tilverustigi þar sem gleði og
vinátta við náungann mun áfram
njóta sín.
Börnum Harðar og öðrum að-
standendum sendum við okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Harðar Huga
Jónssonar.
Tómas Oddsson,
Jóhann H. Jónsson,
Ingi Steindórsson og
Jónas Ingimarsson.
Hörður Hugi Jónsson ✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og systir,
RANNVEIG JÓNSDÓTTIR,
Sólheimum 23 5E,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 1. nóvember á krabbameins-
deild Landspítalans við Hringbraut.
Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn
9. nóvember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsdeild Landspítalans og Leitarstöð
Krabbameinsfélags Íslands.
Alois Raschhofer,
Birgit Raschhofer, Jóhann Pétur Guðvarðarson
Róbert Jón Raschhofer, Margarete Schrems,
barnabörn,
Ásmundur Jónsson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KARL JÓHANN GUNNARSSON,
Fannborg 8,
Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum laugardaginn
3. nóvember, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju
föstudaginn 9. nóvember kl. 11.00.
Þórður Karlsson, Þórsteina Pálsdóttir,
Jón Ólafur Karlsson, Elísabet Sigurðardóttir,
Gunnar Már Karlsson, Matthildur Jónsdóttir,
Ása Kristbjörg Karlsdóttir, Þröstur Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg frænka okkar,
SIGRÚN LILJA KRISTINSDÓTTIR
frá Löndum,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum,
lést 5. nóvember.
Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 10. nóvember kl. 10.30.
Kristín Garðarsdóttir,
Þórir Garðarsson,
Kristinn Þórir Sigurðsson,
Bergmundur Helgi Sigurðsson
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR,
Ránargötu 44,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 9. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Einstök börn,
stuðningsfélag langveikra barna eða aðrar góð-
gerðastofnanir.
Róbert E. Rader, Pris Rader,
Dónald R. Jóhannesson, Helga Mattína Björnsdóttir,
Margrét Ann Rader,
Kristinn Máni Þorfinnsson
og ömmubörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, dóttir,
stjúpmóðir og amma,
SOFFÍA KRISTÍN HJARTARDÓTTIR
skrifstofustjóri,
Brúnastöðum 17,
Reykjavík,
sem lést 2. nóvember, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 9. nóvember kl. 11.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Rbst.
nr. 1, Bergþóru, I.O.O.F. í síma 557 6015.
Hörður Barðdal,
Þórður Vilberg Oddsson, Marta Elísabet Guðmundsdóttir,
Laura Fr. Claessen
Jóhanna I. Barðdal,
Sesselja E. Barðdal,
Bergþóra Fanney Barðdal
og barnabörn.