Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 41
stunda með einhverju; ég hefði
ekki treyst mér til þess a.m.k. En
þetta gerðist svona smátt og smátt
að ég þokaðist að fullu í átt til tón-
listarinnar.“
Í nám á ný
Ólafur segir að svo hafi komið
að því loksins að honum hafi
hreinlega fundist hann verða að
læra meira í músík. Og hann fór
til Bandaríkjanna í nám.
„Ég var löngu farin að semja og
skrifa og útsetja og stjórna og allt
það er ég sóttist eftir náminu.
Árni Egils, kollegi minn og mikils-
virtur bassaleikari í Kaliforníu
fann það fyrir mig. Skólinn heitir
Grove School of Music og er í Los
Angeles og er ætlaður tónlist-
armönnum sem vilja bæta við sig.
Honum var þá stýrt af starfandi
músíköntum. Henry Mancini, Nel-
son Riddle og fleiri. Þessir gæjar
voru að kenna mér. Ég fór út og
barðist við það í átta ár að ná
tveimur árum. Því að ég flaug allt-
af heim á milli til að kenna við gít-
arskólann. Eigandi skólans, Dick
Grove varð góður vinur minn, og
hann skildi ekkert í þessum grá-
hærða Íslendingi sem var alltaf að
koma aftur og aftur! En diplóm-
urnar kláraði ég og þær hengdi ég
upp á veggi hjá mér með mikilli
ánægju. Ég var stoltur, ég fann
mig í náminu og hafði óskaplega
gaman af því. Þetta var nú eitt-
hvað annað en menntaskólinn, en
þar hundleiddist mér. Ég hefði
getað brillerað þar, ef ég hefði
lagt þá orku í námið sem ég legg í
tónlistina.“
Ólafur segir að námið hafi gert
sér afskaplega gott.
„Ég valdi kvikmyndatónlist-
arnám einfaldlega af því að ég hef
gaman af henni. Hún getur verið
hryllileg eins og gerist, en af-
skaplega góð þegar þú hittir á
rétt. Þarna úti eru allir vanir
þessu formi einhvern veginn. Þeg-
ar ég kom svo heim voru allir að
finna einhvern amerískan blæ á
tónlistinni minni. Úti var alltaf
sagt við mig: Þú ert greinilegur
Evrópumaður í öllu sem þú gerir!“
Fyrsta myndin sem Ólafur
„skoraði“ hér heima var Benjamín
Dúfa.
„Mér fannst það heppnast vel,
en þar fékk allt að standa. Ég
samdi líka fyrir Perlur og svín en
það var allt klippt í sundur þar.
Ég var ekki ánægður með það. Þá
nær tónlistin ekki að njóta sín
fyllilega. Ég samdi líka fyrir
Myrkrahöfðingjann, en var ekki
skrifaður fyrir henni samkvæmt
samningi.“
Blaðamaður veltir í framhaldinu
fyrir sér hvort að gítarskólinn,
sem Óli Gaukur er hvað þekkt-
astur fyrir á meðal almennings, sé
þá ekki hinn fullkomna samþætt-
ing menntamannsins og tónlistar-
mannsins?
„Það getur vel verið,“ svarar
Ólafur snögglega. „Það getur vel
verið. Ég þarf alltaf að vera að
læra. Ég fór t.d. einn vetur til
Atla Heimis og lærði hjá honum
tónsmíðar. Samdi þar strengja-
kvartett. Fór líka í tón- og hljóm-
fræði til Jóns Ásgeirssonar. Þetta
eru menn sem hafa gert mér gott
[…] ég einhvern veginn þráði allt-
af menntun. Þar kom að ég var
búinn að spila og spila og spila. Og
spila og spila og spila og spila. Þar
kom, að mér fannst eins og það
væri sama hvort ég spilaði vel eða
illa. Ég var orðinn gramur. Það
vissi enginn hvort ég var að spila
vel eða illa, það var alltaf sagt að
gítarleikur Ólafs Gauks væri frá-
bær á meðan ég vissi sjálfur að ég
hafði spilað eins og fjandinn sjálf-
ur illa. Þetta hafði áhrif á mig. Ég
sá að þetta gekk ekki lengur og ég
bara varð að finna einhverja leið
út úr þessu. Opna eitthvert hlið.
Það gerðist með þessu kvikmynda-
námi.“
Brotist frá forminu
Það er ýmislegt í farvatninu hjá
Ólafi. Einhverjar plötur og kvik-
mynd sem hann vill ekki nefna að
svo stöddu.
„Ég er alveg til í fleiri plötur.
Sjáum hvað setur. Svo er ég auð-
vitað alltaf að kenna og sé enga
ástæðu til að hætta því.“
Og það er kannski klisjukennt
að segja það, en Ólafur man svo
sannarlega tímana tvenna í tónlist,
staðhæfing sem hann tekur heils-
hugar undir, brosandi í kampinn.
„Maður fylgist með og ég hef
aldrei upplifað meiri gerjun í tón-
list en einmitt í dag. Það er ekki
allt sem manni fellur við en það er
svoleiðis í tónlistinni að ef það eru
ekki einhverjir sem eru að reyna
að brjótast út úr forminu með eitt-
hvað nýtt og öðruvísi erum við í
slæmum málum. Þetta hefur áhrif
á heildina og almenna þróun tón-
listarinnar, hvort sem þessar til-
teknu þreifingar lifa eitthvað eða
ekki. Það á ekki að hemja tónlist-
ina. Það er mjög mikilvægt. Allir
þessir útúrdúrar, uppreisn ef þú
vilt, eru algerlega nauðsynlegir út
af fyrir sig. Mér er til efs að fjór-
tán ára krakkar í hljómsveitum
standi undir heilsíðu í Morg-
unblaðinu. Það getur samt vel ver-
ið. Það er möguleiki. En hann er
voðalega rýr. En þetta kyndir allt-
af undir áhuga annarra og hvetur
fólk áfram. Þannig að ég sætti mig
við það á þeim forsendum. Mér
finnst margt hundleiðinlegt sem er
í gangi en sumt er alveg dásam-
legt. Þetta skiptist í tvö horn hjá
mér. Mér verður allt í einu hugsað
til vögguvísu Brahms, bara af því
að ég var að kenna hana á gítar í
gær. Þetta er meistaraverk. Örfáir
tónar […] og þá fær maður kipp í
hjartað. En ég myndi segja að
mér þyki ca helmingurinn af tón-
list sem er til alveg hundleið-
inlegur. En skemmtilegi helming-
urinn er svo skemmtilegur að
maður ætti ekki að vera að eyða
púðri í verri helminginn.“
» Það er ýmislegt í
farvatninu hjá Ólafi.
Einhverjar plötur og
kvikmynd sem hann
vill ekki nefna
að svo stöddu.
Fyrir veiðimanninn
í fjölskyldunni þinni
Krókhálsi 5 - Sími 517 8050
- Sportbudin.is -
Síðumúla 8 - Sími 568 8410
- Veidihornid.is -
Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760
- Veidimadurinn.is -
Munið vinsælu gjafabréfin okkar
ProLogic skotveiðijakki.
Vatnsheldur og hlýr jakki með útöndun.
Áralöng góð reynsla á Íslandi.
Verð aðeins 23.900
ProLogic Thermo
skotveiðihanskar.
Vatnsheldir og hlýir. Verð aðeins 2.995.
Einnig úr neopren. Verð aðeins 2.295.
ProLogic skór.
Vatnsheldir og hlýir skór með góðri útöndun.
3 gerðir. Bæjarins besta verð.
Aðeins frá 9.995.
Ameristep rúllubaggi.
Vinsælasta felubirgið á markaðnum.
Hvergi betra verð. Aðeins 16.880.
Beretta
skotveiðibakpoki með
byssufestingu. Góður
poki í alla skotveiði. Stillanlegar
mittis, brjóst og axlarólar. Góð
og aðgengileg hólf. Vatnsheld
veðurhlíf fylgir.
Frábært verð. Aðeins 13.495.
Vandað hreinsisett
fyrir haglabyssur.
Burstar, stöng, olía og fleira í góðum kassa.
Verð aðeins 4.880.
Ron Thompson
Aquasafe vöðlupakki.
Góðar öndunarvöðlur og skór.
Fullt verð 28.990. Jólatilboð aðeins 19.995
Simms Freestone veiðijakki.
Vatnsheldur með útöndun.
Verð aðeins 19.900
Ron Thompson veiðijakki.
Vatnsheldur með útöndun.
Fullt verð 12.900. Jólatilboð aðeins 9.995.
Nýtt – NRS flotveiðivesti.
Sérhönnuð flotvesti fyrir veiðimenn.
Örugg vesti í alla veiði.
Verð aðeins 12.980.
Sage fluguveiðipakki. Fli og
Launch 4ra hluta stöng í hólk. Gott LA hjól
og RIO flugulína. Lífstíðarábyrgð frá framleiðanda
á stöng. Frábært verð á alvöru fluguveiðipakka.
Aðeins frá 34.900.
Veiðiflugur Íslands.
Biblía fluguhnýtarans. Bók sem allir
áhugamenn um fluguveiði verða að eiga.
Verð aðeins 3.995.
Ron Thompson vöðlutaska.
Nauðsynleg taska fyrir alla veiðimenn
sem eiga vöðlur. Vatnsheldur botn.
Motta til að standa á þegar farið er í og úr.
Verð aðeins 3.995.
Scierra Explorer veiðitaska.
Afar vönduð og sterk veiðitaska undir
allan veiðibúnaðinn. Vatnsheldur botn.
Verð aðeins 6.995.
Gerviandasett.
12 stokkendur; sofandi, vakandi og kafandi.
Góður bakpoki, bönd og blýsökkur fylgja.
Frábært verð. Aðeins 8.995 fyrir allt þetta.
Lærðu að hnýta silungaflugur og
Lærðu að hnýta laxaflugur.
Fluguhnýtinganámskeið á íslensku á tveim DVD
diskum. Aðeins 2.995 hvor diskur.
Veniard Premium
fluguhnýtingasett.
Einhver vinsælustu fluguhnýtingasettin á mark-
aðnum. Fluguhnýtingaverkfæri og troðfullur pakki
af vönduðu hnýtingaefni. Verð aðeins 10.900
Simms Freestone vöðlupakki.
Góðar öndunarvöðlur og skór.
Fullt verð 32.800. Jólatilboð aðeins 25.900
Rjúpnaveiðivesti.
Nauðsynleg í rjúpnaveiðina. Margir vasar fyrir
veiðina, GPS, GSM, veiðikortið, nestið og fleira.
Fullt verð 7.990. Jólatilboð aðeins 6.490.-
Beretta PacLite skotveiðigalli og
ókeypis Garmin Etrex GPS tæki.
Algjörlega vatnsheldur, þunnur Gore-Tex galli,
frábær á rjúpu, hreindýr eða heiðagæsina.
Garmin Etrex GPS tæki fylgir ókeypis.
Fullt verð 61.800. Tilboð til jóla aðeins 39.900.