Morgunblaðið - 16.12.2007, Side 34

Morgunblaðið - 16.12.2007, Side 34
kvikmyndir 34 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ N okkrar, „jólamyndir“ verða í bíóunum næstu vikurnar, gamanmyndir með huggulegum boðskap og öllu heila jólaskrautinu, Sveinka og hreininum Rúdolf. Við fáum nokkrar af gæðamyndunum sem verða frumsýndar um allan heim í desember og eiga flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, ekki síst stórfjölskyldan. Nú þarf mesta bíóþjóð heimskringlunnar ekki leng- ur að norpa í biðröðinni, sællar minningar, því sá góði kostur er kominn til sögunnar að kaupa miða á netinu, gefa upp kortanúmerið og prenta þá síðan út. Það getur komið sér vel ef það verða köld og hvít bíó- jól – jafnvel þó að dagar nælonskyrt- unnar séu taldir. Tvær af hinum hefðbundnu jóla- myndum hafa þegar hafið göngu sína og búið að fjalla um þær í Morg- unblaðinu. Fyrst skal nefna til sög- unnar Dugguholufólkið, einu ís- lensku myndina sem er frumsýnd í mánuðinum, en hún er jafnframt fyrsta barna- og fjölskyldumyndin sem birtist á tjaldinu í fjölda ára. Duggholufólkið er í hinum vinsæla ævintýrastíl (fantasy), með ramm- íslensku drauga- og miðilsívafi. Seg- ir af hremmingum ungs borgar- drengs sem er sendur vestur á firði yfir hátíðarnar, og lendir óvænt, með tölvuna í annarri hendinni og gemsann í hinni, í útistöðum við draug aftan úr grárri forneskjunni. Hin jólamyndin er The Bee Mo- vie, teiknimynd um býfluguna Benna. Hann er nýútskrifaður úr skóla og líst hreint ekki á sinn eina framtíðarmöguleika: Framleiða hunang. Myndin er með íslensku og ensku tali og á meðal íslensku leik- aranna eru Gísli Baldur Gíslason, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Atli Rafn Sigurðsson, Harald G. Haralds og Ragnheiður Steindórsdóttir. Frumsýningar helgina 14.-16. desember Alvin og íkornarnir – Alvin & the Chipmunks Smárabíó, Háskólabíó, Sambíóin, Álfabakka, Laugarásbíó og Borg- arbíó, Akureyri Með íslensku og ensku tali. Leikstjóri: Tim Hill. Íslenskar aðalraddir: Víðir Guð- mundsson, Ólafur Sk. Þorvaldz, Jón Svavar Jósefsson og Björgvin Franz Gíslason. Enskar aðalraddir: Jason Lee, Justin Long, David Cross og Came- ron Richardson. Lauflétt, fjölskylduvæn teikni- mynd sem fjallar um tónskáldið Davíð og hvernig líf hans lendir í undarlegri flækju þegar hann kynn- ist þrem syngjandi og dansandi íkornum. Þetta eru þeir bræður Alv- in, sem er fæddur leiðtogi; Símon hinn snjalli og Teódór síhressi. Fljótlega hefst hin besta samvinna með Davíð og íkornunum, sem verða fyrr en varir Ríó tríó dýraríkisins. Kvikmyndahúsagestir geta valið á milli frumútgáfunnar og raddsetn- ingar með íslenskum listamönnum. Fjölskyldugamanmynd. 90 mín.    Fred Clause – Bróðir Sveinka Sambíóin Leikstjóri: David Dobkin. Aðalleikendur: Vince Vaughn, Paul Giamatti, Miranda Richardson og Rachel Weisz. Gamanleikarinn vinsæli, Vice Vaughn, fer með titilhlutverk stóra bróður Nicholasar Claus (Giamatti). Fred hefur löngum staðið í skugg- anum af litla brósa, hann hefur reynt að fylgja góðu fordæmi hans, án sýnilegs árangurs. Nicholas er gæddur flestum þeim kostum sem prýtt geta einn mann, gjafmildur og göfugur en Fred er algjör andstæða valmennisins. Fred vinnur við inn- heimtur og stingur því gjarnan í vas- ann sem hann rukkar. Slíkt fram- ferði getur aðeins komið viðkomandi bak við lás og slá en Nicholas leysir Fred úr fangelsinu – gegn einu skil- yrði. Fred verður að fara með Nicholas á norðurpólinn og vinna af sér skuldina við leikfangasmíðar, en það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Fjölskyldugamanmynd. 115 mín.    Run, Fat Boy, Run – Hlauptu, hlunkur, hlauptu Laugarásbíó, Regnboginn, Borg- arbíó Akureyri. Leikstjóri: David Schwimmer. Að- alleikendur: Simon Pegg, Thandie Newton, Hank Azaria. Bresk grínmynd af gamla skól- anum sem sló rækilega í gegn í heimalandinu þar sem hún sat sem fastast í 4 vikur í efsta sæti vin- sældalistans. Myndin er með róm- antísku ívafi og segir af tilvistar- kreppu fituhlunksins Dennis (Pegg), sem yfirgaf Libby (Newton), unn- ustu sína kasólétta við altarið, til þess eins að uppgötva fimm árum síðar að hún er eina konan sem hann hefur elskað. Þá er Libby komin í sambúð og líst Dennis meinlega á gaurinn. Til að bæta ráð sitt skráir Dennis sig í maraþonhlaup til að sanna fyrir henni að hann getur staðið við orð sín og að hann sé sá eini rétti. Gamanmynd. 95 mín. Helgin 21.-–23. desember Enchanted – Heillaður Sambíóin, Smárabíó Leikstjórar: David Bowers, Sam Fell. Aðalleikarar og ísl. leikraddir: Selma Björns – Giselle (prinsessan) – (á ensku Amy Adams) Atli Rafn, – Robert Philip – (Pat- rick Dempsey) Rúnar Freyr, – Prince Edward – (James Marsden) Hjálmar Hjálmarsson, – Nathan- iel – (Timothy Spall) Ragnheiður Steindórs, – Queen Narissa – (Susan Sarandon) Sögumaður: Julie Andrews. Feykivinsæl Disney-ævintýra- mynd, bæði teiknuð og leikin um Gisellu, prinsessuna fögru sem er brottræk gerð úr teiknaða töfra- landinu hennar Narissu drottningar. Sú er fordæða hin versta sem sendir Gisellu óforvarendis út í hringiðu mannlífsins á Manhattan samtím- ans. Gísella veit ekki sitt rjúkandi ráð í stórborginni, þar er fátt sem minnir á hennar fyrra, litskrúðuga ævintýralíf. En þegar neyðin er stærst birtist hjálpin í draumaprins- inum, sem er mjög svo jarðbundinn skilnaðarmálalögfræðingur. Nú er spurningin: Getur prinsessa úr æv- intýralandi gifst og orðið hamingju- söm alla sína ævidaga í mann- heimum? Gamanmynd. 98 mín.    We Own the Night – Nóttin er okkar Háskólabíó – Regnboginn Leikstjóri: James Gray. Aðalleikendur: Joaquin Phoenix, Mark Wahlberg, Eva Mendes og Robert Duvall. Til að dempa ævintýrablæinn sem hvílir yfir bíóhúsum um hátíðarnar fáum við glænýtt glæpadrama eftir James Gray, en þetta er aðeins önn- ur myndin hans síðan leikstjórinn sló eftirminnilega í gegn með frum- rauninni Little Odessa (’94). Gray heldur sig á Manhattan og við rúss- nesku mafíuna. Bobby (Phoenix) hefur slitið fjölskylduböndin og -hefðina sem lögreglumaður, en bæði faðir hans (Duvall) og bróðir (Wahlberg) eru virtir í hópi laganna varða. Bobby tekur að sér rekstur næturklúbbs í eigu rússneskra aðila, þar fer ýmislegt fram sem hann læt- ur lengi vel fram hjá sér fara og hvert kvöld er samfelldur glaumur og gleði. Myndin gerist 1988 og diskóið í algleyming. En öll partí taka enda og þá er gott að eiga trausta fjölskyldu. Myndin er byggð á sönnum atburðum. Spennumynd. 117 mín. Frumsýningar 2. jóladag The Golden Compass – Gyllti áttavitinn Laugarásbíó, Smárabíó, Regn- boginn, Háskólabíó, Sambíóin Kefla- vík, Borgarbíó Akureyri Leikstjóri Chris Weitz. Aðalleikendur: Nicole Kidman, Daniel Craig, Sam Elliot, Eva Green, Dakota Blue Richards o.fl. Stjörnum prýdd, fræg og dýr ævintýramynd, byggð á margverð- launaðri metsölubók og segir frá fyrsta hlutanum í Myrkraefna- þrennunni. Gyllti áttavitinn er spennandi ævintýrasaga sem gerist í öðrum heimi, hliðstæðum okkar, þar sem sálir fólks taka á sig myndir dýra, talandi birnir heyja stríð, og Sígyptar (Gyptians) og nornir lifa í sátt og samlyndi. Aðalpersónan er stúlkan Lýra (Richards), sem leggur upp í för til að bjarga vini, sem var rænt af dularfullum samtökum sem kallast Aflarar (Gobblers), en snýst upp í epískt ferðalag til að bjarga bæði heimi hennar og okkar. Gyllti áttavitinn minnir að ýmsu leyti á þrí- leikinn kenndan við Hringadróttin og er jólamynd um allan heim. Þess má til gamans geta að gamla kemp- an Ian McShane raddsetur náunga að nafni Ragnar Sturluson(!) For- vitnilegt að fylgjast með hvaða per- sóna býr þar að baki. Ævintýramynd. 113 mín.    I Am Legend – Ég er goðsögn Sambíóin, Háskólabíó Nóttin er okkar Diskóið er í algleymingi þegar Bobby (Joaquin Phoenix) tekur að sér rekstur næturklúbbs í eigu Rússa. Fjölskrúðug bíójól Ég er goðsögn Í tengslum við frumsýningu framtíðartryllisins I Am Legend fengu stílistar myndarinnar ljós- myndir af táknrænum byggingum í örfáum borgum og breyttu þeim í samræmi við útlit myndarinnar. Kvik- myndin gerist nokkrum árum eftir Ragnarök og þannig ímynda þeir sér Hallgrímskirkjuna okkar. Þjóðargersemin 2 Söguhetjan Ben Gates (Nicolas Cage) kemst að hrika- legum leyndarmálum úr glatkistum fortíðarinnar. Senn líður að jólum og úrvalið í kvikmyndahús- unum verður fjölskyldu- vænna en venjulega. Sæ- björn Valdimarsson kynnti sér hvað verður á boðstólum og saknar þess helst að aðeins ein íslensk mynd er frum- sýnd í jólamánuðinum. »Hátíðamyndir fyrir alla aldurshópa og boðskapurinn oftast góður. Bróðir Sveinka Til að forða stóra bróður frá tukthúsinu fer Nicho- las með hann á norðurpólinn til að vinna í leikfangaverksmiðju. Hlauptu, hlunkur, hlauptu Dennis (Simon Pegg) ætl- ar að sanna fyrir ástinni sinni að hann sé sá eini rétti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.