Morgunblaðið - 16.12.2007, Side 29

Morgunblaðið - 16.12.2007, Side 29
Fréttir á SMS stafar meðal annars af því að ég málaði allar þessar Maó-myndir á tímabilinu 1972 til 1974, tveimur ár- um áður en Maó dó. Þetta vita Kín- verjar mætavel og hafa sett mig inn í samsýningar með þessum nýju málurum – sem varla voru sumir fæddir þegar ég var að mála þessar myndir.“ Ertu mikið að mála um þessar mundir? „Ég hef ekki haft nógan tíma til að vinna undanfarna mánuði vegna sýninganna, það hefur verið of mik- ið á seyði.“ Kemur þú oft til Íslands? „Ég hef ekki komið í mörg ár. Nú kem ég sem sagt í janúar en ég ætla líka að koma aftur í vor með vinum mínum, fólki frá nútímasafninu í Montreal í Kanada. Það fólk ætlar að halda sýningu með myndum eftir mig og Yoko Ono sem ber yfirskrift- ina: Stríð og friður. Ég verð fulltrúi stríðsins – og Yoko sér um friðinn. Þetta tengist eitthvað sögu Yoko og Johns Lennons. Fyrrgreint fólk kemur með mér til að velja á sýn- inguna pólitísk verk eftir mig sem varðveitt eru hjá Listasafni Reykja- víkur.“ Ertu í miklu sambandi við Íslend- inga? „Nei, nema hvað ég er í sambandi ættingja og við Gunnar Kvaran á hverjum degi. Þetta eru nánast í einu skiptin sem ég tala íslensku. Okkur Gunnari finnst ágætt að hafa leynitungumál. Ég get sagt þér að Gunnar Kvaran er talinn einn merkilegasti safnstjóri í Evrópu núna í hópi þeirra sem til slíkra mála þekkja. Það er mjög ánægju- legt. Hann hefur sett upp merki- legar sýningar og farið víða, m.a. til Kína og Bandaríkjanna til að leita að verkum á sýningar og nú er hann að undirbúa sýningu á indverskum nútímaverkum.“ Hvernig líður þér í París? „Mér líður vel þar en oft er ég ekki þar vegna ferðalaga. Ég hef góða vinnustofu í París en ekki nægilega mikla ró og næði – ég hef æ meira gaman af að vera úti í nátt- úrunni, ganga þar um.“ Ert þú markaður af þínu æsku- umhverfi? „Ég er ekki viss um það. Ég held að náttúran á Klaustri hafi hjálpað mér mikið, einkum líkamlega. Ég drekk enn lýsi á hverjum morgni. Ég geng t.d. ekki með gleraugu ennþá, lýsið heldur mér uppi og það er arfur frá Klaustri, alla ævi mína hef ég tekið lýsi þegar hægt er.“ Hvað með fjölskylduhagi? „Ég á eina dóttur með Bat Yosef, dóttir mín heitir Tura og hún á eina dóttur sem heitir Louise sem er níu ára gömul. Tura er læknir í miðborg Parísar, í latínuhverfinu, og gengur mjög vel. Konan mín sem heitir Veilai á eina dóttur, hún er 35 ára, hún er flugfreyja og býr í Taílandi. Ég hef talsvert samband við systkini mín, Gyðu sem býr í Reykjavík og strákana Lárus og Kristin og líka Ara Trausta sem er samfeðra mér.“ Hvers konar verk ertu mest að mála núna? „Ég vinn alltaf í syrpum og nú er ég búinn að vinna mikið í kringum stríðið í Írak, stórar myndir og líka um brottför Bandaríkjanna frá Írak.“ Að svo mæltu var Erró farinn úr símanum með það loforð á vörum að gefa mér sýningarskrá og gerði mér að auki kurteislegt boð um að hitta hann hinn 19. janúar þegar hann áritar þessa listaverka- og ævi- sögulegu bók; Erró í tímaröð – líf hans og list. Til gamans gat hann þess að dagsetninguna valdi hann með tilliti til þess að hann er fæddur 19. dag mánaðar. En hann er ekki vetrarbarn heldur sumarbarn – fæddur í júlí. Nýjustu fréttir af Erró herma að nýlega hafi verið selt listaverk eftir hann úr Scape-seríunni hjá Sothbýs á rösklega 80 milljónir íslenskra króna. Ég hef góða vinnustofu í París en ekki nægilega mikla ró og næði – ég hef æ meira gaman af að vera úti í náttúrunni, ganga þar um. framtíðinni! MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 29 x13 GPS Garmin Forerunner 305 Fullt verð 29.990 kr. Safnkortshafar borga aðeins 16.990 kr. auk 1000 punkta Frábært æfingatæki. Forerunner æfingatölvan er hönnuð jafnt fyrir byrjendur og atvinnumenn. Tölvan fylgist stöðugt með púlsinum, hraðanum, vega- lengdinni og kaloríubrennslunni. Frábær jólagjöf. Tilboðið gildir til 31.01. 2008 eða á meðan birgðir endast. Safnkortstilboðin fást á þjónustustöðvum N1 og í verslun N1 Bíldshöfða 9. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Opið frá kl. 13-18 Afsláttur af jökkum Pólýfónfélagið Pólýfónkórinn Tónmenntasjóður Ingólfs Upptaka úr tónleikaferð Pólýfónkórsins til Spánar1982 Messa í h-moll eftir J.S.Bach, upptaka í Háskólabíói frá 1985 Einfaldur diskur með Þjóðsöngnum, köflum úr Eddu-óratoríu Jóns Leifs, tónlist eftir Buxtehude, Händel og loks Gloríu eftir Francis Poulenc. Pólýfónkórinn, þrír einsöngvarar og Kammersveit Reykjavíkur. Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson. Tveir diskar með heildarflutningi á messu í h-moll eftir J.S.Bach. Pólýfónkórinn í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Íslands og fjóra þekkta, erlenda einsöngvara. Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson. Hverjum seldum diski fylgir álímt happdrættisnúmer. (Geymið það vel) Vinningur í happdrættinu er námsstyrkur frá Tónmenntasjóði Ingólfs að upphæð 1.000.000 (ein milljón króna). Dregið verður í happdrættinu á fimmtíu ára afmælishátíð Pólýfónkórsins næsta vor. Geisladiskarnir fást í verslunum Pennans-Eymundson í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri; einnig í öllum verslunum Skífunnar, í Tólf Tónum og hjá nokkrum félögum í Pólýfónfélaginu. Nánari upplýsingar um dreifingu og sölu diskanna má fá í símum 5656799 - 8477594 (Ólöf) og 5530305 - 8640306 (Guðm.G.), og á vefsíðu Pólýfónfélagsins www.polyfon50.is eða á netf: polyfon50@gmail.com. M b l 9 48 82 6 Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardag 10-18 sunnudag 11-17Opið Allt það fína frá Kína ATH! Þú greiðir aðeins fyrir dýrari hlutinn • Vasar • Diskar • Lampar • Pottar • Myndir o.m.fl . 2 fyrir 1 Tilboð á kínversku m listmunum til jóla O ið mánudaga til sunnudaga kl. 10-20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.