Morgunblaðið - 14.12.2007, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
PRUFUSIGLING á Sæfara, ferju
Grímseyinga sem senn verður
tekin í notkun, fór fram í gærdag
og var tilgangurinn sá að reyna
siglingabúnað skipsins.
Jón B. Björgvinsson, skipstjóri
og hafnarvörður við Hafn-
arfjarðarhöfn, sem stýrði Sæ-
fara, hrósaði skipinu og sagði
það hið liprasta. Siglingin gekk
vel og kom ekkert óvænt upp á.
Titringur milli vélar og gírs olli
nokkrum áhyggjum en sá ótti
reyndist ástæðulaus.
Endurbætur eru á lokastigi en
eftir er að bæta við m.a. neyð-
arútgangi, gámafestingum og
inngangi fyrir hreyfihamlaða.
Vonast er til að ferjan komist í
notkun snemma á næsta ári.
Ferðatími ferjunnar styttist
um klukkutíma og verður tvær
og hálf klukkustund þegar sú
nýja verður tekin í notkun.
Reynslusigling
Skipstjóri sagði nýju Grímseyjarferjuna lipurt skip
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
SKRÁÐ atvinnuleysi í
nóvember var 0,8%, eða
að meðaltali 1.321
manns, sem eru aðeins 6
fleiri en í október sl., og
er breyting milli mánaða
því lítil. Atvinnuleysi er
um 25% minna en á sama
tíma fyrir ári þegar það
var 1,1%.
Á vef Vinnumála-
stofnunar kemur fram
að atvinnuleysi stendur í stað á höfuð-
borgarsvæðinu, þar sem það er nú 0,6% líkt
og í október, en mælist 0,1 prósentustigi
meira á landsbyggðinni en í fyrri mánuði,
eða 1,2%.
Atvinnuleysi er óbreytt meðal karla,
0,6% líkt og í október, og breytist lítið hvort
heldur er á höfuðborgarsvæðinu eða á
landsbyggðinni. Atvinnuleysi kvenna er
einnig óbreytt á heildina litið eða 1,1%. At-
vinnuleysi kvenna á höfuðborgarsvæðinu
minnkar þó úr 0,8% í 0,7% og eykst að sama
skapi á landsbyggðinni úr 1,7% í 1,8%.
Nánar á vinnumalastofnun.is.
Atvinnuleysi
nánast óbreytt
SAMTÖK iðnaðarins vara við fyrirtækinu
Euro Business Guide sem virðist vera með
starfsemi bæði í Hollandi og á Spáni.
Fyrirtækið sendir nú út bréf, bæði í tölvu-
pósti og með hefðbundnum pósti, þar sem
fyrirtækjum er gefinn kostur á að skrá sig
í gagnagrunn þess.
Í póstinum sem fylgir kemur fram að
„uppfærsla“ upplýsinganna sé viðkomandi
að kostnaðarlausu en þegar betur er að
gáð eru brögð í tafli, segir á heimasíðu
iðnaðarins, si.is Í smáa letrinu stendur
hins vegar að viðkomandi fyrirtæki sé að
skuldbinda sig til þriggja ára og skráning-
argjald hvers árs sé 990 evrur. Full ástæða
er til að vara íslensk fyrirtæki við aðilum
sem þessum, segir á si.is
Varasöm skrán-
ing í gagnagrunn
FRAMKVÆMDASTJÓRI heildsölu var í
gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til
að greiða 200.000 kr. í sekt fyrir að hafa
birt áfengisauglýsingu í
dagblaði á síðasta ári.
Fram kemur að fram-
kvæmdastjóri Globus
hf. hafi gerst sekur um
áfengislagabrot þegar
hann lét birta áfengis-
auglýsingu í Frétta-
blaðinu í ágúst í fyrra
með fyrirsögninni „Vín-
uppboð“. Með auglýs-
ingunni var mynd áfengisflöskum og at-
hygli vakin á því að fjöldi vína yrðu boðinn
upp.
Framkvæmdastjórinn neitaði hinsvegar
sök og krafðist sýknu. Hann kvaðst ekki
hafa komið nálægt þessari birtingu heldur
hafi það verið starfsmaður fyrirtækisins
sem það gerði.
Héraðsdómur komst hinsvegar að þeirri
niðurstöðu að framkvæmdastjórinn væri
ábyrgur fyrir birtingu auglýsingarinnar.
Það hafi verið með umboð fyrir áfengið
sem var auglýst og flutt það inn. Auk þess
hafi auglýsingin verið á vegum fyrirtæk-
isins sem greiddi fyrir birtingu hennar.
Sektaður fyrir að
brjóta áfengislög
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hefur dæmt
karlmann í 220 þúsund króna sekt og
svipti hann ökuréttindum í þrjú ár fyrir
ölvunarakstur. Maðurinn ók bíl sínum útaf
í Hveradalsbrekku á Suðurlandsvegi.
Áfengismagn í blóði mannsins var 1,22‰.
Vegfarandi, sem hringdi á lögregluna,
sá þegar maðurinn hljóp út úr bílnum og
til fjalla. Lögreglan fann manninn, sem
sagði að ónafngreindur vinur sinn hefði
ekið bílnum en sjálfur hefði hann farið upp
í fjall til að leita að farsímasambandi.
Kunningi mannsins gaf sig fram síðar
og sagðist hafa ekið bílnum.
Taldi dómurinn ekkert hægt að byggja
á framburði vinanna og sérstaklega ótrú-
verðugt væri, að annar segðist hafa getað
hringt úr bílnum en hinn þurfti að hlaupa
upp í fjall til að hringja.
Hljóp til fjalla
ÁRNI Kolbeinsson var á fundi
dómara Hæstaréttar Íslands í
gær kjörinn forseti réttarins árin
2008 og 2009. Ingibjörg Bene-
diktsdóttir var kjörin varaforseti
réttarins á sama tímabili.
Árni Kolbeinsson var skipaður
hæstaréttardómari 1. nóvember
2000. Hann gegndi m.a. stöðu
ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs-
ráðuneytinu frá 1. maí 1985 og
tók við starfi ráðuneytisstjóra í
fjármálaráðuneytinu 1. janúar
1999.
Ingibjörg Benediktsdóttir var
skipuð hæstaréttardómari 6.
febrúar 2001. Hún gegndi m.a.
stöðu sakadómara í Reykjavík
frá 1985-1992 og síðan stöðu hér-
aðsdómara við Héraðsdóm
Reykjavíkur og var varadómari í
Félagsdómi 1986 til 1989.
Kjörinn forseti
Hæstaréttar
Árni
Kolbeinsson
Ingibjörg
Benediktsdóttir
STUTT
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt ung-
um flugnema, sem slasaðist í flugslysi
þegar kennsluflugvél hans fórst Hval-
firði árið 2003, fjórar milljónir kr. í
bætur vegna skaðabótaábyrgðar
Flugskóla Íslands og trygginga-
félagsins Nordic Aviation Insurance
Group. Flugkennarinn, sem var með
honum, var sýknaður af kröfum nem-
ans.
Óumdeilt var að kennarinn var einn
við stjórn þegar vélin fórst og leit
Hæstiréttur því á nemann sem far-
þega í flugvélinni í skilningi vátrygg-
ingarskilmála tryggingafélagsins.
Þar sem skaðabótaskylda kennarans
við nemann var ekki reist á sérreglum
laga um loftferðir og fleira var honum
ekki gert að greiða bætur. Rétturinn
taldi þá að flugskólinn bæri bóta-
ábyrgð gagnvart nemanum. Var skól-
anum og tryggingafélaginu gert að
greiða nemanum í sameiningu þján-
ingabætur og bætur fyrir tímabundið
atvinnutjón og varanlega örorku.
Með dóminum var dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur hnekkt að hluta en í hér-
aði hafði kennarinn verið dæmdur til
bótagreiðslu ásamt flugskólanum en
tryggingafélagið sýknað.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg
Benediktsdóttir og Markús Sigur-
björnsson.
4 milljónir
kr. í bætur
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
AFGANGUR af fjárlögum hefur
aldrei verið meiri en á fjárlögum
2008, sem Alþingi samþykkti í
gær. Alls er gert ráð fyrir afgangi
upp á 39,2 milljarða króna og að
frádregnum söluhagnaði eigna er
gert ráð fyrir afgangi upp á 35
milljarða.
„Þetta er mesti afgangur sem
samþykktur hefur verið í desem-
ber á fjárlögum fyrir komandi ár,“
sagði Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. Hann
sagði einu gilda hvort litið væri á upphæðina eina og
sér eða sem hlutfall af landsframleiðslu. Þetta sé
metafgangur.
Fjáraukalög ársins 2007, sem samþykkt voru fyrir
nokkrum dögum og byggðust á grunni fjárlaga yf-
irstandandi árs, voru og samþykkt með mun meiri
afgangi en áætlaður var fyrir ári. „Það var líka met-
afgangur, einnig að frágengnum söluhagnaði,“ sagði
Árni. Hann sagði þennan mikla afgang af fjárlögum
2008 og af fjáraukalögum 2007 vera til merkis um að
aldrei hefði fyrr verið ákveðið að beita jafn miklu að-
haldi í ríkisfjármálunum og nú. „Ég er ánægður með
þennan árangur en geri mér einnig grein fyrir því að
ýmislegt getur haft áhrif á hver endanleg niðurstaða
verður,“ sagði Árni. „Ef það verður meiri gangur í
efnahagslífinu en við gerum ráð fyrir, eins og raunin
varð í ár, þá eru sjálfvirkir sveiflujafnarar í skatta-
kerfinu sem auka aðhaldið. Ef hins vegar verður
samdráttur þá lækka tekjurnar og aðhald skatta-
kerfisins minnkar. Þetta er upphafspunktur fyrir ár-
ið 2008 og það hefur aldrei verið beitt meira að-
haldi.“
Árni benti á að fjárlögum hefði verið stillt upp með
sama hætti frá árinu 1998 og þau því samanburð-
arhæf í áratug. Fram að því ríktu aðrar aðstæður, en
Árni taldi víst að afgangur af fjárlögum hefði aldrei
verið meiri en sá sem Alþingi samþykkti í gær.
Metafgangur og
aðhald aldrei meira
Í HNOTSKURN
»Alls er gert ráð fyrir afgangi af fjárlögumársins 2008 upp á 39,2 milljarða króna og að
frádregnum söluhagnaði eigna er gert ráð fyrir
afgangi upp á 35 milljarða.
»Fjáraukalög fyrir árið 2007 voru einnig af-greidd með metafgangi.
Árni M. Mathiesen
Afgangur að frádregnum söluhagnaði eigna 35 milljarðar
JÓN Helgi Guðmundsson, forstjóri
BYKO, segir tjónið sem varð í verk-
smiðjum BYKO-LAT í Lettlandi á
miðvikudag nema að minnsta kosti
200 milljónum króna og er þetta
stærsta áfall af völdum bruna sem
fyrirtækið hefur orðið fyrir.
Eldsupptök eru í rannsókn en Jón
Helgi hefur ákveðnar grunsemdir
um upptökin.
„Það fór fram viðgerðavinna við
timburlínur og mér finnst líklegt að
það hafi kviknað í út frá þeirri
vinnu,“ segir hann og segist vona að
fyrirtækinu takist að standa við
skuldbindingar sínar gagnvart við-
skiptavinum sínum.
„Það eru allir afar daprir yfir
þessu og ég ætla að láta fólk vita að
við munum byggja upp verksmiðj-
urnar,“ segir hann og kveður trygg-
ingamál vera í þokkalegu lagi.
Tjónið ekki
undir 200
milljónum
Tjón Hluti verksmiðjunnar brann.
♦♦♦