Morgunblaðið - 08.11.2007, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 49
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-
16.30, jóga kl. 9, boccia kl. 10, út-
skurður og myndlist kl. 13-16.30,
vídeóstund kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, jóga, myndlist, alm. handavinna,
dagblöð, fótaaðgerð, bókband. Sam-
verustund með sr. Hans Markúsi kl.
13.30. Haustfagnaður verður 12. nóv.
Fagnað verður 20 ára starfsafmæli
með veislukaffi kl. 14.30, skemmti-
atriði og happdrætti. Skráning í s.
535-2760.
Dalbraut 18-20 | Postulínsnámskeið
kl. 9-12. Lýður með harmonikkuna kl.
14, guðsþjónusta annan hvern fimmtu-
dag. kl. 15.10.
Félag eldri borgara í Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 12.40, karlaleikfimi kl.
13, boccia kl. 14, bókband kl. 10, smiðja
/ gler, leirlist, handavinnuhorn, nám-
skeið í bútasaumi og almennri handa-
vinnu kl. 13.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Bingó
í Gjábakka kl. 13.45, spjaldaverð 100
kr. Vinningsupphæðir fara eftir fjölda
þátttakenda.
Ferðavaka í félagsheimilinu Gullsmára
13, kl. 20.30. Sýndar verða víd-
eómyndir frá Kaupmannahöfn. Þátt-
takendur í aðventuferðum Emils til
Kaupmannahafnar í nóvember og des-
ember hvattir til að mæta. Emil skýrir
frá tilhögun ferðanna.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.05 og 9.55, rammavefnaður kl. 9.15,
málm- og silfursmíði kl. 9.30, hádeg-
isverður kl. 11.40, róleg leikfimi kl. 13,
bókband kl. 13, bingó kl. 13.45, kaffi á
könnunni til kl. 16, myndlistarhópur kl.
16.30, stólajóga kl. 17 og jóga á dýnum
kl. 17.50.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinna kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður
kl. 11.40, handavinna og bridds kl. 13,
jóga kl. 18.15.
Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við
böðun, alm. handavinna og smíðar og
útskurður kl. 9. Kl. 14, verður „viltu
vera memm“, samverustund fram að
kaffi kl. 15.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9,
boccia kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegis-
matur kl. 12, félagsvist kl. 14, kaffi kl. 15.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9,
pútt á Ásvöllum kl. 10, leikfimi kl. 11.20,
tréskurður kl. 13, opið hús kl. 14.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá
Þorbjörgu kl. 9-16, boccia kl. 10, fé-
lagsvist kl. 13.30, vinningar og kaffi-
veitingar i í hléi. Böðun fyrir hádegi.
Hársnyrting.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun
föstudag er sundleikfimi í Grafar-
vogssundlaug kl. 9:30 og Listasmiðjan
á Korpúlfsstöðum er opin kl. 9-12 og
13-16 alla föstudaga.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund og spjall kl. 9.45, boccia karla-
klúbbur kl. 10.30, handverksstofa op-
in, postulín kl. 13, boccia kvenna-
klúbbur kl. 13.30, harmonikkuleikur og
dans kl. 14 og kaffiveitingar kl. 14.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund og spjall kl. 9.45, boccia karla-
klúbbur kl. 10.30, postulínsmálun kl.
13, boccia kvennaklúbbur kl. 13.30,
kaffiveitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan kl. 9-16,
vinnust. í handm. kl. 9-12. m/leiðb.
Halldóru. Leirlistarnámskeið kl. 9-12,
boccia kl. 10, hugmynda- og listastofa
kl. 13-16 með Halldóru og Hafdísi.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu | Skák kl. 19, í félags-
heimili Sjálfbjargar í Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaað-
gerðir kl. 9-10, boccia kl. 9.15-14, að-
stoð v/böðun, kl. 9.15-15.30, handa-
vinna kl. 10-12, spænska framh. kl.
11.45-12.45, hádegisverður kl. 13-15,
kóræfing kl. 13-14, leikfimi kl. 14.30-
15.45, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, bókband kl. 9, handavinnu-
stofan opin kl. 9-16.30. hárgreiðslu-
og fótaaðgerðastofur opnar alla daga
frá kl. 9, morgunstund kl. 9.30, boccia
kl. 10, upplestur kl. 12.30, mósaik gerð
kl. 13, frjáls spil kl. 13-16.30.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund og
samvera kl. 10, opinn salur kl. 13, leik-
fimi kl. 13.15, bingó eða félagsvist kl.
14.30.
Kirkjustarf
Áskirkja | Foreldramorgunn, opið hús
kl. 10, söngstund kl. 14, með Magnúsi
Ragnarssyni organista. Klúbbur 8 og
9 ára barna kl. 17 og TTT-starfið kl. 18.
Efni beggja fundanna er „hlátur-
kasts-æði-fundur“.
Áskirkja | Samkirkjuleg bænastund á
ensku, kl. 16.30. Fylgt er bænakverinu:
True life in God.
Breiðholtskirkja | Biblíulestur í umsjá
dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar kl. 20.
Digraneskirkja | Foreldramorgunn kl
10-12, leikfimi ÍAK kl. 11, bænastund kl.
12, 6-9 ára starf kl. 16, æskulýðsstarf
Meme fyrir 8. bekk kl. 19.30-21.30.
(www.digraneskirkja.is)
Dómkirkjan | Opið hús í safnaðar-
heimilinu kl. 14-16. Kaffi á könnunni.
Kvöldkirkjan er opin kl. 20-22. Bæna-
stund er kl. 20.30 og 21.30. Kveikið á
bænakerti, skrifið ykkar bænir, prest-
ur á staðnum.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10-12, samverustundir og fyrir-
lestrar. Kaffi á könnunni, djús og brauð
fyrir börnin. TTT fyrir 10-12 ára kl. 15-
16 í Víkurskóla.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, íhugun, bænir. Málsverður
í safnaðarsal efir stundina.
Háteigskirkja | Vinafundir alla
fimmtudaga kl. 14 í Setrinu í október
og nóvember. Íhugunartónlist, orð
Guðs, bænir, kvöldmáltíð Drottins, fyr-
irbæn með handayfirlagningu og
smurningu kl. 20.
Hjallakirkja | Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 12-14. Léttur hádegis-
verður og samverustund.
KFUM og KFUK | Holtavegi 28.
Fundur verður í AD KFUM kl. 20.
„Hugleiðing þegar jól nálgast.“ Guð-
mundur G. Þórarinsson sér um efnið.
Hugleiðing: Ásgeir B. Ellertsson. Kaffi.
Karlmenn velkomnir.
Laugarneskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu á eftir. Samvera eldri borg-
ara kl. 14. Þorvaldur Halldórsson
söngvari syngur, kaffiveitingar. Um-
sjón hafa sóknarprestur, kirkjuvörður
og þjónustuhópur. Adrenalín gegn
rasisma kl. 17, (9. og 10. bekkur)
Neskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-
12. Spjall, samfélag og kaffi.
Njarðvíkurkirkja | Foreldramorgunn
kl. 10.30, í safnaðarheimilinu. Umsjón
hefur Þorbjörg Kristín Þorgrímsdóttir.
Ytri-Njarðvíkurkirkja | Spilakvöld
aldraðra og öryrkja kl. 20. Umsjón
hafa félagar í Lionsklúbbi Njarðvíkur,
Ástríður Helga Sigurðardóttir, Gunn-
hildur Halla Baldursdóttir og sóknar-
prestur.
70ára afmæli. Í dag ersjötugur Gylfi Bald-
ursson heyrnarfræðingur.
Hann tekur á móti fjölskyldu
og vinum sunnudaginn 11.
nóvember á milli kl. 16.30 og
19, í Félagsheimili Sjálfs-
bjargar í Hátúni 12.
60ára afmæli. Í dag, 8.nóvember, er sextugur
Birgir Karlsson fv. skólastjóri
og fulltrúi hjá Valitor (Visa),
Bakkastöðum 5, Reykjavík. Í
tilefni afmælisins tekur hann á
móti gestum í Oddfellowhús-
inu við Vonarstræti, Reykja-
vík, á morgun, föstudaginn 9.
nóvember, frá kl. 17-20. Gjafir
afþakkaðar.
Demantsbrúð-
kaup | Sextíu ára
brúðkaupsafmæli
eiga í dag, 8 nóv-
ember, hjónin Þór-
ey Jóhannsdóttir
og Þórður Eyjólfs-
son, Hásæti 11b á
Sauðárkróki. Þau
verða með heitt á
könnunni í dag.
Hlutavelta | Þessar stúlkur
héldu tombólu og söfnuðu
7.435 kr. sem þær gáfu til
Rauða kross Íslands. Þær eru:
Borghildur Salína Leifsdóttir
og Vigdís Valgerður Einars-
dóttir.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 8. nóvember, 312. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34.)
Félagsvísindadeild við HáskólaÍslands og Rannsóknarseturum lífshætti barna og ung-menna standa fyrir málþingi
á morgun undir yfirskriftinni Ákall 21.
aldar – Virðing og umhyggja.
Málþingið er haldið í tengslum við út-
komu bókar dr. Sigrúnar Aðalbjarnar-
dóttur prófessors um mikilvægi þess að
efla samskiptahæfni barna og ung-
menna og hvernig megi standa að því.
Þar byggir hún á rannsóknum sínum í
ríflega tuttugu ár.
„Í tilefni útgáfu bókarinnar hef ég
fengið til liðs við mig fólk á ýmsum aldri
til að fjalla um það sem því er hugleikið
í tengslum við viðfangsefni bókar-
innar,“ segir Sigrún. „Um mikilvægan
málaflokk er að ræða. Samfélagið kallar
á góða samskiptahæfni fólks. Þar hef ég
m.a. í huga áhrif þeirra breytinga sem
orðið hafa á fjölskyldugerð og fjöl-
skyldulífi á undanförnum áratugum.
Umgjörðin um líf barnsins er flóknari
en áður var og kallar á mikið skipulag
og samskiptahæfni. Þá kallar starfs-
vettvangur á góða samskiptahæfni
fólks. Samfélag okkar er einnig orðið
fjölmenningarlegra og alþjóða-
samskipti hafa aukist. Við þurfum að
taka betur á því hvernig skólastarf og
heimilið geti hlúð að börnunum og eflt
þroska þeirra á þessu sviði með samtíð
þeirra og framtíð í huga.“
Erindin á málþinginu eru bæði fjöl-
breytt og áhugaverð, og nefnir Sigrún
nokkur dæmi: „Að loknu ávarpi Bjarna
Ármannssonar ræðir Vilhjálmur Árna-
son prófessor um lífsgildi í lýðræð-
isþjóðfélagi og Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir MA í námssálarfræði fjallar m.a.
um námsáhuga og hvetjandi náms-
umhverfi,“ segir Sigrún. „Vigdís Haf-
liðadóttir grunnskólanemi, leyfir okkur
að heyra hvaða áhrif hún vilji hafa. Eva
María Jónsdóttir dagskrárgerð-
armaður, sem kallar sig útivinnandi
húsmóður nefnir erindi sitt: Gild tilfinn-
ingarök. Hafdís Ingvarsdóttir dósent
við HÍ, Hafsteinn Karlsson skólastjóri
Salaskóla í Kópavogi og Ólafur H. Jó-
hannsson aðjúnkt við KHÍ fjalla um
samskipti og samstarf í skólastarfi út
frá mismunandi sjónarhornum eins og
titlar erinda þeirra bera vitni um.“
Málþingið er haldið í stofu 132 í Öskju
við HÍ frá kl. 13.30 til 17.30. Aðgangur
er öllum heimill og ókeypis.
Samskiptahæfni | Málþing í Öskju HÍ á morgun um ræktun lífsgilda
Virðing og umhyggja
Sigrún Að-
albjarnardóttir
fæddist á Hvamms-
tanga í Húnaþingi
1949. Hún lauk
B.A. prófi í uppeld-
isfræði frá HÍ 1983
og M.A. prófi 1984
og doktorsprófi
1988 í þroskasál-
fræði frá Harvardháskóla. Frá 1988
hefur Sigrún kennt við HÍ þar sem
hún er nú prófessor. Eiginmaður Sig-
rúnar er Þórólfur Ólafsson tann-
læknir og eiga þau tvo syni, Aðalbjörn
og Þórólf Rúnar, og þrjú barnabörn.
Tónlist
Akraneskirkja | Sveinn Arnar Sæmundsson orgelleik-
ari og Baldur Ketilsson gítarleikari taka nokkur lög úr
ýmsum áttum kl. 12.10. Á efnisskránni verður m.a.
tónlist eftir Rolling Stones, Eric Clapton og Led Zep-
pelin.
Ljóti Andarunginn í Lækjargötu | Tregasveit Krist-
jönu Stefáns leikur kl. 21. Kristjana Stefáns söngur,
Agnar Már Magnússon píanó/orgel, Gunnar Hrafns-
son bassi, Scott McLemore trommur.
Tónberg - Salur Tónlistarskólans | Útgáfutónleikar
Þjóðlagasveitarinnar verða kl. 20 í tilefni af útgáfu
geisladisksins „Milli tveggja heima“. Forsala aðgöngu-
miða í Eymundsson, Akranesi. Miðaverð er kr. 1.500
en kr. 1.000 fyrir eldri borgara og börn 12 ára og yngri.
Fyrirlestrar og fundir
Geðhjálp | Túngötu 7. Sjálfshjálparhópur þeirra sem
þjást af kvíða er starfræktur kl. 18 í húsi Geðhjálpar.
Hópurinn er opinn öllum sem eiga við áðurnefnt
vandamál að stríða.
Landakot | Fræðslunefnd RHLÖ kynnir fræðslufyr-
irlestur kl. 15 í kennslusalnum á 7. hæð á Landakoti.
Geirþrúður Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur fjallar um
sár og sáraumbúðir. Sent út með fjarfundabúnaði.
Uppákomur
Kiwanishúsið Mosfellsbæ | Kiwansiklúbburinn Geysir
heldur félagsvist kl. 20.30. Nánari uppl. í síma
690 9038.
FRÉTTIR
Höfum verið beðin að útvega
400-600 fm pláss fyrir læknastofur.
Gott aðgengi er nauðsynlegt,
einnig góð bílastæði.
Staðsetning: t.d. Austurbærinn.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson
og Geir Sigurðsson fasteignasalar.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
M
bl
9
33
70
0
Húsnæði fyrir læknastofur óskast
AÐALFUNDUR Ungra jafnaðar-
manna í Hafnarfirði fór fram 3. nóv-
ember. Í ályktun um skipulagsmál
leggja Ungir jafnaðarmenn í Hafn-
arfirði til að stofnuð verði ný óháð
þverpólitísk nefnd sem móti fram-
tíðarsýn um uppbyggingu miðbæj-
arins. Farið verði í heildstæða
skipulagsvinnu á miðbænum frá
Vesturgötu til Íshúss sem mótist af
kjörorði Samfylkingarinnar um
samráð og sátt. Öllum framkvæmd-
um á svæðinu verði frestað þar til sú
vinna hefur farið fram.
Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði
krefjast þess að staldrað verði við í
háhýsavæðingu miðbæjarins. „Við
höfnum því að Drafnarsvæðið verði
lagt undir íbúðabyggð. Við viljum að
haldin verði hugmyndasamkeppni
um skipulag þess opna svæðis sem
myndast þegar Dvergur verður rif-
inn. Ungir jafnaðarmenn í Hafnar-
firði harma þá skipulagsóreiðu sem
einkennt hefur uppbyggingu mið-
bæjar Hafnarfjarðar svo áratugum
skiptir. Núverandi miðbæjarskipu-
lag einkennist af hálfkláruðum hug-
myndum og skorti á framtíðarsýn,“
segir í ályktun UJ í Hafnarfirði.
Jón Steinar Guðmundsson var
kosinn var nýr formaður UJH.
Margvíslegar ályktanir voru sam-
þykktar á fundinum og má nálgast
þær á slóðinni http://www.mir.is/
news/aview/724
UJH hafna
íbúðabyggð á
Drafnarsvæði
Skúli Guðmundsson
Skúli Guðmundsson, skrifstofustjóri
Þjóðskrár, var ranglega sagður
Magnússon í baksíðufrétt Morgun-
blaðsins í gær, miðvikudag. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
Hönnuðu brýrnar
Úti og inni arkitektar hönnuðu
brýrnar sem fyrirhugað er að
byggja yfir Reykjanesbraut á gatna-
mótum Arnarnesvegar í Kópavogi
og Garðabæ. Láðist að geta þess við
umfjöllun um framkvæmdina sem
birtist á bls. 16 í Morgunblaðinu í
gær. Beðist er velvirðingar á því.
LEIÐRÉTT
ÞEGAR viðburður er skráður í Stað og stund birtist
tilkynningin á netinu um leið og ýtt hefur verið á
hnappinn staðfesta. Skrásetjari getur nýtt sér þann
möguleika að nota leiðréttingaforritið Púkann til að
lesa textann yfir og gera nauðsynlegar breytingar sé
þess þörf. Hver tilkynning er aðeins birt einu sinni í
Morgunblaðinu. Bent er á að hægt er að skrá atburði
í liðina félagsstarf og kirkjustarf tvo mánuði fram í
tímann. Allur texti sem birtist í Morgunblaðinu er
prófarkalesinn.
Skráning í Stað og stund