Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 30

Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 30
ferðalangar 30 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Þ að er enn dauflegt um að litast þeg- ar komið er í flugstöð Leifs Eiríks- sonar um sjö að morgni. Þess var nýlega getið í erlendu blaði að Ís- lendingar væru afar duglegir að versla og myndaðar fjölmargar ferðatöskur í geymslu því til sönnunar. Gengi dollars er nú lágt miðað við íslensku krónuna. „Það er svo hagstætt að versla vestra að fólk kemur heim með allt upp í átta töskur fullar af fatnaði sem það hefur keypt,“ sagði kona við mig um daginn og flugfólk sem rætt var við sagðist á þeirri skoðun að óvenju mikið væri keypt af vörum í Bandaríkjunum. Það er því kannski ekki að ófyrirsynju að ættingjar og vinir bíði komufólks með nokk- urri óþreyju að því er virðist, sumir halla sér þó rólegir upp að súlum eða ganga um og jafn- vel líta í blöðin. Íslendingar hafa lengi verið spenntir fyrir vörum frá útlöndum. Meira að segja í fornsög- unum sér þessa stað. Í Laxdælu er til dæmis fræg fatnaðarsaga: „Þær Þuríður ok Hrefna hafa þá mjök brotit upp ór kistunni. Þá þrífr Hrefna upp motrinn ok rekr í sundr; tala þær um, það þat sé in mesta gersemi. Þá segir Hrefna, að hon vill falda sér við motrinn. Þur- íður kvað það ráðligt, ok nú gerir Hrefna svá.“ Það reyndist alröng ályktun hjá Þuríði að ráð- legt væri að Hrefna setti á sig moturinn, sem var fágætur hvítur höfuðdúkur. Hann og ásta- málin honum tengd ollu blóðugum dauða þeirra fóstbræðra Kjartans og Bolla. Nú opnast hinar rafknúnu dyr og fyrstu ferðalangarnir koma út. Mjög misjafnt er hversu mikið hver og einn er með en aug- ljóslega gætu leynst mjög margir motrar í töskum, pokum og pinklum fólksins – fáir virð- ast ferðast mjög létt þessa dagana. Ef víga- ferli yrðu út af öllum þeim fatnaði sem tösk- urnar geyma myndu sennilega fáir Íslendingar verða uppistandandi til að halda heilög jól. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins fara á stjá. Einhverra hluta vegna virðist fólk ófúst til að koma fram undir nafni. Nokkrar vinkonur sem neituðu að ræða við blaðamann voru á svipinn einsog þær hefðu verið staðnar að einhverju sem ekki má. Ein sagði þó yfir öxlina að hún hefði verið að kaupa jólagjafir og gert góð kaup. Ungur maður sagði brosandi að það hefðir verið gaman að fylgjast með þeim og öðrum kvennahópum spjalla meðan þær biðu eftir öllum töskunum sínum. Á ferð í flugstöð Leifs Jólainnkaupin eru mál málanna núna. Vegna hagstæðs gengis- munar krónu og dollars fara margir til Bandaríkjanna að versla. Guðrún Guðlaugsdóttir sat fyrir ferðalöngum og ræddi við þá, sem og flugþjón og yfirmann tollgæslu Suðurnesja Morgunblaðið/Ómar Farangurinn ferjaður Ferðalangar fara með hlaðnar kerrur í gegnum Leifsstöð. Meðal þeirra ferðalanga semtóku í mál að ræða viðblaðamann var Ingólfur Margeirsson rithöfundur. „Við hjónin erum að koma úr fjölskylduferð en óneitanlega höfð- um við í bakhöndinni að kaupa vörur, þar á meðal jólagjafir, í ferðinni,“ segir Ingólfur. „Talandi um jólagjafir þá á ég þrjá krakka og barnabörn í Noregi og ég keypti fyrir þau jólagjafir vestra og sendi þaðan til Noregs. En við Jóhanna Jónasdóttir konan mín vorum í þessari ferð að heim- sækja Höllu Björgu dóttur hennar og barnabörn okkar. Halla Björg er ljósmóðir og býr í New Haven og tekur þar á móti amerískum krökkum en maðurinn hennar Hjalti Þórisson er í sérfræðinámi í röntgenlækningum við Yale-háskólasjúkrahúsið. Þau eiga þrjú börn. Það var yndislegt að heimsækja þau, þar sem þau búa í litlu þorpi rétt utan við New Haven sem líkist afar mikið Oxford, en við Jóhanna bjuggum í nágrenni þeirrar frægu borgar fyrir nokkrum árum og fór- um oft þangað í heimsókn. Ég kíkti aðeins á Yale-háskólann og hann minnir mjög mikið á sam- bærilegar stofnanir í Oxford og mér er sagt að sömu sögu sé að segja um Harvard-háskólann í Massachusetts.“ En hvernig fannst ykkur hjónum að versla á þessum slóðum? „Þarna eins og alls staðar í Am- eríku allt morandi í stórverslunum, mollum. Maður dróst inn í þetta og það sem sló mann fyrst var hið lága verð, sama hvort var á mat eða öðrum vörum. Maður fyllist undrun hvað verðið er lágt þarna – og svo fyllist maður reiði yfir að hafa ekki eitthvað svipað vöruverð hér á Íslandi. Svo bætist við að nú er sérlega hagstætt gengi á ís- lensku krónunni gagnvart doll- aranum. Bandaríkjamenn virðast hafa minnkað mjög jólagjafakaup og útgjöld fyrir jólin, fyrir því er mikill áróður núna, Billy Graham er m.a. í herferð gegn þessari jóla- neyslu sem þarlendis hefur lengi viðgengist. Búðareigendur hafa brugðist við með því að halda út- sölur í verslunum sínum fyrir jólin. Í mörgum búðum sem við komum í var verið að bjóða 30-40% afslátt á allskonar vörum, fatnaði meðal annars.“ Og keyptuð þið mikið? „Þetta gerir það að verkum að maður missir sig svolítið, ég missti mig bæði í bókabúðum og fatabúð- um og grét það helst að mega ekki hafa meiri þyngd með mér hingað til Íslands en raun ber vitni, en lík- lega færu flugvélarnar ekki á loft ef þessar hömlur væru ekki á hinni leyfilegu þyngd.“ Er smekkur Bandaríkjamanna eitthvað líkur okkar hér? „Ef við tökum föt til dæmis þá er amerísk fatatíska öðruvísi en okkar. Þar er varla að finna hin hefðbundnu evrópsku föt. Þeir eru hins vegar með þægilegar galla- buxur og skyrtur. Og ég keypti mér bæði slopp og náttföt. Sem dæmi um prísa má fá fína vatter- aða úlpu með loðhettu á innan við tíu þúsund krónur. Ég tók barna- börnin mín, tíu ára strák og fjögra ára stelpu og gallaði þau bæði upp frá toppi til táar og það kostaði allt saman 15 þúsund krónur – þetta er verðlag sem við þekkjum ekki hér. Maður þarf ekki að versla mjög mikið til að greiða upp far- seðilinn ef miðað er við að þessar vörur væru keyptar hér á Íslandi.“ Hvaða bækur varstu að kaupa? „Ég keypti langmest bækur um sagnfræði og reyndar bækur um trúarbrögð, mest um sögu kristn- innar. En svo keypti ég líka slatta af nýjustu skáldsögunum sem hafa komið út þarna. Það eitt það skemmtilegasta í heimi að ganga um bandarískar bókabúðir, þar er allt til og hægt að kaupa innbundna doðranta á undir þúsund krónum. Uppáhaldið mitt er háskólabúðin í Yale. Það ber allt að sama brunni – verðið tekur svo vel á móti manni.“ Verðið tekur svo vel á móti manni! Morgunblaðið/Ómar Fjölskylduheimsókn Ingólfur Margeirsson, rithöfundur, og kona hans heimsóttu dóttur sína og fjölskyldu hennar í New Haven, þar sem uppá- halds verslun Ingólfs er háskólabúðin í Yale.Við hittum að máli yfirmanntollgæslunnar á Suður-nesjum, Kára Gunnlaugsson. „Vissulega sjáum við að það eru margir að fara í verslunarferðir til Bandaríkjanna,“ segir Kári. „Það helgast af því að krónan stendur vel gagnvart dollaranum og það er hægt að fá ansi mikið í Banda- ríkjunum núna fyrir tæplega 800 dollara, en það er sú upphæð sem kom má inn í landið án tolla.Það er eðlilegt að fólk noti tækifærið og versli fyrir jólin. Mest er fólk að kaupa fatnað, rafmagnstæki eru 110 volt í Bandaríkjunum svo það er lítið keypt af þeim. Skartgripi verð- um við lítið varir við. Helst er fólk að kaupa myndavélar og fartölvur. En fólkið sem fer í styttri ferðirnar er sjaldnast að kaupa slíkt. Maður verður var við að hópar, vinkonur og klúbbar, taki sig saman og fari í ferðalög, sameina skemmti- og verslunarferðir, hvort sem fólk er að fara til Evrópu eða Bandaríkj- anna. Fólk er yfirleitt samvisku- samt og skýrir rétt frá þegar það er spurt um innihald farangurs. Hér starfa 22 í almennu deildinni en 13 í fíkniefnadeild. Við höfum réttindi til að bera handjárn og gasefni. Við erum varalögreglulið.“ Hafið þið áhyggjur af fíkniefna- smygli í fatnaði? „Þeir sem smygla þeim efnum reyna allar hugsanlegar aðferðir. Við stöðvum stundum þá sem eru með óvenjulega mikinn farangur. Við útilokum ekki neitt en höfum ekki þá tilfinningu að það sé þarna fólk sem standi í slíku. Þar ræður tilfinningin sem þjálfast upp í löngu starfi. Hundarnir fjórir sem við erum með hafa reynst mjög vel við að þefa upp efni á borð við kannabis, amfetamín og kókaín, talsvert er um að fólk sé með fíkniefni innvort- is en hundarnir finna lyktina eigi að síður.“ Kári er ekki aðeins yfirmað- ur tollgæslu í flugstöð Leifs Eiríks- sonar heldur öllu umdæminu á Reykjanesi, líka til sjávar. Er mesta smyglhættan sjóleiðis? „Í okkar umdæmi teljum við að mesta hættan sé flugleiðis, 95% far- þega erlendis frá koma á flugstöð- ina. En við útilokum ekkert, tugir skipa eru einnig í umdæmi okkar og að sjálfsögðu fylgjumst við grannt með því. Eins hafa vöruflutningar um flugvöllinn aukist og þar höfum við aukið eftirlit mikið með tilliti til hugsanlegs fíkniefnainnflutnings og annars tollskylds varnings.“ Morgunblaðið/Ómar Tollgæsluyfirmenn Kári Gunnlaugsson og Björg Valtýsdóttir hafa augu með innflutningi. Björg telur að meira sé um vörukaup í Bandaríkjunum en áður og Kári segir að enn sé verslað töluvert í Evrópu. Mikið um verslunarferðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.