Morgunblaðið - 16.12.2007, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 16.12.2007, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Hafi nafnið Sulley Muntariekki hljómað kunnuglega ísparkheimum áður munþað örugglega gera það frá og með síðustu helgi. Ganamað- urinn knái, sem slegið hefur í gegn hjá Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni, gerði þá tvö mörk gegn Aston Villa sem bæði munu sóma sér vel í marka- annál ársins. Þar kom allt saman, kraftur, tækni og nákvæmni. „Stjórinn hvetur okkur miðjumenn- ina til að sækja og styðja við bakið á Benji [Benjani Mwaruwari miðherja] eins oft og við getum. Hann vill að við skorum mörk og við erum farnir að taka hann á orðinu. Það var frábært að skora í tvígang og ég var sérstak- lega ánægður með seinna markið. Ég vann boltann og ætlaði að gefa á Benji en þar sem hann hafði opnað vel fyrir mig með því að draga varnarmennina að sér lét ég bara vaða – mér til mik- illar ánægju fór boltinn inn,“ sagði hin örvfætta skytta við heimasíðu Portsmouth eftir leikinn. Bersýnilega hógvær að eðlisfari, hér var nefnilega framúrskarandi vel að verki staðið. Og Muntari hefur tekið ástfóstri við læriföður sinn, Harry Redknapp. „Harry er frábær knattspyrnustjóri og föðurígildi okkar utan vallar. Það er honum að þakka að við leikum svona vel um þessar mundir.“ Æfði með Man. United Sulley Ali Muntari er 23 ára að aldri, fæddur í Konongo í Gana 27. ágúst 1984. Hann var snemma bráð- ger á velli og gegndi lykilhlutverki í landsliði Gana, skipuðu leikmönnum 20 ára og yngri á heimsmeistara- mótinu í Argentínu árið 2001 – enda þótt hann væri aðeins sextán ára. Muntari stóð þar sér eldri köppum á borð við Brasilíumennina Kaká og Adriano og Frakkann Djibril Cissé fyllilega á sporði. Útsendarar evrópskra stórliða héldu ekki vatni yfir piltinum og var honum meðal annars boðið til æfinga hjá Manchester United. Leist mönn- um vel á Muntari í Manchester en Sir Alex Ferguson afréð eigi að síður að semja ekki við hann. Þótti verðmiðinn of hár. Ítalska félagið Udinese lét ekki segja sér það tvisvar og tryggði sér þjónustu Muntaris. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir að- allið félagsins gegn AC Milan á San Siro í nóvember 2002, aðeins átján ára, og fékk glimrandi dóma fyrir frammistöðuna. Eftir það var ekki aftur snúið. Frá og með næsta vetri var Muntari fastamaður hjá Udinese og þreytti hann meðal annars frum- raun sína í meistaradeildinni með lið- inu veturinn 2005-06. Alls skrýddist hann klæðum Ud- inese 125 sinnum og skoraði átta mörk. Muntari naut lýðhylli á Ítalíu og sparkritið Football Italia gekk einu sinni svo langt að lýsa honum sem blöndu af Kaká og Edgar Davids. Hann hefði mýkt þess fyrrnefnda og baráttuþrek Hollendingsins. Ekki amaleg meðmæli það. Fyrirheitna landið Lengi hefur legið fyrir að Muntari stefndi skónum til Englands og sum- arið 2006 lét hann hafa eftir sér að honum fyndist hann vera „týndur“ á Ítalíu eftir að samlandi hans Michael Essien hjá Chelsea hafði leitt hann í sannleikann um lystisemdir ensku knattspyrnunnar. Sá Udinese því sæng sína uppreidda. Muntari var af einhverjum undar- legum ástæðum orðaður við AC Mil- an, Inter og Juventus í kjölfarið og sjálfur lýsti hann aðdáun sinni á Man- chester United. „United er eitt af merkustu félögum Evrópu.“ Það var þó Portsmouth sem sýndi mestan áhuga og talið er að félagið hafi boðið hálfa níundu milljón sterl- ingspunda í leikmanninn í janúar síð- astliðnum. Því tilboði hafnaði Ud- inese. Portsmouth lét ekki deigan síga og varð að ósk sinni í maí en þá var áhugi Roma einnig áþreifanlegur. Kaupverðið var ekki gefið upp en talið er að það sé í kringum tólf milljónir punda sem þýðir að Muntari er dýr- asti leikmaðurinn í sögu Portsmouth. Samið var til fimm ára. Muntari er sollinn af hæfileikum. Um það verður ekki deilt. Það breytir þó ekki því hann hefur þótt ódæll gegnum tíðina. Var t.a.m. rekinn í þrí- gang af velli í fyrstu sextán leikjunum með Udinese í fyrra. Af því tilefni lét knattspyrnustjóri félagsins, Giovanni Galeone, hafa eftir sér að Muntari yrði að hafa hemil á tilfinningum sín- um ætlaði hann sér að komast í fremstu röð. Í ljósi sögunnar brá því engum í brún þegar Muntari var sendur í steypibað í sínum öðrum leik í úrvals- deildinni, gegn Manchester United í ágúst. Það verður þó að segja honum til hróss að síðan hefur hann verið til friðs. Hópferð til Afríku Stíft verður leikið í Englandi um jól og áramót en eftir það hverfur Munt- ari á braut. Þarf að verja heiður þjóð- ar sinnar á Afríkumótinu sem haldið verður í heimalandi hans dagana 20. janúar til 10. febrúar næstkomandi. Muntari verður vitaskuld í liði Gana en hann er burðarás á miðjunni ásamt Michael Essien og Stephen Appiah. Ekki árennilegt þríeyki þar á ferðinni. Og Portsmouth verður fyrir frekari blóðtöku. Nwankwo Kanu og John Utaka verða í liði Nígeríu og Papa Bouba Diop er lykilmaður hjá Sene- gölum. Þá er ekki útilokað að tveir leikmenn til viðbótar verði valdir til þátttöku á mótinu, Malímaðurinn Djimi Traoré og Lauren en Kamer- únar vilja ólmir fá hann aftur í lands- liðið eftir fimm ára fjarveru. Hvor- ugur þessara manna hefur þó gegnt lykilhlutverki hjá Portsmouth í vetur. Hitt er til allrar hamingju víst að Galdrar og gönuhlaup KNATTSPYRNA» »Muntari naut lýð-hylli á Ítalíu og sparkritið Football Italia gekk einu sinni svo langt að lýsa honum sem blöndu af Kaká og Edgar Davids. Ganamaðurinn Sulley Muntari er burðarás á miðjunni í spræku liði Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni og sýndi um liðna helgi að hann hefur eitraðan vinstri fót – senn liggur leið hans á Afríkumótið í Gana Knattspyrna | Ganamaðurinn Sulley Ali Muntari hefur slegið í gegn hjá Portsmouth í ensku úrvalśdeild- inni. Svipmynd | Ef marka má skoðanakannanir gæti repúblikaninn Mike Huckabee kollvarpað fyrri spám og orðið forsetaefni flokks síns. Föst í fréttaneti | Netið er orðið mikilvægur miðill til að komast hjá ritskoðun í Arabalöndunum. VIKUSPEGILL» sjöundi Afríkumaðurinn, Benjani, fer hvergi enda mistókst Zimbabwe að vinna sér sæti í úrslitakeppninni. Er nema von að Harry karlinn Redknapp fórni höndum þessa dag- ana – þrútinn í vöngum. Rök Afríku- þjóðanna eru aftur á móti alltaf hin sömu – „þið vissuð af þessum mögu- leika þegar þið festuð kaup á leik- mönnunum“. Sjálfur er Muntari allur af vilja gerður til að greiða úr flækjunni. Hann hlakkar til að taka þátt í Afr- íkumótinu en beinir þeim tilmælum til umsjónarmanna keppninnar að hún verði framvegis færð fram á sumarið. „Það yrði öllum til hagsbóta ef mótið færi fram að sumarlagi. Þá gætum við leikmennirnir staðið okk- ar plikt bæði hjá félagsliðunum og landsliðunum. Ég trúi ekki öðru en það sé gerlegt.“ Gengi Portsmouth hefur verið von- um framar á yfirstandandi leiktíð. Liðið var í góðu yfirlæti í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar fyrir leiki helgarinnar með 30 stig. Það sem vekur mesta athygli við þennan árangur er að 19 af þessum stigum hafa komið á útivelli en und- anfarin ár hefur bróðurparturinn af stigum liðsins verið dreginn um borð á heimavellinum, Fratton Park. Portsmouth hefur unnið sex úti- leiki í úrvalsdeildinni, fleiri en nokk- urt annað lið, og ef horft er á allar keppnir hefur liðið unnið sigur í sjö útileikjum í röð. Knattspyrnustjórinn, Harry Redknapp, sem er eldri en tvævetur í faginu, er með skýringu á þessu góða gengi á reiðum höndum. Hann hefur stuðst við leikkerfið 4-5-1 og sagt sínum mönnum að halda knett- inum! Að spila fótbolta „Takist okkur að halda knettinum erum við á grænni grein. Þannig forðumst við pressuna. Í flestum leikjum erum við með aukamann á miðjunni og við höfum fært okkur það í nyt. Við höfum æft þetta stíft í haust – að halda boltanum og tapa honum ekki á vondum stöðum. Við einbeitum okkur að því að spila fót- bolta,“ sagði Redknapp í samtali við heimasíðu Portsmouth í vikunni. Hver segir svo að knattspyrna sé flókin íþrótt? Haldið knettinum! Reuters Stjórinn Harry gamli Redknapp hef- ur sannarlega ráð undir rifi hverju. » Aðstæður þarna eru þaðflóknar og erfiðar að menn ættu ekki að vera að reyna að nota það til að slá sig til einhvers riddara á Íslandi. Árni Páll Árnason , varaformaður utanrík- ismálanefndar, um það hvort Íslendingar ættu að viðurkenna sjálfstæði Kosovo eftir að Kosovo-Albanar lýsa yfir sjálfstæði, en hann telur að Alþjóðasamfélagið verði að taka á málinu. » Sá sem ætlar að synja Kos-ovo um sjálfstæði er þá í raun og veru að þvinga þá í ríkja- sambúð sem byggist á ofbeldi. Jón Baldvin Hannibalsson , fyrrverandi utanríkisráðherra, um afstöðu sína til sjálfstæðis Kosovo. » Íslendingar hafa enga þásérstöðu sem skilur okkur frá skyldum í samfélagi þjóð- anna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanrík- isráðherra á málþingi Háskólans á Ak- ureyri um mannréttindi í utanríkisstefnu Íslands. » Það er alltaf varasamt þegarskólar eða stofnanir eru áskrifendur að skjólstæðingum án þess að þurfa að hafa fyrir neinu. Margrét Pála Ólafsdóttir , leikskólastjóri og höfundur Hjallastefnunnar, m.a. um ástæður þess að frammisöðu íslenskra grunnskólanema í lestri hefur hrakað frá 2000 og almennt reyndist Ísland undir meðallagi samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA-könnunar á námsárangri 15 ára unglinga í löndum OECD. » [En] það hagnast enginn áþví að það finnist lækning við mænuskaða. Auður Guðjónsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, þegar Mænuskaðastofnun Íslands tók til starfa fyrir tilstuðlan hennar og dóttur hennar Hrafnhildar Thoroddsen. » Það er oft þegar hljóm-sveitir eru að koma saman aftur á gamals aldri að þær eru sagðar frábærar miðað við ald- ur. En þetta var bara frábært. Kári Sturluson , sem var á tónleikum Led Zeppelin í O2 Arena í Lundúnum, en þeir voru þeir fyrstu í fullri lengd frá því hljómsveitin ætti störfum 1980. » Þetta er náttúrlega ekkertannað en stríðsyfirlýsing. Elías Þorvarðarson , framkvæmdastjóri leikfangaverslunarinnar Just4Kids, boð- aði 30-80% verðlækkun á öllum leik- föngum verslunarinnar og kvaðst gera ráð fyrir að þurfa að greiða með vörunum. » Ekkert land er eyland –allra síst þegar kemur að loftslagsmálum. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverf- isráðherra í ræðu á ráðherrafundi lofts- lagssamnings Sameinuðu þjóðanna á Balí í Indónesíu. » Gagnrýni er ekki að-finnslupistill. Margrét Bóasdóttir , formaður Félags ís- lenskra tónlistarmanna, á málþingi Morg- unblaðsins um gagnrýni, Rýnt til gagns. Ummæli vikunnar Reuters Leikkonan Uma Thurman og Al Gore, fyrrv. varaforseti Bandaríkj- anna , faðmast þegar Gore tók við friðarverðlaunum Nóbels í Osló. AP Öflugur Sulley Muntari glímir við Cristiano Ronaldo í haust. Báðum var þeim vikið af velli í leiknum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.