Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 49

Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 49 SNORRI Sigfús Birgisson hefur um árabil starfað í Reykjavík sem tónskáld, píanóleikari, kennari og stjórnandi. Tónverk hans spanna breitt svið, allt frá raftónlist til sinfónískra verka. Á geisla- plötunni Hear Now My Heart leikur Snorri útsetningar sín- ar af 23 íslensk- um þjóðlögum á píanó, sem hann gerði á árunum 2005-2006. Útsetningarnar eru mjög margbreytilegar, sumar sára- einfaldar, aðrar þyngri, sumar óm- blíðari, aðrar stríðari. Þó eiga þær það allar sameiginlegt að vera gull- fallegar. Snorri er yndislega frjáls í nálgun sinni og virðist ekki vera bundinn neinum takmörkunum um að útsetja frekar á einn veg eða annan. Hann leyfir sér að vera framúrstefnulegur, rómantískur, naívur, flókinn, innhverfur eða út- hverfur og svo mætti lengi telja, allt eftir því hvað lagstúfurinn kall- ar á í honum. Samt sem áður er ljúfur heildarsvipur á disknum, sem felst að sjálfsögðu í þjóðlögunum sjálfum en einnig að miklu leyti í flutningi Snorra, sem er mjög inni- legur og yfirvegaður í senn, svo maður skynjar alltumvefjandi ná- vist tónskáldsins í tónlistinni. Hear Now My Heart er sérlega vandaður hljómdiskur að efni og umgjörð og er það von mín að hann nái til sem flestra. Alltumvefjandi þjóðlög TÓNLIST Geisladiskur Snorri Sigfús Birgisson leikur íslensk þjóðlög í eigin útsetningum á píanó. Hljóðritun: Pétur Grétarsson. Stafræn úr- vinnsla: Snorri Sigfús Birgisson. Eft- irvinnsla: Sveinn Kjartansson. Hljóðritað í Von, Efstaleiti 7, Reykjavík (2006). Mynd á forsíðu: Kristinn Guðbrandur Harðarson. Grafísk hönnun: Magnús Val- ur Pálsson. Steinabær gefur út. Sól- arfilma dreifir. Snorri Sigfús Birgisson – Hear Now My Heart / Heyrðu nú hjartans málið mitt bbbbn Ólöf Helga Einarsdóttir Snorri Sigfús Birgisson Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ÞETTA eru tvö íslensk verk, „Far- vegir“ eftir Lárus H. Grímsson og „Sýsla“ eftir Ríkharð Örn Pálsson. Svo er þarna bandarískur höf- undur, Samuel Barber, sónata eftir hann og rússneskt verk, Prokofiev sónata nr. 7,“ segir Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari um ein- leiksplötu sína nýútkomna, sem er án titils. Þorsteinn hefur áður sent frá sér einleiksplötuna Píanó, lék þar ein- leik með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands, Rachmaninovkonsert nr. 2 í c-moll og Rapsódíu um stef op. 43 eftir Paganini. Hvers vegna urðu þessi verk fyr- ir valinu sem þú leikur á nýju plöt- unni? „Íslensku verkin tvö voru skrifuð fyrir mig og þau höfðuðu bæði til mín þannig að ég æfði þau þónokk- uð stíft, langaði að gera þetta vel,“ svarar Þorsteinn. Verk Barbers sé eitt af stærstu einleiksverkum fyrir píanó frá miðri 20. öld og það sama megi segja um verk Prokofievs, úr austurátt. Sónötur Prokofievs séu kallaðar stríðssónöturnar, nr. 6, 7 og 8, þær hafi hann samið í seinni heimsstyrjöldinni. „Öll þessi músík er frekar stór í sniðum, má segja, 20. aldar tónlist. Reynir á þennan breiða, rússneska skóla,“ segir Þorsteinn. Ef finna eigi þráð sem sameini verkin á plöt- unni þá sé það hinn stóri, rússneski skóli. Austur, vestur og svo Ísland mitt á milli. Mitt á milli Moskvu og Washington, eins og Eiríkur Hauks- son söng hér um árið. Þorsteinn hefur komið víða fram á tónleikum, m.a. í Hvíta húsinu í Washington og Gorky park í Moskvu. Hann segir það hafa tekið nokkuð langan tíma að koma nýja disknum út; erfið fæðing. Hann er hæstánægður með afkvæmið. Austur, vestur og þar á milli Mitt á milli Moskvu og Washington Þorsteinn Gauti Sigurðsson leikur á píanó í Ými árið 2003. VERÐ, GÆÐI OG PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA Vinnufatabúðin Laugavegi s: 551 5425 Jólasýning Smiðjunnar Ármúla 36 • 108 Reykjavík • Sími 568 3890 SMIÐJAN Listhús - Innrömmun Opið alla virka daga frá kl. 10-18. Opið í dag, sunnudag,frá kl. 14-18 Þorvaldur Skúlason Jón StefánssonHafsteinn Austmann Kristján Davíðsson Fyrir fjársterkan aðila leitum við að verkum eftir Svavar Guðnason Einnig verk eftir Kjarval Tolla Jón Engilberts Sigurbjörn Jónsson Mugg Guðbjörgu Lind Svavar Guðnason Pétur Gaut Jóhannes Geir Valgarð Gunnarsson Gunnlaug Blöndal Þiðrik Hansson M b l 9 48 37 8 Norrræna húsið |Sturlugötu 5 |101 Reykjavík |Sími 551 7030 |Fax 552 6476 ||www.nordice.is nh@nordice.is Arkitektasamkeppni - Sumarskáli við Norræna húsið Norræna húsið minnir á samkeppni Norræna hússins í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um hönnun á sumarskála eða “pavilion”. Meginmarkmið samkeppninnar er að framkalla tillögur í háum gæðaflokki að sýningarskála sem standa á í 4 mánuði fyrir framan Norræna húsið, sumarið 2008. Með skálanum verður lögð áhersla á að kynna og skapa kennileiti fyrir nútíma íslenska byggingalist á alþjóðlegum vettvangi. Keppnislýsing fæst á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, Engjateig 9, 2. hæð, 105 Reykjavík á milli kl. 9.00 og 13.00 virka daga. Einnig er hægt að nálgast keppnislýsinguna á heimasíðu Arkitektafélagsins: og heimasíðu Norræna hússins: Önnur samkeppnisgögn eru afhent gegn skilatryggingu að upphæð kr. 5.000,- á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, þar sem keppendur geta skráð sig til þátttöku. Nánari upplýsingar er að finna í keppnislýsingu. Bent er á að þátttökuskilyrðum hefur verið breytt og er samkeppnin opin öllum arkitektum og arkitektanemum 40 ára og yngri, þ.e.a.s. fæddum 1968 eða síðar. Skilafrestur er til 10. janúar 2008. Veitt verða verðlaun að heildarfjárhæð kr. 1.500.000,- www.ai.is. www.nordice.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.