Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 43

Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 43 Flest okkar fóstursystkinanna getum státað okkur af því að hafa lokið einhverju námi. Meðal okkar finnast rafvirki, smiður, búfræð- ingur, múrari, blikksmiður, bóka- safnsfræðingur, viðskiptafræð- ingur, kerfisfræðingur og heimspekingur. Allir sem þekkja Kristján á Kumbaravogi vita hvern mann hann hefur að geyma. Hann er ákveðinn, fastur á sínu og með skýrar línur í réttu og röngu. Hann er þekktur meðal margra af verk- um sínum. Margir hafa leitað til hans gegnum árin til að fá góð ráð eða hjálp á hvern þann hátt sem honum hefur auðnast að veita. Fósturbörnin hafa oft leitað til hans og hefur hann þá hjálpað þeim um vinnu, húsnæði eða jafn- vel tekið þau inn á heimilið til sín. Í einstaka tilvikum hafa þeir sem lent hafa í tímabundnum vanda, komið beint frá meðferðarstofn- unum og notið skjóls hjá honum. Það er sársaukafullt að þurfa að vera tekinn frá foreldrum sínum ungur að árum. Slíkt skilur óum- flýjanlega eftir sig erfiðar minn- ingar fyrir bæði börnin og foreldr- ana. Hvaða foreldri vill ekki reynast börnum sínum vel og veita því gott uppeldi? Og hvaða foreldri harmar ekki ef veikindi eða óregla hafa komið í veg fyrir að það gæti rækt foreldrahlutverk sitt. Það hlýtur einnig að vera stór ákvörðun hjá fólki að taka að sér börn ann- arra, reyna að búa þeim kærleiks- ríkt heimili og veita þeim fullan að- gang að heimilinu dag og nótt, allan ársins hring. Þegar horft er til baka er nauðsynlegt að forðast einfaldanir og ásakanir byggðar á þeim. Lífið er flókið, ekki síst þar sem erfiðleikar eru til staðar. Kumbaravogur „Það var alltaf líf og fjör á Kumbaravogi og margar hefðir sem sköpuðust.“ Höfundur er kerfisfræðingur. Ármúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.is. Fæst hjá söluaðilum um land allt. Með Logitech fjarstýringunni líður þér eins og þú hafir öll völd í hendi þér. Þú stjórnar öllum tækjum heimilisins með einni fjarstýringu og með aðeins einum takka setur þú heilu aðgerðirnar af stað. Stingdu öllum öðrum fjarstýringum ofan í skúffu, fáðu þér Logitech Harmony. Logitech Harmony fjarstýringar í miklu úrvali. Verð frá 24.995 kr. AÐ STJÓRNA Þú ætlar að horfa á flakkarann - einn takki Það kviknar á flakkaranum, sjónvarpið stillist sjálfkrafa inn á réttu rásina. Þú flakkar svo eftir það á Logitech fjarstýringunni. og allir innvígðir mega vita er skollin á kreppa á verðbréfamarkaðinum en þótt hún hafi grasserað um skeið hefur það engin áhrif haft á uppboðsmarkaðinn hvað myndverk snertir, síður en svo. Þetta mikla ólíkindaár hvað varðar uppgang sí- gildra miðla í myndlist úti í heimi ásamt framrás nýrra hugmynda, sýnist ætla að hámarka sig nú í árslok og í augnablikinu virðist enginn búast við umsnúningi, engar úrtöluspár á lofti nema kannski frá öng- strætum réttrúnaðar hvar menn sætta sig ekki við uppgang málverksins. Rannsókn- arefni hve þessi þróun hefur verið lengi að ná hingað á útskerið, ráðamenn og fjöl- miðlar seinir að átta sig, myndlistin ennþá aftarlega á merinni eins og menn orða það. Myndlistarmenn virðast sem fyrreiga að lifa á heiðrinum einum oghér hafa engin jarðföst rök dugað hingað til, um leið er þjóðin að drukkna í bókaflóði og útgáfu tóndiska og í þeim pa- taldri er fátt gefið nema eitthvað rati til baka í lófana. Hjartnæmt að eiga svona marga snillinga á hvorum tveggja vett- vanginum en af og til skal minnast að oflof er háð, en um leið brugðið fæti við fram- gang málverksins. Mikilvægt að menn gleymi ekki grjótharðri veltunni af þessum látum hér sem erlendis, einnig að lista- menn eru engar afætur á þjóðfélaginu og hafa aldrei verið nema á vettvangi lágkúr- unnar. Skýtur skökku við að heiðurslaun lista- manna ná vart örorku- eða ellilaunum og eru einungis brot af því sem nefndarmenn skammta sjálfum sér í eftirlaun. Í útland- inu dirfist enginn óvitlaus að kenna slíkar sporslur nánasar við ofurheiður, þær skulu einungis meðteknar sem viðurkenning á þjóðnýtu starfi viðkomandi sem þakka ber fyrir. Og þegar menn á útskerinu eru farn- ir að blanda lífeyrisréttindum við verðleika eða grípa til kynja og kvótakerfa er botn- inum náð. Hér síður spurn um hag eða kynferði öllu heldur vikt og mikið er þessi þrýstingur utan úr bæ sem sagður er vera á nefndarmenn aumkunarverður, segir helst að í hvorum tveggja herbúðum leiði blindir blinda. En skyldi ekki mál málanna að sannir áhugamenn um listir, þekktir að víðsýni og hlutlægni, úthluti þessum aurum í stað þröngsýnna stjórnmálamanna sem sumir vilja bersýnilega allan stuðning við skap- andi athafnir út í hafsauga. Innflutt glit- góss og eftirgerðir á markaði fáránleikans mál málanna. Nú er ég komin út í orðræður sem ég vildi varast eins og segir í upphafi, hef helst þá afsökun hve andvaraleysið og ógagnsæið er ennþá yfirþyrmandi, umræð- ur viðlíka litlar og til að mynda er veita skal forstöðumannsstöður við listasöfnin, pólitíski hráskinnaleikurinn og moldvörp- ustarfsemin hins vegar á fullu. Í vin- áttuvæðingu, baktjaldamakki og undirferli erum við hins vegar líkast til heimsmeist- arar. Ef einhver listsýning í borgarlandinu er í takt við upphafna gleði jólanna er það framkvæmdin „Falinn Fjársjóður“ í Aust- ursal Kjarvalsstaða, og er hér um algjöran umsnúning að ræða. Í fyrsta skipti í háa herrans tíð sér maður fólk á innlendri sam- sýningu skoða myndverk vel, lengi og af áhuga enda um einstaklega fjölþætta sýn- ingu að ræða. Ættu söfnin að draga lær- dóm af þessu framtaki sem gefur allt aðra og opnari innsýn í ferska íslenska myndlist en þá einsýnu og sjálfhverfu söguskoðun sem boðið hefur verið upp á undanfarin ár, tæmt hefur alla mikils háttar sýningarsali og komið hverri veitingasölunni af annarri út úr húsi. Þótt aðsókn á listasöfn sé trúlegasömuleiðis í lágmarki hjá hinumNorðurlandaþjóðunum, er þessu öðruvísi farið dálítið sunnar í álfunni, til að mynda múgur og margmenni á listasöfnum Parísarborgar og ósjaldan biðraðir fyrir ut- an, og hér um Frakka sjálfa að ræða en ekki ferðalanga eins og á sumrin, þá flýja þeir sem geta borgina. Svipað um New York en þar eru söfnin líkust aðaljárn- brautarstöðvum allan ársins hring, og stækkanir víða á dagskrá. Á þessum stöð- um gengur fólk ekki með hangandi hendi að hlutunum og tekur svo æðisköst í lokin sem er íslenska leiðin, heldur undirbýr og skipuleggur framkvæmdir af stakri ná- kvæmni þar sem ekkert sem vægi hefur skal afrækt. Óvenju forvitnilegt og heillegt úrval sýn- inga í borgarlandinu um þessi jól, og auk fyrrnefndrar sýningar að Kjarvalsstöðum, má nefna yfirlit verka Kristjáns Davíðs- sonar síðastliðin þrjátíu ár í Listasafni Ís- lands svo og sýningu úr einkasafni Mark- úsar Ívarssonar. Og undanfarið hefur fjölþætt norræn verðlaunasýning portrett- mynda verið uppi í Hafnarborg, sem senn fer að ljúka. Markús Ívarsson var stór- merkur safnari listaverka og gott mun fé- litlum íslenskum málurum hafa fundist sjá hann koma hjólandi, enn betra fjarlægjast með málverk á bögglabrettinu en þeir sjálf- ir óvænta aura í lúkunum. Maður segir bara; Guð blessi þennan mann, sem mun mikilvirkastur safnari framsækinna mynd- verka á fjórða áratugnum og var hér í meira lagi myndglöggur. Stórskrítið að ekki skuli upplýsingar um hann í Íslensku alfræðabókinni. Það eru með sanni ýmsir faldir fjár-sjóðir í íslenskri myndlist og einnþeirra er olíumálverk Eyjólfs Ey- fells af Vorsabæjarhjáleigu frá 1906, sem er hiklaust ein af perlum íslenskrar mynd- listar frá upphafi aldarinnar. Svona gat Eyjólfur málað og það kallar á frekari leit og í kjölfarið vandaða bók um listamann- inn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.