Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 31
Morgunblaðið/Ómar
Úr sólinni Guðrún Bergsveinsdóttir og Gylfi Jónsson voru í heimsókn hjá
syni sínum í Flórída, þar eru föt ódýr en ætluð fyrir heitari veðráttu en hér.
Við erum að koma frá syniokkar, hann er búsettur íFlórída í Bandaríkjunum,
við erum búin að vera þar í heim-
sókn í sjö vikur,“ segja hjónin
Guðrún Bergsveinsdóttir og Gylfi
Jónsson.
„Maður verslar ekki í Flórída,
vörurnar eru að vísu margfalt
ódýrari en þær bara henta ekki ís-
lenskum aðstæðum. Við keyptum
að vísu jólagjafir, einkum barna-
föt, en við skildum eftir gjafirnar
fyrir barnabörnin í Bandaríkjum
en erum með gjafir fyrir barna-
börnin sem við eigum hér á Ís-
landi.“
Gátuð þið verslað eitthvað í
Boston, þaðan sem vélin var að
koma?
„Nei, við vorum þar bara í eina
nótt en við fórum út að borða, það
var ódýrt. Við sáum að vissulega
voru vörur í verslunargluggum
miklu ódýrari þar en hér. Kulda-
fatnaðurinn virtist á mjög góðu
verði. Ábyggilega var stærsti hlut-
inn sem kom með þessu flugi í
verslunarferðum, töskurnar voru í
það minnsta margar hjá ýmsum.
Það er jú algengt núna að fólki
fari til Bandaríkjanna í versl-
unarferðir en þá er ábyggilega
skynsamlegast að fara t.d. til Bost-
on því þar var hitastigið svipað og
hér. Þess vegna er verið að selja
þar föt sem henta betur á Íslandi.“
Margfalt ódýrara!
Eiríkssonar
Morgunblaðið/Ómar
Komnir í gegn Vesturfarar komnir með farangurinn í gegnum tollinn eftir flugið yfir Atlantshafið.
Já, hann Pottasleikir okkar – hann er svo feiminn,greyið! Þegar þessi feimni sveinn bankar varlega
á dyrnar þann 16. desember og heyrir barnafætur
nálgast með miklu trampi og plampi, þá hverfur hann
sjálfur – svúppsdívúpps – inn um strompinn eða eld-
húsgluggann. Og þegar litlu kjánarnir koma út gap-
andi af undrun og spyrja: „Hver var að banka? Það
er enginn hér,“ þá situr vinurinn inni í eldhúsi og
sleikir með áfergju allt innan úr pottunum. Og svo er
hann horfinn eins og hendi sé veifað. Já, hann Pot-
tasleikir okkar, hann kann á því lagið.
Kertasníkir leysir frá skjóðunni - Anja og Markus Kislich
Pottasleikir – 16. desember
Á leið út úr flugstöðinni er ungog glæsileg kona sem gefurokkur kost á að ræða við sig.
„Ég var að koma úr verslunarferð
og keypti allt mögulegt. Ég keypti
fatnað og ég keypti gulleyrnalokka.
Ég keypti líka heimilisbúsáhöld,
handklæði, rúmföt, þetta var allt á
mjög hagstæðu verði. Ég hugsa að
það muni 75%, í það minnsta á bús-
áhöldum, en ég var að vísu í fremur
ódýrri búð sem seldi þó fína merkja-
vöru. Ég var í þrjár nætur,“ segir
Jóhanna Ingadóttir.
Borgar sig að fara út til að versla?
„Nei, við fórum þrjár vinkonur.
Við fórum ekki bara í verslunarferð,
við fórum líka til að skemmta okkur
og hafa það huggulegt. Við fórum til
dæmis á leiksýningu, í dekurmeð-
ferð, það var partur af þessu. Svo
fórum við út að borða, gistum á
góðu hóteli og sváfum í góðum rúm-
um. Við höfðum það skemmtilegt,
spjölluðum saman og skoðuðum
blöð. Það var virkilega gaman.
Hvernig var veðrið? „Veðurfarið
var mjög svipað og hér. Manni
fannst maður eiginlega vera á Ís-
landi hvað það snertir.“
Eru fötin samkvæmt tísku hér?
„Það er misjafnt, en það er hægt
að fá þarna falleg og ódýr föt í góð-
um merkjum. Ég keypti barnaföt en
ekki svo mikið af fötum.“ Vinkon-
urnar vildu ekki leyfa myndatöku af
sér saman en viðmælandi minn
stillti sér upp.
Höfðum það
huggulegt!
Morgunblaðið/Ómar
Verslunarferð Jóhanna Ingadóttir fór með tveimur vinkonum sínum í
verslunar- og skemmtiferð til Boston og hafði það huggulegt.
Í flugstöð Leifs Ei-ríkssonar vorutveir áhafn-
armeðlimir vélarinnar,
sem var þá rétt lent í
Keflavík, með þeim
fyrstu út. Jón Júlíus
Árnason er flugþjónn.
Ég spurði hann hvort
það væri hans tilfinn-
ing að mjög mikið væri
um að Íslendingar
versluðu í Bandaríkj-
unum núna.
„Við sjáum lítið af
farangri fólksins. Ef
maður fer í búðir þá
verður maður var við
marga Íslendinga þannig að aug-
ljóslega er fólk mikið að versla
þarna. Það er líka skiljanlegt
miðað við gengi dollars og fjár-
ráð Íslendinga undanfarið.“
Verslar þú sjálfur frekar í
Bandaríkjunum en hér heima?
„Já, ég geri það nú. Ég er með
þrjú lítil börn og kaupi föt á þau
en ég held að það sé nokkuð
sama hvað keypt er,
verðmunurinn er mik-
ill.“
Eru þeir áberandi
fleiri sem fara í styttri
ferðir fyrir jól en ella?
„Nei, ég held ekki.
Fólk er farið að ferðast
meira og fer gjarnan í
þriggja og fjögurra
daga ferðir, meira að
segja til Ameríku, þetta
dreifist yfir árið en lík-
lega eru þá ferðir á
þeim árstíma meira
farnar til skemmtunar
en að versla.“
Er einhver munur á
þessum farþegum?
„Nei, Íslendingar eru alltaf
jafnskemmtilegir farþegar og
fara strax í ferðagírinn. Þá mynd-
ast ákveðin stemning um borð.“
Flugþjónn Jón Júlíus Árnason segir verð gott í verslunum
í Bandaríkjunum og kaupir föt þar á börn sín þrjú.
Íslendingar skemmtilegir farþegar
Morgunblaðið/Ómar