Morgunblaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Á SÝNINGUNNI Falinn fjár- sjóður getur að líta einstæð verk sem Landsbankinn keypti á 120. afmælisári sínu í fyrra. Margt er þar fágætra verka, en að öðrum ólöstuðum ber þar hæst Hvítasunnudag Kjarvals sem notið hefur mikillar at- hygli, m.a. vegna sérstæðrar sögu sem verkið geymir. Hvítasunnudagur er eitt merk- asta verk Kjarvals í kúbískum stíl, en það kom í leitirnar í Kaupmannahöfn fyrr á þessu ári eftir langa leit. Sýningin er á Kjarvals- stöðum og mun Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir leiða gesti um sýninguna næsta sunnudag kl. 15. Myndlist Falinn fjársjóður á Kjarvalsstöðum Jóhannes S. Kjarval listmálari DR. TERRY Gunnell mun flytja fyrirlesturinn „The Ice- landic Yule“ í Þjóðminjasafni Íslands kl. 13 á morgun, laug- ardag. Þar verður fjallað um trú og siði í kringum jólin í ald- anna rás, frá heiðnum goðum til gárunga og hrekkjóttra ís- lenskra jólasveina. Í fyrirlestri sínum seilist Terry aftur til norrænnar goðatrúar og skoð- ar jólin eins og þau birtast í fornsögum og þjóðsögum. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og gefst því gott tækifæri fyrir gesti frá öðrum löndum og þá sem eru nýfluttir til landsins til að fræðast um gamla íslenska jólasiði. Þjóðmenning Fyrirlestur um íslensku jólin Terry Gunnell þjóðfræðingur KARLAKÓRINN Þrestir og Karlakór Kópavogs sameina raddstyrk sinn með sameig- inlegum jólatónleikum í Digra- neskirkju í Kópavogi á morgun kl. 16. Flutt verða bæði ný og gömul jólalög frá hinum ýmsu löndum, en með karlakórnum Þröstum koma fram Hrund Ósk Árnadóttir sópran og Alex Ashworth barítón en þau munu einnig syngja hvort í sínu lagi. Stjórnandi Karlakórs Kópa- vogs er Julian Michael Hewlett en undirleikari Natalia Chow. Stjórnandi Karlakórsins Þrasta er Jón Kristinn Cortez og undirleikari Jónas Þórir. Tónlist Kórtvenna í Digraneskirkju Hrund Ósk Árnadóttir Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is BJÖRN M. Sigurjónsson, sviðsstjóri prenttæknisviðs hjá fræðslusetrinu Iðunni, segir það hæpna fullyrðingu að það sé allt að 60% ódýrara að láta prenta bækur erlendis, eins og kom fram í viðtali við Kristján B. Jón- asson, formann Félags íslenskra bókaútgefenda, 12. desember sl. Björn bendir á að bókatitlum prentuðum hérlendis hafi fækkað um 5%, eins og kemur fram í könnun Bókasambands Íslands, um 18 titla frá því í fyrra. Könnun Bóka- sambands Íslands sé takmörkuð að því leyti að hún mæli eingöngu fjölg- un titla en ekki upplag eða magn að öðru leyti. „Hlutfall innlendrar prentunar í heildinni er lægra nú en áður, en fjöldi titla er svipaður. Aukningin er aðallega í barnabókum,“ segir Björn. Hann segist ekki halda að verðmunur á prentun milli Íslands og annarra landa sé mikill, ef borin séu saman sambærileg prentgæði. Varla sambærileg tilboð „Það sem ég er að benda á, varð- andi þessa tölu, 60%, er að það er mjög hæpið að þarna séu full- komlega sambærileg tilboð. Við sjáum það bara þegar við hand- fjötlum bækurnar frá Svíþjóð, það er annars konar pappír í þessu og ann- ars konar frágangur. Það er enginn að segja að þetta sé verri gripur en það er annars konar efni í þessu og við viljum meina það að hérna heima sé verið að nota dýrari og betri efni.“ Björn segir að ef menn slái svona tölum fram verði þeir að styðja það með dæmum eða staðfestum til- boðum. Þangað til sé um óstaðfesta kjaftasögu að ræða. „Ef að við erum að tala um sömu kjaftasögu, við Kristján, þá hleypur þessi 60% mun- ur kannski á hundraðkalli (á ein- tak),“ segir Björn. Þannig sé kannski hægt að finna út þennan prósentumun ef bókin er mjög ódýr og lítið í hana lagt. Björn segir að ekki megi draga þá ályktun að sænskar prentsmiðjur séu almennt að undirbjóða íslenska prentun um 40-60%. Um sé að ræða eina prentsmiðju sem bjóði ódýra prentun og hún sé niðurgreidd um 10% til útflutnings. Gæði þeirra prentgripa séu heldur lítil og Björn minnir á að virðisaukaskattur af inn- fluttum bókum og tímaritum er 7% en virðisaukaskattur af innlendri prentun 24,5%. Þetta sé klárlega ósanngjörn skattlagning og allir sem komi að bókaútgáfu vilji að þetta verði leiðrétt, skatturinn jafnaður út í 7% eða felldur niður með öllu. Komi fyrr til samninga Íslenskar prentsmiðjur geta hæg- lega geta keppt við erlendar, að mati Björns, ekki síst ef útgefendur koma fyrr til samninga á haustin. Hann segir menn ekki mega koma með ágiskanir um mikinn verðmun rétt fyrir jól, þá séu útgefendur að karpa við íslenskar prentsmiðjur og reyna að fá betri tilboð í seinni prentanir söluhárra bóka. Menn innan prent- iðnaðarins hafi þó ekki yfir neinu að kvarta, frá árinu 1998 hafi fjöldi prentaðra titla hér á landi sveiflast frá 320 í 350 sem séu engar miklar sveiflur. Túlka megi könnun Bóka- sambands Íslands á þann veg að þegar frágangur skipti máli fyrir velgengni prentgripsins sé prentað heima. Ábyrgist 40% verðmun Kristján B. Jónasson segist geta ábyrgst að 40% verðmunur geti ver- ið á prenti erlendis miðað við inn- lendan markað. 60% dæmið hafi hann frá mönnum í útgáfubrans- anum. „Auðvitað förum við ekki að nefna tiltekin tilboð enda væri það trúanaðarbrot við viðskiptavini,“ segir Kristján. Útgefendur vilji auð- vitað að íslenskur prentiðnaður standi traustum fótum. Það breyti því þó ekki að verðþróunin hafi ekki verið íslenskum prentsmiðjum nægjanlega í hag. Sviðsstjóri prenttæknisviðs Iðunnar segir prentun ekki færast hratt úr landi 60% verðmunur „kjaftasaga“ Í HNOTSKURN » Kristján B. Jónasson sagði íviðtali í Morgunblaðinu á miðvikudaginn sl. að það væri gegnumgangandi ódýrara að prenta erlendis og ódýrara að gefa út vandað verk nú en nokkru sinni í veraldarsögunni. » Útgáfa barnabóka hefuraukist mikið milli ára sem skýrir að stórum hluta hærra hlutfall titla sem prentaðir voru erlendis í ár. Stríður straumur Bækurnar flæða af færiböndum prentsmiðja þessa dag- ana, þessi mynd reyndar tekin í jólabókaflóðinu 2005. Morgunblaðið/Sverrir BANDARÍSKI myndlistarmaðurinn Jeff Koons mun á næsta ári sýna 12 til 15 af sínum stærri verkum í Ver- sölum í Frakklandi. Líklegt er talið að verk eftir Koons í eigu franska milljarðamæringsins Francois Pi- nault verði meðal sýningargripa, en hann rekur listasafn í Feneyjum, Palazzo Grassi. Umsjónarmaður Versalasafns, Jean-Jacques Ailla- gon, er fyrrum yfirmaður safns Pi- nault. Stefnt er að því að opna sýn- inguna í september á næsta ári og að hún standi til loka nóvember. Hún er hluti sýningaraðarinnar „Versailles Off“ þar sem sýna á samtímalist á lóð hallarinnar. Nokkur verka Koons voru sýnd í Listasafni Íslands fyrir þremur ár- um, hluti af sýningunni „Í nær- mynd“ sem tileinkuð var banda- rískri samtímalist. Koons til Versala Stór og mikil verk sýnd á hallarlóðinni Morgunblaðið/ÞÖK Vinir Verk Koons í Listasafni Ís- lands, Michael Jackson og Bubbles. KONUNGLEGA leikhúsið í York á Englandi hyggst setja allsérstakt heimsmet næsta laugardag; bjóða upp á sýningu með fleiri „lát- bragðsdömum“ en nokkru sinni hafa sést á sviði, sk. „pantomime dame“ eða látbragðsdömur, sem reyndar eru oftast leiknar af körl- um í kvenmannsgervi, með ýktum hætti. Pantomime-sýningar eru vin- sælar á Bretlandi um jólaleytið og þekktir einstaklingar leika oftast í þeim, ekki endilega leikarar. Minna sýningarnar um margt á revíur með látbragðsívafi og lit- skrúðugum búningum, og eiga að höfða til allra í fjölskyldunni. York-leikhúsið býður í ár upp á sýningu um Sinbað sæfara. Öllum er boðið að taka þátt í heimsmets- tilrauninni og mun borgarstjóri York telja „dömurnar“ kl. 12.30. Stefnt að furðu- legu heimsmeti Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „VIÐ pössum okkur á því að vera al- veg hefðbundin,“ segir Jón Stef- ánsson kórstjóri hlæjandi, spurður um hver nýmælin verði á Jóla- söngvum Kórs Langholtskirkju, sem haldnir verða í 30. sinn í kvöld og ann- að kvöld, kl. 20 og 23 bæði kvöldin. „Við verðum þó með tvö alveg ný lög á efnisskránni. Annað er lag sem ég hef hugsað um að hafa með í mörg ár. Maður heyrir það á næstum hverjum einasta sænska jóladiski og það heitir „Hósíanna“. Svo kom hann Bjössi tenór [Björn Jónsson] með lag sem hann er búinn að vera með í mag- anum í mörg ár, „The Story of the Starry Night“, sem Glenn Miller gerði frægt á sínum tíma, en það er byggt á stefi úr 6. sinfóníu Tsjaí- kovskís. Ég byggi kó- rútsetningu mína á út- setningu Glenns Millers, þar sem karl- arnir eru eins og bás- únukórinn – ég var svo heppinn að komast yfir útsetninguna á netinu. Annars eru til fleiri hundruð útgáfur af þessu lagi. En þótt þetta sé jólalag er enski text- inn ekkert sérstaklega jólalegur. Bjössi gerði sjálfur texta sem er al- gjört jóla jóla …,“ segir Jón, en Björn syngur sjálfur einsöng í laginu. Aðrir einsöngvarar á tónleikunum verða Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Bragi Bergþórsson auk söngvara úr röðum kórfélaga, og hljómsveit leikur með að vanda. Auk Kórs Langholtskirkju syng- ur Gradualekórinn. Fyrstu jólasöngv- arnir fóru fram í Landakotskirkju 1978 og voru þá nýmæli hér- lendis. Þessi siður hef- ur nú öðlast miklar vin- sældir og Jón segir að áheyrendur vilji halda í hefðirnar. „Einhvern tíma raskaði ég of miklu og fólk var ekki ánægt og nefndi að það hefði vantað þetta og hitt frá í fyrra. En ef maður skoðar pró- grammið tíu ár aftur í tímann, þá sést talsverður munur. Það þarf að fara rólega í breytingar.“ Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju haldnir í þrítugasta sinn Tsjaíkovskí, Glenn Miller og Bjössi tenór í einu lagi Jólatónar Söngur í Langholtskirkju. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is SKIPULAGSBREYTINGAR í mið- borginni hafa sín áhrif á starfsem- ina sem þar þrífst. Listamanna- húsið Start art sem opnað var á Laugavegi 12 b í mars sl. sér nú fram á breytingar á húsnæðis- málum sínum, en í upphafi var gerður leigusamningur til eins árs um efri hæðina en til tveggja ára um þá neðri. Samningarnir renna út í mars í vor og í mars 2009. Þuríður Sigurðardóttir myndlist- armaður er í forsvari fyrir lista- mennina í Start art: „Sennilega er búið að selja húsið, það er þó ekki fyllilega staðfest. Leigusamningur okkar til tveggja ára um neðri hæð- ina stendur þó. Hönnuðurinn í hópnum er ekki lengur með í sam- starfinu, þannig að eftir stendur einungis myndlist, sem við höldum að sé jákvætt fyrir framhaldið, úr því þetta gekk ekki eins og við ætl- uðum í upphafi. En við horfum björtum augum til framtíðar og ætlum að nýta tímann vel það sem eftir er samningsins.“ Nú í desember stendur samsýn- ing myndlistarmannanna yfir á efri hæð hússins, en hönnuðurinn GaGa Skorrdal er á jarðhæðinni. Um ára- mót lýkur samstarfinu formlega og myndlistarmennirnir flytja aftur niður á neðri hæðina og hafa skipu- lagt sýningar þar fram í tímann. „Við stefnum hátt á því rúma ári sem eftir er, með alls konar metn- aðarfullum sýningum; Rúrí á Listahátíð og sumarsýningu sem ég get ekki sagt frá strax, en það munu margir myndlistarmenn taka þátt í henni með verkum út um all- an bæ. Við stefnum ótrauðar á framhald. Eftir að Kling og Bang er farið af Laugaveginum og Safn á sömu leið, þá er þetta eina galleríið á Laugaveginum sem sinnir metn- aðarfullri samtímalist. Við teljum mjög mikilvægt að samtímalist af þeim toga sem við sýnum hér sé sýnileg,“ segir Þuríður. Breytingar hjá Start- Art á Laugaveginum ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.