Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 22

Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 22
Hugmyndin að þessari bókkom fram strax í vikunnieftir 20. september og égeinhenti mér í hana; byrjaði 1. október og skrifaði hana á einum og hálfum mánuði. Það er rétt að taka fram, að þegar bókin, Aðgerð Pólstjarna, rannsókn skútumálsins í Fáskrúðsfirði, kemur út er rannsókn málsins ekki lokið og engin ákæra hefur verið gefin út.“ – Hefurðu heyrt að bókin sé of snemma á ferðinni? „Já, ég hef heyrt raddir í þá veruna. En ég sé engan mun á bók- inni og almennum fréttaflutningi af málinu. Þessi bók er fréttaskrif, ef blaðamaður hefði haft til þess tíma þá hefði hann unnið málið svona.“ – Þetta er þá upplögð fréttaskýr- ing í sunnudagsblaðið! Ragnhildur Sverrisdóttir var til skamms tíma blaðamaður á Morgunblaðinu og starfaði síðast á sunnudagsritstjórn- inni. Hún hlær bara, segir bókartext- ann eflaust of langan fyrir sunnu- dagsblaðið. „En það má náttúrlega alltaf stytta,“ segir hún og glottir. „Í bókinni rek ég ekki aðeins Að- gerð Pólstjörnu, heldur geri ég líka almennt grein fyrir vinnubrögðum fíkniefnalögreglunnar og aðstæðum á fíkniefnamarkaðnum. Þessu efni ætla ég að vera til fyll- ingar og skýringar og til þess að sýna í hvernig umhverfi hlutirnir gerast.“ Einkaframtak, eitt af mörgum – Er þetta mál angi skipulagðrar glæpastarfsemi á Íslandi? „Það vantaði ekki skipulagninguna í þetta mál, hvorki hjá afbrotamönn- unum né lögreglunni! En nei, þetta er íslenzkt einkaframtak, eitt af mörgum.“ – Það ganga oft sögur um það að fjársterkir framkvæmdamenn standi á bak við fíkniefnainnflutning. Hvað segir þú? „Fíkniefnainnflutningurinn sam- anstendur af mörgum atvikum og skútan í Fáskrúðsfirði er bara eitt þeirra, reyndar umfangsmeira og í fjölbreyttari kantinum hvað atburða- rásina varðar. Magnið sem keypt var í ferðinni kostaði 10-15 milljónir króna. Það stendur lítið í vönum mönnum að afla þess fjár. Það er með ólíkindum hvað menn eru fúsir til að leggja fram fé, þegar allt að 300% ávöxtun er haldið að þeim. Og þótt menn megi vita hvað er í gangi, þá vilja margir ekkert af því vita. Í þeim mörgu málum sem lög- reglan hefur upplýst hefur aðild ein- hverra hvítflibba aldrei komið upp á borðið. Ég hallast helzt að því, að þessar sögur sem þú talar um eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.“ – Þú segir í bókinni að efnið sem tekið var í skútunni í Fáskrúðsfjarð- arhöfn nái ekki 4% af ársneyzlunni á Íslandi. Það er þá ýmislegt annað í gangi. „Ég miða við, að SÁÁ hefur álykt- að að heildarinnflutningurinn á am- fetamíni geti numið um 640 kílóum árlega. Þá má áætla að viðskipti með am- fetamín nemi hátt í 3 milljörðum króna á ári og eru þá þar fyrir utan önnur efni; e-töflur, kannabisefni, LSD og kókaín. Nærri má geta, að þessar háu töl- ur eru óprúttnum mönnum mikil freisting og því margt í gangi til þess að koma fíkniefnum á markað. Það hefur orðið gífurleg aukning á neyzlu e-taflna og amfetamíns sem skemmtiefna. Það eru ekki svo mörg ár síðan ég var að skrifa fréttir um þetta 700 e-töflur og fólk tók andköf yfir magninu, sem hlyti að duga ís- lenzka markaðinum von úr viti. Nú notar fólk þetta til þess að hafa út- hald í skemmtun helgarinnar og stærsti hlutinn lítur ekki á sig sem fíkniefnaneytendur eða tengdan fíkniefnaheiminum.“ Umfangið kom mest á óvart – Hvað kom þér mest á óvart, þeg- ar þú fórst að skrifa Aðgerð Pól- stjörnu? „Síðan lögreglan, fyrir áratug, lagði aukna áherzlu á að ná til inn- flytjenda og stærri dreifingaraðila hefur hún fengið fisk á öngulinn í hverju því máli sem hún hefur lagt upp með. Þessi mál eru mun erfiðari, tíma- frekari og umfangsmeiri en þegar um smærri seljendur fíkniefna er að ræða. Aðgerð Pólstjarna er af stærri sortinni, en þegar ég kafaði í málið kom umfang þess mér mjög á óvart; bæði sá tími sem rannsóknin tók og ferðalög lögreglumanna fram og aft- ur til þess að kortleggja ferðir hinna grunuðu. Sá leikur barst um Dan- mörku, Þýzkaland, Holland, Noreg, Færeyjar og Ísland. Máltækið segir að þjóð viti þá þrír vita, en þrátt fyrir allt þetta umfang tókst lögreglunni að vinna þannig að ekkert lak út um málið. Það eitt er afrek út af fyrir sig, því þetta var ótrúlega stór aðgerð og á lokasprettinum voru heilu her- skipin undir.“ – Hvernig byrjaði Aðgerð Pól- stjarna? „Hún byrjaði eins og svo margar aðgerðir aðrar á því að eitt orð féll hér og annað þar, lögreglan hélt þessu til haga og smám saman bætt- ust fleiri hlutar í myndina. Þegar aðalmennirnir tveir voru fundnir rifjaðist upp að annar þeirra átti í félagi við bróður sinn í Noregi skútu sem heitir Lucky Day. Hún kom til Fáskrúðsfjarðar í september 2005. Lögreglan vissi ekki af Lucky Day fyrr en skútumennirnir voru farnir og leit þá bar engan árangur. Skútan hvarf svo á brott um miðjan maí 2006 jafn fyrirvaralaust og hún kom. Það að lögreglan skyldi nefna aðgerðina nú Pólstjörnu sýnir að þar á bæ hefur menn snemma grunað að nú ætti að endurtaka leikinn frá 2005 og því leitt þessa leiðarstjörnu sæ- farenda til öndvegis.“ – En nú var fylgzt með þeim grunuðu út um víðan völl. „Hér heima voru menn hleraðir og vaktað svo að segja hvert þeirra fót- mál. Aðalmennirnir tveir fóru marg- ar ferðir til útlanda; oft til Danmerk- ur og þaðan niður til Hollands og alltaf fylgdist lögreglan með þeim. Þeir voru hleraðir og fylgzt með ferð- um þeirra. Íslenzkir lögreglumenn mega ekki athafna sig á erlendri grundu, en starfsbræður þeirra hjálpuðu þá til og þeir íslenzku fylgd- ust með. Þetta lögreglusamstarf er flottur kafli í þessari rannsókn. Það er með ólíkindum, hvað lög- reglan gat fylgzt náið með þeim fé- lögum, sem grunaði aldrei, þegar þeir fóru til dæmis á veitingastað, að maðurinn á næsta borði sem saup sitt kók í rólegheitum væri í raun lögreglumaður að fylgjast með þeim! Það er líka athyglisvert hversu staðföst lögreglan var í rannsókn- inni, þótt þeir tímar hafi komið að efasemdir gátu sótt að mönnum. Þannig var það í júní og júlí, þegar hinir grunuðu lögðu af öll ferðalög til útlanda en héldu sig heima og sinntu sínu daglega stússi eins og ekkert annað væri í spilunum. Þá þurfti mikla þolinmæði til þess að halda rannsókninni á floti.“ Lá við árekstri út af Austfjörðum – Er það svo, að fíkniefnin hafi ver- ið keypt í Hollandi, flutt til Dan- merkur og sett þar um borð í skútu, sem var leigð í Noregi og siglt til Ís- lands? „Já, sennilega var þetta svona. Hins vegar er ekki ljóst, hvort þeir settu efnin um borð í skútuna í Dan- mörku. Skútan var ekki vöktuð alltaf eða allar nætur.“ – Af hverju var Lucky Day ekki notuð aftur? „Sennilega hafa þeir ætlað að gera það. En þegar til kom var meðeig- andinn í Noregi ekki fús til að lána hana til langferðar. Bróðir hans ætl- aði ekki að sigla skútunni sjálfur og hann hafði haft ýmsan ama og út- gjöld af fyrri ferðinni. Lausnin varð svo að leigja skútu af norsku fyrirtæki.“ – Hvernig gekk siglingin til Ís- lands? „Það voru ekki kaupendurnir sjálf- ir, sem sigldu skútunni til Íslands, heldur aðrir tveir, sem til þess feng- ust. Þeir fengu brjálað veður frá Hjaltlandi til Færeyja, þar sem þeir gerðu nokkurn stanz, sem var reynd- ar að gera löggæzluna gráhærða, því við Færeyjar beið danskt herskip til þess að fylgjast með skútunni til Ís- lands og fyrir Austurlandi beið varð- skipið Ægir þess að fylgjast með henni síðasta spölinn. Austfirzkir línusjómenn veltu því fyrir sér hvað Ægir væri að dóla þarna á miðunum hjá þeim dag eftir dag. Varðskips- menn fóru reyndar um borð í nokkra báta, en aðallega vomaði varðskipið í kringum miðin. En svo kom skútan. Þeir sigldu nær ljóslausir og mátti reyndar litlu muna að ferðin endaði úti fyrir Austfjörðum því þeir sigldu þvert fyrir einn línubátinn og aðeins snarræði skipstjóra hans forðaði árekstri.“ – Og í Fáskrúðsfjarðarhöfn voru skúta og menn teknir? „Já. Og þar var reyndar mjótt á munum, því þeir höfðu skútuna í gangi meðan þeir tylltu sér á bryggjupollana og biðu mannsins, sem átti að sækja efnið. Þegar sérsveitarmennirnir geystust fram á bryggjuna losuðu skútumenn landfestar, hentust um borð og hugðust sigla frá. En sérsveitarmenn stukku um borð til þeirra og yfirbuguðu þá. Það kemur fram í þessum Fáskrúðsfjarðarkafla að lögreglan notaði nætursjónauka, sem sýna allt í grænu. Þarna sátu skútumennirnir á bryggjunni og höfðu ekki hugmynd um öll þau augu sem fylgdust með þeim í grænum heimi. Þetta finnst mér dálítið kúl!“ – Talaðir þú við lögreglumenn eða grunaða? „Þegar ég byrjaði á bókinni voru þeir grunuðu meira og minna í einangrun. Satt að segja sá ég engan tilgang í því að tala við þá. Hins vegar átti ég samskipti við lögreglumenn og þeir voru fúsir til þess að gefa mér almennar upplýs- ingar um vinnubrögð sín og ýtarlegri upplýsingar um ýmislegt, sem fram var komið, en svo lokuðust þeir alveg og ég varð eiginlega að ráða í þögnina og glottið. Viðkvæðið var að þeir gætu ekki tjáð sig um mál í rannsókn. Ég hugsa að lögreglan vildi helzt að engin bók væri skrifuð um málið fyrr en búið er að fella dóm í því. Þetta er ekki illa meint. En ég hélt mínu striki; svona er staða málsins, þegar ég skrifa bókina eftir beztu fáanlegu heimildum á þeim tíma.“ – Þú notar nær undantekninga- laust aðeins fornöfn manna. „Já. Undantekningarnar sem sanna regluna eru nöfn tveggja lögreglumanna. En ég nota aðeins fornöfnin, því einstaklingarnir eru ekki aðalatriðið, heldur þeir heimar sem bókin lýsir.“ Morgunblaðið/Ómar Snögg Ragnhildur Sverrisdóttir segist ekki sjá neinn mun á því að skrifa bók eða væna fréttaskýringu í blað. Hundrað augu í grænum heimi „Nú tökum við þá, strák- ar!“ var skipað út í morgunmyrkrið á Fáskrúðsfirði 20. september sl. Þar með hófst lokaatriði Aðgerðar Pólstjörnu, sem hafði staðið í tíu mánuði og lauk með handtökum og upptöku á 24 kílóum af amfetamíni, 14 kílóum af e-töfludufti og 1800 e- töflum. Ragnhildur Sverrisdóttir hefur skrif- að bók um málið og Freysteinn Jóhanns- son ræddi við hana. … lögreglan gat fylgzt náið með þeim félögum, sem grunaði aldrei, þegar þeir fóru til dæmis á veitingastað, að maðurinn á næsta borði sem saup sitt kók í rólegheitum væri í raun lögreglumaður að fylgjast með þeim! freysteinn@mbl.is daglegtlíf |sunnudagur|16. 12. 2007| mbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.