Morgunblaðið - 16.12.2007, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.12.2007, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Enn betra golf 3 Enn betra golf Eftir Arnar Má Ólafsson landsliðsþjálfara og Úlfar Jónsson margfaldan Íslandsmeistara og golfkennara Eftir Arnar Má Ólafsson landsliðsþjálfara og Úlfar Jónsson margfaldan Íslandsmeistar a GOLF ENN BETRABETRA G O LF A rnar M ár Ó lafsson og Ú lfar Jónsson 11/20/07 11:46:42 PM Jólabók golfarans! Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson Fæst í helstu bókabúðum og víðar! Verð kr. 3.490,- m/vsk Í Fréttablaðinu 4. desember eru þessi ummæli höfð eftir for- manni Vantrúar: Texti ís- lenska þjóðsöngsins er bara alls ekki boðlegur. Svipuðum skoðunum hefur stundum verið varp- að fram áður, en hljóðnað síðan. Ástæðan er vafalaust sú, að þjóðsöng- urinn á dýpri rætur í þjóðarsálinni, en maður gæti haldið í fljótu bragði. Nær allir kunna hann frá barnæsku og hann vekur sérstakar kenndir hjá flestum Íslendinga. Við berum virð- ingu fyrir honum og okkur þykir vænt um hann. Þjóðsöngurinn þykir erfiður í söng. Þó reyna menn að taka undir, og hver og einn syngur hann með sínu nefi og sínu lagi, sem á annað borð lætur til sín heyra í fjöldasöng. Úr verður margradda þjóðkór. Þetta er mín reynsla og mín tilfinning, þó svo að formaður Vantrúar staðhæfi, að helft- in af 20 þúsund manna hópi á Laug- ardalsvellinum geti ekki sungið þjóð- sönginn vegna trúar sinnar eða trúleysis. Ofsatrú eða ofsatrúleysistrú er erfið viðfangs, af því að hún er blind. Við hana er ekki hægt að rökræða. Og auðvitað er það mistúlkun eða mis- skilningur, að þjóðsöngurinn sé ein- ungis lofsöngur til guðs en ekki lof- söngur til þjóðarinnar og reynslu kynslóðanna. Þjóðsöngurinn er inn- blásið verk, samið til að minnast þús- und ára byggðar í landinu: Íslands þúsund ár stendur þar. Matthías Jochumsson var í heim- sókn hjá skólabróður sínum Sveinbirni Sveinbjörnssyni í Edinborg haustið 1873, þegar hann orti fyrsta erindið. Sveinbjörn var okkar fyrsta tónskáld og hafði lokið fimm ára tónlistarnámi í Kaupmannahöfn. Matthíasi segist svo frá, að hann hafi athugað textann vandlega, en ekki treyst sér til að búa til lag við hann. Loks fór svo fyrir eggjan og áskorun Matthíasar að lag- ið kom um vorið og náði nauðlega heim fyrir þjóðhátíðina 1874. Þetta mun vera fyrsta alvarlega tónsmíð Sveinbjarnar við íslenskan texta. Þannig fundu þessir miklu listamenn hvor annan í þessu verki, þar sem saman fer andleg upphafning kvæð- isins og snilld tónskáldsins. Auk síns listræna gildis hefur þjóðsöngurinn af þessum sökum líka tónlistarsögulegt gildi, sem við skulum ekki vanmeta. Það er ekki hægt að skipta um þjóðsöng. Hann er samgróinn okkur. Um þetta hef ég verið að hugsa, þegar ég les um það, að fræðsla um Jesúm Krist geti orðið börnum hættu- leg ítroðsla – ekki megi nefna nafn hans í skólum eða á barnaheimilum. Nú er það auðvitað svo, að íslensk menning er kristin menning og saga okkar eins og við þekkjum hana eftir að ritöld hófst saga kristinnar þjóðar.Í daglegu máli og bókmenntum okkar eru skírskotanir óskiljanlegar þeim, sem ekki þekkja til biblíunnar. Nokk- ur fræðsla um líf og kenningar Krists er ekki trúboð heldur upplýsing af því að við erum kristin þjóð. Börn nýbúa þurfa líka á slíkri fræðslu að halda, hverrar trúar sem þau eða foreldr- arnir eru, en sinn er siður í hverju landi. PISTILL » Það er ekki hægt að skipta um þjóðsöng. Hann er samgróinn okkur. Halldór Blöndal Íslensk menning er kristin menning Þetta er þess vegna ekki spurning um kristna trú, heldur um það, hvort við, sem nú búum í landinu, viljum gefa börnum okkar og afkomendum tækifæri til að læra og kynnast þeim gildum, sem hafa gert íslenska þjóð að því, sem hún er í dag. Á okkur hvílir sú ábyrgð að skila þeim arfi til næstu kynslóðar. Dæmisöguna af miskunnsama Sam- verjanum hef ég meðal annars í huga, þegar ég segi þetta. Trauðla skemmir neinn að kunna hana. Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Halldór Blöndal les pistilinn HLJÓÐVARP mbl.is SUND er holl og góð hreyfing sem nærir líkama og sál. Skiptir þá einu hvort úti er sumar og sól eða frost og snjór. Sumum þykir betra að halda sig við heitu pott- ana þegar kalt er í veðri eins og við bregður um þessar mundir. Grunnskólakrakkar mæta hins vegar í laug- arnar til að takast á við skólasund. Strákarnir í Kópa- vogslauginni létu veturinn ekki á sig fá og stunduðu stökk af bakka laugarinnar af miklum móð Sundsprettur að vetri Morgunblaðið/Golli „MÉR finnst mikilvægt að sem flestir hafi sam- band við vefinn og mótmæli þessu,“ sagði Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna. Hún var spurð hvað henni þætti um að á leikjavefnum Leikjanet.is hefðu birst auglýsingar með tengli á er- lenda heimasíðu sem sýndi myndir af fáklæddum konum. Margrét María sagði það reynslu sína frá því hún var hjá Jafnréttis- stofu að það hefði mest áhrif að hafa samband við vefina. „Það er mikil- vægt að allir séu vakandi fyrir þessu og komi athugasemdum á framfæri við yfirvöld eins og lögreglu.“ Margrét María sagði það reynslu sína að fyrirtæki sem bæru ábyrgð á vefjum á Netinu hefðu oftast brugð- ist vel við athugasemdum. Umboðsmaður barna sagði og að sér þætti mikilvægt að foreldrar og samfélagið væru vakandi fyrir efni sem þessu og létu í ljósi að svona lag- að væri ekki liðið. Mótmæli mikilvæg Umboðsmaður barna hvetur til árvekni Margrét María Sigurðardóttir HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur dæmt Karl Bjarna Guðmunds- son, betur þekktan sem Kalla Bjarna í Idol stjörnuleit, í tveggja ára fangelsi fyrir tilraun til að smygla tæpum tveimur kílóum af kókaíni inn til landsins. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi ákærða, staðfestir þetta við Morgunblaðið. Að sögn hans er dómurinn í sam- ræmi við dóm Hæstaréttar frá því fyrr á þessu ári í sambærilegu máli, en þá fékk stúlka sem tekin var með tvö kíló af kókaíni í fórum sín- um í Leifsstöð tveggja ára dóm. Sveinn Andri segir skjólstæðing sinn una dómi héraðsdóms og að hann muni ekki áfrýja honum. Hlaut 2 ára fangelsisdóm VEL var tekið undir markmið Íslendinga í lofts- lagsmálum á loftslagsráðstefn- unni á Balí, að sögn Þórunnar Sveinbjarnar- dóttur umhverfis- ráðherra. „Við vorum á sömu línu og Evr- ópusambandið og Noregur og fleiri ríki. Fátækari ríki heims, þróunar- löndin og smáeyjaríkin, voru á því að ríku löndin þyrftu að sýna þetta frumkvæði og sýna á spilin ef svo má segja. Það sem skipti mestu í okkar markmiðum var að fá alla að samn- ingsborðinu. Það tókst og fyrir ligg- ur viljinn til þess að vinna að sam- komulagi um næsta skuldbindingatímabil við loftslags- samninginn sem tekur þá við árið 2013. Til grundvallar liggur leiðsögn vísindanefndar Sameinuðu þjóð- anna. Það er líka mjög mikilvægt að hafa það í huga. Þó svo að hér hafi ekki náðst saman um tölusett mark- mið er mikilvægt að vita að sú leið- sögn liggur til grundvallar.“ Er framtíð loftslagsmála bjartari eftir fundinn á Balí? „Já, það tókst hér að klára það sem ríki heims komu hingað til að gera. Það skiptir öllu. Þetta var reyndar mjög dramatískur og örlagaríkur dagur í dag [í gær] og um tíma hélt maður að þetta myndi ekki takast, en það tókst og það er fyrir öllu.“ Þórunn sagði að þessi niðurstaða kallaði bæði á vinnu og úthald af hálfu Íslands. „Við munum þurfa að leggja okkur fram eins og aðrir. Þetta eru fundahöld, skýrslugerð og annað slíkt sem fylgir svona víðtæku alþjóðasamstarfi. Það mun kalla á að við tökum fullan þátt í því og af fullri alvöru.“ Niðurstaðan á Balí styður við það sem íslensk stjórnvöld hafa þegar ákveðið, að sögn Þórunnar. „Stefnu- mörkun ríkisstjórnarinnar er að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda fyrir árið 2050 um 50-75%. Við erum að vinna aðgerðaáætlun um hvernig það verður gert. Við höldum því áfram og vonum að þetta haldist í hendur. Þetta eru tvö samhliða ferli í raun og veru.“ Markmiðum Íslands í loftslagsmálum vel tekið Þórunn Sveinbjarnardóttir Í HNOTSKURN » Bæði forseti Indónesíu ogframkvæmdastjóri SÞ mættu á fundinn á Balí og hvöttu full- trúa til að ná samkomulagi á ell- eftu stundu. Samt þótti litlu muna að samkomulag næðist. SAKBORNINGURINN sem verið hefur í gæsluvarðhaldi og nú síðast farbanni vegna umferðarslyssins sem varð á Vesturgötu í Reykja- nesbæ í lok nóvember, sætir áfram- haldandi farbanni til 8. janúar sam- kvæmt dómi Hæstaréttar. Í slysinu lést fjögurra ára gamall drengur, Kristinn Veigar Sigurðs- son og stakk ökumaður af frá vett- vangi. Sakborningurinn sem handtek- inn var skömmu eftir slysið, hefur neitað sök um að hafa verið við stýrið á bílnum í umrætt sinn. Í farbanni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.