Morgunblaðið - 16.12.2007, Side 23
hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 23
F
yrirsögnin á þessari
grein er kannski svo-
lítið misvísandi. Hér
er ekki ætlunin að
fjalla um bankareikn-
inga eða hlutabréfasjóði sem
margir telja mál málanna um þess-
ar mundir heldur annars konar
banka eða sjóði sem stundum eru
kallaðir reynslubankar eða sjóðir
minninganna. Á okkar hraðfleygu
stund virðast þessar haldgóðu
geymslur ekki njóta sannmælis,
a.m.k. er ekki oft um þær talað
nema helst í lífsreynslusögum eða
játningabókum sem eru fyrirferð-
armikil söluvara fyrir jólin. En
þær innistæður sem hér verða til
umfjöllunar eru mikilvægari en svo
að þær geti gengið kaupum og söl-
um.
Eitt sinn heyrði ég sögu af ní-
ræðum manni sem var andlega
hress en fylgdi ekki lengur fötum
vegna aldurs og sjúkleika. Þegar
hann var inntur eftir því hvernig
hann léti tímann líða sagðist hann
rifja upp með sjálfum sér ljóð sem
hann hefði lært í æsku. Þetta voru
m.a. verk þjóðskáldanna okkar,
Jónasar, Gríms Thomsens og Dav-
íðs Stefánssonar en hrynjandi
þeirra og formfegurð höfðu
greypst honum í minni þannig að
hann mundi þau orðrétt. Að við-
bættri ríkulegri lífsreynslu gamla
mannsins hafði inntak þeirra öðlast
dýpra gildi og orðið innistæða,
ómetanleg að vöxtum.
Vitaskuld hafa ekki allir sama
stálminni og heiðríkju hugans og
þessi maður en þess ber þó að geta
að báða eiginleikana er unnt að
rækta, þeir eru ekki föst stærð
sem menn fá fyrirhafnarlítið fyrir
tilstilli heppilegra arfbera. Hins
vegar virðist hvorugur þeirra þríf-
ast vel nú um stundir. Eftir því
sem upplýsingatækninni hefur
fleygt fram hafa okkar eðlislægu
minnisgeymslur glatað hlutverki
sínu að miklu leyti og eftir því sem
hvers konar tilboð á afþreyingu
eykst höfum við sjaldnast næði til
að hvíla hugann. Fyrir vikið verða
minningarnar stopulli og fólk hirð-
ir lítt um að vinna úr fenginni
reynslu og öðlast andlegt jafnvægi.
Að sjálfsögðu verður hjóli tím-
ans ekki snúið við og varla er
hægt að hugsa sér heiminn án
þeirrar upplýsingatækni sem við
höfum vanist. Og við sem höfum
aðgang að allri þeirri menningu
sem okkur lystir látum okkur að
sjálfsögðu ekki nægja gamlan
kveðskap þótt góður sé. Samt eig-
um við að huga að okkar eigin
innistæðu, leggja á minnið það
sem okkur þykir markvert, enda
þótt auðvelt sé að finna það á
næstu leitarvél. Þegar við höfum
vistað hana þar, getur hún borið
vexti með því að laða fram nýjar
hugmyndir og frjóvga ímyndunar-
aflið þannig að okkur líði vel í eig-
in félagsskap. Það sama gildir um
eigin reynslu, jafnvel þótt hún
sýnist dapurleg. Með því að skoða
hana vel og draga af henni lær-
dóma ber hún ríkulegan ávöxt sem
er óháður öllum sveiflum á gengi
og verðbréfamörkuðum.
Þar á hver heima sem hans
sjóður er, segir gamall málsháttur
og um það verður vart deilt að
dýrmætasti sjóður hvers manns er
sá sem hann geymir í huga og
hjarta. Megi aðventan og jólahá-
tíðin auka við þá innistæðu sem
þar er fyrir.
Að eiga
sér innistæðu
Guðrún Egilson
Hárgreiðslustofan
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Meindl
Colorado GTX
Jólatilboð
17.900 kr.
verð áður 19.900 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
35
20
0
11
/0
6
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega
hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349
eða á netfangið maedur@simnet.is.
Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hátúni 12b.
Málningarvörur ehf. | Lágmúla 9 | Sími: 581 4200 | malning@malningarvorur.is | www.malningarvorur.is
Gjöf sem slær í gegn hjá þeim sem eiga fínan bíl og vilja hafa
hann eins glæsilegan og nokkur kostur er.
Meguiar´s er eitt þekktasta merki heims þegar valið stendur
um það bezta sem á boðstólum er.
Frábær gjöf fyrir bílaáhugamanninn.
RAUÐHELLA 5 HAFNARFIRÐI
Nýtt og mjög vandað 250 m² atvinnuhúsnæði á framtíðarstað.
Stór innkeyrsluhurð, góður möguleiki á að bæta við annarri
innkeyrsluhurð og skipta plássinu.Hiti í gólfum. Aðrar lagnir
komnar inn. Málað að utan og innan. Óvenju stórt, malbikað
og fullfrágengið útisvæði. Tilbúið til afhendingar. Teikningar á
skrifstofu. Allar upplýsingar veitir : Halldór Svavarsson í
síma 897 3196 eða halldor@firmus.is