Morgunblaðið - 16.12.2007, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 16.12.2007, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 45 merki þessa ástands og þess gætir vissulega í bók- menntunum líka. Um 800 bókatitlar líta dagsins ljós þetta árið og gefur augaleið að bróðurparturinn muni fara forgörðum í því flóði. Þeir sem standa menningarvaktina eru einskonar björgunarsveit í stórslysamynd – að gera lýðum ljóst hvað sé nýti- legast á ferðinni – en líka að freista þess að halda á floti því sem kom úr í fyrra og hittiðfyrra og þar áð- ur“. Á málþinginu benti Pétur á hættuna af því að þeir sem stunduðu listsköpun nú til dags fyndu ekki áhorfendur sína, lesendur og hlustendur. Framboð- ið væri orðið svo mikið að enginn gæti átt slíka við- takendur vísa. Hann notaði orðið „slembimiðlun“ um sambandið á milli listamannsins og listneytand- ans. Líkti hlutverki gagnrýnandans við „melting- arfæri neytandans“ sem túlka má á þann hátt að án gagnrýnandans geti neytandinn tæpast nærst á listinni vegna gríðalegs magnsins sem hann stend- ur frammi fyrir. Það virðist ljóst að í samfélagi þar sem framboðið er jafnmikið og raun ber vitni getur fjölmiðill ekki einvörðungu stundað kynningarstarf á sviði menn- ingar. Með því væri einungis bætt í auglýsinga- magnið sem Pétur nefnir. Fjölmiðill sem lætur sig menninguna varða hlýtur að þurfa að standa vörð um fleiri sjónarmið en þeirra sem þurfa á kynningu að halda. Með sjálfstæðum og áhugaverðum efn- istökum og greiningu á menningunni. Gagnrýni er einmitt eitt þeirra tækja sem hægt er beita til slíkr- ar greiningar. Vantar tilfinnanlega fleiri raddir L íkt og Pétur Gunnarsson sem telur eftirsóknarverðustu gagnrýnina vera samtal við verkið – stækkun þess og útvíkkun, kallaði myndlist- armaðurinn Unnar Örn eftir svör- um um hvort verkið gæti haldið áfram að lifa eftir gagnrýnina, hvort „samtalið“ héldi áfram. Blogg telur Unnar Örn aldrei geta komið í stað gagnrýni, en hugsanlega geta verið þátt í samtalinu. Hann sagði gagnrýnandann setja sig í ákveðin spor – sem eru þá hans persónulegu forsendur – en síðan þarf að taka við kyndlinum og halda áfram að kryfja listina. Þessi krafa Unnars Arnar er afar mikilvæg á tímum þar sem hug- myndafræðilegir straumar hafa í raun ómerkt „endanlega“ dóma. Tiltekin skoðun gagnrýnandans er afar sjaldan hinn endanlegi mælikvarði á listaverk – ekki einu sinni þótt margir séu honum sammála og samsami sig skoðunum hans. Það er á ábyrgð allra þeirra afla er móta samfélagsumræðuna að tryggja grundvöll til samræðna um listina og menningar- umhverfið. Á Íslandi er það því miður svo að list- greinarnar búa við mjög ólíkar aðstæður hvað varð- veislu á sögu þeirra varðar. Þótt íslensk bókmenntasaga hafi verið skráð (og um hana þrátt- að) eru hvorki til heildstæð rit yfir sögu myndistar, tónlistar eða leiklistar í landinu – einungis brot eða hlutar hafa verið skráð fram að þessu. Eins og margir urðu til að nefna á málþinginu þjónar samfelld gagnrýni á borð við þá sem haldið hefur verið úti í Morgunblaðinu um áratugi því enn mikilvægara hlutverki en ella – oft á tíðum sem eina skráða heimildin um tiltekinn viðburð ekki síst eftir að aðrir fjölmiðlar hættu að halda úti gagnrýni nema í mjög litlum mæli. Þessi staða er menningar- lífinu skaðleg. Hún er heldur engin óskastaða fyrir fjölmiðil á borð við Morgunblaðið – það er ekki auð- velt að vera eina röddin sem hljómar á þessu sviði, mun betra er að búa við samkeppni og eðlilegt sam- tal við aðra fjölmiðla. Hvað þennan þátt varðar hefur því orðið mikil afturför í íslensku samfélagi. Hjálmar Sveinsson benti á að við rannsókn hans á höfundarverki Elías- ar Marar, hefði hann t.d. getað lesið dóma frá 6. og 7. áratug síðustu aldar í mörgum blöðum. Sú sýn er hann fékk á viðtökur verka Elíasar var margradda. Í dag er slík orðræða nánast eintóna, þar sem lítið er um dóma í öðrum fjölmiðlum en Morgunblaðinu – Ríkisútvarpið sinnir reyndar tilteknum þáttum vel en öðrum síður. Umfang myndlistar samtímans er til að mynda nánast einvörðungu skráð á síðum Morgunblaðsins í gegnum gagnrýni, sem hlýtur að vera slæmt fyrir komandi kynslóðir – ekki vegna þess að gagnrýni blaðsins standi ekki undir nafni, heldur vegna þess að einungis ein skoðun stendur eftir sem vitnisburður til framtíðar. Gestur úr sal tók undir orð Hjálmars og benti á að nú stæði yfir ritun sögu íslenskrar myndlistar og þar væru dóm- ar ómetanleg heimild. En þegar fram í sækti færi röddum að fækka sem væri afleitt. Birta Guðjónsdóttir, myndlistarmaður og sýn- ingarstjóri, varpaði fram þeirri spurningu hvort slík eintóna skrásetningi gæti ekki verið orðin listinni „hættuleg“ – og víst er að sú spurning er bæði gild og umhugsunarverð. Hvaða gildi skipta máli? E n það kostar peninga að halda úti menningarpólitík hvar svo sem það er gert. Og oft virðist sem mikilvægi menningarpólitískrar stefnumótunar sé vanmetið – jafn- vel nú þegar þjóðin hefur efni á að vera menningarleg. Ólíkt því sem á við um þau lönd er Íslendingar líkja sér gjarnan við er saga upp- byggingar íslenskra menningarstofnana stutt. Saga uppbyggingar markaðstækifæra á sviði menningar og einkareksturs í heimi listgreina er enn styttri. Það er því einstaklega ánægjulegt að heyra rödd, sem um langt skeið var ein þeirra er hvað oftast var hlerað eftir í viðskiptalífinu, segja skoðun sína á listum og menningu. Sigurður Gísli Pálmason las þjóðinni pistilinn í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu sl. fimmtudag, í tilefni af því hann hefur nú keypt hlut í myndlistargalleríinu i8, og sagði: „Ég er þeirra skoðunar að listir og menning skipti miklu máli. Hvaða gildi skipta máli þegar fólk horfir til baka eftir 100 ár. Það verða ekki eingöngu hinir hagrænu mælikvarðar sem verða tíndir til, einnig listir, svo sem myndlist, tónlist og skáldverk. Menninguna munu afkomendur okkar skoða og leggja mælistikuna á, ekki síður en afkomutölurnar. Til eru forystumenn í atvinnulífinu sem geta ekki beðið eftir því að við slátrum krónunni, gjaldmiðl- inum okkar, og forstjórar í útrás kvarta yfir því að þurfa að burðast með íslenskuna. Ég undrast svona ummæli. Ein af ástæðum þess að okkur gengur eins vel og raun ber vitni er sú að við tölum íslensku. Við eigum ævafornt tungumál sem ristir djúpt og við eigum okkar gjaldmiðil og erum sjálfstæð þjóð. Það gerir okkur sérstök þegar við erum að hasla okkur völl erlendis. Um leið og við hættum að tala íslensku og förum að nota evru höfum við ekki sérstöðu leng- ur. Við töpum mikilvægum parti af okkur sjálfum“. Svo mörg voru þau orð og þau eru svo sannarlega í tíma töluð. Það má ekki fara svo að hlutverk menn- ingar í samfélaginu verði ekki metið að verðleikum loksins þegar þjóðin hefur komist í álnir. Vægi menningarinnar og virðing gagnvart henni ætti að aukast eftir því sem þjóðin stendur betur að vígi í lífsbaráttunni. Það er til lítils að efnast ef fólk hefur síðan hvorki tíma né döngun til að standa vörð um þau gildi sem gera fólk að þjóð, menningu að þjóð- ararfi og þjóðararfinn að því sem aldrei verðu metið til fjár. Eða eins og Pétur Gunnarsson orðar það í pistli sínum: „Fyrir höndum eru afgerandi breyt- ingar á lifnaðarháttum okkar og væntanlega á sam- skiptaháttum líka. Hvort við tekur sælutíð í eilífð- inni eins og dómsdagur miðaldarkristninnar lofaði skal ósagt látið. En vonandi verður þá bæði skrifað og spilað og leikið og málað og ort“. » Þessi staða er menningarlífinu skaðleg. Hún er heldur eng-in óskastaða fyrir fjölmiðil á borð við Morgunblaðið – það er ekki auðvelt að vera eina röddin sem hljómar á þessu sviði, mun betra er að búa við samkeppni og eðlilegt samtal við aðra fjöl- miðla. rbréf Morgunblaðið/KristinnRýnt til gagns „Niðurstaða fundarins var í meginatriðum sú að gagnrýni væri bráðnauðsynleg, hana mætti alls ekki leggja niður, heldur ætti að efla hana.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.