Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 32

Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 32
fangelsi 32 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Í fyrsta kafla bókarinnar segir Aron Pálmi frá líðan sinni eftir að dóm- urinn féll yfir honum í Houston í Texas 17. ágúst 1997: N okkrar mínútur eru síðan dómarinn sagði að ég væri dæmdur til tíu ára refsivistar á Unglingaheimilum Texasríkis. Ég skil ekki hvað er að gerast. Ég hef farið í dómsalinn áð- ur og alltaf farið heim aftur strax á eftir. Ég hélt að þetta yrði eins og þá. Þegar ég leit á systur mína vissi ég að þetta yrði öðruvísi. Hún horfði á mig eins og ég væri dáinn. Síðan drógu verðir mig inn í hvítt her- bergi og einn þeirra varð eftir með mér. Það er ekkert hérna inni nema tveir hvítir bekkir, ég og vörðurinn. Hann lætur mig fá appelsínugulan samfesting og segir mér að fara í hann í staðinn fyrir sparifötin mín. Ég veit ekki hvað er á seyði og bíð bara eftir að pabbi komi inn og segi: „Komdu Aron, við erum að fara.“ En ég má ekki fara. Loksins opnast dyrnar að her- berginu og mamma kemur inn! Eitthvað hlýtur að hafa gerst þann- ig að ég geti farið heim! En það er ekki allt eins og það á að vera. Mamma er rauðeygð og þreytuleg. „Elskan mín, við heimsækjum þig þegar þú ert kominn á unglinga- heimilið,“ segir hún og það berg- málar annaðhvort í herberginu eða höfðinu á mér. Áður en ég veit af segir vörðurinn mömmu að fara. Hún tekur fötin mín og ég horfi á eftir henni ganga út. Ég sit áfram í herberginu í lang- an tíma og hugsa um síðustu daga. Ég rifja upp vatnsblöðrustríðið sem ég og vinir mínir fórum í og feluleik- ina og fótboltann. Ég rifja líka upp síðustu dagana heima þegar fjöl- skyldan gat ekki talað saman án þess að rífast út af dómsmálinu. Dyrnar opnast aftur og ég hrekk við. Verðinum er sagt að fara með mig. Hann tekur mig með sér fram á gang og bendir mér á að fara inn í annað herbergi. Þar eru fleiri krakkar á mínum aldri í appels- ínugulum göllum. Við tölum saman en ég gleymi samtölunum strax, því það er eins og hugurinn sé allt ann- ars staðar. Áður en langt um líður koma verðirnir til okkar með hlekki og keðjur sem þeir festa við ökklann á okkur öllum. Við göngum saman hlekkjaðir í einni röð niður stiga og inn í fangaflutningabíl fyrir utan. Ég þarf svo mikið að gráta að ég er að springa. Það eina sem stoppar mig er ráðlegging sem vörðurinn gaf mér áður en hann fór með mig inn í herbergið til hinna krakkanna. „Ekki láta neinn sjá þig gráta.“ Tveir valkostir Aroni Pálma hafði verið sagt að Giddings, eitt af unglingaheimilum Texasríkis, væri hræðilegur staður. Þangað var hann sendur hand- og öklajárnaður og hlekkjaður með keðju um mittið við samfanga sína og samferðamenn síðla hausts 1997. Hliðið að Giddings gefur ekki til kynna að þetta sé fangelsi. Þetta er ekkert líkt því sem ég hafði ímynd- að mér. Staðurinn lítur í rauninni út eins og heimavistarskóli, fyrir utan girðinguna. Ein stór bygging er á svæðinu og fjöldi annarra smærri sem mynda hring í kringum hana. Ég horfi út um gluggann á fanga- flutningabílnum meðan hann rennur í gegnum hliðið og sný mér við til að sjá það lokast. Nokkrir menn koma aðvífandi og renna augunum yfir okkur áður en þeir spjalla við bíl- stjórann. Hann réttir þeim pappíra og annað hlið opnast. Skólalóðin og heimavistin koma í ljós. Við keyrum í hring þar til við komum að bíla- stæði. Bílstjórinn stöðvar fanga- flutningabílinn og segir okkur að undirbúa útgöngu. Dyrnar opnast og við göngum í fylkingu í áttina að dyrunum á byggingu sem er merkt öryggisgæsla. Það heyrist smellur í dyrunum og þegar þær opnast birt- ist okkur unglingafulltrúi. Þetta er um tíu sentímetra þykk stálhurð sem helst lokuð með segulkrafti. Það næsta sem ég sé innandyra er búr hulið vírneti. Þar inni sést móta fyrir manneskju við skrifborð. Fyrir framan búrið er skrifstofa þar sem annar maður situr við skrifborð og talar við strák í appelsínugulum galla. Við setjumst niður og fylgjumst með unglingafulltrúunum róta í dótinu sem við fengum að taka með okkur. Þeir segja að við þurfum engar myndir eða bréf og henda þeim í ruslið. Þeir útskýra að strák- arnir hérna inni myndu bara nota þau gegn okkur. Mér líður eins og þeir séu að svipta mig því síðasta sem ég á eftir; minningum mínum. Kona kemur inn og segist heita Sandy Dressan og vera stuðnings- fulltrúinn okkar. Við eltum hana inn á eins konar lager þar sem hún rétt- ir okkur föt. Ég fæ þrennar galla- buxur, þrjá hvíta boli, þrjá gráa boli, þrennar nærbuxur, þrjú pör af sokkum, tvenna svarta skó, svartan regnjakka, tvennar svartar stutt- buxur og svarta derhúfu. Önnur föt eru bönnuð á skólasvæðinu. Við för- um í nýju fötin og setjum þau gömlu í svartan ruslapoka. Síðan segir hún okkur að elta sig í matsalinn og fá okkur hádegismat með sér. – Ekki tala við neinn. Borðið bara matinn ykkar og gleymið því sem er liðið. Salurinn er þéttsetinn af hátt í tvö hundruð strákum og átta vörð- um. Strákarnir eru allir með svartar derhúfur svo þeir brenni ekki á rök- uðum hausnum þegar þeir fara út í sólina. Við stöndum í röð sem er að- skilin frá salnum með krómhandriði. Maturinn lítur vel út. Það er pítsa og í nógu stórum skömmtum. Auk þess bragðast maturinn mun betur en í Marlin. Ég hugsa með mér að þetta sé eins og himnaríki í sam- anburðinum. Við setjumst niður og áður en ég veit af byrja allir að Fagnaðarfundir Elizabeth Kristbjörg Thomas hittir stóra bróður sinn í einni af hálsmánaðarlegu heimsóknum fjölskyldunnar. Elizabeth missti aldrei úr heimsókn á meðan Aron var í fangelsi. Stoltur Aron Pálmi stoltur af próf- skírteini eftir útskrift úr miðskóla 17. mars árið 2000, á einni bestu stund sinni í fangelsinu. Erfið staða Þrír ungfangar í Marlin settir í biðstöðu með hendur fyrir aft- an bak og hökuna niður á bringu. Börn og unglingar eru skyldug til að halda þessari stöðu og líta ekki upp. Þau eru jafnvel látin standa svona svo klukkustundum skiptir. Velkomnir til Aron Pálmi Ágústsson var nýorðinn 14 ára þegar hann var dæmd- ur til tíu ára vistar í barna- og unglinga- fangelsum Texasríkis. Í bókinni Enginn má sjá mig gráta lýsir hann miskunnarlausri veröld fangelsisins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.